Morgunblaðið - 05.02.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR
46 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni kvenna.
SS-bikarinn, undanúrslit:
Kaplakriki: FH – Haukar..........................20
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan........19.30
Í KVÖLD
FÓLK
HEIMIR Örn Árnason, fyrrum
KA-maður, skoraði 9 mörk í óvænt-
um útisigri Haslum á Kristiansand,
28:23, í norsku 1. deildinni í hand-
knattleik. Með sigrinum styrkti
Haslum stöðu sína í millikeppni
deildarinnar verulega og flest bendir
nú til þess að liðið nái öðru tveggja
efstu sætanna og fari þar með í úr-
slitakeppni um norska meistaratitil-
inn. Fjögur efstu liðin vinna sér sæti
í úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil.
DANÍEL Ragnarsson var líka at-
kvæðamikill með Haslum í leiknum
og skoraði 5 mörk og Theódór Hjalti
Valsson gerði eitt. Íslendingarnir
þrír skoruðu því meira en helming
marka liðsins.
GUNNAR Pettersen, landsliðs-
þjálfari Noregs, segir að hann og
sínir menn séu óhræddir við að
mæta landsliði Portúgals – í keppni
um réttinn að leika á EM í Slóveníu
2004. „Portúgal var eitt af liðinu sem
við vildum fá sem mótherja. Nú er
það okkar að klára dæmið,“ sagði
Gunnar. Norðmenn mæta Portúgal
heima og heiman í byrjun júní.
FORRÁÐAMENN stóru liðanna í
Evrópu hafa sent inn kæru til Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, vegna þess að Brasilíumenn
hafa kallað á nítján leikmenn frá lið-
um í Evrópu til að leika vináttuleik
við Kína á miðvikudaginn kemur.
Mörg liðanna eru að leika þýðing-
armikla leiki í deildarkeppni í heima-
löndum sínum. Forráðamenn lið-
anna telja tímasetninguna á
vináttuleiknum afar slæma.
LEIKMENN sem hafa verið kall-
aðir frá Evrópu í leikinn, eru Dida
(AC Milan), Cafu (Roma), Belletti
(Villarreal), Roberto Carlos (Real
Madrid), Junior (Parma), Edmilson
(Lyon), Roque Junior (AC Milan),
Juan (Leverkusen), Emerson
(Roma), Gilberto Silva (Arsenal), Ze
Roberto (Bayern München), Flavio
Conceicao (Real Madrid), Juninho
Pernambucano (Lyon), Adriano
(Parma), Amoroso (Dortmund),
Denilson (Betis), Rivaldo (AC Mil-
an), Ronaldinho (París St. Germain)
og Ronaldo (Real Madrid)
NÝRÁÐINN landsliðsþjálfari
Carlos Alberto Parreira, sem var
þjálfari heimsmeistaraliðs Brasilíu
1994 í Bandaríkjunum, valdi ekki
markvörðinn úr heimsmeistaraliðinu
– Marcos. Markverðir eru Dida hjá
AC Milan og nýliðinn Julio Cesar,
leikmaður Flamengo.
GIOVANE Elber, sem skoraði
þrjú mörk í bikarleik með Bayern
München gegn Köln í gærkvöldi, 8:0,
fær ekki tækifæri hjá Parreira,
frekar en fyrri daginn.
BRASILÍUMAÐURINN Wam-
berto, 28 ára, útherji hjá Ajax í Hol-
landi, verður frá keppni í tvo mán-
uði, eftir fótbrot á æfingu í gær.
CLIVE Wilkes, knattspyrnudómari,
hefur neitað að afturkalla rauða spjald-
ið sem hann sýndi Hermanni Hreið-
arssyni í leik Ipswich við Bradford í
ensku 1. deildinni á laugardaginn. Ips-
wich óskaði eftir því að Hermann þyrfti
ekki að taka út leikbann þar sem um
óviljaverk hafi verið að ræða. Wilkes
stendur hins vegar fast á sínu, telur að
Hermann hafi slegið Simon Francis,
leikmann Bradford, viljandi og Her-
mann á því yfir höfði sér þriggja leikja
bann og væntanlega einnig sekt sem
nemur tveggja vikna launum.
Hermann getur leikið gegn Sheffield
United um næstu helgi en missir vænt-
anlega af leikjum gegn Crystal Palace,
Wolves og Grimsby.
