Morgunblaðið - 01.03.2003, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 01.03.2003, Qupperneq 52
MINNINGAR 52 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Elsku vinur. Okkur finnst skrítið að vera sestir fyrir framan tölvuna að skrifa minningargrein um þig. Þú sem varst allt- af svo lífsglaður, hress og fjörugur. Við áttum vel saman og gátum spjallað um allt milli himins og jarðar. Þú varst einstakur dreng- ur, jarðbundinn og tryggur. Þú munt skilja eftir þig stórt skarð í hjarta okkar. Þegar við lygnum aftur augunum og rifjum upp sam- verustundirnar með þér, stekkur okkur jafnan bros á vör. Eins og þegar þú sagðir svo oft: „Yndi, yndi lakkrísbindi,“ eða þegar þú baðst um mjólk og sykur. Þú varst hvers manns hugljúfi og gleðigjafi hvar sem þú komst. Þegar við fé- lagarnir skemmtum okkur saman varstu jafnan hrókur alls fagnaðar og grillmeistarinn eins og við köll- uðum þig. Þú sast ósjaldan á spjalli við foreldra okkar vinanna og oft var erfitt að slíta þau frá þér. Þú settir markið hátt og varst alltaf duglegur, hvort sem var í vinnu eða leik. Með dugnaði þínum varstu okkur fyrirmynd sem við munum stoltir reyna að lifa eftir. Minningarnar eru ómetanlegar og munu alltaf ylja okkur um hjarta- rætur. Við stóðum þétt saman og þökkum fyrir að hafa fengið að vera partur af þínu lífi. Þín verður sárt saknað. Við sendum fjölskyldu Davíðs okkar dýpstu samúðar- kveðjur og biðjum Guð að styrkja þau í sorginni. Minningin um þig mun lifa í hjarta okkar að eilífu. Egill Fannar Kristjánsson, Helgi Einar Karlsson, Rólant Dahl Christiansen, Arnar Benjamín Ingólfsson. Ég kynntist Dabba í haust þegar við vorum settir saman í herbergi á Bifröst. Ég man þegar fólk spurði mig: „Finnst þér ekki DAVÍÐ FANNAR MAGNÚSSON ✝ Davíð FannarMagnússon fæddist í Reykjavík 27. maí 1980. Hann lést á Bifröst í Borg- arfirði 21. febrúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grafarvogskirkju 28. febrúar. óþægilegt að vera með öðrum í herbergi sem þú þekkir ekki neitt?“ Ég var fljótur að svara að svo væri ekki, þar sem við hefðum náð strax mjög vel saman. Við töluðum lítið um lífið og tilveruna, en okkur tókst að hlæja og fífl- ast saman og njóta þeirra stunda sem við áttum í herberginu okkar í Ásgarði. Dabbi var jákvæður, traustur og upplífg- andi enda þekktur undir nafninu Dabbi klettur í litla sveitalífinu á Bifröst. Dabbi var ekki bara traustur, hann var með svo smit- andi hlátur að hann gat komið öll- um í gott skap í kringum sig. Ég hélt að ég myndi aldrei segja það, en ég sakna hrotanna á nóttunni þar sem ég er núna einn í her- bergi. Ég trúi því að þú hafir það gott þar sem þú ert núna, Dabbi minn. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast þér. Ég bið Guð að styrkja foreldra Davíðs, systur og hans nánustu. Takk fyrir allan stuðninginn. Ingimundur. Við kvöddumst með bros á vör og glaðir í bragði eftir yndislega kvöldstund á þorrablóti hjá pabba þínum í byrjun þorra. Ekki renndi mig grun í að þetta yrði í síðasta sinn sem við sæjumst hérna megin tilverunnar. Ég mun alla ævi muna samræður okkar þetta kvöld. Brandara sem hlegið var að, frá- sagnir um námið á Bifröst og bjarta framtíðarsýn. Þú lékst á als oddi eins og vanalega, við hlógum og skemmtum okkur konunglega. Allar minningar mínar um sam- verustundir okkar eru á þennan veg. Gleði, hamingja, kátína, skemmtun, dýrðlegar samveru- stundir. Hvort sem tilefni funda okkar voru ættarmót, fjölskyldu- veislur eða við hittumst á förnum vegi, – ætíð var gaman að vera í návist þinni. Því kvelur það mig óskaplega að við munum ekki hitt- ast aftur fyrr en í næsta heimi. En ég veit að þú ert á góðum stað, elsku frændi. Í himnaríki, að stunda þína eftirlætis iðju. Að renna fyrir laxi í kyrru, mildu veðri, við lygnan hyl á góðum stað, þar sem bestu laxarnir halda sig. Og þeir bíta á hjá þér í hrönnum, frændi. Stórir og þrautseigir. Guð blessi þig og geymi, Davíð minn. Guð styrki fjölskyldu þína og vini. Við sjáumst síðar. Adieu. „Blóm eru ódauðleg, sagði hann og hló. Þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, – einhvers staðar.