Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 57
TVÆR þokkalega áberandi fréttir
sama daginn sem varða áfengismál
hafa vonandi orðið fleirum en mér
umhugsunarefni, ekki hvað sízt í
ljósi þeirrar umræðu um áfengisaug-
lýsingar og áfengi í matvöruverzlun-
um, sem hefur enn einu sinni skotið
upp kollinum og er furðu ágeng,
enda sterk öfl ærins auðs að baki.
Enn er sótt á af þeim öflum er
annars vegar vilja gefa öllu lausan
taum án minnstu ábyrgðar og ekki
síður af þeim gróðaöflum sem ekki
víla fyrir sér að hirða ómældan gróða
af áfengissölu án tillits til afleiðinga
allra, hvað þá ábyrgðar.
Önnur fregnin var í Ríkisútvarp-
inu og greindi frá vandaðri athugun
á þeim fórnarkostnaði sem af vímu-
efnaneyzlu stafar í heiminum og var
þó varlega í allar tölur farið og hinn
óbeini fórnarkostnaður ekki inni í
myndinni.
Þar var frá því greint að rúmlega 7
milljónir manna létu lífið af völdum
þessara vímuefna á ári hverju og
sundurgreint var þetta á þann veg,
að
71 % létust af völdum reykinga
eða tæpar 5 milljónir, af völdum
áfengis 26 % eða rúmlega 1,8 millj.
manna og af völdum annarra vímu-
efna 3 % eða þá meira en 200 þús.
Mín fyrsta hugsun var sú, hvort
ekki mætti nú a.m.k. staldra hér við
tölur þessarar dauðans alvöru og
hugleiða, hvort neyzla þessara efna
væri svo góð og sjálfsögð eins og allt-
of oft heyrist, að fórnarkostnaður 7
milljóna árlega væri svo sem ekkert
til að tala um. Og næsta hugsun mín
sú, að við höfum þó spyrnt rækilega
við fótum þegar reykingar eiga í hlut
og þeim augljósa árangri ber að
fagna alveg sérstaklega.
En í ljósi hinna nær tveggja millj-
óna sem látast af völdum áfengis, og
er þá hvergi að himinháum tölum
óbeinna afleiðinga vikið, mætti þá
ekki hugsa eilítið um kröfurnar um
áfengisauglýsingar og áfengi við hlið
mjólkur í matvöruverzlunum. Mætti
ekki í þessu ljósi líta ásælnina í að
auka þessa neyzlu s.s. með því að
leyfa auglýsingar á áfengi óhindrað,
en sannað er að slíkar auglýsingar
höfða fyrst og síðast til aldurshóps-
ins 12–20 ára, nú eða þá að leyfa sölu
þessarar „hollustu“vöru sem allra
víðast. Svari hver fyrir sig, en grát-
broslegastar alls eru þó fullyrðing-
arnar um að auglýsingar á áfengi
auki ekki neyzluna, svo sem alltof oft
heyrist og ég hlýt að spyrja með
Árna frænda mínum Helgasyni: Til
hvers vilja menn auglýsa, ef árang-
urinn á að verða í núlli? Mín tak-
markaða markaðsfræði segir mér
einfaldlega allt annað.
Hin fregnin var á forsíðu Frétta-
blaðsins og fjallaði um áfengisbann
við Kárahnjúkavirkjun. Hvers konar
skerðing á persónufrelsi var nú hér á
ferð, nauðgun á frelsinu sjálfu, tján-
ingarfrelsinu meðtöldu?
Hvað gengur eiginlega á hjá Frið-
rik Sophussyni og Co, boðberum
hins eina sanna frelsis?
Er mögulegt að menn telji þennan
heilsudrykk eitthvað varasaman fyr-
ir þá sem þarna vinna, að hann geti
virkilega sljóvgað og gjört menn
ófærari um þau eflaust vandasömu
verk sem þarna á að framkvæma?
Ég hlýt að spyrja í ljósi þess kalda
kæruleysis um líf fólks og heilsu,
sem alltof áberandi er þegar um
áfengismál er rætt, svo sem eins og
þegar einhver spekingurinn sagði,
að áfengisauglýsing gerði engan að
róna og þóttist hafa þar með svarað
fyrir ágæti þeirra, einkum fyrir börn
og unglinga að sjálfsögðu í ljósi vitn-
eskjunnar um aðalmarkhópinn.
Tvær fregnir til ærinnar umhugs-
unar ef menn vilja ekki fljóta sofandi
að feigðarósi, segja báðar mikla sögu
ef menn kunna að lesa og skilja.
Og þarfnast ekki fleiri orða.
HELGI SELJAN,
form. fjölmiðlanefndar IOGT.
Til ærinnar
umhugsunar
Frá Helga Seljan
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið