Morgunblaðið - 05.02.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
AFKOMENDUR Sverris Sigurðs-
sonar listaverkasafnara færðu í
gær Listasafni Háskóla Íslands að
gjöf 894 myndir eftir Þorvald
Skúlason listmálara. Flest verk-
anna eru smámyndir, meðal ann-
ars skissur að stærri verkum en
einnig sjálfstæð verk, teikningar
og fleira. Safnið á nú á tólfta
hundrað verka eftir Þorvald en
Listasafn HÍ er stærsta safn á
landinu af verkum eftir lista-
manninn. Spanna verkin allan fer-
il Þorvaldar, ríflega sextíu ár, en
Sverrir og Þorvaldur voru miklir
vinir.
Auður Ólafsdóttir, for-
stöðumaður safnsins, segir að gjöf
þessi sé mikill vegsauki fyrir safn-
ið og að hún sé ómetanleg heimild
fyrir þá sem leggja stund á rann-
sóknir í íslenskri listasögu. Gjöfin
hefur ekki verið metin til fjár.
Á myndinni skoða Páll Skúla-
son háskólarektor, Áslaug Sverr-
isdóttir, dóttir Sverris Sigurðs-
sonar, Auður Ólafsdóttir og fleiri
valin verk úr gjöfinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fá tæp 900 verk Þorvaldar
Skúlasonar að gjöf
Listasafni/23
ALLS fengu 835 manns ráðgjöf
hjá Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna árið 2002 og hafa þeir
aldrei verið fleiri, en ársskýrslan
liggur ekki enn fyrir.
Markmið Ráðgjafarstofu er
meðal annars að aðstoða fólk með
fræðslu og ráðgjöf við að minnka
greiðslubyrði og koma í veg fyrir
frekari skuldasöfnun. Hún starfar
á ábyrgð félagsmálaráðuneytisins
í samstarfi við Íbúðalánasjóð,
Reykjavíkurborg, Landsbanka Ís-
lands, Íslandsbanka, Búnaðar-
banka Íslands, Samband íslenskra
sveitarfélaga, Samband íslenskra
sparisjóða, Neytendasamtökin,
Þjóðkirkjuna, Landssamtök lífeyr-
issjóða, ASÍ og BSRB, en Mar-
grét Westlund er forstöðumaður.
Ráðgjafarstofan var sett á lagg-
irnar 1996 sem tilraunaverkefni til
tveggja ára, en frá 1996 til 2001
voru afgreiddar 3.372 umsóknir
um ráðgjöf, þar af 667 árið 2001,
534 árið 2000 og 599 árið 1999.
Margrét segir að svo virðist
sem fleiri atvinnulausir hafi leitað
til Ráðgjafarstofunnar nú en áður
en ekki sé hægt að segja til um
það fyrr en uppgjör liggur fyrir.
Hins vegar segir hún að atvinnu-
leysi skili sér ekki strax til stof-
unnar. „Fólk leitar sér ekki ráð-
gjafar bara við það að missa
vinnu,“ segir hún og bætir við að
reynslan sýni að fólk sé komið
lengra í vanskilaferlinu þegar það
komi til stofunnar. Árið 2001 voru
tæplega 54% umsækjenda með at-
vinnu, um 11% atvinnulausir, um
30% örorku- og ellilífeyrisþegar,
um 3% nemar og um 2% heima-
vinnandi. Skipting fyrir árið 2002
liggur ekki fyrir.
Margrét segir að umsækjendur
séu í raun úr öllum stéttum og
einn hópur sé ekki meira áberandi
en annar. Fólkið komi úr öllum
launaþrepum alls staðar að af
landinu enda geti allir lent í
greiðsluerfiðleikum vegna ýmissa
þátta, en svo virðist að því hærri
sem ráðstöfunartekjurnar séu
þeim mun hærri séu skuldirnar.
„Við reynum að gefa fólki heild-
arsýn yfir sín fjármál og leiðbeina
því hvernig það geti komið sér út
úr erfiðleikunum með samningum
og öðru.“
Ráðgjafarstofa um fjármál heimila veitti 835 manns ráðgjöf í fyrra
Aldrei fleiri fengið ráðgjöf
3
!
0
! "
*
5
**7
8"$"! 9 !
7
4 (7
:;7
(7
, <
! VERÐ á húsnæði
hér á landi hefur
hækkað um 63% á
síðastliðnum sex ár-
um, þrefalt á við al-
mennt verðlag að
öðru leyti sem hefur
hækkað um 21% á
sama tímabili.
Þetta kemur
fram þegar breyt-
ingar á vísitölu
neysluverðs eru
skoðaðar á ofangreindu tímabili. Í heild
hækkaði vísitala neysluverðs um 25,9% frá
því í marsmánuði árið 1997 þegar vísitalan
var sett á 100 til janúar í ár, en þar er um að
ræða bæði hækkanir á almennu verðlagi og
húsnæði á tímabilinu. Hluti eigin húsnæðis í
vísitölu neysluverðs hækkaði hins vegar á
tímabilinu um 63,2% og vísitala neysluverðs
án húsnæðis hækkaði á sama tíma um
21,3%.
