Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Rose Bruford College
LEIKLISTARNÁM
Rose Bruford College, sem var stofnaður árið 1950, er einn helsti leik-
listarskóli Evrópu og býður upp á nám á öllum sviðum leiklistar og
skyldra listgreina. Hæfnispróf og viðtöl fara fram í Reykjavík 5. og 6. apríl
vegna eftirfarandi greina, en kennsla hefst í september 2003:
Einnig munum við veita viðtöl vegna meistara- og doktorsnáms, sumar-
skóla og eins árs alþjóðlegs undirstöðunáms. Komið og ræðið við okkur
um starfsferil í leikhúsi. Nánari upplýsingar og viðtalstíma má fá:
Sue McTavish, Rose Bruford College, Lamorbey Park, Sidcup, Kent,
DA15 9DF. Sími +44 (0) 20 8308 2637.
Fax: +44 (0) 20 8308 0542. Netfang:sue.mctavish@bruford.ac.uk
Skoðið heimasíðu okkar: www.bruford.ac.uk
Tónlist leikara
Evrópsk leikhúslist
Lýsingarhönnun
Leiklist
Búningar
Leikmynd
Tónlistartækni
Sviðstjórnun
Leikstjórn
Bandarísk leikhúslist
Hljóð- og myndhönnun
Bresk háskólastofnun Skólastjóri: Prófessor Alastair Pearce
BÚNAÐARBANKI Íslands braut
gegn þagnarskylduákvæðum laga
um viðskiptabanka og sparisjóði með
viðræðum við Fjölmiðlafélagið ehf.
(FF) á síðasta ári og með gerð yf-
irlýsingar félagsins um yfirtöku lána
Norðurljósa hjá bankanum. Bankinn
braut einnig gegn heilbrigðum og
eðlilegum viðskiptaháttum í fjár-
málastarfsemi, samkvæmt skilningi
laga, með þátttöku í viðræðum um
ráðagerðir Fjölmiðlafélagsins um yf-
irtöku á Norðurljósum. Þetta eru
niðurstöður Fjármálaeftirlitsins
(FME) vegna kæru Norðurljósa
samskiptafélags hf. vegna samninga-
viðræðna Búnaðarbankans og FF frá
því í júlí 2002. Eftirlitið varð hins veg-
ar ekki við kröfu Norðurljósa um að
greina ríkislögreglustjóra frá niður-
stöðum sínum að aflokinni rannsókn.
FME kemst að þeirri niðurstöðu
að Búnaðarbankinn hafi tekið þátt í
fyrirætlunum samkeppnisaðila við-
skiptavinar síns um leiðir til þess að
yfirtaka rekstur hans. Þá segir FME
að bankinn hafi ennfremur tekið að
sér skjalagerð til undirbúnings þess-
um fyrirætlunum. Jafnframt hafi að-
gerðir bankans, sem fylgdu í kjölfar-
ið, verið í samræmi við þessar
fyrirætlanir.
Upphaf þessa máls er það að Norð-
urljós óskuðu eftir því með bréfi 19.
júlí 2002 að FME tæki til rannsóknar
„þá fyrirætlun starfsmanna Búnað-
arbanka Íslands hf. að knýja Norður-
ljós í gjaldþrot í þágu þriðja manns,“
eins og það var orðið í bréfinu. Þá var
þess krafist að FME beitti viðeigandi
ráðstöfunum gagnvart Búnaðar-
bankanum og þeim starfsmönnum
bankans, sem „tóku þátt í að skipu-
leggja aðförina að Norðurljósum og
stjórna henni“. Lokst var þess krafist
að FME greindi ríkislögreglustjóra
frá niðurstöðum sínum að aflokinni
rannsókn þar sem telja yrði brot
Búnaðarbankans og starfsmanna
hans gegn Norðurljósum mjög alvar-
leg og þess eðlis að þau væru refsi-
verð.
Búnaðarbankinn óskaði þess með
bréfi 29. júlí 2002 að FME tæki til
skoðunar með hvaða hætti trúnaðar-
sköl hafi borist til Norðurljósa úr
bankanum, og þá sérstaklega hvort
félagið hafi átt þátt í að stuðla að því
að þagnarskylduákvæði laga um við-
skiptabanka og sparisjóða væri brot-
ið. Þá krafðist Búnaðarbankinn þess
að FME hafnaði öllum kröfum Norð-
urljósa á hendur bankanum og
starfsmönnum hans.
