Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 39

Morgunblaðið - 05.02.2003, Page 39
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 39 Reiðfatnaður Náttúrulegur lífsstíll FREMSTIR FYRIR GÆÐI NOKKUÐ er síðan mótanefnd LH var aflögð og röðun móta á daga gerð sjálfbær ef svo má að orði komast. Félögin senda inn sínar ákvarðanir um dagsetningar móta og það síðan látið ráðast hvort dæmið gengur upp eða ekki. Ef um alvarlega árekstra er að ræða hefur LH forgöngu um að finna lausnir sem helst allir aðilar geta sætt sig við. Þótt hefðin ráði nokk- uð ferðinni virðist einnig gilda að fyrstir koma fyrstir fá, það er að þeir sem fyrstir senda inn dag- setningar hafa meira val. Þegar dagsetningarnar berast skrifstofu LH eru þær settar inn á heimasíðu samtakanna og hafa þar með tekið gildi. Mótaskráin verður því til í beinni eins og það er kallað á ljós- vakamáli. HM á hraðferð upp dagatalið Helsta breyting frá hefðinni nú er tilfærsla á aðalviðburði ársins; heimsmeistaramótinu sem nú verð- ur haldið í Danmörku. Mótinu er nú flýtt verulega en um langa tíð hafa félagar okkar erlendis barist hart fyrir því að fá að halda mótin fyrr á árinu en eitt sinn tíðkaðist. Lengi vel voru mótin haldin í end- aðan ágúst en hafa hægt og bítandi þokast framar í dagatalið. Nú er það verslunarmannahelgin sjálf sem verður lögð undir þennan við- burð. Samkvæmt mótaskránni byrjar mótið 25. júlí og lýkur sunnudaginn 3. ágúst. Þessa helgi hafa Skagfirðingar og nú síðustu tvö árin Norðlendingar verið með mót á Vindheimamelum og Mel- gerðismelum. Þá hafa Logamenn í Biskupstungum verið með sitt mót þessa helgi. Þessir aðilar hafa ekki enn sent inn dagsetningar móta sinna og því ekki ljóst hvort þeir hyggist halda sínu striki og keppa við heimsmeistaramótið um að- sóknina. Talsverður fjöldi félaga virðist eiga eftir að skila inn dag- setningum og heimtur því óvenju slæmar að þessu sinni. Fjórðungsmót á Hornafirði Hápunkturinn innanlands verð- ur fjórðungsmótið á Austurlandi sem nú verður haldið að Stekkhóli á Hornafirði. Það verður haldið 3. til 6. júlí. Aðeins tvö önnur mót hafa verið skráð á júlímánuð en það er Stormur á Vestfjörðum og Sleipnir og Smári á Murneyri. Júlí er að öllu jöfnu rýrasti mánuður- inn í mótahaldi en aldrei hefur hann verið svo rýr sem nú. Vel lík- legt er að eitthvað eigi þar eftir að bætast við. Íslandsmótin verða tví- skipt að þessu sinni. Hið fyrra, fyrir yngri flokkana, verður haldið á Varmárbökkum 20. til 22. júní en hið seinna, fyrir fullorðna, verður haldið á Selfossi viku seinna, eða 27.–29. júní. Fimm mót eru auð- kennd sem afrekslistamót, FEIF, og gildir árangur á þeim inn á af- rekslistann (World ranking). Mótakóngar ársins eru án efa Andvaramenn sem eru hreint al- veg trylltir þessa dagana enda komnir með nýja reiðhöll og mann- skapurinn greinilega að springa úr orku þar á bæ. Á skránni eru þeir með hvorki fleiri né færri en 12 mót á árinu. Þeir riðu á vaðið fyrir rúmri viku með vígslumóti í höll- inni og þeir virðast samkvæmt skránni eiga síðasta orðið á árinu. Í þrígang eru tvö mót hjá þeim í mánuði og í maí verða þrjú mót haldin. Opin mót setja eins og und- anfarin ár nokkurn svip á móta- skrána og virðist eitthvað vera að fjölga félögum sem opna íþrótta- mót sín og er það vel. Færi vel á því að félög tækju sig saman um ákvörðun um slíkt því það myndi óneitanlega setja aukið líf í keppn- ina og vafalítið auka þátttökuna. Stað vantar fyrir úrtöku Úrtakan fyrir heimsmeist- aramótið verður haldin 5. til 6. júní, fyrri umferðin, og 8. til 9. júní, seinni umferðin. Staður fyrir úrtökuna hefur ekki enn verið ákveðinn. Þótt ekki sé því að neita að nokkur lægð virðist vera í hesta- mennskunni á landinu má ætla að lítið lát verði á keppnisgleði hesta- manna á árinu. En svona í lokin er full ástæða til að hvetja þau félög sem ekki hafa enn skilað inn dagsetningum á mótum sínum að gera það hið fyrsta því það kemur fyrst og fremst niður á þeim sjálfum ef slíkt dregst úr hömlu. Mótaskrá Landssambands hestamannafélaga enn í mótun Morgunblaðið/Vakri Þótt ekki verði flautað til landsmóts á árinu má vænta þess að skarpir sprettir verði teknir og lítið gefið eftir. Sigurbjörn