Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 56

Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 56
56 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                        !"   # $%&%'   (    *   + BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FLESTIR landsmenn eru orðnir mjög þreyttir á umræðunni um fyr- irhugaðar virkjunarframkvæmdir á hálendinu, þótt undir niðri kraumi mikil reiði. Margir hafa mótmælt bæði í ræðu og riti og með mótmæla- stöðum við Al- þingishúsið, Ráð- húsið og víðar, svo ekki sé minnst á mót- mælasvelti. Þrátt fyrir öll þessi mótmæli hvika stjórn- völd ekki frá stefnu sinni um að gera landið að orkunýlendu erlendra auð- hringa. Íslenska þjóðin fær engu að ráða, ekki frekar en frumstæðir þjóðflokk- ar í fjarlægum heimsálfum, þar sem svipaðir harmleikir eiga sér stað. Hinn almenni skattborgari gagnrýn- ir að ekki hafi verið færð fullnægj- andi rök fyrir því hver raunveruleg- ur ávinningur gæti orðið af framkvæmdinni eða hvað muni tap- ast. Með orkuverðið hefur verið farið eins og hernaðarleyndarmál. Hjá siðmenntuðum þjóðum telst það réttur almennings að vera upplýstur um kosti og galla svo áhættusamra stórframkvæmda frá byrjun, áður en hafist er handa. Veltur þá mest á góðum og gildum rökstuðningi um að fjárfestingin sé arðbær og umhverf- isspjöll ekki óafturkræf. Er hugsan- legt að að virkjunarsinna skorti rök? Hin fleygu orð Rósu Luxemburg, um að lýðræði sé aðeins við lýði ef fólki leyfist að vera á öndverðum meiði, eru enn í fullu gildi. En greini- lega ekki hjá ríkisstjórninni. Al- menningi berast bara tilkynningar í fjölmiðlum um að nú sé búið að semja við Alcoa eða að nú sé byrjað að sprengja göng o.s.frv.Vegagerð á há- lendinu er löngu hafin. Og hvað verð- ur um hreindýrin og heiðagæsina? Vopnaframleiðsla byggist að miklu leyti á áliðnaði. Eiga Íslend- ingar að gerast aðilar að stríðsátök- um í heiminum, hvort sem þeim líkar betur eða verr og bera ábyrgð á þeim hörmungum sem þau leiða af sér, af því að valdhafar eru á góðri leið með að gera landið að vöggu vígbúnaðar? Vegna vaxandi vélvæðingar þarf stöðugt minni mannafla í álverum Vitað er að erlent vinnuafl verður flutt inn til að vinna í fyrirhugaðri ál- verksmiðju á Reyðarfirði. Og álver á að bjarga byggðinni þar! Á svo að frysta allar framkvæmdir í öðrum landshlutum? Gróðinn fer á hendur fárra, ekki í þjóðarbúið. Hann fer m.a. til verktaka á meðan fram- kvæmdir standa yfir. Þeir eru þegar lagðir af stað og byrjaðir að sprengja og álrisinn sjálfur græðir mest. Ef einhvern tímann hefur verið hægt að finna hliðstæður við atburði líðandi stundar í Hringadróttinssögu Tolkiens er það hér og nú á okkar fögru fósturjörð. Í þeirri perlu heimsbókmenntanna er burðarásinn barátta góðs og ills. Á að fórna einu fegursta svæði af ósnortinni náttúru til þess eins að selja álrisum ódýra orku? Slíkt væri ófyrirgefanlegur glæpur gagnvart náttúrunni, þjóðinni og komandi kynslóðum. Hefur Sarúman spunnið þetta allt upp til að grynnka á skuldasúpunni hjá Landsvirkjun á kostnað skattborgaranna? Eðlilega er hann gramur yfir því hve náttúru- verndarsinnar hafa barist ötullega við að endurheimta náttúrudjásnin úr klóm drekans, eins og gerðist með Eyjabakka. Þegar gullgrafaraæðið er liðið hjá, fjárfestar farnir á hausinn og viður- styggð eyðileggingarinnar blasir við; hvað gera þau þá sem svifust einskis til að berja þessar framkvæmdir í gegn? Í örvæntingu sinni munu þau grátbiðja Guð um að hjálpa sér. Og hverju skyldi Guð þá svara?: Hvern- ig í ósköpunum á ég að geta hjálpað ykkur nú? Þið breyttuð paradísinni sem ég hafði trúað ykkur fyrir í hel- víti. Nú er það sá sem þar ræður sem þið heyrið undir. Í heimi Tolkiens hrynur veldi Saurons. Hið góða sigrar. Hér held- ur baráttan áfram. Nazgúlarnir eru lagðir af stað. En ætli Gandalfur lumi ekki á trompspili? ÞÓRGUNNUR JÓNSDÓTTIR, Birkihlíð, Stokkseyri. Nazgúlarnir eru lagðir af stað Frá Þórgunni Jónsdóttur Þórgunnur Jónsdóttir EKKI fyrir löngu var rætt við Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra í Kastljósi um hugsanlega innrás í Írak. Þar sagði hann m.a. að Sadd- am Hussein hefði látið myrða barna- börn sín. Í Morgunblaðinu 24. febr- úar er þetta endurtekið af Kristni Péturssyni frá Bakkafirði í bréfi hans: „Er hægt að semja við Sadd- am?“ Hinn 17. nóvember sl. var sýnd nýleg heimildarmynd í Ríkissjón- varpinu, Saddam - A Warning From History. Höfundur þáttarins er John Simpson, yfirmaður erlendra frétta á bresku sjónvarpsstöðinni BBC. Í þættinum var ævi Íraksforseta rak- in og fjallað var um hans helstu glæpi, þar á meðal að hann hafi látið myrða a.m.k einn tengdason sinn. Ekkert var minnst á myrt barna- börn. Segi utanríkisráðherra þetta í sjónvarpi hljóta að vera til áreiðan- legar heimildir um málið. Ég hef t.d reynt að finna upplýsingar um efnið með aðstoð erlendra leitarvéla á net- inu, en finn ekkert. Getur utanrík- isráðherra bent á upplýsingar eða áreiðanlegar heimildir um efnið? ÞÓRDÍS BJÖRK SIGURÞÓRSDÓTTIR, Dofrabergi 9, Hafnarfirði. Saddam og barnabörnin Frá Þórdísi Björk Sigurþórsdóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.