Norðurljós tóku lán að fjárhæð 350
milljónir króna hjá Búnaðarbankan-
um 24. júlí 2001. Lánið skyldi end-
urgreiða með einni greiðslu 5. júní
2004. Vextir skyldu reiknast frá út-
borgunardegi og greiðast á sex mán-
aða fresti miðað við 5. desember sem
fyrsta vaxtagjalddaga. Í lánssamn-
ingi er að finna ítarlegar gjaldfelling-
arheimildir. Heildarlán Norðurljósa
hjá Búnaðarbankanum námu um 450
m.kr. á miðju síðasta ári. Fram kom á
sínum tíma að þeir sem stóðu að Fjöl-
miðlafélaginu voru Björgólfur Guð-
mundsson, Árni Samúelsson, Jón
Pálmason, Kristinn Þór Geirsson,
Einar Sigurðsson, Tryggingamið-
stöðin, Hjörtur Nielsen og Gunnar
Jóhann Birgisson.
FME tekur fram að ekki séu efni
til að verða við beiðni Búnaðarbank-
ans um skoðun á því með hvaða hætti
trúnaðarskjöl hafi borist í hendur
forsvarsmanna Norðurljósa. Athug-
un á þessu myndi falla utan verksviðs
FME, að öðru leyti en því sem við
komi vörslu bankans á trúnaðarupp-
lýsingum. Þá hafi bankinn þegar
kært þennan þátt málsins til lögregl-
unnar.
Tveir þættir teknir
til skoðunar
Í greinargerð FME segir að þau
álitaefni sem athugun hafi sætt séu
tvíþætt. Annars vegar hafi athugun
FME lotið að því hvort þagnarskylda
laga um viðskiptabanka og sparisjóði
hafi verið brotin af hálfu Búnaðar-
bankans, þegar unnin voru drög að
yfirlýsingu væntanlegra hluthafa
fyrir hönd óstofnaðs einkahluta-
félags, FF, og viðræður og samskipti
þeim tengdum áttu sér stað. Hins
vegar hafi athugun FME beinst að
því hvort framganga Búnaðarbank-
ans í málinu stangist á við heilbrigða
og eðlilega viðskiptahætti í banka-
starfsemi, samanber lög um opinbert
eftirlit með fjármálastarfsemi.
Í niðurstöðum FME segir að
starfsmenn viðskiptabanka séu
bundnir þagnarskyldu um allt það er
varðar hagi viðskiptamanna hlutað-
eigandi stofnunar og um önnur atriði
sem þeir fái vitneskju um í starfi sínu
og leynt skuli fara samkvæmt lögum
eða eðli máls. Jafnframt segir FME
að fyrir liggi af hálfu Búnaðarbank-
ans að bankinn hafi sett upp drög að
yfirlýsingu talsmanna FF og átt í við-
ræðum við þá um atriði er tengdust
efni yfirlýsingarinnar. Þá liggi fyrir
að starfsmenn bankans hafi sett
skjalanúmer krafna Búnaðarbank-
ans á hendur Norðurljósum inn í
drögin. Einnig hafi komið fram að yf-
irlögfræðingur bankans, sem þekkti
lánasamninga Norðurljósa og þær
gjaldfellingarheimildir sem þar er að
finna, hafi sett drög yfirlýsingarinnar
upp.
Segir FME að handritaðar at-
hugasemdir við drög að yfirlýsingu
FF bendi til þess að talsmönnum
þess hafi verið kunnugt um gjaldfell-
ingarheimildir Búnaðarbankans á
hendur Norðurljósum. „Rétt er þó að
taka fram að við meðferð málsins hef-
ur ekki komið fram hver vitneskja
þeirra um gjaldfellingarheimildirnar
var, né heldur hvaðan þær upplýs-
ingar voru fengnar,“ segir í greinar-
gerð FME. Þá segir að ljóst sé að
ekki beri saman fullyrðingum og
ályktunum kvartanda, þ.e. Norður-
ljósa, annars vegar, og fullyrðingum
og skýringum bankans, hins vegar.
Niðurstaða FME er að þátttaka
Búnaðarbankans í gerð yfirlýsingar
FF hafi brotið gegn ákvæðum laga
um viðskiptabanka og sparisjóði.
Með viðræðum við talsmenn FF
ásamt vinnu við skjalagerð fyrir fé-
lagið, þar sem lánanúmer voru felld
inn í skjölin af hálfu bankans, og upp-
lýsngar um fjárhæðir og stöðu lána
komu fram, hafi Búnaðarbankinn
upplýst þriðja aðila um hagi við-
skiptamanns sem leynt áttu að fara,
samkvæmt ákvæðum laga. FME
bendir á að ekki verði séð hver til-
gangur Búnaðarbankans með þátt-
töku í gerð yfirlýsingarinnar og
vörslu hennar að henni frágenginni
hefði átt að vera ef ekki hafi að mati
bankans verið hægt að byggja á yf-
irlýsingunni og efni hennar.