Bárðarson hampaði langþráðum sigurlaunum á Ístölti síðasta árs og nú má vænta þess að hann reyni að verja titilinn hinn 5. apríl en spurningin er hvort hann mæti á nýjan leik með Markús frá Langholtsparti í slaginn eða hvort hann verði með nýtt tromp í erminni. Slæmar heimtur á mótadögum Mótaskrá Landssam- bands hestamanna- félaga hefur verið að fæðast og mótast á síð- ustu vikum. Allt er þar í nokkuð föstum skorðum en þó sér Valdimar Kristinsson nokkrar athyglisverðar breytingar á henni. Í FRÉTT af folaldasýningu í Saltvík í Norður-Þingeyjarsýslu í hesta- þættinum var sagt að eitt folaldanna væri undan Hrafni frá Holtsmúla sem felldur var fyrir einum sjö ár- um. Vakti þetta að vonum mikla at- hygli og viðbrögð sem voru mörg hver á þá lund hvort Hrafn væri genginn aftur eða þá hvort einhverj- ir snillingar hefðu verið svo forsjálir og þá væntanlega á undan sinni samtíð að frysta sæði úr klárnum og væri folaldið sem þarna kom fram þá afrakstur þess. Þá héldu sumir að þarna væri kominn nýr Hrafn fram á sjónarsviðið, annaðhvort frá Holtsmúla í Skagafirði eða Holts- múla í Landsveit. Engin þessara getgátna á við rök að styðjast því folaldið er undan Óskahrafni frá Brún sem er aftur sonur Hrafns. Ástæður mistakanna eru þær að í sýningarskrá var fol- aldið skráð undan Hrafni frá Holts- múla og leiðrétting í töluðu máli á sýningunni náði ekki til fréttarit- arans sem ekki er sérfræðingur í hrossaættum og því fór sem fór. Leiðréttist þetta hér með og því miður þá slökknaði þar með sú veika von sem kviknaði hjá mörgum um að Hrafn væri aftur kominn á ferð í kynbótastarfið. Hrafn frá Holtsmúla afturgenginn? LÆRDÓMS- og fróðleiksfýsn íslenskra hestamanna er alltaf söm við sig og nú eins og oft áð- ur leita menn út fyrir landstein- ana til að auka víðsýnina. Tveir þýskir reiðsnillingar eru vænt- anlegir til landsins á næstu mánuðum. Karly Zingsheim verður með námskeið á Svaða- stöðum á Sauðárkróki 14. til 16. febrúar nk. en það er Norður- landsdeild Félags tamninga- manna sem stendur að þessu námskeiði. Fullbókað er á nám- skeiðið en tólf manns mæta með hesta. Auk þess verður boðið upp á áhorfsþátttöku og er nóg pláss þar. Námskeiðið kostar 25 þúsund krónur fyrir þá sem mæta með hross en 2500 krónur fyrir áhorfsþátt- töku. Þórarinn Eymundsson, formaður deildarinnar, sagði að Karly myndi kenna sínar leiðir og aðferðir til að fá aukinn létt- leika í reiðmennskuna með fimiþjálfun og söfnun. Þá taldi hann víst að nemendur hefðu einhver áhrif á hvað væri farið í og benti hann á í því sambandi að Karly hefði vakið mikla at- hygli fyrir útfærslur á stökki og skiptingum yfir á stökk í keppni og gerði hann ráð fyrir að eitthvað yrði reynt að ausa úr þeim kunnáttubrunni kapp- ans. Guðfaðir byltingarinnar Seinni partinn í apríl kemur svo gamla kempan Walter Feldmann jr. til landsins og kennir á hestamiðstöðinni Sól- vangi við Eyrarbakka, hjá þeim hjónum Elsu Magnúsdóttur og Pjetri Pjeturssyni. Þau fengu Karly Zingsheim á síðasta ári en nú er það sem sagt Feld- mann sjálfur sem sjálfsagt má kalla guðföður reiðmennsku- byltingarinnar á Íslandi. Hann og faðir hans, Walter Feld- mann sr., voru þeir fyrstu sem komu með nýja og framandi strauma inn í íslenska hesta- mennsku fyrir rúmum 30 árum og ollu með því miklum straum- hvörfum í reiðkunnáttu Íslend- inga. Feldmann jr. hefur ávallt verið mjög framsækinn í öllu er varðar þjálfun og uppbyggingu ganghesta og hefur hann komið mjög víða við í þeim efnum. Nokkuð er um liðið síðan hann kom til landsins í þessum er- indagjörðum og verður án efa fróðlegt fyrir íslenska reið- menn að fá að njóta visku úr hans fróðleiksbrunni. Að sögn Elsu verða 12 til 16 manns á námskeiðinu og kostar það 25 þúsund krónur. Feld- mann mun kenna nemendum sínum æfingar og aðferðir til að bæta samspil manns við hest- inn og einnig koma inn á und- irbúning fyrir keppni. Nám- skeið hefst föstudaginn 27. apríl og stendur yfir í þrjá daga. Feldmann er með tvo knapa inni á vellinum í einu og aðrir fylgjast með utan vallar. Sagði Elsa að enn væru nokkur pláss laus en ekki mörg. Þýskir reið- snillingar uppfræða Íslendinga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.