Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Atl-
antica Hav, Irena og
Arctica, Northern
Larsnes koma í dag.
Svanur fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Rán kemur í dag.
Mannamót
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30,
10.15og 11,10 leikfimi,
kl. 12.15 Leir „skúlpt-
úr“, kl. 13 Postulíns-
málun og handsnyrti-
námskeið.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Bók-
band í dag kl. 10-12.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á mánudög-
um og föstudögum kl.
9.30 sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug, á þriðjudög-
um kl. 13. boccia. Allar
upplýsingar um starfs-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Karlakórinn Kátir
karlar, æfingar á
þriðjudögum kl. 13 í
Félags- og þjónustu-
miðstöðinni Árskógum
4. Söngstjóri er Úlrik
Ólason. Tekið við pönt-
unum í söng í s.
553 2725 Stefán, s.
553 5979 Jón eða
s.551 8857 Guðjón.
Breiðfirðingafélagið
félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð morgun
sunnudag kl. 14. Allir
velkomnir. Kaffiveit-
ingar.
Björgunarsveitar
Hafnarfjarðar. Aðal-
fundurinn verður laug-
ardaginn 8 mars, í hús-
næði sveitarinnar að
Flatarhrauni 14 Hafn-
arfirði og hefst kl 10.
Dagskrá er samkvæmt
lögum sveitarinnar.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra.
Íþróttadagur aldraðra
verður á Öskudaginn,
miðvikudaginn 5. mars
kl. 13-15 í Laugardals-
höllinni, aðalsal, leikir,
söngur, leikfimi dans.
Allir velkomnir.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Gönguferð verður
um Laugardalinn í dag,
Mæting við hús Gigt-
arfélagsins í Ármúla 5
kl. 11. Klukkutíma
ganga í fylgd sjúkra-
þjálfara. Allir velkomn-
ir.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði.
Fundur verður í Gerðu-
bergi á þriðjudag kl.
17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁÁ,
Síðumúla 3-5, og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við Tólf spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn þriðju-
dag og fimmtudag frá
kl. 14-17. Leið 10 og
110 ganga að Kattholti.
Lífeyrisdeild Lands-
sambands lögreglu-
manna. Sunnudags-
fundurinn verður á
morgun í félagsheimili
LR í Brautarholti 30,
kl. 10. Félagar fjöl-
mennið.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi.
Bókabúð Grindavíkur,
Víkurbraut 62, Grinda-
vík, s. 426 8787 Penn-
inn - Bókabúð Kefla-
víkur, Sólvallagötu 2,
Keflavík, s. 421 1102 Ís-
landspóstur hf., Hafn-
argötu 89, Keflavík, s.
421 5000 Íslandspóstur
hf., c/o Kristjana Vil-
hjálmsdóttir, Garð-
braut 69, Garður, s. 422
7000 Dagmar Árna-
dóttir, Skiphóli, Skaga-
braut 64, Garður, s. 422
7059
Minningarkort Graf-
arvogskirkju. Minn-
ingarkort Grafarvogs-
kirkju eru til sölu í
kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að
nálgast kortin í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
Reykjavík.
Minningakort Ás-
kirkju eru seld á eft-
irtöldum stöðum:
Kirkjuhúsinu Lauga-
vegi 31, þjón-
ustuíbúðum aldraðra
við Dalbraut, Norð-
urbrún 1, Apótekinu
Glæsibæ og Áskirkju
Vesturbrún 30 sími
588-8870.
Í dag er laugardagur 1. mars, 60.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Ég kann að búa við lítinn kost, ég
kann einnig að hafa allsnægtir. Ég
er fullreyndur orðinn í öllum hlut-
um, að vera mettur og hungraður,
að hafa allsnægtir og líða skort.
(Fil. 4, 12.)