Brotið gegn heilbrigðum
viðskiptaháttum
Hinn þátturinn sem FME skoðaði
var hvort starfshættir Búnaðarbank-
ans í máli þessu hafi verið með þeim
hætti að bankinn hafi brotið gegn
heilbrigðum og eðlilegum viðskipta-
háttum. Í greinargerð FME segir að
fyrir liggi að Búnaðarbankinn hafi
gengið til viðræðna við talsmenn FF
sem lyktaði með yfirlýsingu sem
tryggði kröfur bankans gagnvart
Norðurljósum. Þessar viðræður hafi
hafist um miðjan maí 2002 og hafi yf-
irlýsing verið undirrituð 31. maí 2002.
Þá segir í greinargerðinni að fyrir
liggi að fjárhagslegar skuldbindingar
Norðurljósa gagnvart Búnaðarbank-
anum hafi verið í skilum þegar bank-
inn hóf viðræður við FFog setti upp
yfirlýsingu þá sem undirrituð var 31.
maí sl. Hins vegar hafi orðið dráttur á
skilum á upplýsingum sem Búnaðar-
bankinn hafði krafist á grundvelli
skilmála lánasamninga aðila, auk
þess sem skuldbindingar Norður-
ljósa gagnvart öðrum hefðu verið til
opinberrar umfjöllunar.
FME segist ekki hafa ástæðu til að
draga í efa þau sjónarmið Búnaðar-
bankans, sem bankinn lýsti fyrir
FME, um að bankinn hefði verið
uggandi um fjárhagsstöðu Norður-
ljósa. FME tekur hins vegar ekki af-
stöðu til þess hvort bankanum hafi
verið heimilt samkvæmt ákvæðum
lánasamninga að gjaldfella lán Norð-
urljósa hjá bankanum, enda sé sá
þáttur málsins rekinn fyrir dómstól-
um.
Fram kemur í niðurlagi umfjöllun-
ar FME, að þau skjöl sem því hafi
borist um viðræður FF og bankans,
sýni að viðræður aðila lutu m.a. að yf-
irtöku FF á lánum Norðurljósa hjá
Búnaðarbankanum og jafnframt skil-
málum fyrir slíkri yfirtöku. Sam-
kvæmt yfirlýsingunni frá 31. maí sl.
hafi FF stefnt að yfirtöku á rekstri
Norðurljósa, eftir atvikum í kjölfar
gjaldþrots Norðurljósa. Búnaðar-
bankinn hafi fengið skuldbindingu af
hálfu FF um yfirtöku lánanna með
yfirlýsingunni. Þá segir FME að
Búnaðarbankinn hafi því átt í viðræð-
um við samkeppnisaðila Norðurljósa,
félag sem hafði það að markmiði að
yfirtaka rekstur Norðurljósa. Við-
ræðurnar og yfirlýsingin hafi grund-
vallast á upplýsingum um fjárhags-
stöðu Norðurljósa gagnvart
Búnaðarbankanum. Með þessu segir
FME að Búnaðarbankinn hafi tekið
þátt í fyrirætlunum samkeppnisaðila
viðskiptavinar síns um leiðir til þess
að yfirtaka rekstur hans og brotið
gegn heilbrigðum og eðlilegum við-
skiptaháttum í fjármálastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið segir Búnaðarbankann hafa brotið bankalög vegna Norðurljósa
Morgunblaðið/Kristinn
Árni Tómasson og Sólon Sigurðsson, bankastjórar Búnaðarbankans,
greindu í gær frá niðurstöðum FME vegna kvörtunar Norðurljósa.
Tók þátt í fyrirætlun-
um samkeppnisaðila
VALGERÐUR Sverrisdóttir, við-
skiptaráðherra, segist ekki vilja tjá
sig um niðurstöðu Fjármálaeftirlits-
ins í málefnum Búnaðarbankans og
Norðurljósa. Það sé eftirlitsaðila að
fjalla um málið og það hafi Fjármála-
eftirlitið gert.
Heyrir undir
eftirlitsaðila
BANKASTJÓRAR Búnaðarbanka
Íslands segjast vera ósammála niður-
stöðu Fjármálaeftirlitsins (FME)
varðandi kvörtun Norðurljósa vegna
samningaviðræðna bankans og Fjöl-
miðlafélagsins ehf. (FF) frá júlí sl.
