Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 25
Hinir fjölmennu árgangar eftir-
stríðsáranna eru nú miðaldra og gott
betur. Fólk þetta er frekar frískt og
íþyngir heilbrigðisþjónustunni lítt
enn sem komið er. Það eldist þó eins
og aðrir og mun þurfa sína þjónustu.
Þessir árgangar eru aldir upp við
allsnægtir og mun kröfuharðari á
þjónustu en fyrri kynslóðir. Þetta
fólk mun ekki sætta sig við bið á list-
um eftir þjónustu á sjúkrahúsum.
Það mun heldur ekki láta sér lynda
fjölbýli á sjúkrastofu, hvað þá að
liggja á gangi. En verður heilbrigð-
isþjónustan viðbúin vandanum þegar
þar að kemur?
Þörf fyrir skurðaðgerðir hefur síð-
ur en svo minnkað undanfarna ára-
tugi. Vegna endurskipulagningar í
kjölfar sameiningar sjúkrahúsanna
urðu aðgerðir á Landspítalanum
nokkru færri árið 2001 en árin 2000
og 2002 enda lengdust biðlistar það
ár. Sé aðgerðafjöldi ársins 2001 not-
aður til að spá um framtíðina má því
vænta að spáin verði fremur hógvær.
Ýmsar aðgerðir munu að vísu úreld-
ast á komandi árum en aðrar koma í
staðinn. Ný tækni mun að öllum lík-
indum stytta legutíma en jafnframt
krefjast dýrari tækja og meiri
menntunar heilbrigðisstarfsfólks.
Því má með nokkurri vissu álykta að
kostnaður við skurðaðgerðir muni
ekki minnka.
Árið 2001 voru framkvæmdar tæp-
lega 10.000 aðgerðir á skurðsviði
LSH. Aldurssamsetning þjóðarinnar
þetta ár er þekkt og ef fólkinu er
skipt í aldurstugi (0–9 ára, 10–19 …
o.s.frv.) er mögulegt að reikna að-
gerðatíðni fyrir hvert tíu ára aldurs-
bil. Hagstofan gefur einnig út mann-
fjöldaspár. Sé nú aðgerðatíðnin í tíu
ára aldursbilum árið 2001 notuð og
reiknað út hvernig aðgerðafjöldinn
gæti orðið árið 2010, 2020, 2030 og
2040 kemur í ljós að fjöldi aðgerða
verður 10.707 árið 2010, 12.359 árið
2020 og fer í 15.654 árið 2040. Mynd 1
sýnir að aukningin verður í aldurs-
flokkunum 60 ára og eldri. Sé sama
aðferð notuð og skoðað hvaða skurð-
sérgreinar það eru sem auka þurfa
framleiðsluna kemur í ljós að þetta
gengur yfir þær allflestar. Hvergi er
sjáanleg minnkandi þörf vegna
breytinga í aldurssamsetningu þjóð-
arinnar.
Anna má að öllum líkindum aukn-
ingunni fram til ársins 2010 með
þeim skurðstofum sem nú þegar eru
fyrir hendi en fljótlega eftir það
verður torvelt að sinna þörfinni.
Þrátt fyrir að sérgreinar hafi nú ver-
ið sameinaðar er skurðsvið Land-
spítalans enn rekið í tveimur húsum
spítalans enda annað ógjörningur
eins og málum er nú háttað. Veldur
það umtalsverðu óhagræði auk
slæmrar nýtingar mannafla og
tækja, bæði í fjárhagslegu og fag-
legu tilliti.
Sameining spítalanna var tvímæla-
laust framfaraspor og sameining sér-
greina á einn stað hefur skilað bæði
fjárhagslegum sparnaði og faglegum
framförum. Þekking starfsfólks hefur
aukist sem skilar sér í bættri og
öruggari þjónustu við sjúklinga.
Næsta rökrétta spor er að sameina
spítalann á einum stað og ábyrgðar-
hluti að takast ekki á við það. Hvað
sem líður karpi um kaup og kjör í heil-
brigðiskerfinu og sífelldum rekstrar-
vanda – sem er fyrirsjáanlegur jafn-
harðan og fjárlög hafa verið samþykkt
– er nauðsynlegt að forráðamenn
þjóðarinnar geri sér grein fyrir því að
eftir tíu ár mun núverandi aðstaða til
skurðaðgerða ekki lengur fullnægja
þörfinni.
Landspítalinn er fjölmennasti
vinnustaður landsins og ef allt heil-
brigðiskerfið er talið þá er það ein
helsta þjónustugrein landsins. Allir
starfsmenn þess og einnig tilvonandi
sjúklingar eiga kröfu á að stjórnmála-
menn geri sér þessar staðreyndir ljós-
ar og móti sér stefnu um endurbygg-
ingu spítalans. Einnig er nauðsynlegt
að huga að nýjum fjármögnunarleið-
um bygginga. Enn fremur verður að
nást sátt um reksturinn sem fyrst svo
að starfsfólki sé gert fært að starfa af
alúð án þess að sífellt sé verið að opna
eða loka deildum. Að því er skurðstof-
ur varðar er vel menntað starfsfólk af
mjög skornum skammti og lítil von til
að unnt sé að laða heim fólk úr góðum
stöðum erlendis til starfa við ótryggar
aðstæður á Íslandi.
Það kemur að okkur
Eftir Jónas
Magnússon
„Þörf fyrir
skurð-
aðgerðir hef-
ur síður en
svo minnkað
undanfarna áratugi.“
Höfundur er sviðsstjóri
skurðsviðs LSH.
Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi
sími 577 4949
Næs
Glæsilegir
árshátíðarkjólar
skór - veski
Opnunartími
miðvikudag kl. 14-18
fimmtudag kl. 14-18 og 20-22
föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
90
44
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opið: Mán. - föst. 9-18,
Laugardaga 10-14
Baðinnréttingar
Útlit: Perutré
Breidd 65 sm
Við látum verðið tala!
Útlit: Perutré
Breidd 110 sm
Útlit: Kirsuber
Breidd 110 sm
Útlit: Hvít fulning
Breidd 90 sm
Útlit: Eplatré
Breidd 160 sm
Útlit: Eplatré
Breidd 105 sm
Útlit: Ölur
Breidd 130 sm
Útlit: Hlynur
Breidd 80 sm
Útlit: Gegnheilt kirsuber Útlit: Hvít slétt
Breidd 95 sm
Útlit: Perutré
Breidd 120 sm
Útlit: Græn fulning
Breidd 130 sm
Útlit: Hvít slétt
Breidd 80 sm
Útlit: Hvít fulning
Breidd 120 sm
Útlit: Kirsuber fulning
Breidd 130 sm
Gegnheilt kirsuber
Breidd 110 sm
Gegnheilt kirsuber
Breidd 110 sm
Gegnheil hnota
Breidd 120 sm
Útlit: Hlynur
Breidd 120 sm
Útlit: Mahóní
Breidd 80 sm
Útlit: Kirsuber
Breidd 110 sm
Tauskápar
f. baðherbergi
• Nýtt útlit
• Nýjar uppstillingar
Uppgefnar stærðir miðast við breidd
á neðri hluta, ekki heildarbreidd.
Allar innréttingar til afgreiðslu af lager
• 25-30% afsláttur
1 2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
17 18 19 20 21 22
16
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
VÉLA-
VIÐGERÐIR
d
es
ig
n.
is
2
00
3