Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 32

Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Árni Einar Sig-urðsson fæddist í Vestmannaeyjum 5. september 1927. Hann lést á Dvalar- heimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 27. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Margrét Jónsdóttir frá Rauðsbakka í Austur-Eyjafjalla- hreppi og Sigurður Einarsson frá Norð- urgarði í Vestmanna- eyjum. Systir Árna var Ásta Sigurðardóttir. Árni missti báða foreldra sína sem smábarn og fluttist þá að Rauðsbakka til móðurforeldra sinna og móðursyst- ur, en hún ól hann að mestu leyti upp. Árið 1958 fluttist hann að Steinum í sömu sveit til hjónanna Elínar Sig- urjónsdóttur og Sig- urbergs Magnússon- ar. Dvaldist hann síðan í skjóli þeirra, fyrst að Steinum og síðan á Selfossi frá 1993. Í janúar 2001 flutt- ist hann á Dvalar- heimilið Kirkjuhvol, þar sem hann dvaldi til dauðadags. Útför Árna verður gerð frá Ey- vindarhólakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Með örfáum orðum langar mig til að minnast Árna frá Steinum, sem er í huga mínum frá bernsku sem ráðs- maður Bergs frænda míns. Hans sem hirti um fjárhúsin hans austur á túni og kom svo heim í morgunkaffi þegar mamma veifaði könnunni nær því á hverjum morgni og alltaf var þar eitthvað sér til gamans gert, þar sem Árni var sá sem allt snerist um og hvernig tilsvör hans voru eftir- minnileg og eftir á að hyggja með meiri visku en ég skildi þá. Hvernig jólin voru með sérstökum hætti hátíð hans, gleði hans heima að vera með okkur systkinunum og gleðjast með okkur gagnvart því að opna pakkana, já, hvernig við smit- uðumst af einlægni hans og eftir- væntingu. Síðan liðu árin og eftir að ég tók við búi Bergs 1984 varð hann sá sem hjálpaði mér við búið. Þegar í fjósið kom hélt hann öllu svo skínandi hreinu, óbeðinn og alltaf á undan öðrum. Þegar að slætti kom, var hann á undan mér á túnið og beið í Zetornum með tætluna. Þegar sauð- burður hófst kom mikill annatími hjá honum. Dag eftir dag um hánótt kom hann á Zetornum og flautaði löngu áður en hann kom að herberginu mínu, kallaði og sagði að mikið lægi við, hvíta einhyrnda rollan gæti ekki borið – komdu strax, strax. Þetta vil ég allt þakka og svo miklu fleira, jafnframt því að skila þakk- arkveðjum frá Gísla syni mínum fyr- ir gjafir hans og væntumþykju. Árni átti alla ævi hjartalag barns- ins, sem engan vildi skaða og vildi alltaf reynast trúr vinum sínum og sérstaklega Bergi og Ellu húsbænd- um sínum, sem hann mat mest allra og sótti gleði lífs síns til. Ég trúi að Bergur frændi minn hafi nú tekið vel á móti Árna sínum. Blessuð sé minn- ing þeirra beggja. Sigurjón Pálsson. Í dag kveðjum við góðan vin, Árna í Steinum, hinstu kveðju og hef ég ákveðið að gera það með eftirfarandi hætti. Kæri Árni þá er komið að leiðar- lokum í þessum heimi og minning- arnar um þig hafa hrannast upp sein- ustu daga sem aldrei fyrr, þú varst nefnilega ómældur gleðigjafi og lífs- kúnstner. Líf þitt var samt ekki flók- ið, þú lifðir fyrir húsbændur þína og svo ekki síður sveitina, Eyjafjöllin, sem var nafli alheimsins í þínum aug- um sem aldrei breyttist, alltaf