Morgunblaðið - 05.02.2003, Side 33

Morgunblaðið - 05.02.2003, Side 33
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURLEIFUR GUÐJÓNSSON, Safamýri 48, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 3. febrúar. Sigríður Gísladóttir, Unnar Þór Sigurleifsson, Margrét Sigurleifsdóttir, Elías Hartmann Hreinsson, Elísa Sirrý Elíasdóttir MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 33 ✝ Svava Ólafsdótt-ir fæddist í Reykjavík hinn 24. nóvember 1918. Hún andaðist á hjúkr- unarheimilinu Skjóli hinn 27. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Guðmunds- son skipstjóri, f. 22. september 1884, en hann fórst með norska flutninga- skipinu Ulf í janúar 1931, og Guðrún Friðfinnsdóttir, f. 9. október 1887, d. 27. apríl 1949. Systkini Svövu eru Gísli loft- skeytamaður, f. 8. janúar 1916, d. 10. október 1974, og Fjóla, f. 4. desember 1919. Svava giftist Bjarna M. Karlssyni málarameistara, f. 8. september 1911, d. 5. desember 1999. Svava ólst upp í Reykjavík og vann lengstan hluta starfsævi sinnar í gjaldeyrisdeild Landsbanka Íslands. Útför Svövu verð- ur gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Nú þegar komið er að kveðjustund langar okkur að minnast frænku okkar Svövu, en hún var systir móð- ur okkar. Svava ólst upp við Fram- nesveg í Reykjavík. Þegar við vorum að alast upp var hún mikið á heimili okkar og passaði okkur oft. Hún var mjög trúuð og kenndi okkur systk- inum margar bænir. Það sem við minnumst helst er glaðværð hennar, góða skapið og gjalfmildi hennar var einstök. Oft fengum við systkinin að gista hjá henni og þá fengum við að vaka frameftir og gjarnan útbjó hún þá uppáhaldsmatinn fyrir okkur. Svava og mamma voru afar sam- rýmdar og miklar vinkonur og hitt- ust daglega á uppvaxtarárum okkar. Þegar Svava fór til útlanda kom hún alltaf færandi hendi og biðum við alltaf spennt eftir heimkomu hennar. Hún hafði gaman af því að gleðja aðra bæði með gjöfum og eins með glaðlegu viðmóti og smitandi hlátri. Þegar eitthvert okkar bjó í útlöndum var spennandi að fá bréf frá henni bæði voru þau skemmtileg og svo var alltaf einhver glaðningur í um- slaginu. Svava var berdreymin Við stelpurnar vissum oftast hvaða kyn barnið var sem við gengum með því hana hafði dreymt það. Oft fór hún niður að Tjörn á morgnana áður en hún fór til vinnu og virtust fuglarnir þekkja hana þegar hún mætti. Margar skemmtilegar sögur eru til af Svövu, hún var alltaf svo kát og hafði á orði að það væri gott að hlæja og líka gráta, manni liði svo vel á eft- ir. Svava var glæsileg kona og lagði áherslu á að vera alltaf vel tilhöfð og lét okkur stundum vita á mjög vin- samlegan hátt að við gætum nú litið betur út. Ferðin sem við fórum allar saman til London, Svava, mamma og við systurnar þrjár er eftirminnileg en Svava þekkti London mjög vel en hún hafði verið í skóla í London á sínum yngri árum. Svava giftist Bjarna Karlssyni árið 1967, en hann var ekkjumaður og átti fyrir tvær stálpaðar dætur. Viku eftir 65 ára afmælidag sinn fékk hún heilablóðfall. Þetta var mikið áfall fyrir alla og var hún bundin við hjólastól eftir það. Í 15 ár var hún á hjúkrunarheimilinu Skjóli og leið henni vel þar og er starfsfólk- inu færðar bestu þakkir fyrir frá- bæra umönnun öll þessi 15 ár. Gunna systir annaðist hana öll þessi ár af einskærri alúð og heimsótti hana nær daglega og eru henni og hennar fjölskyldu færðar bestu þakkir fyrir. Ólöf, Ólafur, Snorri, Guðrún Svava og Fjóla. Jafnvel þó að Svava hafi verið búin að vera veik í mörg ár og eflaust hvíldinni fegin þá fer ekki hjá því að sorgin og söknuðurinn sitji í hjarta okkar sem kveðjum hana í dag. Svava frænka var alltaf mjög pjöttuð og þegar við fórum í heimsókn til hennar í Skjól með mömmu máttum við helst ekki vera í gallabuxum og ekki féllu henni í geð óburstaðir skór. Hildi fannst það ekki leiðinlegt þegar hún var yngri því þegar það var of kalt til að vera í kjól, sagði hún við mömmu „Svava frænka er alltaf í kjól, af hverju má ég ekki vera í kjól?“ Þegar við vorum í heimsókn sungum við oft fyrir hana og þótti henni það mjög skemmtilegt. Svava var mjög gjafmild og vildi alltaf vera að gefa okkur eitthvað. Nú er komið að kveðjustund en minningin um þig mun ávallt lifa í hjarta okkar. