Morgunblaðið - 01.03.2003, Qupperneq 31
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 31
Happdrætti
Húsnæðisfélagsins
SEM
Dregið 24. febrúar 2003
Vinningaskrá
Bifreið að eigin vali frá Heklu kr. 1.690.000
85650
Ferðavinningar frá Flugleiðum kr. 150.000
2592 12330 23382 29618 36775 51654 72091 79868 96286 113024
2844 13586 26330 30391 39627 52854 72250 80162 101454 113266
4808 17886 27652 34307 40320 57122 73134 82217 103305 114561
6301 18870 28236 34833 49434 59560 78562 90533 104802 117439
10928 21077 29150 36324 51558 70606 79158 93199 109946 118703
Utanlandsferð frá Flugleiðum kr. 50.000
197 14995 28546 41593 55857 67773 74952 87298 97464 108229
678 15025 28893 42731 57852 67819 75176 87667 97892 108822
3868 15857 30439 42909 57959 67979 76621 88702 98721 109570
5243 16838 33864 43874 58072 68409 77228 89456 101278 111576
8854 17013 34360 44908 59929 68560 78185 89537 101875 111971
8942 18524 34542 45606 61572 69599 78340 89656 103062 112330
9172 21733 35790 46529 62703 70523 79587 91213 103424 113639
9227 22729 37377 47551 62711 70630 81458 91841 103957 114116
9295 22918 37406 47985 63246 70957 81661 92208 104788 114459
9537 23328 37938 48168 63758 71090 82969 93435 104898 116725
10195 24980 38033 50925 64083 71304 83975 94273 105727 117010
11316 26463 38223 51994 64949 72387 84068 95435 105942 117927
12473 26483 39024 55094 65469 73519 85126 95616 107064 118154
12884 26570 39500 55185 65549 73575 86000 96275 107304 119463
13743 27346 40734 55638 65847 74052 86273 97452 107348 119929
Vöruúttekt frá Heklu kr. 50.000
1512 15239 28840 40992 50007 57197 71545 84979 96687 110434
2286 15356 29562 41193 51463 58408 72142 85506 97075 110441
2602 15651 30939 41635 51857 58457 72427 85616 97888 111423
3038 16142 31208 41662 52667 58651 75325 85634 98822 113086
3129 16683 33719 42604 53562 58870 75444 86854 100542 114507
3663 16817 35550 43185 53659 59802 75787 87320 102450 114910
5262 18186 36428 43905 54276 62939 77515 88083 102589 115827
6195 18675 36497 44882 54310 64495 79952 89223 102985 116674
7120 19480 36899 45211 54400 65391 80020 91340 103090 117279
7325 20752 37441 45897 54508 66198 80907 91508 105389 117421
9788 23821 37608 47213 54613 69156 81001 92098 109720 117491
10700 26291 37884 47426 55521 70580 81506 93375 109759 118088
12187 26307 38914 47991 55821 70998 81527 93879 110002 119469
14589 28491 39234 48170 56648 71285 82167 94426 110137 119552
15101 28545 40900 49727 56909 71373 83779 95203 110381 119946
Þökkum veittan stuðning. Birt án ábyrgðar
LANDIÐ
SAMNINGUR milli Grindavíkur-
bæjar og Verkfræðistofu Suðurnesja
(VS) um tækniþjónustu hefur verið
undirritaður en á eftir að hljóta stað-
festingu í bæjarstjórn Grindavíkur-
bæjar. Felur samningurinn í sér að
Benedikt Ingi Sigurðsson, bygginga-
tæknifræðingur hjá VS, gegni hlut-
verki byggingafulltrúa og að verk-
fræðistofan annist einnig tækni- og
verkfræðiþjónustu fyrir bæjarfélagið.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir yf-
irstandandi ár ákvað meirihluti bæj-
arstjórnar Grindavíkur að gera
breytingar á skipulagi byggingaeftir-
lits og tækniþjónustu. Núverandi
byggingafulltrúa var sagt upp störf-
um og ákveðið að ganga til samninga
við Verkfræðistofu Suðurnesja um að
taka að sér það hlutverk og aðra
tækni- og verkfræðivinnu fyrir
Grindavíkurbæ á ákveðnum taxta.
Kom það fram af hálfu meirihlut-
ans að með þessari breytingu yrði
unnt að draga úr kostnaði við þjón-
ustuna og rætt um 2–3 milljónir á ári í
því sambandi.
