Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 27
Það hefur aldrei verið hagstæðara að ferðast en núna í sumar,
því Heimsferðir lækka verðið til vinsælasta áfangastaðar Íslend-
inga í sólinni og bjóða nú vikulegt flug til Costa del Sol á betra
verði en nokkru sinni fyrr. Þeir, sem bóka fyrir 15. mars, geta
tryggt sér allt að 32.000 afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brott-
farir, eða kr. 8.000 á manninn. Á Costa del Sol bjóðum við þér
vinsælustu gististaðina á ströndinni, spennandi kynnisferðir í
fríinu og þjónustu reyndra fararstjóra Heimsferða til að tryggja
þér ánægjulega dvöl í fríinu.
Þeir fyrstu tryggja sér lægsta verðið
og bestu gististaðina
Verðlækkun til
Costa
del Sol
og að auki
32.000*kr.
afsláttur af ferðinni
Vinsælasti áfangastaður Íslendinga í sólinni
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 45.762
M.v hjón með 2 börn, 2–11 ára,
25. júní í 2 vikur, El Pinar,
með 8.000 kr. afslætti.
*
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í stúdíói, Santa Clara, 25. júní,
vikuferð, með 8.000 kr. afslætti.
*
Við lækkum
verðið
Verð kr. 36.962
M.v. hjón með 2 börn, 21. maí í viku,
Santa Clara, m. 8.000 kr. afslætti
* Aldrei meiri afsláttur
8.000 kr.
afsláttur fyrir maninn af ferðum
í eftirtaldar brottfarir:
21. maí • 11. júní • 25. júní
11. júlí • 23. júlí
27. ágúst • 3. sept • 10. sept.
Gildir af fyrstu 300 sætunum
ef bókað er fyrir 15. mars.
*32.000 kr. afsláttur,
m.v. hámark 4 í bókun.
Þeir fyrstu tryggja sér lægsta verðið
og bestu gististaðina
Í NÝJASTA hefti Vísbendingar
er grein eftir Arnar Bjarnason um
tolla á matvöru. Þar segir, að slíkir
tollar nemi árlega um 1,5 til 2 millj-
örðum króna. Í greininni kemur
fram, að þessir matartollar valdi
álögum á íslenska neytendur upp á
2,7–3,7 milljarða króna, sem þeir
greiða í formi hærra matvöruverðs.
Þetta samsvarar 39–52 þús. kr. á
hvert heimili í landinu. Í stóru úr-
taki á vörum er margföldunarstuð-
ull vegna tolla talinn vera frá 1,83–
1,89, en þá er átt við að tollar valdi
almennri hækkun á matvöru, sem
ekki er flutt inn til landsins þar sem
tollarnir eru svo háir, að þeir koma
í veg fyrir innflutning. Þessi vernd-
arstefna eða „verðvernd“ ríkisvalds-
ins veldur hærra verði á innlendri
framleiðslu en ella væri. Að mati
greinarhöfundar eru þessi áhrif til
hækkunar matarverðsins mun meiri
en almenningur og ráðamenn þjóð-
arinnar gera sér grein fyrir. Hver
fjölskylda í landinu greiðir mun
hærra verð fyrir mjólk og kjötvör-
ur, mörgum tugum prósentna
hærra verð en fengist ef innflutn-
ingur væri frjáls og samkeppni
fengi að þrífast.
Matartollar ríkisvaldsins hafa
áhrif á vöruflokka sem eru líkast til
hátt í 60% af innkaupakörfu flestra
fjölskyldna í landinu.
Ákveðnir stjórnmálamenn hafa á
undanförnum misserum ekki linnt
látum í árásum sínum á Baug og
hafa sumir þeirra meira að segja
haft í hótunum við fyrirtækið. Þess-
um árásum hefur verið haldið áfram
þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á,
að fyrir tilverknað fyrirtækja
Baugs hefur matvöruverð lækkað á
þeim vörum þar sem samkeppni
hefur fengið að njóta sín og inn-
flutningur verið frjáls. Hefur mikill
undirróður og rógur verið notaður
með markvissum hætti til að sverta
Baug í augum almennings. Með
þessum hætti hefur ráðamönnum
tekist að beina athyglinni frá eigin
ákvörðunum. Þeir umgangast mat-
artollinn sinn eins og óumdeilanlegt
lögmál. En hátt matarverð á Íslandi
er skattur en ekki lögmál. Ef
stjórnvöld vilja lægra verð á nauð-
synjum á Íslandi, þá er þeirra að
taka ákvörðun og afnema matartoll-
inn.
