Morgunblaðið - 05.02.2003, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 41
Á TVEGGJA kvölda námskeiði sem
hefst í kvöld kl. 20 fjallar Viðar
Hreinsson bókmenntafræðingur um
Stephan G. Stephansson. Á nám-
skeiðinu verða einnig gögn úr hand-
ritadeild Landsbókasafns, sem not-
uð voru við ritun Landnemans mikla.
Námskeiðið hefst í kvöld og síðara
kvöldið verður 12. febrúar. Nám-
skeiðið er haldið í fyrirlestrarsal
Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð. Það er í
samvinnu Þjóðarbókhlöðu og
Reykjavíkurakademíunnar og verð-
ur síðara kvöldið 12. febrúar.
Nánari upplýsingar er m.a. að
finna á heimasíðu Þjóðarbókhlöðu:
www.bok.hi.is undir Fréttir.
Námskeið um
Stephan G.
Ungt fólk með ungana sína.
Ungu fólki er boðið að koma með
börnin sín í Hitt húsið, Póst-
hússtræti 3–5, alla fimmtudaga
milli 13–15. Fimmtudaginn 6. febr-
úar verður Harpa Guðmundsdóttir
með kynnngu í Alexanderstækni.
Kennslan er sérsniðin fyrir þenn-
an hóp og eru allir velkomnir þeim
að kostanaðarlausu. Áhugasamir
eru beðnir að mæta með teppi
og tvær bækur, sem nýtt verður í
kennslunni.
Fyrirtækjamenning og innri
markaðssetning. Lektorar frá
Háskólanum í Reykjavík fjalla um
fræðilegar hliðar fyrirtækjamenn-
ingar og innri markaðssetningar á
ráðstefnu og verðlaunaafhendingu
á Nýja sviði Borgarleikhússins
fimmtudaginn
6. febrúar kl. 9.00–14.00
Þá verður flutt erindi úr íslensku
viðskiptalífi þar sem forstjóri Öl-
gerðarinnar upplýsir um leiðina
frá framleiðslufyrirtæki til sölu-
og markaðsfyrirtækis.
Aðalerindi ráðstefnunnar fjallar
um fyrirtækjamenningu
alþjóðahugbúnaðarfyrirtækisins
SAS Institute. Fyrirtækið, sem er
með höfuðstöðvar í Bandaríkj-
unum, hefur verið í rekstri í 26 ár
og hlotið alþjóðlega athygli vegna
einstakrar fyrirtækjamenningar
sem hefur skilað miklum árangri.
Annar eigandi fyrirtækisins er nr.
53 á Forbes-listanum yfir ríkustu
einstaklingana í Bandaríkjunum.
Skráning fer fram með tölvupósti
á fvh@fvh.is eða í síma 551 1317.
Verð 5.500 kr. fyrir félaga FVH og
10.500 kr. fyrir aðra.
Lagadeild Háskóla Íslands býð-
ur alþjóðlegt MA-nám. Í haust
verða þau nýmæli í háskólanámi
hérlendis að lagadeild Háskóla
Íslands býður alþjóðlegt MA-
lögfræðinám á ensku. Námið
stendur bæði til boða erlendum
lögfræðingum er lokið hafa laga-
prófi úr viðurkenndum háskólum,
og íslenskum lögfræðingum. Á það
jafnt við þá sem á liðnum árum
hafa útskrifast úr lagadeild HÍ
sem og þá er nú eru að ljúka námi
þar.
Alþjóðlegt lögfræðinám á meist-
arastigi er stór áfangi í sögu laga-
deildar Háskóla Íslands. Því er
boðið til kynningar á þessari nýj-
ung og helstu áherslum í náminu.
Jafnframt verður hinn nýútkomni
bæklingur kynntur.
Á fundinum verða m.a. Páll Skúla-
son rektor, Eiríkur Tómasson pró-
fessor, deildarforseti lagadeildar,
Karítas Kvaran, framkvæmda-
stjóri Alþjóðaskrifstofu há-
skólastigsins, Jónatan Þórmunds-
son prófessor og Skúli Magnússon
lektor, en þeir síðastnefndu hafa
borið hitann og þungann af upp-
byggingu námsins.
Kynningin fer fram í fund-
arherbergi Háskólaráðs, Að-
albyggingu 1. hæð hinn 6. febrúar
og hefst kl. 13.00.
Erindi um fötlunarfræði.
Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20
mun Rannveig Traustadóttir halda
erindi sem hún nefnir „Hvað er
fötlunarfræði?“ Erindið er haldið
hjá Þroskahjálp, Suðurlandsbraut
22. Þar rekur Rannveig þróun fötl-
unarfræða sem fræðigreinar og
gerir grein fyrir helstu átakalínum
og álitamálum sem uppi eru innan
fræðanna í dag. Allir velkomnir.