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson.) Þínar Svava og Hildur. Svava ömmusystir okkar er látin eftir löng veikindi. Við systkinin vor- um mjög ung þegar hún veiktist fyr- ir tuttugu árum. Þegar við minn- umst Svövu koma í hugann heimsóknir til hennar á hjúkrunar- heimilið Skjól þar sem hún dvaldi síðustu fimmtán ár. Skemmtilegast þótti henni þegar við sungum fyrir hana um litlu stúlkuna með ljósu flétturnar tvær. Hún vildi líka alltaf vera hugguleg og í hverri heimsókn var tekið fram snyrtidótið og hún máluð og gerð fín. Svava var mjög gjafmild og blíð og streymdi frá henni hlýja. Við systkinin kveðjum Svövu frænku með söknuði en við vitum að núna líður henni betur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Kveðja, Áslaug, Eva og Halldór. Þegar ég kveð Svövu frænku mína í dag mun ég minnast hennar fyrir margt. Ég mun minnast hennar sem ömmusysturinnar sem brosti og hló þrátt fyrir erfið veikindi í tæp tutt- ugu ár. Sem frænkunnar sem þótti svo sannarlega sælla að gefa en þiggja og var svo þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Sem kon- unnar sem var í gríni sögð pjöttuð því hún var alltaf vel til höfð. Sem frænkunnar sem minnti okkur alltaf á að skála yfir hátíðarmatnum. Það verður skrítið að skála ekki við hana um páskana og næstu jól og áramót. Jafnframt mun ég minnast hennar sem frænkunnar sem ég hefði viljað kynnast miklu betur. Sögurnar sem mamma hefur sagt mér af Svövu lifa þó áfram með okkur sem og minn- ingar um gleðilegar stundir með henni. Guð geymi góða konu. Ég vil í Drottni sofna sætt, samviskustríðið allt er bætt, dauðahaldi ég Drottin þríf, dýrstur gef þú mér eilíft líf. Lúinn anda ég legg nú af, lífinu ráði sá, sem gaf, í sárum Jesú mig sætt innvef, sálu mína ég Guði gef. Láttu mig, Drottinn, lofa þig, með lofi þínu hvíla mig, ljósið í þínu ljósi sjá, lofa þig strax sem vakna má. (Hallgrímur Pétursson.) Björn Gíslason. Svava, elsku góða, gjafmilda og fallega móðursystir mín, er látin. Síðustu tuttugu árin hafa verið henni erfið. Hún hefur verið í hjólastól og ekki getað talað sökum heilablóð- falls. Hjúkrunarheimilið Skjól hefur verið hennar heimili sl. 15 ár og er starfsfólki þar þökkuð frábær umönnun. Að leiðarlokum langar mig til þess að minnast samtals sem við áttum fyrir um fimmtíu árum. Mér hefur oft dottið þetta samtal í hug í gegn- um árin. Það voru að koma páskar og Svava var með poka fullan af páska- eggjum. Þau voru fleiri en við systk- inin svo ég spurði hvað hún ætlaði að gera við aukapáskaeggið, hvort hún ætlaði að borða það sjálf. Hún sagð- ist ætla að gefa það fátæku barni sem hún vissi að fengi ekki neitt, og maður ætti að gefa þegar maður hefði nóg sjálfur. Þetta lýsir Svövu móðursystur mjög vel. Hún var allt- af að hjálpa og gefa. Svava hafði gaman af að vera fín og hafði fólk orð á því hve vel til höfð hún var alltaf. Mig langar að kveðja Svövu með bæn sem hún og mamma kenndu mér þegar ég var lítil telpa. Þú, Guð, sem stýrir stjarna her og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr mínu hjarta’ að hugsa gott og hyggja’ að vilja þínum, og má þú hvern þann blett á brott, er býr í huga mínum. (Valdimar Briem.) Þessi bæn varð til þess að ég fór oft út á tröppur og leit til himins til að athuga hvort ég sæi ekki Guð að stjórna stjörnunum. Ólöf. SVAVA ÓLAFSDÓTTIR Faðir okkar og bróðir, JÓN G. ÓSKARSSON, Kolgerði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið- vikudaginn 29. janúar. Útför hans fer fram frá Grenivíkurkirkju laugar- daginn 8. febrúar kl. 14.00. Guðrún Birna Jónsdóttir, María Sigurlaug Jónsdóttir Jóhanna Óskarsdóttir. Móðir mín og systir, STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR HENRETTE, lést í Houston í Texas fimmtudaginn 30. janúar 2003. Helga Jónsdóttir Rice, Þórir Þorsteinsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, LÚÐVÍK REIMARSSON frá Heiðatúni, Vestmannaeyjum, sem lést miðvikudaginn 22. janúar, verður jarðsunginn frá Landakirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 16.00. Kristín H. Sveinsdóttir og fjölskylda. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, GÍSLI BJARNASON, Orrahólum 7, Reykjavík, áður Þórólfsgötu 12a, Borgarnesi, lést á heimili sínu laugardaginn 1. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigurður Valur, Gunnþórunn Birna, Ólafur Waage, Jón Valgeir, Guðbjörg Björnsdóttir, Elías Bjarni, Halla Margrét Tryggvadóttir, Magnús Þorkell, Rósa Rögnvaldsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Kristín H. Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, AUÐUNN JÓHANNESSON húsgagnameistari, Fannborg 8, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánu- daginn 3. febrúar. Sigríður Guðný Sigurðardóttir, Ingibjörg Auðunsdóttir, Sigríður Auðunsdóttir, Anna Auðunsdóttir, Aðalheiður Auðunsdóttir, Þórir Ólafsson, Arthúr Ólafsson. Móðir okkar, BJARKEY GUNNLAUGSDÓTTIR, Langholti 5, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 7. febrúar kl. 13.30. Erla Ívarsdóttir, Haukur Ívarsson, Ásdís Ívarsdóttir og fjölskyldur. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.