var hugurinn austur undir Fjöllum og hjá Fjallamönnum, þótt þú flyttir tímabundið á Selfoss og svo nú að síðustu á dvalarheimili á Hvolsvelli. Þegar ég kynntist þér smádreng- patti kynnti Bergur þig sem Árna ráðsmann enda sinntir þú öllum þeim störfum sem þér voru falin af mikilli kostgæfni og vandvirkni og ekki síst reglusemi og snyrti- mennsku. Þú sást um þín fjárhús, hirtir fjósið og sást um þrif á mjalta- tækjum, aðstoðaðir við járningar og svo ekki síst að sjá um að allir hlutir færu á sinn stað að verki loknu og þrífa allt og snurfusa eða eins og þú sagðir stundum, það er ljótur ósiður að henda öllu út um allt. Á vorin þegar við sumarkrakkarn- ir vorum að koma var gleði þín fölskvalaus og þú sagðir gjarnan þessu fleygu orð: Hermann grautur austan úr Vík, fylgir honum flekkótt tík og fimmtíu kettir að breima. Á mínu heimili eru mörg orðatil- tæki þín oft notuð og eru nánast orð- in að orðtökum með sínum sérstöku merkingum eins og t.d. „greyið éttu grautinn þinn“ sem oft kom fyrir þegar þig vantaði rök í orðasennum við hana Gerðu heitna, og tilsvörin þín vinur verða lengi í minnum höfð því þau voru oft meinleg og úr óvæntri átt eins og þegar Ella bauð þér magnilið forðum við hettusótt- arbólgunni og þú neitaðir en sagðir svo að bragði: Jæja komdu með það, ég er dauður hvort sem er. Í seinustu ferðinni sem þú komst með mér í sláturhúsið á Selfossi fyrir skömmu varstu spurður hvort þú hefðir verið á kvennafari í nótt, þú værir svo þreytulegur. Stóð ekki á svarinu frekar en vant var: Já, ég var með tvær.“ Til hvers þarftu tvær? „Ef önnur klikkar!“ Og svo komu þínar óborganlegu hláturrok- ur í kjölfarið sem smituðu alla sem nærstaddir voru. Þetta er nú aðeins smábrot af öll- um þeim skondnu atvikum sem lifa þig og verða lengi í minnum höfð. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast húsbóndahollustu þinni þegar þú komst í sauðfjárslátrun á Selfossi þegar ég hóf þar störf, upp frá því varst þú einn af föstu punktunum í réttinni og aðstoðarréttarstjóri. Á þeim vettvangi verður þín sárt sakn- að, ekki síst úr matsalnum sem þú lífgaðir svo skemmtilega upp á með þinni líflegu framkomu sem flestir smituðust af. En nú er komið að leiðarlokum kæri vinur, þú heldur til nýrra heim- kynna og hittir þar þá mörgu góðu vini og húsbændur sem kvatt hafa á undan þér og ég veit að ég mæli fyrir munn margra vina okkar þegar ég þakka þér fyrir einstök kynni, það voru forréttindi að fá að kynnast þér og minningin lifir um góðan dreng, hvíldu í friði. Hermann Árnason, Stóru Heiði. Þegar ég fékk símtalið frá Íslandi sem færði mér þær fréttir að Árni í Steinum væri látinn helltist yfir mig söknuður en jafnframt ljúfar minn- ingar um góðan vin. Ég man það alltaf þegar við hitt- umst fyrst. Ég var tólf ára borgar- barn, nýkomin í sveitina í fyrsta sinn. Árni kom inn í eldhúsið á Stein- um, horfði íbygginn á þessa stelpu úr Kópavoginum og velti því örugglega fyrir sér hvort hún yrði nú almenni- leg vinnukona. Ég lærði fljótt að þarna var mjög sérstakur maður á ferð, maður sem grét af hlátri og sorg og bjó yfir hreinleika í hjartanu sem ekki er öllum gefinn. Við urðum fljótt