“ (Halldór Laxness.) Sigurjón Sveinsson. Elsku Davíð minn. Það er svo óraunverulegt að þú sért farinn frá okkur, þú sem varst alltaf svo hress og kátur en eftir á að hyggja þá hefur þú sett þá grímu á þig til að láta okkur hinum líða vel. Þann- ig varst þú, alltaf að passa að öll- um liði vel. Nú er ég glöð yfir öllum minn- ingunum sem ég á um þig og þeim tíma sem við áttum saman. Kynni okkar hófust þegar þið Erik Brynj- ar bróðir minn urðuð vinir þegar við fluttum í Kleifarásinn og upp úr vinskap ykkar myndaðist vin- skapur á milli fjölskyldna okkar sem er enn til staðar í dag. Það var ætíð mikill samgangur á milli og ykkar heimili varð okkar og öfugt. Dýrmætasti tíminn sem við átt- um öll saman var þegar við fórum fjölskyldan út í heimsókn til ykkar í Harrisburg. Þið tókuð öll svo vel á móti okkur og við áttum góðan tíma saman. Eftir að þið komuð heim til Ís- lands og fluttuð aftur í Kleifarás- inn minnkaði sambandið á milli ykkar Eriks Brynjars eins og gengur og gerist hjá unglingum en þá tókum við Maríanna systir þín við af ykkur og urðum óaðskilj- anlegar og erum enn vinkonur í dag. Þú gerðir nú ekkert lítið grín að okkur vinkonum þegar við vorum að reyna að spila hafnabolta tvær í garðinum hjá ykkur. Þú stóðst í glugganum og hlóst að okkur, al- veg þangað til þú fékkst nóg og ákvaðst að kenna okkur þetta í eitt skipti fyrir öll. Mér varð óneit- anlega hugsað til þín í sumar þeg- ar ég fór í fyrsta skiptið á alvöru hafnaboltaleik úti í Bandaríkjun- um. Ég sagði stelpunum að þetta kynni ég nú alveg, hannDaddi vin- ur minn hefði kennt mér þetta þegar ég var 12 ára. Ég er ekki mjög trúuð mann- eskja, Davíð minn, en ég trúi að þú sért kominn núna á betri stað þar sem þér líður betur og að afarnir þínir hafi tekið vel á móti þér og hugsi um þig fyrir okkur. Elsku Sigrún, Magnús, Marí- anna, Aldís og Aníta Björk, ég votta ykkur samúð mína á þessum erfiðu tímum og ég vona að trú ykkar veiti ykkur styrk til að kom- ast í gegnum þennan mikla missi. Þín vinkona Erna Dís Sch. Eriksdóttir. Mig langar að minnast Davíðs vinar míns sem er látinn langt fyr- ir aldur fram. Ég kynntist Davíð í haust þegar við hófum bæði nám í Viðskiptahá- skólanum á Bifröst. Ég var svo heppin að fá að deila með þér íbúð ásamt þremur öðrum. Fljótt mynd- uðust sterk tengsl milli okkar sam- býlinganna og áttum við margar góðar stundir saman. Þú gerðir allt sem í þínu valdi stóð til að hafa heimilisaðstöðuna okkar sem besta. Eftir einungis viku dvöl varstu búinn að redda þeim hlutum sem vantaði upp á íbúðina þannig að við gætum haft það notalegt í sameiginlegu aðstöðunni okkar. Mér leið alltaf vel í návist þinni og minnist ég sérstaklega þess þegar við spjölluðum saman. Þá vildir þú hafa umhverfið sem notalegast, slökktir ljósin og kveiktir á fullt af kertum og svo gátum við talað um allt milli himins og jarðar. Áhuga- sviðin þín voru mörg og því voru umræðuefnin oft mjög fjölbreytileg og skemmtileg. Þú varst mikill karakter, hjálpsamur við alla og vildir allt fyrir mann gera. Fólk laðaðist að þér og þú eignaðist stóran og góðan vinahóp hér á Bif- röst. