Morgunblaðið - 01.03.2003, Síða 54

Morgunblaðið - 01.03.2003, Síða 54
FRÉTTIR 54 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ VUR V I ÐS K IP TAÞJÓNUSTA U TA N R Í K I S R Á Ð U N E Y T I S I N S í verki með íslenskri útrás www.vur.is Alpan í nýrri markaðssókn erlendis „Útflutningur á pottum og pönnum til um 30 landa hefur staðið fyrir 99% af tekjum Alpans hf. í nær 30 ár. Í mark- vissri sókn okkar inn á nýja markaði og við endurskoðun á nokkrum stórum markaðssvæðum leituðum við í smiðju hjá VUR og Útflutningsráði. Í fyrstu virtust báðir aðilar bjóða sömu þjónustu, en reynslan leiddi í ljós að hvor um sig var að skila okkur því sem hann kunni best. Með aðstoð Útflutningsráðs hefur Alpan tekið þátt í viðskiptasendi- nefndum inn á ný markaðssvæði erlendis sem gefist hafa vel. Viðskiptafulltrúar VUR í sendiráðum erlendis hafa hins vegar skilað okkur dýpri þekkingu á því hvernig einstakir markaðir virka og skapað aðgengi að aðilum sem okkur hefði annars reynst örðugt að ná til. Í sameiningu vinna VUR og ÚÍ þýðingarmikið starf fyrir okkur.“ Guðmundur Ö. Óskarsson, framkv.stjóri Alpan E F L IR / H N O T S K Ó G U R V U R 6 0 4 -0 3 PETER Leko (2.736) náði for- ystunni á ofurskákmótinu í Lin- ares í fimmtu umferð með sigri á Francisco Vallejo Pons (2.625). Leko er með 3 vinninga eftir 4 skákir. Kramnik sat yfir, en Kasp- arov (2.847) sigraði hinn unga FIDE-heimsmeistara Ponomariov (2.734) og skildi hann þar með eftir á botninum. Með sigrinum mjakaði Kasparov sér hins vegar upp eftir töflunni og er nú í fimmta sæti með 2 vinninga eftir fjórar skákir. Úr- slit 5. umferðar: Radjabov - Anand ½-½ Leko - Vallejo Pons 1-0 Kasparov - Ponomariov 1-0 Staðan á mótinu er þessi þegar það er tæplega hálfnað: 1. Leko 3 v. af 4 2.-3. Kramnik og Anand 2½ af 4 4. Radjabov 2½ v. af 5 5. Kasparov 2 v. af 4 6. Vallejo Pons 1½ v. af 4 7. Ponomariov 1 v. af 5 Tefld verður tvöföld umferð, eða alls 14 umferðir. Mótinu lýkur 9. mars. Sparisjóðurinnn sigraði í firmakeppni TK Firmakeppni Taflfélags Kópa- vogs 2003 er nýlokið. Alls tók 61 fyrirtæki þátt í mótinu að þessu sinni. Eftir spennandi keppni bar Sparisjóður Kópavogs sigur úr býtum, en fyrir hann tefldi alþjóð- legi meistarinn Stefán Kristjáns- son sem hlaut 16 vinninga af 17. Sparisjóðurinn hefur lengi stutt við skák- og íþróttalífið í Kópavogi og þetta er í annað sinn sem spari- sjóðurinn sigrar í keppninni. Í öðru sæti eftir stigaútreikning varð Toyota en fyrir þá tefldi Magnús Örn Úlfarsson. Hann hlaut 15½ vinning. Í þriðja sæti varð Íslands- banki í Kópavogi og tefldi Arnar Gunnarsson fyrir þeirra hönd og fékk hann einnig 15½ vinning. Fyrstu tíu sætin hrepptu: 1. Sparisjóður Kópavogs (Stefán Kristjánsson) 16 v. 2. Toyota (Magnús Örn Úlfars- son) 15½ v. (118,75 stig) 3. Íslandsbanki, Kópavogi (Arnar Erwin Gunnarsson) 15½ v. (117,25 stig) 4 Hitaveita Suðurnesja (Davíð Kjartansson) 14 v. 5. Kópavogsbær (Bragi Þorfinns- son) 11½ v. 6.-7. MP Verðbréf (Ingvar Þór Jóhannesson), Sjónvarpsmið- stöðin (Hlíðar Þór Hreinsson) 11 v. 8. Búnaðarbankinn, Kópavogi (Tómas Björnsson) 10½ v. 9. Goldfinger (Haraldur Baldurs- son) 9½ v. 10. Kópavogsblóm (Magnús Sigur- jónsson) 8 v. Atkvöld hjá Helli á mánudag Taflfélagið Hellir heldur atkvöld mánudaginn 3. mars og hefst mótið kl. 20. Fyrst verða tefldar 3 hrað- skákir þar sem hvor keppandi hef- ur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan 3 atskákir, með tuttugu mínútna umhugsun. Meistaramót Hellis hefst 10. mars, þannig að at- kvöldið er tilvalin upphitun fyrir það. Sigurvegarinn fær verðlaun, mat fyrir tvo frá Dominos. Þá verð- ur annar keppandi dreginn út af handahófi, sem einnig fær máltíð fyrir tvo hjá Dominos. Þar eiga all- ir jafna möguleika, án tillits til ár- angurs á mótinu. