Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 32
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
32 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GÍSLI Páll Pálsson úr Íþróttafélag-
inu Hamri í Hveragerði var kosinn
formaður HSK á þingi sambandsins
í Þjórsárveri sl. laugardag. Árni Þor-
gilsson á Hvolsvelli, sem verið hefur
formaður Skarphéðins frá árinu
1995, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Vigdís Guðjónsdóttir spjót-
kastari úr Ungmennafélagi Skeiða-
manna var kosin Íþróttamaður HSK
árið 2002, annað árið í röð. Auk
hennar fékk afreksfólk afhentar við-
urkenningar.
Gísli Páll er ekki ókunnur stjórn-
arstörfum í Skarphéðni, en hann var
kosinn ritari HSK árið 1995 og var
gjaldkeri sambandsins frá 1996–
1999. Hann hefur einnig setið í
körfuknattleiksnefnd HSK um ára-
bil. Þá hefur hann verið virkur í
starfi Hamars og fyrrverandi for-
maður félagsins. Hann stóð að stofn-
un körfuknattleiksdeildar Hamars
og hefur setið þar í stjórn frá stofnun
hennar árið 1992. Um 90 manns
mættu á þingið frá 35 aðildarfélög-
um HSK og einu sérráði sambands-
ins, auk stjórnar og gesta. Nutu
fulltrúar gestrisni félaga úr Umf.
Vöku og Villingaholtshrepps og eru
þeim þakkaðar frábærar móttökur.
Þetta var í þriðja sinn sem þingið er
haldið í Þjórsárveri, það var fyrst
haldið þar árið 1964 og síðan 1982.
Á þinginu var lögð fram skýrsla
um starfsemi héraðssambandsins á
liðnu ári. Í skýrslunni kemur fram að
starfið var þróttmikið á árinu, bæði
innan HSK og aðildarfélaga þess.
Á þinginu var fjallað um fjölmörg
mál. Í lok þess var kosin 8 manna
stjórn og varastjórn sambandsins og
16 starfsnefndir HSK. Í lok þings
voru Árna Þorgilssyni fráfarandi
formanni þökkuð frábær störf fyrir
HSK sl. 10 ár, en hann kom fyrst inn
í varastjórn sambandsins árið 1993.
Þá gaf Þórður Ólafsson úr Þór ekki
kost á sér til endurkjörs í varastjórn.
Ingvar Hjálmarsson var kosinn í
hans stað. Stjórn HSK skipa: For-
maður: Gísli Páll Pálsson, Íþrf.
Hamri, gjaldkeri: Bolli Gunnarsson,
Umf. Baldri, ritari: Guðríður Aadne-
gard, Íþr.f. Hamri, varaformaður:
Ragnar Sigurðsson, Umf. Þór, með-
stjórnandi: Markús Ívarsson, Umf.
Samhygð, varamenn: Þröstur
Guðnason, Umf. Ingólfi, Yngvi Karl
Jónsson, Íþr.f. Hamri, og Ingvar
Hjálmarsson, Umf. Baldri.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Íþróttafólkið sem fékk viðurkenningar: Kjartan Lárusson, f.h. Lárusar Kjartanssonar glímumanns, Sveinn J.
Sveinsson, f.h. Hlyns Geirs Hjartarsonar golfmanns, Ágúst Þór Guðnason, íþróttamaður fatlaðra, Stefán Jóhanns-
son bridsmaður, Axel Sæland borðtennismaður, Reynir Guðmundsson badmintonmaður, Arna Hjartardóttir fim-
leikamaður, Sæþór Pálmason júdómaður, Magnús Gunnarsson skákmaður, Jóhann Ó. Sigurðsson knattspyrnu-
maður, Elín Sigurðardóttir, f.h. Sigurðar Sæmundssonar hestaíþróttamanns, Ívar Grétarsson handknattleiks-
maður, Halldór Helgason, f.h. Péturs Gunnarssonar skotíþróttamanns, Lárus Jónsson körfuknattleiksmaður,
Gróa Valgerður Ingimundardóttir og Magnús Kristinsson sundmaður. Fremst á myndinni er Vigdís Guðjóns-
dóttir, frjálsíþróttakona og íþróttamaður HSK 2002.
Gísli Páll Pálsson kjörinn
formaður Skarphéðins
Selfoss
LANDIÐ
BÚIÐ er að koma fyrir sendum í
Grunnskólanum í Þorlákshöfn þann-
ig að nú er hægt að vera í þráðlausu
sambandi við Internetið hvar sem
er í skólahúsnæðinu. Í haust voru
keyptar 10 nýjar fartölvur í skólann
í viðbót við þær sem fyrir voru og
má því segja að til sé færanlegt
tölvuver. Halldór Sigurðsson skóla-
stjóri sagði það koma sér mjög vel
því tölvustofa skólans annar engan
veginn þeirri þörf á tölvukennslu og
tölvunotkun sem er fyrir hendi.
ToppNet, nýlega stofnað tölvufyr-
irtæki í Þorlákshöfn, hefur séð um
uppsetningu á þessu þráðlausa kerfi
í skólanum. ToppNet er fyrirtæki
sem sérhæfir sig í þráðlausum
lausnum sem og hverskonar tölvu-
viðskiptum, uppsetningum og við-
haldi.
Valdimar Jónsson, einn eigenda
ToppNets, sagði að þeir hefðu lagt í
miklar rannsóknir og tilraunir til að
finna rétta búnaðinn til að koma á
þráðlausu sambandi í fyrirtækjum
og á heimilum í Þorlákshöfn og síð-
ar nágrannabyggðum. „Við teljum
okkur vera búna að finna fyrsta
flokks tengingu,“ sagði Valdimar.
