Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 47
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 47
ar er 3. mars kl. 20.00 í safnaðar-
heimilinu. Erindið fjallar um Jó-
hannes Don Bosco og safnbæn
heilagrar messu: Oremus – Vér
skulum biðja.
Æskulýðsdagurinn
í Seljakirkju
SUNNUDAGINN 2. mars er dagur
unga fólksins í kirkjunni. Selja-
kirkja tekur virkan þátt í þeim degi
og mikið verður um að vera. Dag-
skrá dagsins verður sem hér segir:
Kl. 11 Barnaguðsþjónusta. Sköp-
un Guðs verður í hávegum höfð í
svokallaðri sköpunarmessu. Við
syngjum Guðs góðu sköpun lof og
fjöllum um hana í máli og myndum.
Kl. 14 Æskulýðsguðsþjónusta.
Ungt fólk úr æskulýðsfélaginu
SELA tekur virkan þátt í athöfn-
inni. Unglingakór SELA mun leiða
söng undir stjórn Gróu Hreins-
dóttur og öll munum við taka þar
vel undir. Unga fólkið sér um lestur
og leiðir bænagjörð ásamt presti.
Guðlaugur Eyjólfsson og Margrét
Reynisdóttir flytja samtalsprédik-
un og þátttakendur í starfi KFUM
og K í Seljakirkju syngja og flytja
helgileik.
Kl. 20 Kvöldvaka. Hljómsveitin
Sálarkraftur spilar auk þess sem
Guðmundur Guðmundsson og fé-
lagar flytja sigurlagið úr Samfés
keppninni. Eldri deild barnakórs
Seljakirkju syngur undir stjórn
Gróu Hreinsdóttur og hugvekju
flytur Árni Þór Jónsson. Eftir
kvöldvöku verða kaffi og kökur í
boði æskulýðsfélagsins SELA.
Verið velkomin og tökum virkan
þátt í æskulýðsdeginum.
Seljakirkja.
Æskulýðsdagurinn
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 2. mars er hinn
árlegi Æskulýðsdagur þjóðkirkj-
unnar. Dagskrá Hallgrímskirkju
verður öll helguð börnum og ung-
lingum.
Á fræðslumorgni kl. 10.00 mun
Þorsteinn Helgason dósent fjalla
um ferminguna í fortíð og nútið, en
þar gefst einnig tækifæri til að
spyrja spurninga og ræða málin
þar til messa hefst.
Fjölskyldumessa hefst kl. 11.00,
en þar mun Barnakór Hallgríms-
kirkju syngja undir stjórn Bjarn-
eyjar Ingibjargar Gunnlaugs-
dóttur. Kirkjutrúður mætir á
svæðið. Börn úr barnastarfi kirkj-
unnar aðstoða með upplestri o.fl.
undir stjórn Magneu Sverrisdóttur.
Sr. Sigurður Pálsson hefur hug-
vekju og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Organisti
verður Hörður Áskelsson.
Eftir messu verður opnuð sýning
á verkum Þorbjargar Þórðardóttur
í forkirkjunni.
Um kvöldið verður Kvöldvaka
sem hefst kl. 20.00. Fermingarbörn
vorsins sýna helgileik. Jón úr
hljómsveitinni „Í svörtum fötum“
syngur.
Danshópurinn Eldmóður, sig-
urvegarar úr Free Style keppni
Tónabæjar dansa. Nemendur úr
Listdansskólanum sýna dans. Ung-
lingakór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar
Gunnlaugsdóttur. Dansatriði úr
Kramhúsinu. Þá verður einnig
hljóðfæraleikur, almennur söngur,
hugvekja og bænastund. Hildur
Heimisdóttir leikur á selló. Við-
stöddum gefst kostur á að tendra
bænakerti. Eftir kvöldvökuna verð-
ur boðið upp á svaladrykk í safn-
aðarsalnum.
Fjölskylduguðsþjón-
usta og harmonikku-
ball í Laugarnesi
Á ÆSKULÝÐSDEGI kirkjunnar er
orðin hefð fyrir tvennu góðu í
Laugarnessöfnuði.
Fyrst er guðsþjónusta kl. 11:00
um morguninn, þar sem ungir og
aldnir koma saman til að rifja upp
hvað lífið er dásamlegt. Þar verður
flutt samtalsprédikun eldri borgara
og unglings, forspilið verður í hönd-
um fermingardrengs, börn úr TTT-
starfinu flytja frumsamdar bænir
og brúðubörnin Sólveig og Karl
spjalla og spekúlera við yngsta fólk-
ið. Gunnar Gunnarsson leikur á
flygilinn og kór kirkjunnar leiðir
hressilega sunnudagaskólasöngva.