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér og fengið að vera part- ur af lífi þínu þó að það hafi verið í allt of stuttan tíma. Það verður erfitt að halda áfram án þín en minning um yndislegan dreng mun lifa með mér um ókomna framtíð. Ég vil senda foreldrum þínum, systrum og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi guð styrkja þau í þessari miklu sorg. Ég veit að þér líður vel þar sem þú ert nú og kveð ég þig að sinni, elsku Davíð minn. Ragnheiður Kristinsdóttir. ✝ Gísli Júlíus Stef-ánsson fæddist 31. júlí 1915 í Brók (nú Hvítanesi) í Vestur-Landeyjum. Hann lést á Grund í Reykjavík miðviku- daginn 19. febrúar síðastliðinn. For- eldrar Gísla voru Stefán Jónsson, bóndi og smiður í Ystakoti í Vestur- Landeyjum, f. 1. okt. 1875, d. 14. maí 1923, og kona hans Sigurbjörg Gísla- dóttir, f. 16. mars 1887, d. 4. júní 1973. Systur Gísla voru Margrét húsfreyja í Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum, f. 17. jan. 1918, d. 1. jan. 1992, gift Guð- mundi Péturssyni og Marta bú- stýra í Ystakoti, f. 9. mars 1921, d. 6. febr. 1993. Nánustu ætt- ingjar Gísla eru afkomendur Margrétar systur hans. Gísli átti heima í Ystakoti frá 1916. Hann vann allt sem hann mátti búi móður sinnar í ára- tugi. Ungur maður fór hann á vertíð í Vestmannaeyjum. Einnig var hann á stríðsárunum í Bretavinnunni í Reykjavík m.a. við gerð Reykjavíkur- flugvallar. Frá 1973 bjuggu hann og Marta systir hans félagsbúi í Ystakoti meðan heilsa henn- ar leyfði. Gísli átti heimili í Ystakoti eins lengi og hann gat – allt til þess að hann fór sjúklingur á aðvent- unni 1998 til lækninga á Sjúkra- hús Suðurlands á Selfossi en síð- an til dvalar á elliheimili, fyrst fáar vikur á Sólvöllum á Eyr- arbakka og síðan nokkra mánuði á Ási í Hveragerði en loks á Grund í Reykjavík. Gísli var ókvæntur og barnlaus. Útför Gísla verður gerð frá Akureyjarkirkju í Vestur-Land- eyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Að kvöldi miðvikudagsins í síð- ustu viku lést frændi minn, Gísli Júlíus Stefánsson lengi bóndi í Ystakoti en síðast vistmaður á Grund í Reykjavík. Nú á kveðju- stund langar mig að minnast hans nokkrum orðum og jafnframt heimilisins í Ystakoti sem var ein- stakt í öllu tilliti. Ég var svo lánsamur að koma í heimsókn með foreldrum mínum að Ystakoti og dvelja þar í viku nánast á hverju sumri frá barn- æsku og síðan að vera þar sum- arstrákur frá 1960 til 1963. Á þeim árum bjó Sigurbjörg í Ystakoti með þeim Gísla og Mörtu. Einnig var þar í heimili föðursystir Gísla, Jóhanna Sigríður Jónsdóttir lausa- kona (1878-1967). Ystakot er lítil jörð, grasgefin og sléttlend – ein af Kotabæjunum svonefndu næst sjávarsíðunni. Hlunnindi eru reki. Rafmagn frá Rafmagnsveitum rík- isins kom á flesta bæi í Vestur- Landeyjum sumarið 1957. Húsakynnin voru þá lítil á nú- tímamælikvarða, aðeins baðstofa, eldhús og bæjargöngin en hins vegar var hjartarúmið margfalt meira – enda alltaf mikill gesta- gangur. Hreinlæti var í fyrirrúmi og vel var gert í mat og öllu atlæti við alla. Tveir sumarstrákar voru yfirleitt en það kom fyrir að þeir væru þrír. Sumarstrákarnir í Ysta- koti tóku flestir miklu ástfóstri við heimilisfólkið og segir það sína sögu. Oft var mikið unnið virka daga en frí tekið á sunnudögum. Gísli stjórnaði allri vinnu úti en Sigurbjörg hafði nú samt alltaf síðasta orðið ef leitað var eftir hennar ráðum við búskapinn sem byggðist á hefðbundnum búsmala. Góðar mjólkurkýr voru lengi í Ystakoti, flestar afkomendur Síðu frá Litlu-Hildisey. Konurnar í Ystakoti kunnu sannarlega að hirða vel kýrnar og ná hámarks- afurðum. Fjárhúsin voru og eru enn í svokölluðum Kuðungi norð- austur af bæjarhúsunum. Merarn- ar voru hins vegar fram á Bökk- unum fyrir ofan Gljána sem er milli fjöru og lands. Síðasti drátt- arhesturinn, Brúnn gamli, var felldur haustið 1960 en venjulega voru til einn eða tveir reiðhestar sem voru hafðir til