Hermann
í þriggja
leikja bannDAGUR Sigurðsson, fyrirliði ís-lenska landsliðsins í handknatt-
leik, hefur gert samning við aust-
urríska liðið HB Bregenz um að
þjálfa og leika með liðinu næstu
tvö ár. Þetta er staðfest á heima-
síðu félagsins á Netinu í gær, en
Morgunblaðið greindi frá því í
síðustu viku að svo kynni að fara
að Dagur flytti sig um set til
Austurríkis á næstu leiktíð. Dag-
ur hefur undanfarin þrjú ár leikið
með japanska liðinu Wakunaga í
Hirosima.
HB Bregenz hefur orðið aust-
urrískur meistari undanfarin tvö
ár og er á góðri leið með að
tryggja sér þriðja meistaratit-
ilinn því liðið er með ríflega for-
ystu í efsta sæti 1. deildarinnar
um þessar mundir. Þá er liðið
einnig ríkjandi bikarmeistari.
Núverandi þjálfari er Króatinn
Bruno Gudelj og hefur hann stýrt
liðinu undanfarin þrjú ár. Greint
er frá því að á heimasíðu HB
Bregenz að það hafi verið sam-
eiginleg ákvörðun Gudelj og
stjórnar félagsins að endurnýja
ekki samninginn í vor.
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
sagðist í samtali við Morgun-
blaðið í gær ekkert geta sagt um
hvort þetta hefði einhverjar
breytingar í för með sér varðandi
framtíð Dags með íslenska lands-
liðinu. „Ég er að heyra þetta í
fyrsta sinn,“ sagði Guðmundur.
Á síðustu árum hafa spilandi
þjálfarar ekki í miklum mæli leik-
ið með íslenska landsliðinu.
Dagur þjálfar HB
Bregenz í Austurríki
Barátta Gróttu/KR var ágæt íbyrjun en Bjarki Sigurðsson
hélt Aftureldingu inni í leiknum með
hnitmiðuðum skot-
um. Á 5. mínútu urðu
gestirnir fyrir
skakkaföllum þegar
Jón Andri Finnsson
fékk rautt spjald fyrir að skjóta í
vítakasti í andlit Hlyns Morthens
markvarðar, sem hafði þrívegis varið
glæsilega en Jón Andri skoraði 8
mörk í fyrri leik liðanna í deildinni.
Mosfellingar voru samt fljótir að ná
sér, náðu upp góðri vörn og í sókn-
inni gat Bjarki skorað að vild. Það
skilaði gestunum forystu í leikhléi er
staðan var 15:13 fyrir Aftureldingu.
Í leikhléinu fínstilltu leikmenn
Gróttu/KR strengi sína í vörninni,
sem skilaði sér strax er 7 af fyrstu 8
sóknunum þeirra lauk með marki.
Hinsvegar var Afturelding aftur fyr-
ir áfalli þegar Bjarki datt illa og kom
ekki meira við sögu. Leikmönnum
hans tókst samt að ná upp baráttu og
forystu í nokkrar mínútur en þegar
staðan var 23:22 fyrir Aftureldingu
og 12 mínútur eftir tók Ágúst Jó-
hannsson, þjálfari Gróttu/KR,
leikhlé. Lagt var á ráðin og þau
reyndust góð því næstu fimm mörk
voru heimamanna meðan sóknir
gestanna voru vanhugsaðar. Tíu
mínútum síðar voru úrslit ráðin því
Mosfellingar áttu ekkert svar.
„Við ræddum um í hálfleik að það
væri góð barátta í liðinu en samt ætt-
um við 5% inni í græðgi og þegar það
skilaði sér gekk okkur allt í haginn,“
sagði Páll Þórólfsson, leikmaður og
aðstoðarþjálfari Gróttu/KR, eftir
leikinn. „Það hefur verið nokkuð um
breytingar hjá okkur og menn í
meiðslum svo að undirbúningurinn
hefur ekki verið eins og við vildum
svo að ég er ánægður með þessi tvö
stig. Þetta var má segja fjögurrra
stiga sigur hjá okkur því Afturelding
hefði annars saxað á forskot okkar.
Við eigum erfiða leiki framundan og
erum í mikilli baráttu um að komast í
úrslitakeppnina.“ Hlynur markvörð-
ur stóð sig með prýði og Aleksandrs
Petersons nýtti sér til hins ítrasta ef
mótherjarnir misstu takið á honum.
Sverrir Pálmason var einnig drjúgur
í horninu og Páll átti góða spretti en
það var fyrst og fremst baráttan sem
skilaði sigrinum.