Um kvöldið kl. 18:30 er svo hið ár-
lega harmonikkuball þar sem sam-
an koma fjölskyldur ferming-
arbarna, eldri borgarar og fatlaðir.
Ballið er haldið í þjónustumiðstöð
Sjálfsbjargar að Hátúni 12 (Dagvist-
arsalnum) Þar leikur Reynir Jón-
asson á Harmonikku en hjónin
Ragnar Jónasson og Eva Örnólfs-
dóttir leiða dansinn. Auk þess munu
nokkur fermingarbörn koma fram
með skemmtiatriði. Bjarni Karlsson
sóknarprestur stýrir samkomunni
ásamt Sigurvini Jónssyni ferming-
arfræðara, þjónustuhópi kirkjunnar
og fjölda sjálfboðaliða úr hópi ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra.
Æskulýðsdagurinn í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN er æskulýðsdagur
þjóðkirkjunnar. Af því tilefni verð-
ur mikið um að vera í Hafnarfjarð-
arkirkju.
Dagurinn hefst með fjölskyldu-
guðsþjónustu kl.11.00 . Þar leikur
hljómsveit leiðtoga í sunnudaga-
skólastarfinu að venju. Báðir
krakkahóparnir koma saman, en
rúta fer frá Hvaleyrarskóla
kl.10.50 og heim aftur eftir stund-
ina. Auk þess ekur kirkjurútan. Í
fjölskylduguðsþjónustunni syngur
barnakórinn undir stjórn Helgu
Loftsdóttur en prestur er sr. Þór-
hildur Ólafs. Eftir guðsþjónustuna
er öllum boðið upp á nammi í safn-
aðarheimilinu.
Um kvöldið heldur hátíð dagsins
áfram en þá verður haldin popp-
messa í umsjón ÆSKÓ-Æskulýðs-
félags Hafnarfjarðarkirkju. Krakk-
arnir í æskulýðsfélaginu annast alla
messuna, en hljómsveit leiðtoga
leikur undir söng. Eftir poppmess-
una bjóða fermingarbörn öllum
kirkjugestum til veislu í safn-
aðarheimilinu. Þessi veisla hefur
ætíð verið ákaflega vegleg og
glæsileg og verður hún það efalaust
aftur núna. Fjölmennum í kirkjuna
og tökum þátt í hátið æskulðýðs-
dagsins með börnunum og ungling-
unum okkar.
Hljómsveitin
Heroglymur
í Bústaðakirkju
Á ÆSKULÝÐSDEGI þjóðkirkj-
unnar nk. sunnudag mun hljóm-
sveitin Heroglymur, sem er skipuð
nemendum úr Réttarholtsskóla,
leika í í messu kl. 14:00.
Ræðumaður verður Birgir Ás-
geirsson, nemandi í Verzlunarskóla
Íslands og fyrrverandi formaður
nemendafélags Réttarholtsskóla.
Kammer- og stúlknakórar kirkj-
unnar syngja undir stjórn Jóhönnu
Þórhallsdóttur.
Organisti verður Guðmundur
Sigurðsson, sem leikur á orgelið,
tónlist í anda dagsins.
Yfirskrift æskulýðsdagsins er;
Lífið er okkar mál. Þetta er yf-
irskrift frá Landsmóti æskulýðs-
félaganna, sem bar heitið; Ekkert
mál. Þar kom í ljós að lífið er meira
mál og sannarlega okkar mál.
Ungmenni munu aðstoða í mess-
unni með lestri bæna og ritning-
arlestra.
Foreldrar eru sérstaklega hvatt-
ir til þess að fylgja unglingunum til
messu þennan dag og taka þátt í
messuflutningi, sem nú er sniðinn
sérstaklega eftir þeirra óskum.
Lífið er mál okkar allra en ekki
einhverra annarra. Komum saman
ung sem eldri og þökkum lífið og
gjafir þess.
Pálmi Matthíasson.
Kópavogskirkja
– nýr sálmur
SKÓLAKÓR Kársness frumflytur,
undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur, nýjan sálm í fjölskylduguðs-
þjónustu kl. 11 á æskulýðsdegi.
Höfundur lagsins er Þuríður Jóns-
dóttir og ljóðs Hjörtur Pálsson.
Þetta er þriðji nýi sálmurinn sem
frumfluttur er í kirkjunni á skömm-
um tíma en sálmarnir og lögin voru
samin í tilefni þess að 40 ár eru liðin
frá vígslu Kópavogskirkju.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Morgunblaðið/Jim SmartSeljakirkja