Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 41 EINKAREKSTUR hentar ekki fyrir nýja tækni eða starfsemi á int- ernetinu. Ekki eyða kröftum og fjármunum í slíka nýsköpun. Fáið bara vinnu hjá ríkinu. Ráðuneytisstjóri fjármálaráðu- neytis hefur eftir 10 mánaða til- raunir fengist til að tala við for- svarsmenn fyrirtækis sem telur ráðuneytið brjóta á sér, ekki í eigin persónu, heldur í gegnum Morgun- blaðið með greininni „staðreyndir um Starfatorgið“. Áður en stað- reyndirnar eru krufnar til mergjar er rétt að rifja upp örstutta kafla úr stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins og innkaupastefnu ríkisins. „Það sem öðru fremur einkennir skoðanir sjálfstæðisfólks er trú á frelsi einstaklingsins og efasemdir um að ríkisvaldið geti leyst öll vandamál.“ „Komi fram hugmyndir af hálfu einkaaðila um að leysa verkefni með hagkvæmari hætti verður við- komandi ríkisaðili að sýna fram á kostnað hans af verkefninu og gaumgæfa hvort það sé örugglega leyst með hagkvæmari hætti af hálfu hans en einkaaðilans.“ Greinin „Nýsköpun fjármálaráð- herra í ríkisrekstri“ vakti athygli á að fjármálaráðuneytið væri að fara gegn stefnu Sjálfstæðisflokks og ríkisstjórnar með því að stofna til ríkisrekstrar í samkeppni við starf- andi fyrirtæki. Ráðuneytisstjórinn svarar með fyrrnefndri grein þar sem hann fyrir hönd ráðuneytisins gefur þau skilaboð að ríkið fylgi ekki stefnu sinni eða Sjálfstæðis- flokksins og ber við að ný tækni lúti öðrum lögmálum en gömul. Hér koma „staðreyndir“ ráðuneytis- stjórans ásamt athugasemdum: „Starfatorgið er vefur sem geym- ir laus störf hjá ráðuneytum og rík- isstofnunum. Starfræksla þess mið- ar að því að auðvelda þeim sem eru í atvinnuleit, að nálgast upplýsingar um þau störf sem eru í boði hjá rík- inu.“ „Starfatorgið er hvorki vinnu- miðlun né ráðningarþjónusta.“ Job.is er nákvæmlega þetta, að- eins fullkomnari og betri þjónusta sem tengir saman allan atvinnu- markaðinn og einstaklinga. Job.is er hvorki vinnumiðlun né ráðning- arfyrirtæki heldur auglýsinga- og upplýsingamiðill sem getur flokkað störf hjá ríkinu sérstaklega. Aug- lýsingar á job.is ná beint til mark- hópsins án þess að auglýsa í prent- miðli vegna þess að hjá job.is eru yfir 80.000 skráningar rúmlega 12.000 einstaklinga sem fá auglýs- ingar um áhugaverð störf sendar beint til sín. „Framfarir í upplýsingamiðlun eru þannig nýttar til þess að hafa tiltækar á einum stað upplýsingar um laus störf hjá ríkinu.“ „Ríkis- stofnunum er ekki skylt að birta starfsauglýsingar á Starfatorginu.“ Það er ráðgáta hvernig getur far- ið saman, að allar upplýsingar um laus störf eigi að vera á Starfatorg- inu og að ríkisstofnunum sé ekki skylt að auglýsa þar. „Starfræksla Starfatorgsins er ekki atvinnustarfsemi, heldur af- mörkuð upplýsingamiðlun um laus störf, starfskjör og starfsumhverfi hjá ríkinu sjálfu, en ekki hjá öðr- um.“ Þessi skilgreining á atvinnustarf- semi er mjög óvenjuleg. Að safna saman auglýsingum frá sjálfstæð- um aðilum og koma þeim á fram- færi er auðvitað atvinnustarfsemi. Ef starfsemin væri verðlögð í sam- ræmi við kostnað bæri ráðuneytinu að innheimta og greiða virðisauka- skatt óháð því hvort ráðuneytið beinir starfseminni að markaðinum öllum eða að hluta. „Þótt ríkið sé stór vinnustaður og mannaskipti nokkur, nær fjöldi starfa sem losna í viku hverri yf- irleitt ekki tölunni 20.“ „Með Starfatorginu hefur tekist að draga stórlega úr kostnaði vegna starfs- auglýsinga ríkisins.“ Á fjárlögum var samþykkt 15 mkr. framlag til Starfatorgsins. Miðað við 20 ný störf á viku er aug- lýsingakostnaður á hvert starf kr. 14.423. Verðlistaverð job.is er kr. 9.800 á hvert auglýst starf. Með heildarsamningi getur job.is leyst verkefnið fyrir brot af kostnaði rík- isins. „Ríkinu er einum aðila, lögum samkvæmt, skylt að auglýsa laus störf og gilda sérstakar reglur þar um.