Sjögrenshópurinn verður með
kaffispjall á kaffi Mílanó í Faxa-
feni í kvöld kl. 20.
Á MORGUN
Stuðningshópur um krabbamein í
blöðruhálskirtli verður með rabb-
fund í húsi Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag, mið-
vikudaginn 5. febrúar kl. 17.00.
Gestur fundarins verður Bjarni Ei-
ríkur Sigurðsson, skólastjóri Reið-
skólans Þyrils í Víðidal. Bjarni ætlar
að ræða um hestamennsku í Njálu.
Fundurinn er einkum ætlaður þeim
sem greinst hafa með krabbamein í
blöðruhálskirtli og aðstandendum
þeirra. Kaffi verður á könnunni.
Í DAG
Heilsudagar hjá NLFÍ verða vikuna
23. febrúar til 2. mars. Heilsudögum
er ætlað að hjálpa fólki til að koma í
veg fyrir og losna við afleiðingar
álags og streitu, með slökun, hvíld,
fræðslu, hreyfingu og góðu fæði, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Falin tækifæri í norrænu sam-
starfi. Sigrún Stefánsdóttir, for-
stöðumaður upplýsingaskrifstofu
Norðurlandaráðs og Norrænu ráð-
herranefndarinnar, er umsjón-
armaður námskeiðs sem Endur-
menntun HÍ heldur 21. febrúar um
norrænt samstarf og möguleika sem
innan þess felast, sérstaklega á sviði
menningar og menntunar. Uppbygg-
ing á norrænu samstarfi verður
kynnt, sem og Norðurlandaráð, Nor-
ræna ráðherranefndin og helstu sam-
starfsstofnanir. Þá verða kynntar
helstu leiðir til að sækja um norræna
styrki, m.a. hjá Norræna menning-
arsjóðnum og gefnar leiðbeiningar
um gerð styrkjaumsókna. Aðrir fyr-
irlesarar eru Snjólaug Ólafsdóttir,
skrifstofustjóri Norðurlandaskrif-
stofu, Ragnheiður Þórarinsdóttir,
sérfræðingur í menntamálaráðuneyt-
inu, og Mats Jönsson, yfirmaður Nor-
ræna menningarsjóðsins.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja
vinna á norrænum vettvangi. Upplýs-
ingar um öll námskeið er að finna á
vef Endurmenntunar www.end-
urmenntun.is. Þar er hægt að skrá
sig á námskeið.
Spákona á Kaffi Nauthól.
Undanfarna mánuði hefur Lóa spá-
kona spáð í tarotspil og bolla fyrir
gesti og gangandi á Kaffi Nauthól í
Nauthólsvík.
Lóa hefur verið við mánudaga og
miðvikudaga milli 14 og 17.
Nú í upphafi árs þegar margir eru
forvitnir um framtíðina verður Lóa
einnig við á föstudögum milli 17–21.
Unnt er að bóka tíma.
Rannsóknastofa í kvennafræðum
stendur fyrir málþinginu stjórnun,
fagstéttir og kynferði í stofu 101 í
Lögbergi, föstudaginn 7. febrúar. kl.
14 til 17. Fyrirlesarar eru: Guðný
Guðbjörnsdóttir, prófessor í mennt-
unar- og uppeldisfræði, Steinunn
Hrafnsdóttir, lektor í félagsráðgjöf,
Þóra Margrét Pálsdóttir sálfræð-
ingur, Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir
hjúkrunarfræðingur og Þorgerður
Einarsdóttir, lektor í kynjafræðum.
Að erindunum loknum verða fyr-
irspurnir og umræður.
Málþingið er öllum opið og aðgangur
ókeypis. Dagskrá og nánari lýsingar
á fyrirlestrum er að finna á
www.hi.is/stofn/fem.
Á NÆSTUNNI
Fundur um matarverð. Samfylk-
ingin heldur fund í kvöld í fundaröð-
inni „Mál á dagskrá“ þar sem leitað
verður svara við spurningunum
„Hvernig er hægt að lækka mat-
arverð á Íslandi?“, „Hverju gæti aðild
að ESB breytt fyrir neytendur?“ o.fl.
Frummælendur og þátttakendur í
umræðum verða Rannveig Guð-
mundsdóttir alþingismaður, Guð-
mundur Ólafsson hagfræðingur, Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, og Elías Þor-
varðarson, verslunarstjóri Nettó í
Mjódd.
Fundurinn verður í Iðnó og hefst kl.
20.
STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing stjórnar Land-
verndar vegna úrskurðar um Norð-
lingaölduveitu:
„Stjórn Landverndar lýsir yfir
ánægju með úrskurð Jóns Kristjáns-
sonar, setts umhverfisráðherra, um
mat á umhverfisáhrifum Norðlinga-
ölduveitu og þakkar þá úttekt sem
ráðherrann hefur látið gera á málinu í
þeim tilgangi að finna leiðir til úr-
lausnar. Að mati stjórnar Land-
verndar er þessi úrskurður á margan
hátt til fyrirmyndar.
Úrskurðurinn sýnir að í mörgum
tilvikum má bæði nýta orku íslenskra
fallvatna og ná viðunandi verndun á
náttúru ef ekki er einblínt of mikið á
ódýrustu leiðina.
Úrskurðurinn byggist á því að sér-
stæða og viðkvæma náttúru beri að
vernda og að framkvæmdir skuli ekki
brjóta í bága við friðlýsingarákvæði
og alþjóðlega samninga sem Ísland
hefur gerst aðili að og staðfest.
Úrskurðurinn staðfestir að taka
ber tillit til verulegra umhverfis-
áhrifa þegar ákvörðun er tekin um
framkvæmdir.
Úrskurðurinn sýnir að rökstuddar
og réttmætar ábendingar frá þeim
sem vilja að tekið sé meira tillit til
verndunar náttúrunnar eiga rétt á
sér og eru nauðsynlegar.
Í úrskurðinum heimilar ráðherra
gerð setlóns undir jökli austan Arn-
arfells með miðlun vatns í Þjórsárlón
með tilheyrandi leiðigörðum, stíflum
og skurðum. Stjórn Landverndar
minnir á að þessari framkvæmd
fylgja fjölþætt umhverfisáhrif sem
mikilvægt er að huga vel að. Það er
nauðsynlegt að umfjöllun um nánari
útfærslu á þessari framkvæmd verði
opin og aðgengileg fyrir almenning
og félagasamtök og að ekki verði ráð-
ist í framkvæmdir fyrr en allir þættir
málsins hafa verið vel rannsakaðir og
kynntir.
Þess má geta að Landvernd býður
til kynningarfundar í Norræna hús-
inu í Reykjavík miðvikudaginn 5.
febrúar kl. 17. Á fundinum mun Viðar
Ólafsson, verkfræðingur hjá VST,
greina frá tæknilegri útfærslu fram-
kvæmdarinnar. Fundurinn er opinn
og aðgangur ókeypis.“
Landvernd lýsir ánægju með úrskurð
STJÓRNENDASKÓLI Háskólans í
Reykjavík stendur fyrir námskeið-
inu „Nýr stjórnenda- og lífsstíll.“
Farið verður í hvernig stjórnend-
ur geta náð fram æskilegu jafnvægi
á milli atvinnu og einkalífs og hugað
samtímis að bættri andlegri og lík-
amlegri vellíðan.
Námskeiðið er ætlað stjórnendum
og sérfræðingum með mannaforráð.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru
sérfræðingar frá Háskólanum í
Reykjavík og úr atvinnulífinu.
Námskeiðið er alls 40 klst. og er
kennt á þriðjudögum frá kl. 8:30 til
13:30 í 10 vikur. Námskeiðið hefst 11.
febrúar og því líkur 15. apríl.
Námskeiðið fer fram í Háskólan-
um í Reykjavík, 3. hæð.
Skráning á námskeiðið fer fram á
vefsetri Stjórnendaskóla HR,
www.stjornendaskoli.is
Námskeið
um nýjan
stjórnenda-
og lífsstíll
DAGANA 5.–7. febrúar stendur
Stúdentaráð fyrir atvinnulífsdög-
um við Háskóla Íslands. Markmið
daganna er að efla tengsl Háskól-
ans og atvinnulífsins auk þess að
gefa stúdentum tækifæri á að
kynnast öllum þeim möguleikum
sem bjóðast á atvinnumarkaðinum.
Nokkur fyrirtæki og stofnanir
munu kynna starfsemi sína og
starfsmannastefnu auk þess sem
boðið verður upp á bæði frum-
kvöðlanámskeið og kynningu á Ný-
sköpunarsjóði námsmanna.