Í RÆÐU sinni um utan-ríkismál á Alþingi á
fimmtudag fjallaði Hall-
dór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra um áform-
aðar breytingar á
fríverzlunarsamningi við
Færeyjar. Ráðherra
sagði m.a. í ræðu sinni:
„Ekki er öllum ljóst að
Færeyjar eru á meðal
mikilvægari viðskipta-
landa Íslands. Þrátt fyr-
ir smæðina er reyndin
sú að viðskipti Íslands
við Færeyjar eru mun
meiri en við margfalt
fjölmennari ríki […] Á
síðustu árum hafa ýmis
tæknileg vandkvæði ris-
ið vegna viðskipta með
landbúnaðarvörur til
Færeyja. Unnið hefur
verið að lausn þessara
vandamála og ljóst er að
nauðsynlegt er að
styrkja lagalegan grund-
völl viðskiptatengsla
landanna. Af þessum
sökum ákváðu rík-
isstjórn Íslands og lands-
stjórn Færeyja að hefja
viðræður um að útvíkka
fríverslunarsamninginn
sem í gildi er. Ætlunin
er að samningurinn
verði í raun víðtækari
en EES-samningurinn
með því að hann nái
einnig yfir viðskipti með
landbúnaðarvörur.“
Það er auðvitað dálítiðmerkilegt að frí-
verzlunarsamningur við
Færeyjar verði víðtæk-
ari að þessu leytinu en
EES-samningurinn. En
hver skyldi vera ástæð-
an fyrir því að íslenzk
stjórnvöld, sem alla
jafna styðja fríverzlun í
orði, treysta sér til að
semja um fríverzlun á
sviði landbúnaðarvara
við Færeyjar, en treystu
sér alls ekki til slíks
þegar gengið var frá
EES-samningnum?
Ætli svarið liggi ekki ítölum um viðskipti
landanna tveggja. Árið
2001 fluttu Færeyingar
engar landbúnaðar-
afurðir sem heitið gátu
til Íslands. Íslendingar
seldu hins vegar til Fær-
eyja kindakjöt fyrir 131
milljón króna og aðrar
landbúnaðarvörur fyrir
24 milljónir. Í nýjum frí-
verzlunarsamningi sjá
menn ný markaðstæki-
færi fyrir íslenzkar
landbúnaðarvörur. „Ég
tel að [útvíkkun á frí-
verzlunarsamningnum]
myndi fljótt þýða mikla
stækkun á markaði fyrir
landbúnaðarvörurnar,“
sagði Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra
hér í blaðinu 29. nóv-
ember sl.
Það er nú það. Þegarþað þjónar hags-
munum íslenzkra
bænda, er fríverzlun
með landbúnaðarvörur
sjálfsagt mál. En hvað
þegar „tæknilegir örð-
ugleikar“ koma upp í
innflutningi landbún-
aðarvara hingað til Ís-
lands og gera þær dýrar
eða ófáanlegar fyrir ís-
lenzka neytendur? Þá
virðast menn síður til í
útvíkkun á fríverzl-
unarsamningnum.
STAKSTEINAR
Fríverzlun með búvörur
– í orði og á borði
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI lenti í því um daginn aðólag komst á ADSL-tengingu
sem hann er með heimavið. Brá hann
þá á það ráð að hringja í bilanaþjón-
ustu Landssímans til að athuga hvort
ekki væri hægt að kippa þessu í lag.
Víkverja svaraði símsvari sem
bauð hann velkominn í þjónustuver
Símans og í framhaldinu var honum
boðið upp á ýmsa valmöguleika, sem
tíundaðir voru með yfirvegaðri rödd:
„Tjús fæf for íngliss. Veldu einn fyrir
heimilissíma og breiðband, tvo fyrir
farsíma, þrjá fyrir …“
Víkverji fylgdist með af athygli og
þegar loksins vall upp úr símsvar-
anum: „ …fjóra fyrir ADSL-
tengingar og ISDN …“ var hann ekki
seinn á sér að velja það númer.
Hélt nú símsvarinn áfram og bauð
Víkverja að velja einn fyrir ADSL og
tvo fyrir ISDN og þegar því var lokið
upphófst enn ein flokkunin þegar
símsvararöddinn huggulega bað Vík-
verja að velja númer eftir því hvort
hann vildi almennar upplýsingar,
reikninga eða bilanir.