Orsakir hins háa matvælaverðs í
landinu felast ekki í hagræðingunni,
sem orðið hefur í versluninni, m.a.
með tilkomu verslanakeðja Baugs.
Sýnt hefur verið fram á með stað-
reyndum um afleiðingar matartoll-
anna hver sé hinn raunverulegi
sökudólgur í þessu efni. Það eru
sjálfir ráðamenn þjóðarinnar, þeir
sem eiga ekki til eitt aukatekið orð
yfir „okurverðinu“ á matvælum í
landinu. Stjórnmálamennirnir, sem
taka ákvarðanir fyrir okkur borg-
arana, virðast telja, að með því að
leggja álögurnar á almenning verði
byrðarnar svo tiltölulega léttar fyr-
ir hvern og einn, að þeir geti komist
upp með verndarstefnu sína. Al-
menningur er látinn blæða en versl-
anafyrirtækjum eins og Baugi er
kennt um allt saman. Þetta er vita-
skuld gamalkunnug aðferð, en hún
er eigi að síður ósæmileg og röng.
Hátt matarverð er skatt-
ur – ekki náttúrulögmál
Eftir Hrein
Loftsson
„Ákveðnir
stjórn-
málamenn
hafa á und-
anförnum
misserum ekki linnt lát-
um í árásum sínum á
Baug …“
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður og stjórnarformaður
Baugs Group hf.
EKKI veit ég hve margir lásu
grein sem birtist í Morgunblaðinu sl.
laugardag eftir Hjálmar Árnason al-
þingismann. Ég las þessa grein og að
öllum líkindum hafa margir starfs-
menn Barnaspítala Hringsins lesið
greinina því hún bar yfirskriftina
Ögmundur og barnaspítalinn. Ekki
verður beinlínis sagt að mér séu
vandaðar kveðjurnar í þessari grein.
Tildrögin eru þau að ég vék lítillega
að opnun barnaspítalans á heimasíðu
minni ogmundur.is daginn eftir að
hann var opnaður. Hjálmari Árna-
syni fannst ég gera það á svo sví-
virðilegan hátt að ég „skuldi Hrings-
konum afsökunarbeiðni fyrir að gera
önuga tilraun að ræna þær þessum
mikilvæga degi. Og viti hann það
ekki þá skal hann upplýstur um að
án Hringsins væri BSP ekki orðinn
að veruleika.“
Ekki nægir að mati Hjálmars að
ég biðji Hringskonur afsökunar
heldur einnig alla sem komið hafa að
því að barnaspítalinn varð að veru-
leika. Það er best að gefa höfundi
orðið um þetta efni: „framsetning
Ögmundar er skammarleg gagnvart
öllu því frábæra fólki sem lagt hefur
á sig mikla vinnu á síðustu misserum
til að láta drauminn rætast. Þar hafa
menn einungis hugsað um þetta eina
markmið: Að búa veikum börnum
sem best skilyrði. Framsetning Ög-
mundar gagnvart þessu fólki er hon-
um til minnkunar.“
En víkjum nú nánar að meintum
glæp mínum. Þannig var að daginn
fyrir vígsluna birtust miklar myndir
af Hjálmari Árnasyni í fjölmiðlum og
varð mér þá hugsað til samsvarandi
athafna fyrir kosningar eins langt
aftur og mig rekur minni til. Á
heimasíðu minni er lítill dálkur sem
ber yfirskriftina Í Brennidepli. Þar
birtust eftirfarandi línur af þessu til-
efni:
„Hjálmar Árnason alþingismaður
tók sig einstaklega vel út við opnun
Barnaspítala Hringsins í gær og var
Framsóknarflokknum til mikils
sóma. Hjálmar var formaður bygg-
ingarnefndar og því eðlilegt að hann
kæmi fram við þessi tímamót fyrir
hönd skattborgaranna. Einstaklega
vel var til fundið að draga opnun-
arhátíðina á langinn. Þannig var á
laugardegi eins konar forsýning fyr-
ir fjölmiðla þar sem Hjálmar sýndi
starfsmönnum lykla sjúkrahússins.