taks á beit norður í mýri. Við búskaparlok Gísla í Ystakoti var óræktað land aðeins áðurnefndir Bakkar, allt annað land jarðarinnar eru slétt, vel ræktuð tún. Gísli og Marta byggðu myndarlegt íbúðarhús úr steinsteypu sem þau fluttu í sum- arið 1979. Gísli var í meðallagi hár og nokkuð þrekinn og miklu sterkari en allur þorri manna. Vínmaður var hann enginn en töluverður nef- tóbaksmaður. Hann hafði mikið dálæti á hefðbundnum íslenskum mat, annars vegar söltu, reyktu og/eða feitu kjöti og hins vegar á öllum mjólkurmat, sérstaklega skyri og rjóma. Búhugur var í hon- um langt fram á elliár. Hann var vel greindur, fróðleiksfús og minn- ugur og fylgdist vel með öllu í fréttum í blöðum, útvarpi og sjón- varpi. Lengi las hann allt sem hann komst yfir um landbúnað. Öll vinna lék í höndunum á honum og smiður var hann bæði á tré og járn. Átakalaust var fyrir hann að skipta sumarið 1955 úr dráttar- hestunum og hestavélunum yfir í dráttarvélar og allar nútíma land- búnaðarvélar – enda meira sinn- aður fyrir tæki og tækni en drátt- arhesta. Öðru máli gegndi með reiðhesta. Gísli mundi til síðasta dags að Lýsingur hans bar af þeim öllum. Sem ungur maður reri hann úr Kotafjöru á árabáti sem Þorgeir Tómasson (1897-1971) bóndi á Arn- arhóli var formaður á. Þorgeir á Arnarhóli reri síðast úr Kotafjöru um eða rétt fyrir 1950 en líklega var Gísli ekki með í þeim róðri. Einnig fór Gísli eins og margir Sunnlendingar á vertíð til Vest- mannaeyja til þess að vinna í fisk- aðgerðinni – á þeim árum var allur fiskur flattur og saltaður. Í Vestmannaeyjum veiktist Gísli illa af mislingum. Afleiðingar misl- inganna fylgdu Gísla það sem hann átti eftir ólifað og heftu hann alltaf félagslega fyrir utan það að hann var að eðli nokkuð þverlyndur. Gísli var einn síðustu árin í Ysta- koti. Einsemdin var honum kvöl en það bjargaði miklu að stutt er á milli bæja í Vestur-Landeyjum og hann átti góða nágranna í Miðkoti og Skipagerði sem litu til með hon- um. Einnig voru Hrefna og Jón sem þá bjuggu í Sigluvík dugleg að liðsinna honum. Hér er þessu góða fólki sérstaklega þakkað. Gísla leið hins vegar ákaflega vel á Grund enda kunni hann svo sannarlega að meta matinn sem þar er á boðstólum og gott viðmót starfsfólksins. Að vísu var hugur- inn alltaf við búskapinn fyrir aust- an. Eitt sinn þegar við frændurnir heimsóttum Gísla á Grund spurði ég hann um gömlu dagana. Sér- staklega langaði mig að vita hvaða rekamark tilheyrði Ystakoti. Þessu svaraði hann hiklaust: „Það er fuglsfótur.“ Sumarið 1999 gengum við frændur og vinir Gísla í það að rífa niður úr sér gengin útihús og koma ónýtum landbúnaðarvélum í brotajárn. Mörg gömul verkfæri og áhöld í góðu ásigkomulagi voru hins vegar til í Ystakoti og eru þau núna á Þjóðminjasafninu í Reykja- vík og á Byggðasafninu í Skógum. Ég og fjölskylda mín þökkum Gísla fyrir góð kynni gegnum árin. Guð blessi minningu Gísla Stef- ánssonar í Ystakoti. Þorgils Jónasson. GÍSLI JÚLÍUS STEFÁNSSON Alúðarþakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, systur, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR, Akurgerði 24, Reykjavík. Þökkum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skjóls 4. h. í Reykjavík fyrir frábæra umönnun, hjúkrun og elsku í hennar garð. Þorgeir H. Jónsson, Borghildur Þorgeirsdóttir, Arnar S. Andersen, Jón H. Þorgeirsson, Jana Hansen Þorgeirsson, Vilhjálmur Þorgeirsson, Sigrún Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Þorgeirsson, Valdís Sveinsdóttir, Ólafur Þorgeirsson, R. Linda Eyjólfsdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabörn. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningargreina
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.