Morgunblaðið - 01.03.2003, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.03.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Bolla og kaffi 195,- REGLUR um afkomutengda kaup- auka eru í gildi hjá forstjórum og öðr- um æðstu stjórnendum bæði Eim- skips og Flugleiða. Þriðji forstjórinn sem Morgunblaðið hafði samband við, Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Sím- ans, vildi ekki tjá sig um laun eða launakjör að sinni, eða þar til nýjar reglur um slíkt taka gildi 1. júlí nk. Í ársskýrslu Flugleiða segir að laun stjórnar, forstjóra og fjögurra fram- kvæmdastjóra móðurfélagsins hafi numið samtals 83 milljónum króna á árinu 2002 en þar af nemur áunninn afkomutengdur launaréttur forstjóra og fjögurra framkvæmdastjóra um 20 milljónum króna sem greiddur verður á árunum 2003 og 2005. Eins og nýlega var greint frá í Morgunblaðinu nam afkomutengdur kaupauki Sigurðar Einarssonar, for- stjóra Kaupþings, 58 milljónum króna á síðasta ári en laun hans á árinu voru alls 70 milljónir króna. Í ársskýrslu Flugleiða kemur fram að gerðir voru kaupréttarsamningar við nokkra stjórnendur félagsins og dótturfélaga þess í júnímánuði 2002 sem fólu í sér kauprétt á hlutabréfum í félaginu samtals að nafnverði 66 milljónir króna. Kaupréttargengið var miðað við markaðsverð á þeim tíma, eða 1,8, en kauprétturinn hefur verið nýttur að fullu. Kaupendurnir hafa þó ekki ráðstöfunarrétt yfir hlutabréfunum. Óheimilt er að selja hlutabréfin fyrr en að tveimur árum liðnum frá gerð kaupréttarsamnings- ins og hefur félagið halds- og for- kaupsrétt á þeim tíma. Þetta þýðir að stjórnendurnir hafa borgað 118,8 milljónir fyrir bréfin en í dag er markaðsvirði þeirra 356 millj- ónir sem þýðir að virði bréfanna hefur næstum því þrefaldast á hálfu ári. Enn er í gildi frysting á launum æðstu stjórnenda Flugleiða og hafa þau ekki hækkað í 2–3 ár að sögn Sig- urðar Helgasonar, forstjóra félagsins. Þessi launafrysting verður áfram í gildi á þessu ári að hans sögn. Afkomutengd laun samkvæmt formúlu Í ársreikningi Eimskips kemur fram að laun forstjóra, Ingimundar Sigurpálssonar, vegna starfa fyrir fé- lög innan samstæðunnar hafi numið samtals 22 milljónum króna á síðasta ári og laun fimm framkvæmdastjóra samtals 58 milljónum króna. Jafnframt segir að samkvæmt kaupréttarsamningi við forstjóra hef- ur hann rétt til kaupa á hlutabréfum í félaginu að nafnverði 1,6 milljónir króna á árununum 2003 og 2004 á genginu 5,0. Framkvæmdastjórarnir fimm hafa hliðstæðan rétt til kaupa á hlutabréfum að nafnverði samtals 5,7 milljónir króna á sama gengi. Í gær var lokagengi á bréfum félagsins 6,05. Ingimundur sagði að þótt félagið sýndi mikinn hagnað, þýddi það ekki endilega að um miklar fjárhæðir væri að ræða í afkomutengd laun þar sem kaupaukarnir taka mið af þremur mismunandi afkomutölum; rekstrar- hagnaði fyrir fjármagnsliði, rekstrar- hagnaði fyrir afskriftir og svo heildar- afkomu. „Þetta er ákveðin formúla en ég veit ekki nákvæmlega hvað hver liður vigtar í dæminu,“ sagði Ingi- mundur. „Þetta eru örugglega ekki stórar upphæðir, sérstaklega í ár þar sem hagnaður myndast aðallega í fjármagnsliðum.“ Afkomutengd laun hjá Eimskipi og Flugleiðum Virði hlutabréfa stjórnenda fyrirtækjanna hefur þrefaldast NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN Íslands sagði sjö starfsmönnum upp á fimmtudag, þar af fimm fé- lögum í Félagi íslenskra náttúru- fræðinga (FÍN). Þá var einum starfsmanni Veiðimálastofnunar sagt upp störfum nýlega auk þess sem fleiri starfsmenn voru færðir til í starfi. Ína Björg Hjálmars- dóttir, formaður FÍN, segir að uppsagnirnar hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti þar sem ríkisstjórnin hafi tilkynnt að veittir yrðu 6 milljarðar króna í baráttu við atvinnuleysi. Ína Björg segist aldrei hafa kynnst jafnmiklu atvinnuleysi hjá náttúrufræðingum og nú, á annan tug náttúrufræðinga hafi verið á skrá þegar Íslensk erfðagreining sagði 200 starfsmönnum upp. Þeir náttúrufræðingar sem þá misstu vinnuna og eru enn atvinnulausir séu nú að bætast á skrána. Barist gegn atvinnuleysi FÍN hefur sent tilkynningu frá sér þar sem