góðir vinir og áttum saman margar góðar stundir þar sem brugðið var á leik og rætt var af al- vöru um lífið og tilveruna. Það var lærdómsríkt að skyggnast inn í hug- arheim Árna þar sem tærleiki til- finninga réð ferðinni. Ég held að mesta gæfuspor í lífi Árna hafi verið þegar hann fluttist að Steinum. Þar eignaðist hann sína húsbændur, þau Ellu og Berg, sem með virðingu og alúð hjálpuðu hon- um að nýta hæfileika sína til fulln- ustu og gáfu honum heimili. Fjöl- skylda þeirra varð einnig hans fjölskylda. Sú vinátta og stuðningur sem hann átti alla tíð hjá því fólki gaf honum öryggi og mestu ánægju- stundir lífsins. Það var stórt skref fyrir Árna þegar hann flutti að dval- arheimilinu Kirkjuhvoli. Þar mætti honum hlýja og umhyggja starfs- fólks og heimilismanna og þar leið honum ávallt vel. Ég held að allir sem fengu tækifæri til að umgangast Árna hafi notið þess hversu hnyttinn í tilsvörum og glaðvær hann var og mitt í hinu daglega amstri var hress- andi að heyra hláturrokurnar frá Hvolsvelli. Nú verða símhringingarnar frá Hvolsvelli til Þýskalands ekki fleiri. Ég mun sakna þeirra mikið, en er þakklát og stolt yfir því að hafa notið þess láns að hafa haft Árna í Steinum að samferðamanni í mínu lífi. Magnea Tómasdóttir. Árni Sigurðsson var vinnumaður hjá þeim hjónum Elínu Sigurjóns- dóttur og Sigurbergi Magnússyni á Steinum undir Austur-Eyjafjöllum. Hann kom til þeirra ungur maður og var heimilismaður á Steinum upp frá því. Ég var svo heppinn að kynnast heimilisfólkinu á Steinum og vera hjá þeim í sveit í ein sex sumur. Árni var aðalmaðurinn og við peyjarnir litum upp til hans enda var hann okkar yf- irmaður, auk þess að vera fjósamað- ur og vélamaður. Árni hafði ekki skólagöngu að baki og veraldlegir hlutir vöfðust ekki fyrir honum. Heimur hans var Eyjafjöllin þar sem hann var einn af bændunum í augum lítils peyja úr Eyjum. Þegar bændur af næstu bæjum komu að Steinum talaði hann við þá með svona skip- stjórarödd að mér fannst. Að minnsta kosti allt öðruvísi rödd en við okkur peyjana sem hann tuktaði stundum til þegar honum fannst til þess ástæða. Einu sinni var hann að tala við okkur og miðla af reynslu sinni, við hlustuðum á andagtugir. Árni sagði okkur m.a. annars að hann hefði fengið hvolpavitið 12 ára gamall. Þá gall við í einum okkar: Er ég þá kominn með það? Árni og Bergur kenndu okkur að herma eftir öllum bændum í kring, en það er sérlist undir Eyjafjöllum. Við matborðið á Steinum var því oft glatt á hjalla þegar orðatiltæki og kækir stórbændanna voru viðhafðir, en skemmtilegast þótti okkur að herma eftir Árna og var það óspart gert. Þá var mikið hlegið, en mest hló þó Árni sjálfur, sem hafði óskaplega gaman af slíku sprelli. Árni hafði sérstakt fas, hann gekk ávallt svolítið hokinn með hendur fyrir aftan bak og sixpensara á höfði, og þegar hann var að aka eftir hol- óttum þjóðvegi 1 á gráu vélinni ábúð- armikill á svip, einstaka sinnum með vindil, þá dinglaði höfuðið á honum alltaf svolítið sérstaklega, litlum Eyjapeyja fannst það flott. Árni gat endurgoldið vináttu þeirra hjóna Bergs og Ellu með því að reynast þeim traustur vinnumað- ur í því sem hann sá um og á