Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.02.2003, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Reynir fæddist í Reykjavík 1934,ólst upp á Njálsgötunni – við Frakkastíg og segist Reynir eiga mjög hlýjar og skemmtilegar minn- ingar frá uppvaxtarárunum. „Í þessu hverfi ólust upp margir góðir knattspyrnu- og handknattleiks- menn, sem síðar áttu eftir að bera merki Íslands á lofti í landsliðsbún- ingnum. Það var leikin knattspyrna í hverju húsasundi – flestir strákarnir gengu til liðs við Fram og fóru gang- andi eða á reiðhjólum á æfingar á Framvöllinn, í grjótnámu norðan við Sjómannaskólann. Ég gerðist liðs- maður Knattspyrnufélagsins Fram og æfði bæði knattspyrnu og hand- knattleik, auk þess að taka þátt í fé- lagsstarfinu. Ég var til dæmis for- maður handknattleiksnefndar Fram aðeins átján ára, var knattspyrnu- þjálfari yngri manna og sat í aðal- stjórn Fram.“ Reynir sagði að knattspyrnuferill hans í meistaraflokki hafi ekki verið langur þar sem hann hélt til náms í Íþróttaháskólanum í Köln í Þýska- landi haustið 1957. „Ég náði að leika þrjá landsleiki – fyrst gegn Finnum í Helsinki 1956, þar sem við máttum þola tap, 2:1. Síðan tvo leiki í und- ankeppni heimsmeistarakeppninnar 1958 – á Laugardalsvellinum árið 1957 – gegn Frökkum og Belgum. Ég er mjög stoltur yfir að hafa feng- ið að leika fyrir hönd Íslands,“ sagði Reynir, sem fékk góða dóma í blöð- um fyrir framgang sinn í leikjunum. Reynir sagði að fyrst eftir að hann hóf nám í Köln hafi hann æft með að- alliði borgarinnar – hinu fræga FC Köln, en fljótlega varð hann að gera það upp við sig hvort hann myndi helga sig knattspyrnunni eða ljúka námi. „Ég hugsaði um framtíðina og valdi að ljúka námi, sem ég gerði á rúmlega þremur árum – kom aftur heim 1960.“ Reynir sagði að hann hafi búið fyrst um sinn í bragga, sem var gististaður þeirra sem sóttu knatt- spyrnunámskeið við skólann og út- skrifuðust sem knattspyrnu- þjálfarar sem hann gerði einnig. „Það var og er enn þann daginn í dag mjög erfitt að komast á þessi þjálfaranámskeið. Þau eru afar eft- irsótt og menn utan Þýskalands eiga erfitt með að komast að. Það eru reglur í Þýskalandi að menn geta ekki orðið knattspyrnuþjálfarar að atvinnu – stjórnað atvinnumannalið- um, nema eftir að hafa sótt þjálf- aranámskeið við Íþróttaháskólann í Köln.“ Lék listir með heimsmeisturunum „Ég var því svo heppinn að kynn- ast mörgum gamalkunnum lands- liðsmönnum Þýskalands sem sóttu þjálfaranámskeið við skólann í Köln. Í þeim hópi voru nokkrir leikmenn sem hömpuðu heimsmeistaratitlin- um með Þýskalandi í Sviss 1954. Ég fékk einnig tækifæri til að spreyta mig með þeim á knattspyrnuvellin- um þar sem knattspyrnulið Íþróttaháskólans í Köln var mjög eftirsótt og það mjög oft fengið til að leika ýmsa leiki við hátíðleg tæki- færi víðs vegar um Þýskaland. Ég var svo heppinn að komast í fimm manna úrvalslið skólans í innanhúss- knattspyrnu, þar sem leikið var með böttum í kringum völlinn eins og tíðkast enn í Þýskalandi, en innan- hússknattspyrna er mjög vinsæl þar yfir háveturinn – í janúar. Liðið ferðaðist nánast um allt Þýskaland til að leika. Þegar ég lék með liðinu var það orðið eins og vel smurð vél. Leikmenn þekktu orðið hver annan svo vel – vissum yfirleitt hvert menn færu í næsta skrefi. Já, þetta var eins og að tefla skák. Ég komst einnig í keppnislið skól- ans í sundi. Ég var öflugur í bringu- sundi og það kom mér til góða þar sem Þjóðverjarnir lærðu fyrst og fremst skriðsund á skólaárum sín- um.“ Reynir sagðist hafa búið víðar en í bragganum meðan á námi stóð. „Ég bjó einnig á stúdentagarði og þá bjó ég um tíma í garðhúsi – úti í garði hjá gamalli konu í útjaðri borgarinn- ar.