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé- lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Allir vel- komnir. SKÁK Spánn LINARES-SKÁKMÓTIÐ 22. feb. – 9. mars 2003 Leko efstur en Kasparov sigraði Ponomariov AP Daði Örn Jónsson dadi@vks.is Í TILEFNI opnunar Vöruhótelsins við Sundahöfn í Reykjavík er lands- mönnum boðið til opnunarhátíðar fyrir alla fjölskylduna, sunnudaginn 2. mars kl. 13–17. Vöruhótelið er hið stærsta á Íslandi, en fimm og hálf Laugardalshöll gætu rúmast í hót- elinu. Kynnar hátíðarinnar verða leik- konurnar Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Meðal skemmtiatriða eru: brot úr HONK – ljóta andarunganum, gamansöngleik Borgarleikhússins, Jóhanna Guðrún syngur, Eldmóður, nýbakaðir sigur- vegarar Freestyle 2003, dansa sig- urdansinn, sigurvegarar úr Söngva- keppni Samfés 2003, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson taka sigurlagið og Íslands- og Norðurlandameistarar í suður-amerískum og standard-döns- um, Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir sýna suður- ameríska sveiflu. Birgitta Haukdal syngur og Stuðmenn skemmta gest- um. KSÍ verður með fótboltaþrautir og Kvennalandsliðið mun árita plaggöt. Léttar veitingar, getraun og ýmsar aðrar uppákomur verða í nýja húsinu að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Vöruhótelið býður til opn- unarhátíðar STJÓRN Félags framhaldsskóla- kennara hefur sent frá sér ályktun „vegna vanefnda ríkisins á samningi við Hallgrím Hróðmarsson, fram- haldsskólakennara,“ eins og segir í ályktuninni. Þar segir m.a: „Framganga fjármálaráðuneytis og menntamálaráðuneytis gagnvart Hallgrími Hróðmarssyni er fyrir neðan allar hellur. Þannig gerði fjár- málaráðuneytið strax ráðstafanir til að fella Hallgrím út af launaskrá en sendi á sama tíma samninginn til skoðunar í menntamálaráðuneyti sem fyrir sitt leyti tók það til bragðs að senda hann ríkislögmanni til skoðunar varðandi það hvort hann væri skuldbindandi fyrir ríkissjóð. Enginn þeirra ráðuneytisstarfs- manna er um málið véluðu sá ástæðu til þess að gera Hallgrími viðvart um þessa málsmeðferð og því gafst hon- um ekkert færi á að rifta samningn- um sjálfur og afstýra þannig þeirri ólánlegu stöðu sem upp er komin í málinu. Stjórn Félags framhaldsskóla- kennara telur að yfirvöld fjármála og menntamála hafi gróflega misbeitt valdi sínu gagnvart Hallgrími og að málið í heild hafi valdið honum miklu persónulegu tjóni sem líklega verður aldrei að fullu bætt. Stjórnin álítur einnig að fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni og skólanefnd hafi beðið álitshnekki af málinu og að þessir menn hafi með framgöngu yfirboðaranna í áður- nefndum ráðuneytum verið gerðir ómerkir orða sinna og gerða í mál- inu. Stjórn Félags framhaldsskóla- kennara skorar á fjármálaráðherra og menntamálaráðherra að leiða málið til lykta með þeim hætti að öll- um sé sómi að og hlutur Hallgríms verði réttur.