Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 21
METÞÁTTTAKA var á námskeiði í
gerð viðskiptaáætlana sem Þjóðar-
átak um nýsköpun efndi til í Kefla-
vík í gær, í samvinnu við Reykja-
nesbæ. Um sjötíu þátttakendur sátu
undir þriggja tíma fyrirlestri sem
G. Ágúst Pétursson verkefnisstjóri
flutti.
Ágúst sagði fyrir námskeiðið að
þátttaka í námskeiðum verkefnisins
í ár væri meiri en áður hefði þekkst
en hann heldur tíu slík námskeið
um land allt. Þó væri ljóst að þátt-
takan á Suðurnesjum væri sú mesta
á námskeið utan Reykjavíkur og
meira að segja meiri en oft væri á
námskeiðum á höfuðborgarsvæð-
inu.
Fyrirlesturinn var haldinn í
fundarsal Reykjanesbæjar í Kjarna.
Var með naumindum að salurinn
rúmaði hópinn og þurfti að smala
stólum af skrifstofum Reykjanes-
bæjar á hæðinni til þess að allir
þátttakendur fengju sæti.
Á námskeiðinu fór G. Ágúst yfir
helstu atriði sem þarf að hyggja að
við gerð viðskiptaáætlunar. Hann
fjallaði um lausnina og þörf fyrir
hana, markaðsgreiningu og mark-
aðssetningu og sölu. Síðan var tals-
vert fjallað um undirbúning og
verklag við gerð viðskiptaáætlana
og að síðustu lítillega um ferli fjár-
mögnunar og fjárfestaumhverfi.
Námskeiðin eru liður í sam-
keppni Þjóðarátaks um nýsköpun.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fundarsalur Reykjanesbæjar í Kjarna var þétt setinn í gærkvöldi af áhugasömu fólki um gerð viðskiptaáætlana.
Metþátttaka á nýsköpunarnámskeiði
Keflavík
ALUR, álvinnsla ehf., kynnir í dag
fyrirtækið og fyrirætlanir þess um að
hefja framleiðslu í Helguvík. Kynn-
ingarfundurinn verður á veitingahús-
inu Ránni og hefst klukkan 11.30.
Alur kynnir
áform sín
Reykjanesbær
BÓNUS mun opna í verslunarhús-
næði því sem Hagkaup hafa notað í
Njarðvík, í mars eða ekki síðar en 1.
apríl næstkomandi. Verslunin verð-
ur með stærri Bónusbúðum.
Hagkaup tilkynntu í síðasta mán-
uði um lokun verslunar sinnar í
Njarðvík og að öllu starfsfólki, um 35
manns, yrði sagt upp störfum. Þá
kom fram að í athugun væri að Bón-
us myndi opna í staðinn en bæði fyr-
irtækin eru í eigu Baugs hf. sem
einnig er stærsti hluthafinn í félag-
inu sem á verslunarhúsnæðið.
Skartar sínu fegursta
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, sagði í gær að
eftir að Hagkaup var lokað, 1. mars,
þyrfti að vinna að endurbótum á hús-
næðinu. Bónus myndi opna þegar
þeirri vinnu væri lokið sem hann
taldi að yrði ekki síðar en 1. apríl.
Bónusbúðin í Reykjanesbæ verð-
ur með stærri verslunum keðjunnar,
svipuð að stærð og Bónus í Holta-
görðum. Og þar myndi fyrirtækið
skarta sínu fegursta. „Bónus á stór-
an hóp viðskiptavina á Suðurnesjum
og þetta auðveldar þeim aðgengi að
verslun hjá okkur. Þá er Baugur að
bregðast við óskum neytenda sem
vilja lægra vöruverð,“ segir Guð-
mundur.
Hann segir að ekki þurfi eins
margt starfsfólk í Bónus og nú vinn-
ur í Hagkaupum þar sem um sé að
ræða allt öðruvísi búð. Telur hann að
8–9 starfsmenn verði ráðnir og segir
Guðmundur að rætt verði við starfs-
fólkið sem er að missa vinnuna í
verslun Hagkaupa.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Ný verslun Bónuss verður í húsnæði sem losnar við lokun Hagkaupa.
Bónus opnar
stóra verslun
eftir tvo mánuði
Njarðvík
FRÆÐSLURÁÐ Reykjanesbæjar
hefur samþykkt breyttan gæslutíma
leikskóla bæjarins. Öllum leikskól-
um verður lokað klukkan 17.15 nema
Garðasel og Gimli sem verða opnir
klukkustund lengur.
Fræðsluráð samþykkti tillögur að
breyttum gæslutíma leikskólanna á
fundi sínum í vikunni. Guðríður
Helgadóttir leikskólafulltrúi segir að
eftirspurn hafi minnkað mjög eftir
vistun eftir klukkan fimm á daginn.
Hún segir að leikskólum í öðrum
stórum bæjarfélögum sé yfirleitt
lokað klukkan kortér yfir fimm eða
hálfsex. Hún segist hafa lagt til að
leikskólunum í Reykjanesbæ yrði
lokað almennt klukkan 17.15 en tveir
hafðir opnir lengur til þess að hægt
verði að þjóna þeim örfáu sem þurfi
lengri vistun.
Staðfesti bæjarráð breytinguna
tekur hún gildi 1. september í haust.
Foreldrum gefst þá kostur á að
sækja um flutning barna sinna milli
leikskóla, telji þeir sig þurfa á lengri
vistun að halda.