„Við héldum haus í 45 mínútur en
duttum svo niður á hælana,“ sagði
Reynir Þór Reynisson, markvörður
Aftureldingar, sem var besti maður
liðsins. „Það eru batamerki á leik
okkar síðan fyrir frí en óskynsemi í
lok síðari hálfleiks reyndist okkur
dýr þegar við fórum að skjóta ótíma-
bært og stóðum ekki vörnina eins vel
og fyrir hlé. Það eru margir efnilegir
strákar að koma upp hjá okkur og
stíga sín fyrstu skref og stóðu sig
ágætlega. Við ætlum að taka stigin
sem eftir eru og einnig bikarleikinn í
næstu viku.“ Sem fyrr segir var
Bjarki atkvæðamikill á meðan hans
naut við og Haukur Sigurvinsson og
Daði Hafþórsson voru drjúgir.
Nokkrir ungir drengir fengu að
spreyta sig og stóðu sig ágætlega en
vantaði reynslu og klókindi á ögur-
stund í lokin.
Seiglan
lengi að
skila sínu
ÞRAUTSEIGJAN var lengi að skila sér hjá Gróttu/KR þegar liðið
fékk Aftureldingu í heimsókn á Seltjarnarnesið í gærkvöld er deild-
arkeppnin í handknattleik hófst að nýju hjá körlum eftir heims-
meistaramótið í Portúgal. Það var ekki fyrr en á síðustu tíu mín-
útum leiksins og að sama skapi misstu Mosfellingar móðinn og
máttu sætta sig við 28:24 tap eftir að Grótta/KR skoraði 6 mörk á
móti einu. Fyrir vikið komst Grótta/KR í 8. sæti deildarinnar og er
því enn í baráttu um sæti í undanúrslitum en Mosfellingar verða að
spýta duglega í lófana.
Stefán
Stefánsson
skrifar
NILS Johan Semb, landsliðs-
þjálfari Noregs, valdi í gær
landsliðshóp sinn, sem mætir
Grikkjum í vináttulandsleik á
miðvikudaginn í næstu viku.
Markverðir eru þeir Erik
Holtan (Odd Grenland) og
Frode Olsen (Viking). Varn-
armenn eru Christer Basma
(Rosenborg), André Berg-
dølmo (Ajax), Ronny Johnsen
(Aston Villa), Brede P.
Hangeland (Viking), Torjus
Hansén (Bielefeld) og Claus
Lundekvam (Southampton).
Á miðjunni og í sókn eru
Trond Andersen (Wimbledon),
Eirik Bakke (Leeds), John
Carew (Valencia), Tore André
Flo (Sunderland), Steffen
Iversen (Tottenham), Tommy
Svindal Larsen (Nürnberg),
Petter Rudi (Beerschot), John
Arne Riise (Liverpool), Sigurd
Rushfeldt (Austria Wín) Ole
Gunnar Solskjær (Manchester
United) og Jo Tessem (South-
ampton).
Norðmenn
gegn
Grikkjum
MANCHESTER United minnkaði
forskot Arsenals á toppi ensku úr-
valsdeildarinnar niður í þrjú stig í
gærkvöld er liðið lagði Birmingham,
1:0, á St. Andrews-leikvanginum í
Birmingham í fremur bragðdaufum
leik.
Eina mark leiksins skoraði Hol-
lendingurinn Ruud van Nistelrooy á
56. mínútu. Þetta var 26. markið sem
Hollendingsins á leiktíðinni fyrir
Manchester-liðið. Manchester Unit-
ed hefur unnið sér inn 53 stig í 26
leikjum, en Arsenal hefur 56 eftir
jafnmarga leiki. Newcastle er síðan í
þriðja sæti með 48 stig eftir 25 leiki.
Birmingham er sem fyrr í fimmta
neðsta sæti deildarinnar með 26 stig
eftir 26 leiki, er tveimur stigum á
Bolton sem í fjórða neðsta sæti.
Nistelrooy skoraði
MARK Bosnich, fyrrverandi
markvörður Chelsea, tapaði í
gær máli sem hann höfðaði á
hendur félagi eftir að það
sagði upp samningi sínum við
hann skömmu fyrir áramót.
Bosnich hélt því fram að um
ólöglega uppsögn hefði verið
að ræða en það var ekki tekið
til greina af dómstólum því
Chelsea sagði honum upp eftir
að hann féll á lyfjaprófi sem
tekið var af honum í haust en í
því kom fram að hann hafði
brúkað eiturlyfið kókaín.