Fram kom í máli Árna Tómassonar
og Sólons Sigurðssonar, bankastjóra
Búnaðarbankans, á fréttamannafundi
í gær, þar sem þeir kynntu niðurstöðu
FME, að bankinn muni gaumgæfa
þær athugasemdir sem FME gerir
við starfsaðferðir, verkferla og verk-
lagsreglur bankans. Tryggt verði að
hlutir sem þessir endurtaki sig ekki
og bankinn liti svo á að að öðru leyti sé
málinu lokið af hálfu bankans.
Árni sagði að FME taki ekki undir
þau gífuryrði sem felist í umkvörtun-
um Norðurljósa. Hann sagði að fyrsta
umkvörtunarefni Norðurljósa hafi
verið að Búnaðarbankinn hafi tekið
þátt í því að knýja Norðurljós í gjald-
þrot. Önnur kvörtun Norðurljósa hafi
verið að Búnaðarbankinn hafi tekið
þátt í að skipuleggja aðför að Norður-
ljósum. Í þriðja lagi hafi Norðurljós
óskað eftir því að FME vísi málinu til
Ríkislögreglustjóra til frekari rann-
sóknar. „Niðurstaða Fjármálaeftir-
litsins að því er varðar þessi þrjú um-
kvörtunarefni Norðurljósa er sú að
þeim er öllum hafnað,“ sagði Árni.
Hann sagði að þó þetta sé megin-
niðurstaða FME hafi bankinn verið
brotlegur á tveimur sviðum, annars
vegar varðandi þagnarskyldu og hins
vegar heilbrigða viðskiptahætti.
Árni sagði að bankastjórn Búnað-
arbankans hafi mikið velt því fyrir
sér, og tekið það upp í viðræðum við
FME, hvort stjórnendum beri ekki
skylda til að hlusta, þegar aðilar koma
til fundar við stjórnendur bankans og
ekki er vitað um fundarefnið, en mál
er reifað með nákvæmum hætti. Í
þessu máli hafi komið fram að það
væru rekstrarerfiðleikar á sjónvarps-
markaði. Talsmenn FF hafi lýst
þeirra sýn á því hvernig þetta muni
koma til með að þróast. „Okkur í Bún-
aðarbankanum fannst við ekki vera
að sinna okkar skyldum nema við
reyndum að ígrunda hvað bankinn
gæti best gert til að tryggja hagsmuni
sína. Markmiðið með þessum samtöl-
um og þeim skjölum sem voru útbúin,
var að tryggja sem best hagsmuni
bankans ef eitthvað gerðist.“
Sólon sagði að allar ásakanir um að
bankinn fari ekki að lögum séu alvar-
legar. Bankinn telji hins vegar að
ásakanir sem fram komi í greinargerð
FME séu ekki réttmætar. Bankinn
hafi engu að síður miklar áhyggjur af
þeim og því verði verkferlar og verk-
lagsreglur skoðaðar. Mál af þessu
tagi sé slæmt fyrir bankann.
Bankastjórar Búnaðarbanka Íslands
Ósammála niðurstöðu
Fjármálaeftirlitsins
NORÐURLJÓS samskiptafélag
mun óska eftir að Ríkislögreglustjóri
rannsaki þær ávirðingar sem fram
koma í greinargerð Fjármálaeftir-
litsins varðandi kvörtun Norðurljósa
vegna samningaviðræðna Búnaðar-
bankans og Fjölmiðlafélagsins.
Ragnar Birgisson, aðstoðarfor-
stjóri Norðurljósa samskiptafélags
hf., segir að félagið fagni sigri vegna
niðurstaðna Fjármálaeftirlitsins
varðandi kvörtun félagins vegna
samningaviðræðna Búnaðarbankans
og Fjölmiðlafélagsins. „Við lítum á
að þetta sé mjög alvarlegt mál fyrir
bankann og mjög ótraustvekjandi
fyrir Búnaðarbankann sem auglýsir
sig sem traustan banka, að vera
fundinn sekur um að brjóta lög um
þagnarskyldu og að hafa brotið gegn
heilbrigðum og eðlilegum viðskipta-
háttum. Og þar sem Fjármálaeftir-
litið segir það ekki vera í þess verka-
hring að vísa þessu til Ríkis-
lögreglustjóra, þá munum við vísa
því þangað til rannsóknar.“
Aðstoðarforstjóri
Norðurljósa
Verður kært
til Ríkislög-
reglustjóra
♦ ♦ ♦