Verðlagshækkun síðasta árs fyrst
og fremst vegna húsnæðis
Verðlagshækkun síðasta árs, sem var
mjög lítil, má einnig að langmestu leyti
rekja til hækkunar á verðlagi húsnæðis.
Þannig hækkaði húsnæðisliður vísitölunnar
um 7,1% síðustu tólf mánuði á sama tíma og
annað verðlag hækkaði um 0,3% samkvæmt
mælingum vísitölu neysluverðs. Vísitala
neysluverðs í heild hækkaði um 1,4% á sama
tíma, þannig að um eitt prósent af hækkun
vísitölunnar á síðasta ári má rekja til hækk-
unar á verðlagi húsnæðis á tímabilinu.
Í mælingum vísitölu neysluverðs á hús-
næðisverði er leiðrétt fyrir breytingum á
stærð húsnæðis þannig að það á ekki að hafa
áhrif á mælingarnar. Mikil sala á litlum
íbúðum, þar sem fermetraverð er mun
hærra en í stórum húsum, hefur þannig ekki
áhrif á mælingarnar.
Fram hefur komið að nær 20% veltu-
aukning varð á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu á síðasta ári hvort sem litið
er til fjölda kaupsamninga eða upphæðar
þeirra. Þannig var heildarupphæð kaup-
samninga um fasteignir á höfuðborgar-
svæðinu rúmir 100 milljarðar kr. 2002 en
var 84 milljarðar árið áður, sem er aukning
um 19,5 % milli ára. Þá var 7.189 kaupsamn-
ingum um fasteignir þinglýst í fyrra sam-
anborið við 6.141 árið áður sem er fjölgun
um 17,1%. Meðalupphæð kaupsamnings var
14 milljónir króna, en 13,7 milljónir króna
árið áður.
Verð á íbúðarhúsnæði
síðustu sex árin
Þreföld
hækkun á
við almennt
verðlag
BÓNUSVERSLUN mun verða opnuð í
verslunarhúsnæði því sem verslunin Hag-
kaup hefur notað í Njarðvík eftir einn til tvo
mánuði. Bónusbúðin í Reykjanesbæ verður
með stærri verslunum keðjunnar eða svip-
uð að stærð og Bónus í Holtagörðum.
Verslunin Hagkaup tilkynnti í síðasta
mánuði lokun í Njarðvík og að öllu starfs-
fólki yrði sagt upp störfum. Unnið verður
að endurbótum á húsnæðinu og mun Bón-
usverslun verða opnuð þar þegar þeirri
vinnu er lokið, í síðasta lagi 1. apríl, að sögn
Guðmundar Marteinssonar, framkvæmda-
stjóra Bónuss.
Bónusversl-
un opnuð í
Njarðvík
Bónus/21
♦ ♦ ♦
MIKIÐ álag hefur verið undanfarna
mánuði á starfsmönnum sýklafræði-
deildar Landspítala – háskólasjúkra-
húss. Stafar það einkum af stórlega
aukinni tíðni á svonefndum fjölónæm-
um klasakokkasýklum og rannsókn-
um tengdum þeim. Segir Karl G.
Kristinsson, yfirlæknir deildarinnar,
að fjöldi nýgreindra tilfella hafi aukist
úr 8 árið 2000 í 46 í fyrra og rann-
sóknum á sjúklingum og starfsmönn-
um vegna þessara sýkla hafi fjölgað
úr 232 árið 1999 í 6.277 í fyrra. Segir
hann að aðeins í janúar hafi 1.888 slík
sýni verið tekin til ræktunar.
Karl segir að svonefndir MÓSA
sýklar (methisillín ónæmir Staphylo-
coccus aureus) hafi í auknum mæli
borist hingað til lands erlendis frá.
„Okkur stafar síaukinn vandi af
ónæmum bakteríum og ég tel þetta
vera eitt stærsta vandamál sjúkra-
húsa í dag,“ segir Karl og bætir við að
í Bretlandi stafi um helmingur klasa-
kokka blóðsýkinga af fjölónæmum
klasakokkum.
„Það er mjög mikilvægt að upp-
ræta þessi smit og þar sem þau hafa
komið upp getur þurft að loka deild-
um svo hægt sé að sótthreinsa þær.
Þetta kostar peninga og fyrirhöfn en
samt er ódýrara að ráðast gegn þessu
smiti af hörku strax í þeirri von að
takast megi að uppræta það,“ segir
Karl og telur að enn hafi starfsmenn
sýkingavarna- og sýklafræðideildar
yfirhöndina.
Fjöldi klasa-
kokkatil-
fella hefur
stóraukist
Mikið álag á smit-
sjúkdómadeild LHS
VEÐURSTOFAN gaf í gærkvöld út
stormviðvörun sunnan- og vestan-
lands í nótt og fram eftir degi eða
meira en 20 metrum á sekúndu. Ná-
lægt hádegi snýst í suðvestanátt með
rigningu eða slyddu og ört hlýnandi
veðri. Draga á úr vindi síðdegis en
hiti getur farið upp í 8 stig suðvest-
anlands. Spáð er hvassara veðri
norðaustan- og austanlands upp úr
hádegi og fer að snjóa undir kvöld í
þessum landshlutum.
Spáð stormi
og hlýnandi
veðráttu
♦ ♦ ♦