Morgunblaðið - 05.02.2003, Síða 52
HÁRGREIÐSLUMAÐURINN
Ásgeir Hjartarson opnaði eigin
stofu í nóvember síðastliðnum en
áður hafði hann verið hjá Rauð-
hettu og úlfinum og Toni & Guy.
Stofan heitir Supernova og stend-
ur við Pósthússtræti.
Ásgeir er m.a. þekktur fyrir að
hafa umbylt útliti Steinunnar
Ólínu þegar hún stjórnaði þætt-
inum Á milli himins og jarðar.
Klippingin sú varð umdeild og
skálínurnar í hári hennar ekki
allra.
„Ég var orðinn hundleiður á því
að vinna fyrir aðra. Vinir mínir og
kúnnar hvöttu mig líka til að opna
eigin stofu,“ segir hann um hvata
þess að stofna eigin stofu.
Ásgeir er ánægður með að hafa
tekið þessa ákvörðun. Hann segir
að það hafi mikið verið að gera í
desember en í byrjun árs sé ró-
legra eins og endranær.
Hugað að hönnun
Hann innréttaði og hannaði
stofuna sjálfur með aðstoð vina.
„Mig langaði ekki að vera með
steríl húsgögn. Vinur minn, sem
er stálsmiður, hannaði rúlluborð
fyrir mig. Ég er með eitt stórt og
tvö lítil,“ segir Ásgeir og bætir við
að það setji svip á stofuna.
Hann fékk sér einnig óvenjuleg
ljós og setti loks gæru á af-
greiðsluborðið. „Þetta er allt mjög
stílhreint en samt töff,“ segir Ás-
geir og bætir við að hann hafi sett
glimmer í lakkið á gólfinu. „Og
svo eru ljóð hérna frá litla bróður
mínum,“ segir hann og er greini-
legt að margir hafa lagt hönd á
plóginn til að gera þetta mögu-
legt.
Starfaði í Mílanó
Ásgeir vann í tvö ár á hár-
greiðslustofu í einni af háborgum
tískunnar, Mílanó, en þangað
flutti hann árið 1998. „Ég vann
þar á stofu og var líka í sjónvarp-
inu, vann fyrir tvær stærstu sjón-
varpsstöðvarnar. Þetta var mjög
skemmtilegur tími. Gaman að
læra tungumálið og kynnast nýrri
menningu.“
Mílanó er mikil tískuborg, að
sögn Ásgeirs, og eru íbúar þar oft
framarlega á sínu sviði. „Maður
sér fólk þarna sem lifir bara fyrir
tískuna. Það er nauðsynlegt að
vera mjög vel vakandi til að fylgj-
ast með og mikill hraði er þarna
hvað tískuna varðar,“ segir Ás-
geir.
„En það er allt annað tempó
hvað varðar þjónustuna í bönkum
og pósthúsum,“ segir hann og
hlær.
Hann tekur undir það að starf
hárgreiðslumannsins sé vissulega
trúnaðarstarf, að því leyti að við-
skiptavinir ræða öll lífsins mál
þegar þeir sitja í stólnum.
„Það verður oft náið samband
þarna á milli. Þetta er persónu-
legt starf. Það er ekkert lítill
hlutur sem verið er að fást við,
þetta er hárið á þér. Ef fólk er
óánægt með hárið á sér er það
óánægt með sjálft sig þótt það sé
í nýjum jakkafötum eða dragt,“
segir Ásgeir, sem segist samt
þurfa að passa sig á því að
hleypa fólki ekki of nálægt sér.
„Ég er rosagóður hlustandi,“
bætir hann við og segir hjálpa í
sínu starfi að hafa hæfileika í
mannlegum samskiptum.
Hárgreiðsla og list
Listrænir hæfileikar skipta
máli. „Annaðhvort ertu listamað-
ur eða ekki. Fólk er með mjög
mismunandi auga fyrir formi.
Það er enginn með sama hand-
bragðið,“ segir Ásgeir um starf
sitt.
Hann segir að alltaf þurfi að
taka tillit til persónuleika fólks
þegar klippt er og að flestir hafi
nokkuð góða hugmynd um hvað
þeir vilji þegar sest er í stólinn.
Hann segir að þeir sem biðji
hann um „að ráða“ þegar sest er
í stólinn meini það sjaldnast.
„En ég vil hafa toppinn svona
og síddina hinsegin,“ segir Ás-
geir, sem dæmi um athugasemd-
ir frá fólki sem biður hann um að
ráða för.
Ásgeir er ekki hræddur við að
gera eitthvað nýtt. „Ég hika ekki
við að breyta fólki. Margir vilja
breyta til eftir að hafa verið
lengi með sömu klippinguna. Þá
skerst ég ekki undan þeirri
áskorun,“ segir hann og gefur
ekki mikið fyrir að vera með
sömu klippinguna í tíu ár.