“ „En hjá skyldunni til þess að segja frá lausu starfi í blaðaauglýs- ingu komast ríkisstofnanir ekki.“ Samkvæmt lögunum ber ríkinu að auglýsa laus störf í opinberum miðli. Fjármálaráðherra setur síð- an reglugerð um framkvæmd lag- anna og skilgreinir hvað er opinber miðill. Fjármálaráðherra er í lófa lagið að sníða reglugerðina að starf- semi Starfatorgsins og það hefur hann einmitt gert nýlega. „Í nýlegri ákvörðun samkeppn- isráðs kemur fram að ráðið telur að starfsemi Starfatorgsins falli ekki undir gildissvið samkeppnislaga. Líkja megi Starfatorgi við safnvef fyrir auglýsingar um störf hjá hinu opinbera sem kynnu að birtast á vefsíðum einstakra ráðuneyta og stofnana. Starfatorg sé nýtt birt- ingarform upplýsinga.“ Á hvaða öld lifir samkeppnisráð? Hvað er safnvefur? Er til safnsjón- varp eða safndagblað? Það þarf starfsemi og sérstakan vef til að safna auglýsingunum saman. Það að birtingarform sé nýtt getur varla þýtt að það falli ekki undir samkeppnislög. Ég vona að sam- keppnisráð og ríkið geri sér grein fyrir að upplýsinga- og samskipta- tækni eru orðin hluti af rekstri og starfsemi fyrirtækja. Eftir samtöl mín við fjölda aðila úr atvinnulífinu og Sjálfstæðis- flokknum er ljóst að ráðuneytis- stjórinn á mjög fáa skoðanabræður í þessu máli. Mönnum er það hulin ráðgáta að hann komist upp með að brjóta á þennan hátt grundvallarat- riði í stefnu Sjálfstæðisflokksins og gefa þannig slæman höggstað á flokknum fyrir væntanlega kosn- ingabaráttu. Ég sem sjálfstæðismaður taldi að flokkurinn myndi ekki ganga gegn eigin sannfæringu. Ég skora því á fjármálaráðherra að bjóða starf- semi Starfatorgsins út á frjálsum markaði þannig að einkamarkaður- inn fái tækifæri til að sanna að hann geti gert þetta á hagkvæmari hátt. Skilaboð sjálfstæðis- manna á kosningaári! Eftir Kolbein Pálsson „Starfsemi Starfatorgs- ins verði boðin út á frjálsum markaði.“ Höfundur er framkvæmdastjóri job.is. Jöfn sveitakeppni hjá Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélagi kvenna Nú er lokið Aðalsveitakeppni 2003. 10 sveitir tóku þátt. Spilað var eftir Monrad útreikningi. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sv. Önnu Guðlaugar Nielsen 109 Guðlaugur Nielsen, Gísli Tryggvason, Heimir Tryggvason 2. sv. Guðrúnar Jörgensen 109 Guðlaugur Sveinsson, Jón Stefánsson, Magnús Sverrisson Það voru úrslit úr innbyrðis leik á milli sveitanna sem réðu röðinni. 3. sv. Smárinn 104 Þessum sveitum verða afhent verðlaunin mánudaginn 3. mars. Mánudaginn 3. mars nk. verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Rauðvín í verðlaun fyrir bestu skor bæði í N/S og A/V. Þátttaka er öllum heimil. Greifa- tvímenningur Nú er búið að spila eitt kvöld af fjórum í Greifatvímenningnum. Spil- aður er Barómeter, allir við alla, tvær umferðir og er staðan eftir fyrstu lotu þannig: Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson/ Kolbrún Guðveigsdóttir 38 Árni Bjarnason - Ævar Ármannsson 38 Gissur Jónsson - Hjalti Bergmann 24 Páll Þórss. - Stefán Sveinbjörnsson 23 Björn Þorláksson - Stefán G. Stefánss. 23 Önnur lota verður spiluð næst- komandi þriðjudag, 4. mars, stund- víslega kl. 19.30. Sunnudaginn 23. febrúar var spil- aður eins kvölds tvímenningur að venju. 10 pör tóku þátt og var staða efstu manna þessi: Sverrir Haraldss. – Kristján Guðj.ss. 123 Frímann Stefánss. – Ragnheiður Har. 122 Reynir Helgas. – Gissur Gissurars. 120 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Bessastaðasókn Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í sam- komusal íþróttahússins sunnudaginn 9. mars 2003 að lokinni æskulýðsguðþjónustu í Bessa- staðakirkju sem hefst kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning í aðal- og varasóknarnefnd. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og varamanna þeirra. Umræður um húsnæðismál sóknarinnar. Boðið verður upp á kaffi og kökuhlaðborð að hætti Álftanesskórsins. Sóknarnefnd. HÚSNÆÐI Í BOÐI Íbúð til sölu 3ja herbergja íbúð á efri hæð til sölu í hverfi 108 Upplýsingar í síma 893 5916. HÚSNÆÐI ERLENDIS Barcelóna — Menorca Íbúð til leigu í Barcelóna og á Menorca. Vetrarfrí/sumarfrí. Uppl. gefur Helen í síma 899 5863. TILKYNNINGAR Förgun sorps á Suðurnesjum Sorpbrennslu-, móttöku- og flokkunar- stöð í Helguvík, Reykjanesbæ og urðun á Stafnesi, Varnarsvæðinu á Keflavíkur- flugvelli Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulagsstofnunar Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar matsskýrslu um förgun sorps á Suðurnesjum, sorp- brennslu-, móttöku- og flokkunarstöð í Helgu- vík, Reykjanesbæ og urðun á Stafnesi, Varnar- svæðinu á Keflavíkurflugvelli. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 28. febrúar til 11. apríl 2003 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrif- stofum og bókasafni Reykjanesbæjar, í Þjóðar- bókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Mats- skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Sorpeyð- ingarstöðvar Suðurnesja sf.: www.sss.is/ss/ Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 11. apríl 2003 til Skipulagsstofn- unar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á um- hverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF  MÍMIR 6003030211 III Fræðslufundur Svölur Munið félagsfundinn í Borgar- túni 22, 3. hæð, þriðjudaginn 4. mars kl. 20.00. Gestur fundarins er Steinunn Harðardóttir, þjóðfélagsfræðing- ur og leiðsögumaður göngu- hópa á fjarlægum slóðum. Mætum allar og tökum með okk- ur gesti. Stjórnin. www.fi.is Dagsferð 2. mars Fornar hafnir á Suðvestur- landi II, Básendar - Þórshöfn - Kirkjuvogur Gengið frá Stafnesi að Básenda, Þórshöfn og í gamla Kirkjuvog undir handleiðslu heimamanns. Ferðin tekur u.þ.b. 4 klst. Fararstjóri er Pétur Brynjarsson sagnfræðingur. Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 10.00 með við- komu í Mörkinni 6. Verð kr. 1.700 fyrir félagsmenn, en kr. 1.900 fyrir aðra. 2. mars. Dagsferð, Kolviðar- hóll — Litla kaffistofan Gengið frá Kolviðarhóli með Húsmúla að Draugatjörn og síðan að Litlu kaffistofunni. Kjör- in ferð fyrir fjölskylduna. Brott- för kl. 10:30 frá BSÍ. Verð kr. 1.700/1.900. 2. mars. Skíðaferð á Hengils- svæðið Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Farar- stjóri: Reynir Þór Sigurðsson. Verð kr. 1.900/2.300. 3. mars. Myndakvöld Myndakvöld verður haldið í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20:00. Gunnar S. Guðmundsson sýnir myndir úr skíðaferð um páska í Landmannalaugar og myndir úr hvítasunnuferð á Snæfellsjökul 2002. Verð er 700 kr. og innifalið er glæsilegt kökuhlaðborð kaffi- nefndarinnar. 7.—9. mars. Jeppaferð í Strút Farið í Strút, í nýjan skála Úti- vistar á Mælifellssandi með gönguskíðin á toppnum. Strút- söldur, Veðurháls og Kaldaklof eru lítt kannaðar og áhugaverð- ar slóðir. Verð kr. 4.700/5.900. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 12, Bolungarvík, á eftirfarandi eignum miðvikudaginn 5. mars kl. 15.00: Holtastígur 11, þingl. eig. Ingibjörg Vagnsdóttir, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf. og Sparisjóður Bolungarvíkur. Traðarland 8, þingl. eig. Snorri Hildimar Harðarson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Bolungarvík. Þjóðólfsvegur 9, þingl. eig. Soffía Vagnsdóttir og Roelof Smelt, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Bolungarvík. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 28. febrúar 2003. Jónas Guðmundsson. NAUÐUNGARSALA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.