“ Reynir sagði að það hafi seinna komið honum vel að hafa stundað nám í Þýskalandi og hann hafi sam- band við ýmsa sem hann kynntist á skólaárum sínum í Þýskalandi. „Ég hafði lengi samband við knattspyrnuþjálfarann kunna, Hannes Weisweiler, og í starfi mínu sem íþróttafulltrúi ríkisins, er ég var um tíma í íþróttanefnd Evrópuráðs- ins, fékk ég mjög góð tækifæri til að hafa samband við fjölmarga menn sem ég kynntist í Köln – þegar við hittumst á ýmsum ráðstefnum eða sátum jafnvel saman í nefndum.“ Atvinnuboð frá Ghana Þegar Reynir var spurður hvort hann hafi ekki fengið atvinnutilboð í Þýskalandi að loknu námi sagði hann að svo hafi verið. „Við námslok varð ég að gera upp við mig svo margt. Ég fékk tvö atvinnutilboð. Annað þeirra var frá Ghana þar sem Ghanamenn óskuðu eftir því að ég tæki við þjálfun landsliðs þeirra í knattspyrnu. Hitt var að gerast fim- leikaþjálfari í þýska hernum. Ég væri eflaust í dag liðsforingi í þýska hernum í Rínarhéruðunum ef ég hefði tekið atvinnuboðinu,“ sagði Reynir og brosti. Tilboðið frá Ghana. Hvernig kom það til? „Ég kynntist fólki frá ýms- um heimshlutum við námið í Köln en boðið kom þó beint frá Ghana. Það hefði eflaust verið gaman að víkka sjóndeildarhringinn og taka boðinu en þar sem ég og unnusta mín, Svan- fríður Guðjónsdóttir, sem var með mér í Köln síðasta námsárið, vorum búin að ákveða að gifta okkur, drif- um við okkur heim.“ Fékk starf við Vogaskóla Það má með sanni segja að á námsárum Reynis í Köln hafi hann lagt grunninn að framtíðarstarfi sínu – að starfa að íþróttamálum með ungu fólki. Þegar hann kom heim frá Þýskalandi 1960 hóf hann kennslu við Vogaskóla og kenndi íþróttir í eina stóra íþróttahúsinu sem var í boði á þeim tíma – Háloga- landsbragganum, sem stóð við hringtorg Suðurlandsbrautar og Skeiðarvogs. „Ég var svo heppinn að kynnast þar mjög stórum hópi af nemendum sem áttu síðan eftir að verða miklir afreksmenn í íþróttum – í knattspyrnu, handknattleik, körfuknattleik, frjálsíþróttum og öðrum íþróttum.“ Haustið 1964 var Reynir ráðinn framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkurborgar og 1971 var hann skipaður æskulýðsfulltrúi í menntamálaráðuneytinu. Áratug síðar var Reynir skipaður æskulýðs- fulltrúi ríkisins og jafnframt deild- arstjóri íþrótta- og æskulýðsdeildar. Reynir sagði að starf hans sem æskulýðs- og íþróttafulltrúi ríkisins hafi veitt honum mjög mikla ánægju. „Ég hef fengið tækifæri til að fara um allt land, til að ræða við fólk og halda ýmis námskeið í rekstri félaga og hvernig best væri að standa að íþróttanámskeiðum og keppni. Ég hef upplifað hvað íþróttir og æskulýðsstarf hafa mikið að segja á fámennum stöðum, þar sem oft er um fimmtíu ára aldursmunur á þeim sem eigast við. Já, þá hefur það ver- ið afar ánægjulegt að sjá hvað nýbú- ar taka þátt í starfsemi sem veitir mönnum gleði, heilbrigði og stuðlar að góðum félagsskap. Öll starfsemi íþróttahreyfingarinnar er mjög þýð- ingarmikil í baráttunni um jafnvægi og uppbyggingu í byggð landsins. Einnig sá ég um erlend samskipti sem voru lærdómsrík og skemmti- leg. Síðustu ferðir mínar voru til dæmis til Grænlands, Færeyja, Svalbarða og Varsjár í Póllandi, þar sem ég sótti fundi og ráðstefnur um samstarf Norðurlanda og Evrópu- landa,“ sagði Reynir. Reynir sagði að hann hafi hvað mestar áhyggjur af sundíþróttinni á Íslandi – hann óttast að sundíþrótt- inni fari aftur í sambandi við kennslu í skólum. „Ástæðan fyrir því er að nú eru skólar landsins miklu sjálfstæð- ari en áður, með sjálfstæðan fjárhag. Það er óneitanlega nokkuð dýrt að þurfa að aka nemendum á sundstaði sem eru teknir á leigu, einnig þarf að kalla á kennara á fullum launum til að koma á staðina. Þar með reyna menn að verja það að hætta sund- kennslu – með því að segja; „Við höf- um einfaldlega ekki efni á þessu!