Víkverji valdi að sjálfsögðu bilanir
og kippti sér ekkert upp við það þótt
símsvararöddin, sem honum var
næstum því farið að þykja vænt um,
héldi áfram ræðuhöldunum og upp-
lýsti að allir þjónustufulltrúar væru
uppteknir en símtöl yrðu afgreidd í
réttri röð enda hlaut hann að vera í
þann mund að fá samband við sér-
fræðing Landssímans í bilunum á
ADSL-línum, miðað við undan-
gengna flokkun.
x x x
BIÐIN tók nokkrar mínútur ogmeð reglulegu millibili gaukaði
símsvarinn alúðlegi að Víkverja ýms-
um fróðleik um þjónustu Landssím-
ans. Innan skamms kom þó langþráð-
ur sérfræðingur í símann og Víkverji
rakti vandræði sín. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa og sérfræðingurinn
sagði glaðlega: „Ég ætla að gefa þér
samband við mann sem getur hjálpað
þér.“ Og áður en Víkverji vissi var bú-
ið að gefa honum samband, ekki þó
við hinn hjálplega mann heldur sím-
svarann góðkunna sem gat deilt þeim
fróðleik með Víkverja að allir þjón-
ustufulltrúar væru uppteknir.
Víkverji verður að játa að þarna
rann honum pínulítið í skap en ein-
setti sér þó að bíða enda gat hann illa
verið án tengingarinnar góðu.
Hann hefði þó kannski hugsað sig
tvisvar um ef hann hefði vitað að
þessi bið átti eftir að taka um kortér.
Símsvarinn, vinur Víkverja, reyndi þó
eftir bestu getu að létta honum lund-
ina á meðan með því að benda honum
reglulega á að enn væru allir þjón-
ustufulltrúar uppteknir en hann gæti
sótt sér upplýsingar á Netið. „Elsku
vinur,“ muldraði Víkverji. „Þar
stendur hnífurinn í kúnni!“
Víkverji var orðinn nokkuð siginn
þegar fulltrúinn langþráði losnaði en
reyndi þó að hemja skap sitt þegar
hann útskýrði vandamálið. „Ætli það
þurfi ekki að athuga línuna hjá þér,“
sagði þá þjónustan á hinum enda lín-
unnar, „ég skal gefa þér samband …“
Og áður en Víkverji gat rönd við
reist var kunningi hans símsvarinn
kominn í símann til að færa honum
þau gamalkunnu tíðindi að allir þjón-
ustufulltrúar væru uppteknir.
Víkverji skellti á! Í stað þess að
sinna erindi sínu á Netinu valdi hann
þann kost að láta renna í heitt bað á
meðan hann beitti slakandi jógaönd-
un til að róa taugarnar. Og hann sór
með sjálfum sér að næst þegar hann
legði í að leita eftir þjónustu Lands-
símans myndi hann hafa kippu af bjór
og koníaksflösku við höndina.
Morgunblaðið/Jóra
ÞAÐ er ótrúlegt að fyrir-
tæki sem óska eftir starfs-
fólki sýni umsækjendum
ekki þá almennu kurteisi að
endursenda umsóknirnar
til þeirra aftur, ef þeir ætla
ekki að ráða viðkomandi.
Ég er búin að sækja um
nokkrar stöður í gegnum
Morgunblaðið og DV en fæ
hvorki svör né heldur um-
sókn mína, með meðmæl-
um og oft með mynd af
mér, endursenda. Mér
finnst þetta ókurteisi af
starfsmannastjóra eða
þeim sem sér um ráðningar
hjá viðkomandi fyrirtæki.
Ég veit ekkert hvert ég er
að senda upplýsingar um
mig, þegar ég sæki um
starf í gegnum blöðin og
veit þess vegna ekki hvar
persónulegar upplýsingar
um mig liggja. Ég er hætt
að sækja um störf í gegnum
auglýsingar í blöðunum og
held mig við ráðningar-
skrifstofurnar.
