Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 33
Listasafn
Reykjavíkur –
Ásmundarsafn
Finnbogi Pét-
ursson verður
með lista-
mannaspjall kl. 15
á 2. hluta sýning-
arinnar Kúlan.
Hildur Mar-
grétardóttir
myndlistarkona
verður í gapastokk kl. 14-16 á sýn-
ingu sinni, Rythmi, sem stendur yfir í
Listasafni ASÍ.
Gestir geta sýnt vanþóknun sína á
gjörðum listakonunnar og dæmt
hana augliti til auglitis. Sýningunni
lýkur 9. mars.
Borgarleikhúsið Sýning á verkum
tveggja listamanna verður opnuð kl.
15 fyrir framan innganginn að Nýja
sviðinu. Ilmur Stefánsdóttur sýnir
verk er hún hefur unnið í tengslum
við leiksýninguna: Maðurinn sem
hélt að konan hans væri hattur.
Steingrímur Eyfjörð er með innsetn-
ingu sem hann nefnir Vörpun.
Gallerí Hlemmur Opnir umræðu-
fundir í hugmyndasmiðju Óskar Vil-
hjálmsdóttur, sem hún nefnir Eitt-
hvað annað, verða í dag kl. 16 og á
sunnudag, en þá lýkur sýningunni.
Magnús Diðrik Baldursson heimspek-
ingur kemur í heimsókn í dag og Rósa
G. Erlingsdóttir stjórnmálafræð-
ingur á morgun, sunnudag, kl. 16.
Richard Wagner-félagið heldur að-
alfund í Norræna húsinu kl. 13. Að
honum loknum, kl.13.30, verður dag-
skrá tileinkuð Lúðvík II konungi af
Bæjaralandi. Selma Guðmunds-
dóttir, formaður félagsins, heldur er-
indi um Lúðvík II og Wagner og sýn-
ir af myndbandi úr kvikmyndinni
Ludwig II eftir ítalska kvikmynda-
gerðarmanninn Luchino Visconti.
Salur Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, Engjateigi Hópur
nemenda úr Tónlistarskóla Akureyr-
ar, ásamt nemendum úr Tónskóla
Sigursveins, halda tónleika kl. 17.
Auk eftirlætisverka úr meginstraumi
klassískra tónbókmennta flytja þau
m.a. verk eftir Lars Erik Larsson,
Emil Mlynarski, Bernard Andres og
Hjálmar H. Ragnarsson.
Listasafn Borgarness Benedikt S.
Lafleur opnar myndlistarsýningu kl.
15 sem ber yfirskriftina: Öld Vatns-
berans – minni konunnar. Listamað-
urinn sýnir myndskúlptúra sem eru
tileinkaðir konunni og einnig verða
glerverk til sýnis og sölu í Safnahús-
inu. Listasafnið er opið virka daga kl.
13-18 og til kl. 20 á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum. Sýningin
stendur til 26. mars.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Finnbogi
Pétursson
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri Kópa-
vogs, opnar hina árlegu samkeppni og
sýningu Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands, Mynd ársins 2002, í Gerðarsafni,
kl. 15 í dag. Sýningin verður bæði í
Austur- og Vestursal og segir sýning-
arstjórinn, Jón Svavarsson, sýninguna
eina þá stærstu og veglegustu sem
haldin hefur verið af blaðaljósmynd-
urum til þessa.
Á sýningunni eru 48 fréttamyndir,
33 íþróttamyndir, 48 portretmyndir, 56
myndir í opnum flokk, en þar eru
nokkrir undirflokkar og sjö myndraðir
með 38 myndum alls. Á sjötta hundrað
myndir voru í forvali fyrir dómnefnd,
sem valdi úr 223 myndir, en 225 myndir
eru á sýningunni eftir 30 ljósmyndara
Morgunblaðsins, DV, Fróða og lausráð-
inna ljósmyndara. Samkeppnin skiptist
í fjóra aðalflokka, fréttir, íþróttir,
mannamyndir og opinn flokk. Undir
opna flokkinn falla landslagsmyndir,
tískuljósmyndir, skoplegar myndir,
myndraðir og myndir úr daglega lífinu,
þjóðlegasta myndin. Að venju verða
veitt verðlaun fyrir Mynd ársins 2002
og bestu myndir í hverjum flokki.
Til heiðurs Ólafi K. Magnússyni
Ólafur K. Magnússon – fyrstu 20 árin
á Morgunblaðinu heitir sýningin á
neðri hæð safnsins. Hún er kostuð af
Morgunblaðinu og haldin til heiðurs
þessum merka ljósmyndara sem starf-
aði hjá blaðinu í hálfa öld og var fyrsti
Íslendingurinn sem gerði fréttaljós-
myndun að ævistarfi. Á sýningunni eru
20 myndir sem Einar Falur Ingólfsson,
myndstjóri Morgunblaðsins, valdi.
Sýningin stendur til og með 30. mars
og er opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 11–17.
Blaðaljósmyndarar sýna
á þriðja hundrað mynda
Morgunblaðið/Kristinn
Unnið að uppsetningu á sýningu blaðaljósmyndara í Gerðarsafni. Sýn-
ingarstjórinn, Jón Svavarsson, til vinstri, veltir myndunum fyrir sér. Mannlífið/Lesbók 14
UNGIR óperusöngvarar flytja
perlur úr þekktum óperum í Sel-
tjarnarneskirkju kl. 17 í dag, laug-
ardag. Það eru þau Stefán Helgi
Stefánsson tenór, Inga Stefáns-
dóttir mezzo-sópran,Valgerður
Guðnadóttir sópran, Rósalind
Gísladóttir mezzo-sópran, Alex
Ashworth baríton og Gunnar
Kristmannsson baríton, ásamt
Ólafi Vigni Albertssyni píanóleik-
ara. Á efnisskrá tónleikanna verða
dúettar, tríó, kvartettar, kvintettar
og sextettar úr Töfraflautunni,
Brúðkaupi Fígarós, Cosi fan tutte,
Il Trovatore og La traviata svo
eitthvað sé talið upp.
Tónleikarnir verða svo endur-
teknir í Grindavíkurkirkju kl. 20 á
mánudagskvöld.
Morgunblaðið/Jim Smart
Rósa Lind Gísladóttir, Gunnar Kristmundsson, Stefán Helgi Stefánsson,
Inga Stefánsdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Ólafur Vignir Albertsson.
Ungir söngvarar
flytja óperuperlur
FRANSKI myndlistarmaðurinn
Serge Comte opnar fyrstu einka-
sýningu sína á Íslandi í Nýlistasafn-
inu í dag kl. 16. Sýningin er á 3.
hæðinni og samanstendur af mynd-
bandsverkum, ljósmyndum, perlu-
verkum og ýmiss konar innsetn-
ingum.
Serge er búsettur hérlendis en
hefur að mestu sýnt erlendis, eink-
um í París þar sem hann hefur átt
velgengni að fagna, segir í kynn-
ingu. Hann hefur á undanförnum
árum haldið fjölda einkasýninga er-
lendis og tekið þátt í samsýningum.
Sýningin er opin miðvikudaga til
sunnudaga kl. 13-17 og lýkur 6.
apríl.
Morgunblaðið/Kristinn
Franski myndlistarmaðurinn Serge Comte: Verk með blandaðri tækni.
Serge Comte sýnir
í Nýlistasafninu