“ Það verður að stöðva þennan hugsunarhátt og þessa þróun sem skaðar sundkennsluna. Ef það er ekki hægt nema með auknu fjár- magni frá ríki til skóla, þá verður það að gerast. Það verður að vera meiri eftirfylgni um kennslu í sundi. Nú er Evrópuráðið og Evrópu- sambandið að undirbúa ár íþrótta sem verður 2004 og mun heita: Kennsla ungmenna í gegnum íþrótt- ir. Það verður lagt til töluvert fjár- magn í verkefnið, vel yfir milljarður íslenskra króna, og ég vona að Ís- land verði með í því átaki í verkefni sem er mjög spennandi og kemur upp vegna þess að Evrópuþjóðirnar hafa áhyggjur af íþróttum í skólum – að þeim fari aftur. Sund er afar ríkt í okkur Íslend- ingum og það má með sanni segja að sund sé þjóðaríþrótt Íslands,“ sagði Reynir, sem saknar þess að Nor- ræna sundkeppnin sé ekki lengur keppni þar sem Norðurlandabúar leiða saman hesta sína í 200 m sundi á öllum stöðum landanna. Skemmtilegir strákar í Keflavík Reynir starfaði sem knattspyrnu- þjálfari samhliða áðurnefndum störfum þegar hann kom heim, hjá Fram og víða. „Þegar ég kom heim var runninn upp sá tími að menn voru byrjaðir að taka þjálfun knatt- spyrnumanna fastari tökum – æfa einnig á veturna. Besta dæmið um það er þegar ég tók við þjálfun Keflavíkurliðsins 1966. Þá var rætt um að ég myndi koma til Keflavíkur annan hvorn dag en það endaði með því að ég var þar á hverjum degi. Reynir G. Karlsson, sem lét af störfum sem íþróttafulltrúi ríkisins á dögunum, var í liði með Hafnaði boði um að verða landsliðs- þjálfari Ghana „Ég væri eflaust í dag liðsforingi í þýska hernum í Rínarhéruðunum ef ég hefði tekið atvinnuboðinu frá þýska hernum um árið,“ sagði Reynir G. Karlsson, fyrrverandi íþróttafulltrúi ríkisins, í viðtali við Sigmund Ó. Steinarsson, sem komst að því að honum var boðið landsliðsþjálfarastarf knatt- spyrnumanna í Ghana og Reynir hefur ekki gleymt tapinu fyrir Dönum á Idrætsparken í Kaupmannahöfn 23. ágúst 1967, 14:2. Fæddur: 27. janúar 1934. Menntun  Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954 lauk Reynir almennu kennaraprófi frá Kenn- araskóla Íslands 1955 og prófi í forspjallsvísindum við Háskóla Íslands.  Reynir útskrifaðist frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1956 og sótti þýskukennslu við Háskóla Íslands veturinn 1956–1957.  1960 lauk hann prófi frá Íþróttaskólanum í Köln eftir þriggja ára nám en próf frá þeim skóla var metið hér á landi sem BA-próf í uppeld- isfræði.  Samhliða lauk hann námi í knattspyrnuþjálfaraskóla tengdum skólanum í Köln, einn af örfáum Norður- landabúum sem það hafa gert. Starfsreynsla  Reynir kenndi við Austur- bæjarskóla í Reykjavík vet- urinn 1956–1957.  Kenndi við Vogaskóla í Reykjavík 1960–1064.  Í nokkur ár hafði Reynir með höndum stundakennslu sem aukastarf, fyrst við Álftamýrarskóla í Reykjavík og síðan við Kennaraháskóla Íslands og Íþróttakenn- araskóla Íslands.  Á árunum 1961–1964 vann Reynir að ýmsum nefndar- og þróunarstörfum fyrir kennarasamtökin.  Haustið 1964 var hann ráð- inn framkvæmdastjóri Æsku- lýðsráðs Reykjavíkurborgar.  1. september 1971 var Reynir skipaður æskulýðs- fulltrúi í menntamálaráðu- neytinu.  1. september 1981 var Reynir ráðinn íþróttafulltrúi ríkisins og jafnframt deild- arstjóri íþrótta- og æskulýðs- deildar.  Samhliða störfum Reynis tók hann virkan þátt í félags- og íþróttastarfi og hefur ver- ið stjórnarmaður í félögum, átt sæti í stjórnum og nefnd- um héraðssambanda, sér- sambands og heildarsamtak- anna ÍSÍ og UMFÍ.  Þá var hann um tíma knattspyrnuþjálfari.  Reynir lék knattspyrnu og handknattleik með Fram í Reykjavík. Lék þrjá lands- leiki í knattspyrnu 1956– 1957. Reynir G. Karlsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.