síðari árum, þegar þau fóru að reskjast, mikill vinur. Þegar Bergur var fall- inn frá var Árni Ellu stoð og stytta. Á síðari árum hef ég haft nokkuð reglulegt samband við Árna og ekki er svo langt síðan hann kom til Eyja en þangað fannst honum alltaf gam- an að koma. Síðast þegar hann kom með félagi eldriborgara frá Hvols- velli áttum við góðar stundir saman. Einn morguninn fórum við saman í langan bíltúr þegar hinir fóru í báts- ferð, slíkt tilstand þótti honum óþarft, enda stórhættulegt. Við fór- um víða, heimsóttum Friðrik á Lönd- um og Gauja frænda í Gíslholti, borð- uðum síðan saman heima hjá mér í hádeginu. Eftir matinn sagði ég: Eigum við ekki að hafa þetta eins og í Steinum og hlusta á fréttirnar hérna í hornsófanum. Við lögðumst báðir út af og sofnuðum yfir fréttunum. Það skipti ekki svo miklu máli, okkar heimur var svo lítið í fréttum. Vertu sæll, væni. Ásmundur Friðriksson. ÁRNI SIGURÐSSON K onur í Katar, ísl- ömsku ríki sunn- arlega á Arabíu- skaganum, hafa síðustu fimm til sex árin öðlast réttindi sem við konurnar hér á norðurhjara teljum sjálfsögð. Þær hlutu t.d. kosningarétt fyrir nokkrum ár- um og réttinn til að keyra bíl fengu þær fyrir um það bil tveimur árum. Ekki er heldur langt síðan þær fengu leyfi til þess að fara í annað nám en kennaranám. Þrátt fyrir þetta eiga þær enn langt í land til að ná þeim réttindum sem karl- menn hafa í Katar og öðrum ísl- ömskum ríkjum; bæði í orði og á borði. Það var því sannarlega und- arleg reynsla að koma til Katar, en þar dvaldi ég fyrir skömmu í tvær vikur, og kynnast menn- ingu sem er svo frábrugðin því sem við eigum að venj- ast hér á landi. Þar sem ég tel mig vera mikla kvenréttindakonu vakti sérstaka athygli mína munurinn á réttindum karla og kvenna. Sá munur fannst mér gegnsýra allt þjóðfélagið og birtast í ýms- um myndum; karlmenn voru ráðandi. Alls staðar. Konur héldu sig til hlés; undir kufl- unum sínum, sem huldu gjarnan allt – jafnvel augun. En þrátt fyrir augljóst ójafn- rétti, sem mér fannst einkenna landið, virtist ýmislegt benda til þess að konur ættu á næstu ár- um eftir að ná lengra og hljóta jafnvel enn meiri réttindi. Til dæmis vakti það athygli mína að mun fleiri konur útskrifuðust frá Háskólanum í Katar á síð- asta ári en karlar; um átta hundruð konur útskrifuðust frá háskólanum en innan við tvö hundruð karlmenn. Varla er því óvarlegt að álykta sem svo að þessi aukna menntun eigi eftir að skila sér í betri störfum og betri launum fyrir konur. Þar með verða þær væntanlega sjálfstæðari. Eða er það bara óskhyggja? Þá vakti það athygli mína að katarískar konur voru sumar hverjar ekki allar þar sem þær voru séðar varðandi klæðaburð- inn. Þegar þær voru í Katar, sínu heimalandi, gengu þær strangtrúuðu í svörtum kuflum, eins og áður sagði, sem hylja þær frá hvirfli til ilja. En dæmi eru um að þær „svipti af sér hulunni“ þegar komið er til annarra landa. Þannig sagði að- komumaður mér frá því að hann hefði eitt sinn flogið frá Katar til Kaíró. Í flugvélinni sátu þrjár ungar katarískar konur fyrir framan hann; vel huldar áður en vélin hóf sig á loft. En um leið og flugvélin hætti að snerta jörðina