Valin var sú leið að gera loftbrú,
örbylgjusamband, úr bænum í ljós-
leiðaranet Línu.Nets í Reykjavík.
Með þessari loftbrú er komið á há-
hraða Internet-samband sem gerir
kleift að virkja gagnaumferð eins og
um ljósleiðarasamband sé að ræða.
Stór hluti húsa í Þorlákshöfn er nú
kominn með háhraða sítengingu við
Internetið.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Þráðlaust samband í Grunnskólanum í Þorlákshöfn.
Þráðlaust tölvusam-
band í grunnskólann
Þorlákshöfn
ÚTBOÐ á fyrsta áfanga að
nýrri grunnskólabyggingu á
Selfossi verður auglýst nú um
helgina. Um mjög stóra fram-
kvæmd er að ræða en heild-
arkostnaður við byggingu
skólans er um 1.200 milljónir.
Kostnaður við fyrsta áfang-
ann er áætlaður tæpar 500
milljónir króna. Tilboð í verk-
ið verða opnuð 24. mars.
Skólinn mun rísa í nýju
hverfi, Suðurhverfi, sunnan
núverandi byggðar og gert
ráð fyrir að hann rúmi um
500 nemendur.
Forval verktaka að bygg-
ingu íþróttahúss Fjölbrauta-
skóla Suðurlands stendur yf-
ir. Gert er ráð fyrir að
niðurstöður forvalsins liggi
fyrir um miðjan mars, síðan
verði útboðsgögn afhent,
skilafrestur tilboða verður í
lok apríl og gert ráð fyrir að
verksamningur verði kominn
á í lok maí. Áætlað er að að
húsið verði fullbúið síðla sum-
ars 2004.
Íþrótta-
hús og
grunn-
skóli í
útboði
Selfoss
STARFSMANNAFÉLAG ríkis-
stofnana hefur undanfarið verið með
námskeiðröð á landsbyggðinni fyrir
félaga sína þar. Nýlega var slíkt
námskeið haldið á Egilsstöðum og
sótti það þrjátíu og fimm manna hóp-
ur sem valinn var með slembiúrtaki
úr félagaskránni.
„Við erum fyrst og fremst að
brýna okkur fyrir kjarasamningana
eftir eitt og hálft ár, en ekki síður að
fara yfir þá þjónustu sem við veitum
félagsmönnum og heyra ofan í þá
hvað betur mætti fara. Það er ný-
lunda hjá okkur að halda námskeið
út um landið í stað þess að fá alla
suður og það mælist afar vel fyrir,“
segir Jens Andrésson, formaður
SFR.
Jens segir kjara- og réttindamál
brenna heitast á félögunum, en einn-
ig vilji menn ræða misskiptingu
þjónustunnar milli landsbyggðar og
höfuðborgarinnar.
Alls eru nú um 5.500 félagar í
SFR, en opinberir starfsmenn án há-
skólamenntunar á Austurlandi eru
um 400 talsins.
Opinberir starfs-
menn fara yfir
kjaramálin
Egilsstaðir
NÚ stendur yfir ljósmyndasýning í
Eden. Að sögn Braga Einarsssonar,
eiganda Eden, er það Eyþór Sig-
mundsson, eigandi Laxakorta, sem
hafði veg og vanda af sýningunni.
Eyþór er mikill laxveiðimaður og
nefndi hann fyrirtækið sitt í stíl við
það.
Laxakort er eitt stærsta kortafyr-
irtæki landsins. Á sýningunni eru
landslagsmyndir víða af landinu sem
Laxakort hefur m.a. gefið út á póst-
kortum. Á sýningunni er að finna
myndir eftir Ragnar Axelsson ljós-
myndara og Óskar Andra, áhuga-
ljósmyndara. Þarna má meðal ann-
ars sjá mynd af Herðubreið,
loftmyndir frá Mývatnssveit, frá
Suðurlandi, Öræfum og af hálendi
Íslands. Og norðurljósin skarta sínu
fegursta og ýmislegt fleira. Sýningin
mun standa til loka marsmánaðar.
Ljósmyndasýning í Eden
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Sýningargestur virðir fyrir sér myndir á ljósmyndasýningunni.
Afmælissýning
Laxakorta
Hveragerði
ÞAÐ var vor í lofti á dög-
unum þegar Von ÞH 54 var
að leggja að bryggju í Húsa-
víkurhöfn. Sigurður Krist-
jánsson rær einn á bátnum
með nokkrar þorskanets-
trossur og sagði hann aflann
vera sáratregan þennan
daginn.
Rauðmaga átti Sigurður
þó nokkra eftir róðurinn og
bauð fréttaritara og fleirum
að þiggja í soðið enda þykir
það sjálfsagt í sjávar-
plássum landsins að gauka
honum að vinum og kunn-
ingjum.
Sigurður mun skipta yfir
á grásleppunetin þegar þær
veiðar hefjast 20. mars og
verða þrír í áhöfn á Voninni.
Grásleppusjómenn eru
bjartsýnir á vertíðina hvað
verð snertir og er útlit fyrir
að mun fleiri bátar stundi
veiðarnar frá Húsavík nú í
ár en undanfarnar vertíðir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Gunnar Hvanndal, t.v., þáði rauðmaga í
soðið hjá Sigurði á Voninni.
Rauðmagi gefinn í
soðið á bryggjunni
Húsavík