Með von um að þeir taki
þetta til skoðunar sem ráða
starfsfólk, því þeir gefa
sjálfir sem fæstar upplýs-
ingar um fyrirtækið, en
ætlast til að umsækjendur
sendi sem flestar upplýs-
ingar um sjálfan sig, sem
veit svo ekkert hvar þær
lenda.
Sigrún.
Er til of
mikils mælst?
HINN 19. febrúar átti
Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson 50 ára afmæli og
greinir Fréttablaðið frá
þeim merku tímamótum í
lífi prófessorsins og hefst
reyndar greinin á eftirfar-
andi orðum hans sjálfs: „Ég
byrja daginn á að kenna
námskeið í stjórnmála-
heimspeki.“ Að mínu viti
hefði farið betur á því að
orða þetta einfaldlega
svona: Ég byrja daginn á
því að kenna stjórnmála-
heimspeki. Eins og undir-
ritaður benti fyrst á fyrir
nokkrum árum í Morgun-
blaðsgrein undir fyrirsögn-
inni: Það er hægt að kenna
hestum skeið en ekki nem-
endum námskeið.
Þá getur það því aldrei
talist gjaldgeng íslenska að
segja að kenna eða læra
námskeið enda þótt ensku-
mælandi fólk geti leyft sér
að segja To teach a Course
sem heppilegast er að ís-
lenska svona: Að kenna
námsgrein. Íslendingar
með alíslensk eyru eða
óbrenglaða málkennd eru á
námskeiðum, halda þau eða
sækja. Eftir vill gera menn
sér ekki fyllilega grein fyrir
því hvernig orðið er sam-
sett. Síðari liðurinn skeið
samanber ævi-, menning-
ar-, hnignunarskeið er í
órjúfanlegum tengslum við
tímalengd. Væri ef til vill
ekki ráð fyrir prófessorinn
að láta innrita sig á ís-
lenskunámskeið í Háskóla
Íslands. Hæg eru heima-
tökin. Það er aldrei of seint
að bæta kunnáttuna í móð-
urmálinu. Lærir svo lengi
sem lifir. Er til of mikils
mælst að prófessorar í Há-
skóla Íslands kunni ís-
lensku?
Halldór Þorsteinsson,
Rauðalæk 7.
Tapað/fundið
Barnakuldagalli
í óskilum
BARNAKULDAGALLI
er í óskilum í Þverbrekku í
Kópavogi. Upplýsingar í
síma 554 0113.
Tapaður
eyrnalokkur
GULLEYRNALOKKUR
tapaðist 25. febrúar 2003 á
leiðinni Kringlan-Fossvog-
ur eða í Blásölum Kópa-
vogi. Skilvís finnandi vin-
samlega hringið í síma
568 5238 eða 569 2500 Pál-
ína eða pg@sjova.is.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
í Hveragerði
TVEIR kettlingar fást gef-
ins, gulur og hvítur. Upp-
lýsingar í síma 483-4906.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Tillitsleysi
Fyrir utan Fjarðarkaup, Hafnarfirði.
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 notandi, 8 búa til, 9
megnar, 10 ílát, 11 skrika
til, 13 hefur undan, 15 vel
verki farinn, 18 lítið, 21
umfram, 22 dreng, 23
eldstæði, 24 ímyndunar-
afl.
LÓÐRÉTT
2 víðan, 3 ífæra, 4 ganga
hægt, 5 kvendýrið, 6 dá-
lítið súr, 7 þrjóskur, 12
tölustafur, 14 tek, 15 jó,
16 ávöxt, 17 hund, 18
labbakút, 19 héldu, 20
verkfæri.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 grýla, 4 skæra, 7 lúinn, 8 örlar, 9 ill, 11 unnu,
13 frár, 14 gilda, 15 haug, 17 róma, 20 bak, 22 rabba, 23
íhald, 24 koðna, 25 aktar.
Lóðrétt: 1 guldu, 2 ýtinn, 3 asni, 4 spöl, 5 ætlar, 6 aðrar,
10 lilja, 12 ugg, 13 far, 15 horsk, 16 umboð, 18 ósatt, 19
andar, 20 bana, 21 kíma.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16