“ Saka ríkið um vanefndir Herferdin.tk Rangt var farið með nafn á heima- síðu Herferðar gegn heimilis- og kynferðisofbeldi í viðtali við tvo af forsprökkum samtakanna í Daglegu lífi í gær. Rétt er herferdin.tk. Morg- unblaðið biðst velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT KVENFÉLAGIÐ Heimaey er 50 ára um þessar mundir. Félagið var stofnað 9. apríl 1953 af brottfluttum Eyjakonum og á stofn- fundinn, sem haldinn var í VR-hús- inu í Reykjavík, mættu 38 konur. Fé- lagið hefur starfað óslitið síðan og reynt eftir mætti að styrkja sjúka og aldraða Vestmanneyinga. Í tilefni af afmælinu ætlar félagið að efna til afmælishátíðar 14. mars nk. í sal Akóges í Sóltúni 3, Reykja- vík. Kvenfélagið Heimaey 50 ára VINNUMIÐLUN skólafólks (VMS) verður opnuð mánudaginn 3. mars kl. 13. Þeir sem eru fæddir 1986 eða fyrr, hafa sótt skóla á árinu og eru með lögheimili í Reykjavík geta sótt um hjá Vinnumiðlun skólafólks. Í boði eru sumarstörf hjá stofnunum Reykjavíkurborgar og eru störfin fjölbreytt. Einungis er hægt að sækja um á netinu á heimasíðu Hins hússins www.hitthusid.is/vinnumidlun. Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að netinu geta þeir komið í vinnumiðl- unina en þar eru tölvur með netað- gangi. Starfsfólk vinnumiðlunar að- stoða þá umsækjendur sem ekki eru netvanir. Umsóknarfrestur er til 30. apríl en umsóknarfrestur um störf hjá Jafn- ingjafræðslu og Götuleikhúsi Hins hússins er til 31. mars nk. Vinnumiðlunin er á 1. hæð Hins hússins, Pósthússtræti 3-5 (við hlið Íslandspósts í miðbænum), netfang- ið er vinnumidlun@hitthusid.is. Vinnumiðlun skólafólks opnuð LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða 543 1000 um skiptiborð. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá- tíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10– 16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn- isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8– 24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8– 24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga kl. 9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Læknasími 585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232. Milli kl. 02 og 8 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar. NEYÐARÞJÓNUSTA NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sólar- hringinn, s. 525 1710 eða 525 1000. EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólarhring- inn. S. 525 1111 eða 525 1000. ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar- hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð. BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep- urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að- standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek- ur við tilkynningum um bilanir utan skrifstofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar- hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 Þjónusta UNDIRFATAVERZLUNIN Ólympia hefur stækkað og flutt sig um sel í Kringlunni. Verzlunin hef- ur verið starfrækt í sömu fjölskyldu síðan 1938 og mun áfram selja und- irfatnað og náttfatnað fyrir dömur sem og herra á aldrinum 14 ára og upp úr. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólympia á nýjum stað SÝNINGIN Jeppar 2003 hefst hjá B&L um helgina og verður af því til- efni opnunarhátíð hjá fyrirtækinu í dag, laugardaginn 1. mars, og sunnu- daginn 2. mars kl. 12-16. Alls verða 15 4X4 farartæki á hátíðinni af öllum stærðum og gerðum, auk þess sem fullbúinn 38" Hyundai Terracan verður frumsýndur ásamt 38" Discovery og 44" Defender frá Land Rover. Af öðrum 4X4 farartækjum má nefna Hyundai Starex DVD, sem búinn er fullkomnum DVD búnaði og sportjeppana Hyundai Santa Fe, Freelander og RX4 frá Renault, en BMW x5 og Range Rover úr flokki lúxusjeppa. Sýningunni Jeppar 2003 lýkur 22. mars nk. Sum farartækjanna, s.s. 44" De- fender, verða aðeins til sýnis á opn- unarhátíðinni. Jafnframt verður á hátíðinni kynning og skráning í 1.000 jeppaferðina, segir í fréttatilkynn- ingu. Jeppar 2003 hjá B&L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.