Ljósmyndarar blaðanna náðu að
fanga augnablikið þannig að þegar
komið var á hina einu og sönnu opn-
un daginn eftir vissu menn hvers
mátti vænta. Það er greinilegt að
Framsóknarflokkurinn er að hefja
kosningabaráttuna í hefðbundnum
stíl ríkisstjórnarflokks og má vænta
þess að mikið verði um dýrðir við
opnanir og borðaklippingar þegar
líður að vori.“
Svo mörg voru þau orð. Þetta þyk-
ir Hjálmari Árnasyni skammarleg
aðför að öllum sem komið hafa að
Barnaspítala Hringsins og eiga sér
það eitt markmið að búa veikum
börnum sem best skilyrði. Nú eigi ég
að biðja allt þetta fólk afsökunar.
En nú er mér spurn, hvers vegna á
ég að biðja þetta fólk afsökunar? Ég
halla hvergi á það orði. Ég hef
reyndar alltaf talið það vera mikil-
vægasta hagsmunamál samfélagsins
að hafa sem allra besta heilbrigðis-
þjónustu og því jafnan verið andvíg-
ur niðurskurði en stutt uppbygging-
arstarf – hver sem í hlut á.
Sérstaklega mikilvægt hefur mér
þótt að búa betur að langveikum
börnum og aðstandendum þeirra.
Opnun þessa nýja spítala er því ekki
síður mér en öðrum landsmönnum
fagnaðarefni. Ekki efast ég heldur
um góðan hug Hjálmars Árnasonar
hvað þetta snertir. En þegar kemur
að frekari útleggingum hans gegnir
öðru máli.
Hjálmar segir að ég megi „agnú-
ast“ út í sig og flokksfélaga sína en
heldur „langt sé seilst í pólitískum
ákafa að draga BSP inn í samsær-
iskenningar sem enga stoð eiga í
raunveruleikanum.“ Mér muni hins
vegar „ekki takast að svipta þá er
vilja BSP allt hið besta gleði yfir
þessum skemmtilega áfanga.“
En má „agnúast“ út í framsókn-
armenn eins og Hjálmar fullyrðir?
Ef marka má reiði og rangtúlkanir
hans bendir fátt til þess. Bent var á
að Framsóknarflokkurinn væri nú
að hefja kosningabaráttuna á venju-
bundinn hátt stjórnarflokks og hefð-
um við nú dæmi um slíkt hjá Hjálm-
ari Árnasyni þingmanni flokksins;
samkvæmt venju væri von á miklum
dýrðum við opnanir og borðaklipp-
ingar er nær drægi kosningum í vor.
Ef þetta er rangt er sjálfsagt mál að
að Hjálmar mótmæli – þess vegna
harðlega og gagnrýni mig fyrir
ómaklega aðför að Framsóknar-
flokknum og eigin persónu.
En þetta vakti hins vegar ekki fyr-
ir þingmanninum þegar hann settist
niður við skriftir. Í grein sinni snýr
hann þvert á móti meðvitað út úr
orðum mínum og gefur í skyn að ég
sé sérstakur óvildarmaður sjúkra
barna og Kvenfélagsins Hringsins.
Dæmi nú hver fyrir sig. Þegar allt
kemur til alls er engu líkara en
Hjálmar Árnason gæti vel hugsað
sér að draga hátíðahöldin á langinn
enn um sinn. Ef sú er raunin finnst
mér það ekki gert á sérlega smekk-
legan hátt.
Hjálmar og
ogmundur.is
Eftir Ögmund Jónasson „Þegar allt
kemur til
alls er engu
líkara en
Hjálmar
Árnason gæti vel hugs-
að sér að draga hátíða-
höldin á langinn enn um
sinn.“
Höfundur er alþingismaður.
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050.
Viskustykki
Til í níu mynstrum
Útsala - Útsala
Klapparstíg 44 - sími 562 3614