Nú hefur verið gengið frá þessum
samningum, að því er fram kemur í
fundargerð bæjarráðs og tekur nýi
byggingafulltrúinn til starfa á mánu-
dag. Hann mun hafa aðstöðu á bæj-
arskrifstofunum. Ólafur Örn Ólafsson
bæjarstjóri segir að jafnframt muni
Verkfræðistofa Suðurnesja taka á
leigu húsnæði sem Grindavíkurbær
hefur á jarðhæð ráðhússins og opna
þar útibú frá verkfræðistofunni.
Nýr bygginga-
fulltrúi til starfa
Grindavík
MYNDVERKIÐ „Í sátt og sam-
lyndi“ var afhjúpað á sal Njarðvík-
urskóla í byrjun vikunnar sem er
kurteisisvika í skólanum.
Verkið var unnið af nemendum í
myndlistarvali í 9. bekk eftir hug-
mynd eins nemandans, Valbjargar
Ómarsdóttur. Eins og heitið ber
með sér sýnir hún stúlkur og
drengi að leik í sátt og samlyndi.
Í sátt og samlyndi
Njarðvík
Hljómsveitin Flugan spilar á veit-
ingastaðnum Mamma mia í Sand-
gerði í kvöld, laugardag. Staðurinn
var opnaður um síðustu helgi eftir
miklar breytingar. Það er því kjörið
tækifæri til að skella sér í fjörið með
Flugunni um leið og ný og breytt
Mamma Mía er skoðuð, segir í
fréttatilkynningu. Það er 18 ára ald-
urstakmark.
Í DAG
Félagar í Ættfræðifélaginu hittast
á Bókasafni Reykjanesbæjar
mánudagskvöldið 3. mars nk. kl. 20.
Allt áhugafólk um ættfræði er vel-
komið, segir í fréttatilkynningu frá
bókasafninu. Vísað er á Einar Ingi-
mundarson um nánari upplýsingar.
Á NÆSTUNNI
HELGA Jóhanna Oddsdóttir
hefur verið ráðin í nýja stöðu
starfsþróunarstjóra hjá
Reykjanesbæ
og mun hún
hefja störf
hinn 17. mars
næstkomandi.
Helstu
verkefni
starfsþróun-
arstjóra, að
því er fram
kemur í frétt á
heimasíðu
Reykjanesbæjar, eru þátttaka í
almennri stefnumótun bæjar-
ins og markmiðssetningu, stýra
stefnu hans í starfsþróunarmál-
um og daglegri vinnslu launa,
samræma starfsmannastefnu
ásamt upplýsingagjöf til stjórn-
enda og starfsmanna bæjarins.
Helga Jóhanna er 29 ára
gömul, borin og barnfæddur
Keflvíkingur. Hún er viðskipta-
fræðingur að mennt og stundar
nú nám til MA-prófs.
Ráðin í stöðu
starfsþróun-
arstjóra
Reykjanesbær
Helga Jóhanna
Oddsdóttir
STJÓRN Sparisjóðs Keflavíkur
hefur ákveðið að leggja til hliðar
tillögur um að breyta sjóðnum í
hlutafélag. Jafnframt hefur stofn-
fjáraðilum verið kynnt sú skoðun
stjórnarinnar að ákvörðunin verði
endurskoðuð þegar aðstæður verða
réttar.
Aðalfundur sparisjóðsins á síð-
asta ári fól stjórn félagsins að und-
irbúa breytingu hans í hlutafélag.
Þegar undirbúningur var langt
kominn ákvað stjórnin að fresta því
að leggja tillögur sínar fyrir, meðal
annars vegna óvissu sem skapaðist
vegna hins svokallaða SPRON-
máls og fyrirhugaðar breytingar á
lögum um viðskiptabanka og spari-
sjóði.
Í tilkynningu til stofnfjáraðila
gerir stjórn sparisjóðsins grein
fyrir því, að þótt það sé enn álit
stjórnarinnar að hlutafélagaformið
sé heppilegasta félagsformið fyrir
fjármálastofnanir af þessu tagi,
þegar til lengri tíma er litið, hafi
verið ákveðið að fresta breyting-
unni að svo stöddu. Nefndar eru
nokkrar ástæður fyrir þessu, með-
al annars frestun sambærilegrar
ákvörðunar hjá SPRON og óvissa
um ýmsa þætti í starfsumhverfi
sparisjóða og í bankaheiminum í
heild.