„Maður þarf að kunna að
sjokkera á réttum tímapunkti og
réttum stöðum. Það má vera
pínu „rebel“.“
Tískustraumar frá rokkinu
Ásgeir fylgist vel með og er
vel til þess fallinn að spá í spilin
hvað hárið varðar. „Síðir toppar
verða ábyggilega eitthvað áfram
og þetta Chrissie Hynde-útlit,“
segir Ásgeir og er að vísa til
þess að stíllinn sem fylgir glys-
rokkinu sé loksins aftur í náð-
inni.
„Mér finnst herratískan
blandast svolítið inn í dömutísk-
una,“ segir hann og er tíska
kynjanna því líkari en oft áður.
Gott að hafa það til hliðsjónar
áður en sest er næst í stólinn,
allavega fyrir þá sem treysta sér
til.
Hika ekki við að breyta fólki
Morgunblaðið/Ómar
Ásgeir Hjartarson með
hendur í hári viðskiptavinar
í nýju stofunni sinni, Sup-
ernova við Pósthússtræti.
Chrissie Hynde er ein af
fyrirmyndunum sem eru
ráðandi núna.
Karen O., söngkona í
hljómsveitinni Yeah Yeah
Yeahs frá New York, er
fyrirmyndartöffari. Hún
sækir í brunn Hynde þó
hún sé með eigin stíl.
Á
sg
e
ir
H
ja
rt
ar
so
n
m
e
ð
n
ýj
a
há
rg
re
ið
sl
u
st
o
fu
52 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14 ára. / Sýnd kl. 10 b.i. 14 ára.
/
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI KRINGLAN KEFLAVÍK
/
/ /
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 5.50. B.i. 12.
Ein umdeildasta og djarfasta
kvikmynd ársins er komin í bíó.
Stranglega bönnuð innan 16 ára
Náðu þeim í bíó í dag.
í mynd eftir Steven Spielberg.
Monica Bellucci
Sýnd kl. 5.45, 8 og
10.15. B. i. 14. Sýnd kl. 10. B.i. 14. Sýnd kl. 10.05. B.i.16.
2 vinsælustu myndir frönsku kvikmyndahátíðarinar
DV
MBL
SV MBL
DV
MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6 og 8..
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8.15 og 10.40. Enskur texti
H.K DV
Kvikmyndir.is
Misstu ekki af
vinsælustu mynd
síðasta árs í bíó
Tilboð 2 fyrir 1
H.L MBL
FJÖGUR hundruð unglingar
skemmtu sér konunglega í
Höllinni í Vestmannaeyjum á
dögunum en þá voru haldnir
stórtónleikar ungs tónlist-
arfólks frá Vestmannaeyjum,
Kópavogi og Akureyri sem
nefndust Allra veðra von.
Áhugamenn um framgang
tónlistarlífsins í Vest-
mannaeyjum stóðu að tónleik-
unum. Tónsmíðafélagið og
Gullrót, félag eldri poppara,
hafa haft veg og vanda af
þessum tónleikum unga fólks-
ins annað árið í röð og þar fer
fremstur í flokki Óðinn Hilm-
arsson sem séð hefur um
skipulag tónleikanna.
Á tónleikunum Allra veðra
von komu fram 10 hljóm-
sveitir; frá Vestmannaeyjum
hljómsveitirnar Made in China,
Drifskaft, Hugarástand, Liana
Creepeers, Stigmata og Brút-
al, frá Akureyri kom Anubi,
frá Kópavogi Heimskir synir,
Búdrýgindi og stórsveitin Url
endaði tónleikana á eft-
irminnilegan hátt.
Hljómsveitin Heimskir synir
úr Kópavogi, sem er eðal
rappband, var valin til að
leika á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum í ágúst og Brútal
var valin til að koma fram í
Rokklandi hjá Óla Palla á Rás
tvö auk þess sem sú sveit fær
fría upptöku í stúdíói Rásar
tvö.
Aðstandendur tónleikanna
eiga heiður skilinn fyrir fram-
takið og gerðu unglingarnir
góðan róm að frammistöðu
hljómsveitanna. Ólafur Páll
Gunnarsson Rokklandskon-
ungur var skipuleggjendum
innan handar, auk þess sem
hann var kynnir á tónleik-
unum Allra veðra von.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Unglingarnir tróðust við sviðið í hita leiksins.
Allra veðra von í Eyjum
Tónleikar ungs fólks takast vel
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Á föstudaginn
frumsýndi nem-
endaleikhúsið
Tattú, sem er nýtt
verk eftir Sigurð
Pálsson. Verkið
samdi höfundurinn
sérstaklega handa
útskriftarárgangi
leiklistardeildar
LHÍ sem skipa að
þessu sinni Björn
Thors, Bryndís Ás-
mundsdóttir, Dav-
íð Guðbrandsson,
Esther Talía Cas-
ey, Ilmur Krist-
jánsdóttir, María
Heba Þorkelsdótt-
ir, Maríanna Clara
Lúthersdóttir og
Þorleifur Örn Arn-
arsson.
Sýningar fara
fram í Smiðjunni
við Sölvhólsgötu.
Nemendaleikhúsið frumsýnir Tattú
Áttavillt í eigin heimi
Leikurunum var vel fagnað að sýningu lokinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigurður Pálsson tekur í
hönd Björns Thors, eins
leikaranna.