Í samþykkt fræðsluráðs felst að
tímagjald verður hærra eftir klukk-
an 17.15 vegna aukins kostnaðar við
starfsmannahald.
Leikskólar Reykjanesbæjar hafa
auglýst lokun vegna sumarleyfa og
starfsdaga 2003. Leikskólarnir Holt
og Tjarnarsel verða lokaðir frá 10.
júní til 15. júlí. Leikskólarnir Gimli,
Heiðarsel og Hjallatún verða lokaðir
frá 23. júní til 25. júlí. Leikskólarnir
Garðasel og Vesturberg verða lok-
aðir frá 11. júlí til 15. ágúst.
Tveir leikskólar
opnir lengur
Reykjanesbær
SKÝRSLA um mat á umhverfis-
áhrifum 220 kV háspennulínu frá
fyrirhuguðu virkjanasvæði á
Reykjanesi að aðveitustöð við
Svartsengi hefur verið lögð fram til
kynningar. Er þetta fyrsti áfangi í
fyrirhugaðri endurnýjun Hitaveitu
Suðurnesja á raflínukerfi svæðisins.
Hitaveita Suðurnesja á og rekur
132 kV háspennulínu sem liggur frá
Svartsengi að Fitjum í Njarðvík og
aðra jafn öfluga línu frá Fitjum í
Hafnarfjörð. Vegna fyrirhugaðs
varmaorkuvers á háhitasvæðinu í
Reykjanesi er nauðsynlegt að
leggja háspennulínu frá virkjana-
svæðinu inn á þjónustukerfi Hita-
veitunnar. Og til að geta selt raf-
orkuna út fyrir svæðið er talið
nauðsynlegt að endurnýja há-
spennulínuna til Hafnarfjarðar,
hugsanlega með viðkomu á fyrir-
huguðu virkjanasvæði við Trölla-
dyngju.
Í þeirri skýrslu sem Hitaveitan
hefur nú lagt fram er eingöngu
fjallað um háspennulínuna frá
Reykjanesi að Svartsengi. Streng-
urinn verður lagður í jörð á iðn-
aðarsvæðinu á Reykjanesi, af
tæknilegum ástæðum, en síðan í
loftlínu frá Sýrfelli að Svartsengi.
Háspennulínan er 14 km löng.
Stefnt er að því að framkvæmdir
við hana geti hafist á næsta ári og
að þeim verði lokið á árinu 2005.
Sjónræn áhrif af línunni
Fram kemur í matsskýrslunni að
helstu umhverfisáhrif línunnar séu
sjónræn áhrif af línunni sjálfri og
línuslóði. Athugaðar voru tvær línu-
leiðir auk lagningar jarðstrengs.
Hitaveitan valdi nyrðri loftlínuleið-
ina sem aðalvalkost vegna minni
sjónrænna áhrifa á svæðum sem
fjölsótt eru af ferðamönnum. Jarð-
streng var hafnað vegna kostnaðar
og tæknilegra vandamála.
Niðurstaða matsskýrslunnar sem
unnin er af Línuhönnun er sú að
umhverfisáhrif af lagningu línunnar
eru talin viðunandi. Hún hafi lítil
sjónræn áhrif á svæðum sem eru
fjölsótt af ferðamönnum og lítil nei-
kvæð áhrif á aðra þætti. Jákvæð
áhrif af línulögninni ásamt óbeinum
jákvæðum áhrifum af jarðgufu-
verinu á Reykjanesi eru talin verða
umtalsverð í samfélaginu.
Skipulagsstofnun hefur auglýst
að skýrslan liggi frammi til kynn-
ingar, meðal annars á bæjarskrif-
stofum og bókasöfnum Grindavíkur
og Reykjanesbæjar til 12. mars
næstkomandi en þá rennur jafn-
framt út frestur til að skila athuga-
semdum til Skipulagsstofnunar.
Hitaveita Suðurnesja mun standa
fyrir kynningu á framkvæmdinni
fyrir almenning í Eldborg við
Svartsengi næstkomandi fimmtu-
dag á milli klukkan 14 og 17.
Mat á áhrifum línulagnar frá fyrirhuguðu virkjanasvæði á Reykjanesi
Umhverfisáhrif
talin viðunandi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Frá borun nýjustu holunnar á jarð-
hitasvæðinu á Reykjanesi.
Reykjanes/Svartsengi
FASTANEFNDUM á vegum bæj-
arstjórnar Grindavíkur fækkar um
þrjár, samkvæmt tillögum að breyt-
ingum á bæjarmálasamþykkt sem er
til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Fulltrúar meirihlutans, Samfylk-
ingar og Sjálfstæðisflokks, hafa lagt
fram nokkrar breytingar á sam-
þykktum Grindavíkurkaupstaðar.
Atvinnumálanefnd verður lögð niður
og verkefni hennar falin skipulags-
og byggingarnefnd. Skólanefnd tón-
listarskóla verður lögð niður og
verkefni hennar færð undir skóla-
nefnd grunnskóla. Jafnframt verður
nafni þeirrar nefndar breytt í
fræðslu- og uppeldisnefnd.
Þá verður bókasafnsnefnd lögð
niður og verkefni hennar færð til
menningarnefndar.
Samþykkt var með fimm atkvæð-
um meirihlutans að vísa þessum til-
lögum til síðari umræðu í bæjar-
stjórn, gegn tveimur atkvæðum
Framsóknarflokksins.
Nefndum fækkað
Grindavík
♦ ♦ ♦