Bosnich tapaði
HANDKNATTLEIKUR
Grótta/KR – Afturelding 28:24
Íþróttamiðstöðin Seltjarnarnesi, 1. deild
karla, Essodeild, þriðjud. 4. febrúar 2003.
Gangur leiksins: 2:0, 2:2, 3:3, 5:3, 5:6, 6:8,
9:8, 9:12, 11:14, 13:15, 15:15, 19:16, 20:17,
20:20, 21:22, 22:23, 27:23, 28:24.
Mörk Gróttu/KR: Aleksandrs Petersons
11, Sverrir Pálmason 7, Páll Þórólfsson 6/2,
Magnús Agnar Magnússon 2, Ingimar
Jónsson 1, Alfreð Finnsson 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 13/1 (þar af
fóru 6 aftur til mótherja), Guðmundur Jó-
hannesson 4 (þar af fór 1 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Haukur Sigurvinsson
8/2, Bjarki Sigurðsson 7, Daði Hafþórsson
5, Atli Rúnar Steinþórsson 2, Ásgeir Jóns-
son 1, Hrafn Ingvarsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 17/1
(þar af fóru 3 aftur til mótherja).
Utan vallar: 18 mínútur. Þar af fékk Ásgeir
Jónsson rautt spjald fyrir þrjár brottvís-
anir og Jón A. Finnsson rautt spjald fyrir
að skjóta í andlit markvarðar í vítakasti.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson.
Áhorfendur: Um 160.
Staðan:
Valur 17 12 3 2 466:366 27
ÍR 17 12 1 4 497:446 25
HK 17 11 2 4 476:446 24
Haukar 16 11 1 4 468:378 23
KA 16 10 3 3 436:402 23
Þór 17 10 0 7 481:446 20
FH 17 9 2 6 457:432 20
Grótta/KR 17 9 1 7 435:395 19
Fram 17 8 3 6 432:421 19
Stjarnan 17 5 2 10 441:477 12
Afturelding 17 4 2 11 400:442 10
ÍBV 17 4 2 11 386:482 10
Víkingur 17 1 2 14 422:514 4
Selfoss 17 0 0 17 410:560 0
Víkingur – Fylkir/ÍR 24:16
Víkin, Reykjavík, 1. deild kvenna, Esso-
deild, þriðjudaginn 4. febrúar 2003.
Mörk Víkings: Helga Birna Brynjólfsdóttir
5, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 5, Anna
Kristín Árnadóttir 3, Gerður Beta Jó-
hannsdóttir 3, Steinunn Þorsteinsdóttir 2,
Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Sara Guð-
jónsdóttir 2, Ásta Björk Agnarsdóttir 1,
Margrét Egilsdóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Fylkis/ÍR: Hekla Daðadóttir 7, Sig-
urbirna Guðjónsdóttir 4, Andrea Olsen 2,
Tinna Jökulsdóttir 1, Lára Hannesdóttir 1,
Hulda Karen Guðmundsdóttir 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar
Ó. Pétursson.
Staðan:
ÍBV 19 16 2 1 526:388 34
Haukar 19 15 1 3 521:427 31
Stjarnan 19 13 4 2 436:363 30
Víkingur 19 10 3 6 419:366 23
Valur 19 11 1 7 406:396 23
FH 18 8 2 8 439:411 18
Grótta/KR 19 8 1 10 394:417 17
KA/Þór 20 3 0 17 405:495 6
Fylkir/ÍR 19 3 0 16 358:484 6
Fram 19 1 0 18 362:519 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
ÍS – Fjölnir.............................................73:84
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Miami – Atlanta .................................... 99:79
New Orleans – Boston ....................... 103:96
Utah – Dallas ........................................ 90:92
New Jersey – Seattle ....................... 109:108
Eftir framlengingu.
Phoenix – Chicago ............................ 115:111
Eftir framlengingu.
Golden State – Memphis.................... 101:91
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Birmingham – Manch. Utd......................1:0
Ruud van Nistelroy 56. – 29.475.
1. deild:
Brighton – Wimbledon .............................2:3
2. deild:
Cheltenham – Tranmere ..........................3:1
Huddersfield – Plymouth .........................1:0
Mansfield – Brentford ..............................0:0
Northampton – Cardiff.............................0:1
Notts County – Crewe ..............................2:2
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Leeds – Gillingham ..................................2:1
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit:
Bayern München – Köln...........................8:0
Frakkland
Mónakó – Lyon..........................................2:0
Skotland
Deildabikarinn, undanúrslit:
Hearts – Rangers......................................0:1