Áform um hluta-
félag lögð til hliðar
Keflavík
SAMEINAÐAR hafa verið þrjár lögmanns-
stofur á Norður- og Austurlandi. Eru það
Lögmannsstofa Berglindar á Húsavík, Lög-
menn Austurlandi á Egilsstöðum og Hraun
á Hornafirði. Mun nýja stofan bera nafnið
Regula lögmannsstofa og eru eigendur þau
Berglind Svavarsdóttir, lögmaður á Húsa-
vík, Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður á Eg-
ilsstöðum og Sigríður Kristinsdóttir, lög-
maður á Höfn í Hornafirði.
Tilgangur sameiningarinnar er fyrst og
fremst að auka þjónustuna við viðskiptavini
og gera fyrirtækinu kleift að taka við stærri
verkefnum. Hið nýja fyrirtæki verður með
öfluga innheimtudeild, auk hefðbundinnar
lögmannsþjónustu. Sjálfstætt starfandi
fasteignasölur verða reknar samhliða hinni
nýju lögmannsstofu á öllum þremum skrif-
stofunum.
Starfsstöðvar lögmannsstofunnar verða á
Húsavík, Egilsstöðum og Höfn en hagnýt-
ing nýjunga á sviði upplýsingatækni gerir
fyrirtækinu kleift að starfa sem ein heild.
Starfsmenn Regula lögmannsstofu eru
sjö, þar af fjórir lögmenn og mun lögmanns-
stofan taka til starfa 3. mars næstkomandi.
Lögmannsstofur sameinast
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Starfsfólk hinnar nýju Regula-lögmannsstofu, auk starfsmanna á
fasteignasölunum sem reknar eru á öllum stöðunum. Neðri röð f.v.:
Harpa Högnadóttir innheimtufulltrúi Höfn, Sigríður Kristinsdóttir
lögmaður Höfn, Hilmar Gunnlaugsson lögmaður Egilsstöðum,
Berglind Svavarsdóttir lögmaður Húsavík og Unnur Guðjónsdóttir
bókari Húsavík. Efri röð f.h.: Guðrún Gísladóttir starfsmaður Fast-
eigna og skipasölu Austurlands Egilsstöðum, Ragnar Þór Jónsson
starfsmaður Fasteignasölunnar Eignaþings Húsavík, Snorri
Snorrason starfsmaður Fasteignasölunnar Hrauns Höfn, Friðbjörn
E. Garðarsson lögmaður Egilsstöðum og Aðalbjörg Hermannsdóttir
innheimtufulltrúi Egilsstöðum.
Húsavík
ÞAÐ var sannarlega líf og fjör á
veglegri árshátíð Flúðaskóla sem
fór fram í Félagsheimilinu á Flúðum
22. febrúar. Hátíðinni var tvískipt,
nemendur í yngri bekkjunum byrj-
uðu sína dagskrá kl. 11 og eftir
skemmtiatriði á sviði dunaði diskó-
dansinn í nokkurn tíma á eftir. Nem-
endur í 8. til 10. bekk hófu sína dag-
skrá kl. 20 með borðhaldi en þetta er
þriðja árið með slíku fyrirkomulagi.
Sá Hótel Flúðir um veislukostinn.
Hver nemandi má bjóða með sér
tveimur fullorðnum og allir eru
prúðbúnir.
Mikill fjöldi skemmtiatriða í tón-
list og leiklist ber sannarlega vott
um þróttmikið og fjölbreytt skóla-
starf. Hugmyndaauðgi nemenda er
mikil sem sást best í fjölbeyttum
skemmtiþáttum sem nemendur
sömdu sjálfir og æfðu af kostgæfni
með ágætri aðstoð kennara sinna.
Mátti sjá hjá sumum leikhæfileika
sem vafalaust gætu nýst þeim vel
með slíku námi og reynslu. Eftir
þriggja tíma borðhald og sýningu á
fjölda skemmtiatriða var stiginn
dans.
Nemendur í Flúðaskóla eru nú
183 en kennarar eru 24, þó ekki allir
í fullu starfi.
Skólastjóri Flúðaskóla er Jóhanna
S. Vilbergsdóttir en Valgarður L.
Jónsson aðstoðarskólastjóri gegnir
störfum Jóhönnu um tíma í veik-
indaforföllum hennar.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Diskódans
á árshátíð
Flúðaskóla
Hrunamannahreppur
MOGGABÚÐIN
mbl.is