segir að ríkisstjórn Ís- lands hafi brugðist við með mynd- arlegum hætti við atvinnuleysinu sem aðallega stafi af samdrætti hjá fyrirtækjum á einkamarkaði. „En á sama tíma hefur orðið vart við samdrátt á ríkisstofnunum án þess að við sé brugðist eins og fram kemur hjá fyrrnefndum stofnunum sem heyra undir umhverfisráðu- neyti annars vegar og landbúnað- arráðuneyti hins vegar. Ríkis- starfsmennirnir sem fengu uppsagnirnar í [fyrradag] voru að- allega háskólamenntaðir starfs- menn í Félagi íslenskra náttúru- fræðinga og er það áfall eftir fjölda uppsagna félagsmanna hjá fyrir- tækjum á einkamarkaði. Félag íslenskra náttúrufræðinga lýsir furðu sinni á þessum upp- sögnum og því misræmi sem fram kemur af hálfu stjórnvalda,“ segir í tilkynningunni. FÍN undrast að ríkisvaldið segi upp fólki Náttúru- fræðistofn- un segir sjö manns upp VAKA hélt meirihlutanum og bætti við sig einum manni í stúdentaráð Háskóla Íslands í kosningum, en talið var í fyrrakvöld. Vaka hlaut 1.883 atkvæði og 5 fulltrúa, Röskva 1.312 atkvæði og 3 fulltrúa og Há- skólalistinn 397 atkvæði og einn fulltrúa. Auðir seðlar og ógildir voru 55 atkvæði. Yfirburðir Vöku voru mun meiri nú en í fyrra þegar aðeins fjögur atkvæði skildu framboðin að. Röskva hafði þá farið með meiri- hluta í Stúdentaráði í mörg ár. „Þetta var stórkostleg stund. Við höfum aldei sigrað svona stórt. Það brutust út mikil fagnaðarlæti og fólk komst í mikið uppnám. Kosn- ingin er ákveðin viðurkenning á okkar verkum í vetur. Það er frá- bært að fá endurnýjað umboð frá stúdentum til að halda þessari upp- byggingu áfram,“ sagði Jarþrúður Ásmundsdóttir sem skipar fyrsta sæti framboðslista Vöku. Valgerður B. Eggertsdóttir, sem skipar fyrsta sæti á framboðslista Röskvu, bjóst ekki við að tapa manni. „Það er auðvitað svekkjandi að tapa manni en maður verður bara að taka því og halda áfram.“ Þá hlaut Vaka 1.827 atkvæði og 4 fulltrúa á háskólafund, Röskva 1.326 atkvæði og 2 fulltrúa og Há- skólalistinn 431 atkvæði og engan mann. Vaka bætti við sig manni DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra vígði í gær með táknrænum hætti húsnæði Vöruhótelsins ehf. á athafnasvæði Eimskips í Sundahöfn að viðstöddum gestum. Húsnæði Vöruhótelsins er alls 23.500 fermetrar að gólffleti og um 300.000 rúmmetrar að stærð. Grunnflötur hússins samsvarar um þremur meðalstórum knattspyrnuvöllum og lofthæð er allt að 18 metrum. Geymslugeta þess er um 21.000 brettapláss. Þjónusta Vöruhótelsins felst í því að taka við vöru sem kemur til landsins, skrá hana og tollafgreiða og annast síðan ástandsskoðun vörunnar, pökkun í viðeigandi umbúðir og geymslu á öruggu svæði eins lengi og þörf krefur. Vöruhótelið tekur síðan við pöntunum og afgreiðir vöruna í því magni sem þarf hverju sinni til smásöluaðila eða annarra mót- takenda og gengur jafnframt frá reikningum og öðrum gögnum sem fylgja hverri af- greiðslu. Í tilefni af opnuninni er landsmönnum boðið til opnunarhátíðar fyrir alla fjölskylduna í húsnæði Vöruhótelsins á morgun, sunnudag, milli kl. 13 og 17. Morgunblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson vígði húsnæðið með því að sækja fyrstu pallettuna. Eggert Antonsson stýrði lyftaranum. Húsnæði Vöruhótelsins tekið í notkun ♦ ♦ ♦ SÝNING með ljómyndum frá för Þorkels Þorkelssonar til Afganistan í desember í fyrra verður opnuð á mbl.is á sunnudag en sama dag birtist í Morgunblaðinu ferðasaga Þorkels í blaðinu ásamt myndum. Guðni Ein- arsson blaðamaður skráði ferðasöguna. Þorkell dvaldi í um tvær vikur í hinu stríðshrjáða landi og ferðaðist víða til að fylgjast með uppbyggingarstarfi Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Þá var ekki liðið nema um ár frá falli talibanastjórnarinnar. Á síðustu 10 árum hefur Þorkell ferðast víða um heim til að taka myndir af venjulegu fólki við óvenjulegar aðstæður, m.a. í Sómalíu, Palestínu, Síberíu og Súdan. Hægt er að skoða sýninguna á forsíðu mbl.is með því að smella á tengilinn Afganistan undir hausnum Nýtt á mbl.is. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Myndir frá Afganistan á mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.