fjar- lægðu þær andlitsblæjuna og „settu upp“ varalitinn. Á leiðinni fóru þær síðan úr kuflunum og kom þá í ljós að innanundir voru þær í gallabux- um og bolum sem náðu rétt yfir naflann. Úr vélinni í Kaíró gengu því þrjár katarískar ung- lingsstúlkur, íklæddar vestræn- um fatnaði og farðaðar að hætti vestrænna kvenna. Þannig vildi til að sami mað- urinn var samferða sömu stúlk- unum á leið sinni frá Kaíró til Katar. Sagði hann mér frá því að á leiðinni til baka hefðu stúlkurnar smám saman klætt sig í svörtu kuflana og þegar þær gengu út úr vélinni í Katar var vart hægt að greina á milli þeirra: þær voru allar eins; svartklæddar með svartar and- litsblæjur, sem huldu þær al- veg. Ég dreg þessa frásögn fram vegna þess að mér finnst hún gefa vísbendingar um að marg- ar katarískar konur séu ekki sáttar við svörtu kuflana; þær klæðist þeim með öðrum orðum ekki vegna þess að þær vilji það heldur vegna þess að einhverjir aðrir vilja það. Til að mynda fjölskyldan eða jafnvel karlarnir og um leið og þær komast burt frá þessum kröfum eða skyld- um, s.s. til útlanda, fara þær úr kuflunum. Ég hlýt því að velta því fyrir mér hvort þær muni ekki gera slíkt hið sama og leið og færi gefst í þeirra eigin heimalandi. Hvenær það verður skal hins vegar ósagt látið. En hvað um það. Margt er ólíkt með stöðu okkar íslensku kvennanna og kynsystra okkar í Katar. Við fengum t.d. þau rétt- indi sem ég taldi hér upp að of- an snemma á síðustu öld. Enn fleiri réttindi höfum við fengið í kjölfarið, a.m.k. á borði. Spurn- ingin er sú hvort við höfum fengið þau í orði. Reyndar – ef vel er að gáð – er í raun ótrúlegt að við höfum ekki náð lengra í átt til jafn- réttis á ýmsum sviðum ef mið er tekið af því hvenær við öðl- uðumst hin ýmsu réttindi. Nú eru til dæmis bráðum 85 ár frá því konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis til jafns við karlmenn. Þrátt fyrir það hefur hlutur kvenna á Alþingi ekki náð því að verða jafn hlut karla. Og í ríkisstjórn eru kon- ur enn í miklum, miklum minni- hluta. Ef miðað er við þá fram- boðslista sem nú liggja frammi eru litlar líkur á breytingum, konum í hag, eftir komandi al- þingiskosningar. Því miður. Fleiri dæmi mætti nefna. Konur hér á landi eru til dæmis duglegar að mennta sig eins og konurnar í Katar en það hefur ekki skilað sér til fullnustu í æðstu stjórnunarstöður at- vinnulífsins. Ekki ennþá að minnsta kosti. Þá segja ítrek- aðar launakannanir okkur að störf kvenna eru ekki metin til jafns við störf karla. Óút- skýrður launamunur kynjanna er enn til staðar. Þegar allt kemur til alls eig- um við því kannski meira skylt með konunum í Katar en okkur grunar. Þar eru karlar ráðandi við stjórnun landsins. Það sama er í reynd upp á teningnum hér, sé m.a. litið til stjórnmála og at- vinnulífs. Ég ber þó þá von í brjósti að það eigi eftir að breytast innan tíðar, bæði hér og í Katar. Ekki síst vona ég að konurnar þar þurfi ekki að bíða eins lengi og við, kynsystur þeirra á Íslandi. Í orði og á borði „En um leið og flugvélin hætti að snerta jörðina fjarlægðu þær andlitsblæjuna og „settu upp“ varalitinn.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.