Dagskrá atvinnulífsdaganna er
sem hér segir: Miðvikudagur 5.
febrúar, Oddi, stofa 202: 12.20–
13.00 – Íslandsbanki – Vilborg
Loftsdóttir, VRII, stofa 157:
12.20– 13.00 – Hugur – Erna Arn-
ardóttir, Lögberg, stofa 101:
12.20–13.00 – Utanríkisráðuneytið
– Hannes Heimisson, Árnagarður,
stofa 301: 12.20 – 13.00 – Reykja-
víkurakademían – Steinunn Krist-
jánsdóttir, Oddi, stofa 101: 20.00–
22.00 – Frumkvöðlanámskeið – Jón
Hreinsson frá Impru, fimmtudagur
6. febrúar, Oddi, stofa 101: 12.20
–13.00 – Þekkingarmiðlun – Ingrid
Kuhlman, VRII, stofa 157: 12.20–
13.00 – Flaga – Berglind Hall-
grímsdóttir Árnagarður stofa 301:
12.20–13.00 – Fróði – Aðalheiður
Sigurðardóttir, föstudagur 7. febr-
úar, Árnagarður, stofa 101: 12.20–
13.00 – Nýsköpunarsjóður náms-
manna. Hanna María Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Nýsköpunar-
sjóðs, kynnir starfsemi sjóðsins.
Katrín Jakobsdóttir, nemi í ís-
lensku, kynnir verkefni sitt og seg-
ir frá samskiptum sínum við sjóð-
inn.
Atvinnu-
lífsdagar
í Háskóla
Íslands
PÁLMI Rafn Pálmason, knatt-
spyrnumaður í Völsungi, var valinn
íþróttamaður ársins 2002 á Húsavík,
í öðru sæti varð Pálmar Pétursson,
handknattleiksmaður í Val, og í
þriðja sæti Gísli Haraldsson, hesta-
maður og hrossaræktandi í Hesta-
mannafélaginu Grana á Húsavík.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
stendur fyrir kjöri á íþróttamanni
ársins á Húsavík í samstarfi við
Völsung o.fl. íþróttafélög á Húsavík.
Kjörinu var lýst við fjölmenna at-
höfn í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Áberandi var hversu margir verð-
launahafar voru fjarverandi vegna
keppni eða æfinga.
Pálmi Rafn Pálmason þykir mjög
efnilegur knattspyrnumaður sem
eftir er tekið og þrátt fyrir að vera
aðeins 18 ára að aldri hefur hann
leikið sl. þrjú ár með meistaraflokki
Völsungs. Hann er þegar orðinn lyk-
ilmaður í liðinu og einn af burðar-
ásum. Hann hefur verið valinn í
U-19 ára landslið Íslands og spilaði
alla leiki þess á sl. ári.
Pálmi Rafn hefur vakið athygli er-
lendra liða og fór m.a til æfinga í
haust hjá Arsenal og Groningen í
Hollandi. Þeim hjá Groningen leist
svo vel á pilt að hann er kominn
þangað aftur og æfir með félaginu
um þessar mundir.
Björg Jónsdóttir, fyrrverandi handknattleikskona, tók við verðlaunum fyr-
ir hönd sonar síns Pálma sem er við æfingar hjá Groningen í Hollandi.
Pálmi og Pálmar bestir
Húsavík. Morgunblaðið.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Ísland
verði heiðursþjóð í næsta Wash-
ington-maraþonhlaupi sem fram fer
23. mars nk. en í því felst m.a. að
kastljósinu verður varpað að Íslandi í
dagskrá hlaupsins og á heimasíðu
þess. Sendiráð Ísland í Washington
D.C. og verkefnið Iceland Naturally
munu bjóða til móttöku við marklínu
hlaupsins og sendiherra Íslands í
Bandaríkjunum mun færa sigurveg-
urum blómsveiga, í boði Reykjavík-
urmaraþons.
Talið er að allt að 100 þúsund
manns hafi fylgst með Washington-
maraþoninu í fyrra og voru skráðir
þátttakendur á níunda þúsund, segir
í fréttatilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu. Hlaupið er framhjá helstu
minnismerkjum, byggingum og söfn-
um borgarinnar og er þessi hlaupa-
leið í höfuðborg Bandaríkjanna eitt
helsta aðdráttarafl maraþonsins.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðu hlaupsins www.washingtondc-
marathon.com.
Dagana fyrir hlaupið, 21.-22. mars
nk., fer fram í Washington DC vöru-
sýningin „Sport and Fitness Expo“
þar sem fyrirtæki sem tengjast
íþróttum og útivist kynna sína þjón-
ustu. Gert er ráð fyrir að 15 til 20 þús-
und manns sæki hana í ár. Fyrirtækj-
um sem hafa áhuga á því að kynna
þjónustu sína eða vörur á sýningunni
er bent á að hafa samband við við-
skiptaþjónustu utanríkisráðuneytis-
ins í New York, sími 001-212-593-
2700 eða petur.oskarsson@utn.-
stjr.is.
Ísland heiðursþjóð í
Washington-maraþoninu