Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 18

Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 18
ERLENT 18 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ BESTU MEÐMÆLIfær okkar „Lykillinn að árangri í okkar rekstri felst í markvissri vöru- stjórnun. Lausnin tryggir fagleg vinnubrögð. Verkferlar eru vel skilgreindir og afhendingar bæði nákvæmari og hraðari. Nýting vöruhússins er auk þess betri. Þar sem stór hluti af vörum okkar eru dagstimplaðar matvörur skiptir miklu að vita aldur þeirra. Kerfið leiðir okkur alltaf til þeirrar vöru sem á að fara næst út úr húsi. Starfsmenn á lager nota þráð- lausar handtölvur við alla vörumeð- höndlun og reikningagerð. Upplýs- ingarnar eru uppfærðar jafnóðum í Axapta. Lausnin hefur fyllilega staðið undir væntingum okkar og starfsmenn sáu strax ávinning af notkun hennar. Við gefum Axapta okkar bestu meðmæli.“ Sverrir Egill Bergmann framkvæmdastjóri Bergdal ehf., heildverslun Microsoft Business Solutions–Axapta BILL Gates er áfram ríkasti mað- ur heimsins ef eitthvað er að marka árlegan lista bandaríska tímaritsins Forbes. Sömu menn eru í efstu sætum listans og und- anfarin ár, en auður þeirra er þó öllu minni en áður vegna sam- dráttar í efnahagsmálum. Raunar fækkaði milljarðamæringum um 21 á milli ára, skv. úttekt blaðsins, og eru þeir nú 476 – voru 497 í fyrra og 538 fyrir tveimur árum. Forbes segir Bill Gates, eiganda og stofnanda Microsoft-tölvufyr- irtækisins, eiga 40,7 milljarða Bandaríkjadala, eða um 3.200 milljarða íslenskra króna. Hann er þó öllu eignaminni en fyrir ári, þegar hann trónaði á toppi Forbes- listans með 52,8 milljarða dollara, og er samdrætti á hlutabréfamark- aði kennt um tapið. Bandaríski fjárfestirinn Warren Buffett, sem er í öðru sæti yfir rík- ustu menn heims, tapaði einnig fjármunum á árinu; á nú eignir sem nema 30,5 milljörðum dollara, sem er 4,5 milljörðum minna en fyrir ári. Í þriðja sæti eru þýsku bræðurnir Karl og Theo Albrecht, eigendur Aldi-verslunarkeðjunnar. Þeir eiga 25,6 milljarða Banda- ríkjadala, áttu 26,8 milljarða í fyrra. Fimm meðlimi Walton-fjölskyld- unnar bandarísku er að finna í ell- efu efstu sætum listans en fjöl- skyldan á og rekur Wal-Mart- verslanirnar í Bandaríkjunum. Rússum fjölgar úr 7 í 17 222 Bandaríkjamenn og 134 Evrópumenn eru á listanum yfir milljarðamæringa heimsins. Fjölg- ar evrópskum milljarðamæringum um 13 á meðan þeim bandarísku fækkar um 30. Meiri athygli vekur þó að rússneskum milljarðamær- ingum fjölgar úr sjö í sautján en ríkastur Rússanna er Míkhaíl Khodorkovsky, yfirmaður Yukos- olíurisans. Athygli vekur einnig að fjöl- miðlakonan Oprah Winfrey tekur stökk inn á listann, eignir hennar nema nú um einum milljarði Bandaríkjadala, en hún er þar með fyrsta blökkukonan sem kemst á listann yfir milljarðamæringa. Til glöggvunar og gamans má nefna að talið er að það muni kosta rúmlega einn milljarð Bandaríkjadala að reisa Kára- hnjúkavirkjun, sem gert er ráð fyrir að verði dýrasta framkvæmd Íslandssögunnar. Reuters Bill Gates ásamt japönskum börnum í Tókýó í vikunni. Oprah Winfrey er fyrsta blökkukon- an á lista yfir milljarðamæringa. Bill Gates rík- astur – en var ríkari í fyrra New York. AFP, AP. Morðárás í Pakistan Karachi. AFP. ÞRÍR lögreglumenn, sem gættu bandarísku ræðismanns- skrifstofunnar í Karachi í Pak- istan, voru skotnir í gær og sjö aðrir særðir. Var þetta önnur morðárásin við skrifstofuna á átta mánuðum. Árásin átti sér stað um miðj- an dag þegar manni, vopnuðum skammbyssu, tókst að ná hríð- skotabyssu af einum varðanna. Lét hann síðan kúlnahríðina dynja á þeim. Lögregluvarð- stöðin var ein af þremur við ræðismannsskrifstofuna en gæsla við hana var stóraukin eftir sprengjuárás um miðjan júní í fyrra en hún varð 12 manns að bana auk árásar- mannsins. Vaxandi óvild er í garð Bandaríkjanna í Pakistan vegna yfirvofandi árásar á Írak auk þess sem talið er, að margir liðsmenn al-Qaeda, hryðju- verkasamtaka Osama bin Lad- ens, séu í Karachi. Hefur hún verið kölluð „hreiður hryðju- verkamanna“. Hvergi er meira um ofbeld- isverk í Pakistan en í Karachi. Þar hefur verið ráðist á kristna Pakistana og vestrænt fólk auk þess sem morð og mannvíg í átökum milli pólitískra fylkinga eða sunni- og shíta-múslíma eru algeng. Kýpurbúar fá aukafrest Nikosiu. AFP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gaf í gær leið- togum Kýpur-Grikkja og Kýpur- Tyrkja aukinn frest til 10. mars til að finna málamiðlun um sameiningu eyj- arinnar og lausn á deilum þjóðarbrot- anna. Frestur sem hann hafði áður gefið þeim rann út í gær. Annan vill að haldin verði þjóðarat- kvæðagreiðsla um sameiningartillög- ur SÞ samtímis í báðum ríkjunum 30. mars. Evrópusambandið hefur boðið Kýpur aðild að sambandinu en takist ekki samningar um að Kýpur verði eitt ríki er ljóst að einvörðungu grískumælandi hlutinn gengur í sam- bandið 16. apríl. Eyjan, sem er fyrir austurbotni Miðjarðarhafs og með alls nær millj- ón íbúa, klofnaði í tvö ríki 1974 er Tyrkir sendu her til norðurhlutans til að vernda þjóðbræður sína en þeir eru mun færri en grískumælandi eyj- arskeggjar. Leiðtogi Kýpur-Tyrkja er hinn aldni Rauf Denktash sem er andvígur mörgum þáttum í tillögum SÞ og segir þær „varasamar“. NÝ ríkisstjórn sór embættiseið í Vínarborg í gær, nærri hálfu ári eftir að sú síðasta féll og boðað var til kosninga. Síðan þá hefur gamla stjórnin setið til bráðabirgða og nýja stjórnin verður ekki mikið breytt: að henni standa sömu flokkarnir og áð- ur, hinn íhaldssami Þjóðarflokkur Wolfgangs Schüssels kanzlara og hinn umdeildi Frelsisflokkur, FPÖ. Gamla stjórnin, sem setið hafði í 31 mánuð er hún féll vegna klofnings í röðum FPÖ í september sl., gengur í endurnýjun lífdaga með stjórnar- sáttmálanum sem var undirritaður í gær. Er flokkarnir tveir gerðu fyrsta stjórnarsáttmála sinn fyrir þremur árum olli það miklu fjaðrafoki þar sem ráðamenn í mörgum Evrópu- sambandslöndum töldu Frelsisflokk- inn of hægrisinnaðan til að verð- skulda að eiga aðild að ríkisstjórn í ESB-landi og lögðu Austurríki í póli- tíska „sóttkví“ í hálft ár. Kom sá orðstír flokksins aðallega til af stjórnmálastíl þáverandi for- manns hans, Jörgs Haider, sem á ferli sínum hafði látið falla ýmis um- mæli sem hægt var að túlka sem lof á vissa þætti stjórnarhátta nazista. Haider sagði af sér formennskunni áður en stjórnarsamstarfið hófst á sínum tíma, en hann hefur haldið miklum áhrifum í flokknum og það var hann sem leiddi innanflokksupp- reisn gegn ráðherraliði flokksins í fyrra, sem leiddi til falls stjórnarinn- ar. Í kosningunum í nóvember jók Þjóðarflokkurinn mjög fylgi sitt en Frelsisflokkurinn tapaði miklu. Eftir mánaðalangar stjórnarmyndunar- þreifingar, sem Schüssel lét einnig ná til stjórnarandstöðuflokka jafnað- armanna og græningja, varð niður- staðan sú að halda samstarfinu við FPÖ áfram. Systir Haiders í ráðherraliðinu Í nýju stjórninni munu sitja sex ráðherrar úr Frelsisflokknum, ellefu úr Þjóðarflokknum. Fyrir FPÖ-ráð- herrunum fer Herbert Haupt, nú- verandi flokksformaður. Hann gegn- ir embætti varakanzlara auk þess að stýra ráðuneyti félagsmála. Einnig stendur til að Ursula Haubner, syst- ir Jörgs Haider, verði í stjórninni. Ennfremur mun Karl-Heinz Grass- er, sem gekk úr FPÖ eftir deilurnar í fyrrahaust, gegna áfram embætti fjármálaráðherra. Hægristjórnin í Austurríki endurnýjuð AP Wolfgang Schüssel, kanzlari Austurríkis (t.v.), ásamt nýjum varakanzlara sínum, Herbert Haupt, núverandi formanni Frelsisflokksins. Vínarborg. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.