Morgunblaðið - 01.03.2003, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 59
DAGBÓK
ÁRNAÐ HEILLA
KRISTÍN LITLA
Kristín litla komdu hér
með kalda fingur þína;
ég skal bráðum bjóða þér
báða lófa mína.
Eitthvað tvennt á hné ég hef,
heitir annað Stína.
Hún er að láta lítið bréf
í litlu nösina sína.
Fuglinn segir bí, bí, bí,
bí, bí segir Stína.
Kveldúlfur er kominn í
kerlinguna mína.
Sveinbjörn Egilsson
LJÓÐABROT
80 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 3. mars,
verður áttræður Pétur
Kristjánsson, Suðurgötu
14, Keflavík. Eiginkona
hans er Bergþóra Eide Eyj-
ólfsdóttir. Þau taka á móti
ættingjum og vinum í Fé-
lagsmiðstöðinni Hvammi,
Suðurgötu 15, Keflavík, á
morgun, sunnudag, milli kl.
15 og 19.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
sköpunarglatt og listfengið
og sum tækni leikur í hönd-
um þess. Fegurðarskyn
þess er annálað. Það er
blátt áfram og skapgott
svo eftir er tekið.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Allt frá árinu 1996 hefur þú
verið að endurreisa sjálfan
þig og þú munt ljúka því verki
í ár. Heimilið er ankeri í þeim
efnum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt íhuga alvarlega á
árinu að skipta um húsnæði
eða starf. Því er um að gera að
gera áætlanir fram í tímann.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú fórst inn á nýjar brautir
sjálfsræktar árið 2001. Íhug-
aðu hvaða gildi skipta mestu
máli og notaðu tímann vel.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Síðustu ár hafa verið erfið en
brátt birtir verulega til. Þú
ættir að endurnýja í fata-
skápnum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Á næstu tveimur árum munt
þú segja skilið við margt.
Breytingatímar eru fram-
undan og þú skalt undirbúa
þig undir eitthvað nýtt á árinu
2005.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þér er orðið fullljóst hvað
gengur og hvað ekki. Því ber
að halda sig við það sem
gagnast og láta hitt lönd og
leið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Árið framundan er einkar
spennandi. Þú munt afreka
eitt og annað á næstu tveimur
árum og uppskera þá allt það
erfiði sem þú hefur lagt á þig
frá árinu 1996.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Margt ykkar losaði sig við
stuðning förunauta eða ein-
hverra annarra á liðnu ári. Í
ár mun það heyra sögunni til
og gleymast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Mörg ykkar hafa gengið í
gegnum erfiðleika í samlífi
eða samstarfi að undanförnu.
Óttastu ekkert því traust
sambönd standa af sér ágjöf.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Allt þitt mikla harðfylgi á
undanförnum árum ber ávöxt
í ár. Þú stígur fram á nýtt svið
svo eftir verður tekið, svo þú
mátt búast við frelsi og fjöl-
miðlaathygli.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Starf þitt og heilsa batnaði
stórum undanfarið ár og þú
getur horft fram á betra sam-
band við ástvini og einnig
aðra sem þú þarft að eiga
samskipti við.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er margt sem þú getur
hlakkað til í ár vegna mikillar
uppörvunar sem þú öðlast á
vinnustað. Þar mun allt verða
á betri veg.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SÚ úrspilstækni að henda
tapspili í tapspil er vel
þekkt í brids, enda gefst
oft tilefni til þess við spila-
borðið. Hitt er sjaldgæf-
ara að nauðsynlegt sé að
endurtaka þann leik
mörgum sinnum í sama
spilinu. Það gerðist þó hjá
BR fyrir skömmu:
Vestur gefur; enginn í
hættu.
Norður
♠ D102
♥ ÁD4
♦ D842
♣842
Vestur Austur
♠ 8 ♠ Á965
♥ G10952 ♥ 7
♦ 1093 ♦ ÁKG76
♣DG73 ♣K65
Suður
♠ KG743
♥ K863
♦ 5
♣Á109
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 tígull 1 spaði
Dobl 2 spaðar Pass Pass
Pass
Sagnir eru á eðlilegum
nótum, nema hvað dobl
vesturs er neikvætt og
sýnir hjarta, minnst fjór-
lit. Útspil vesturs er tíg-
ultía.
Fátt virðist einfaldara
en að taka átta slagi –
fjóra á tromp, þrjá á
hjarta og einn á laufás. En
styttingurinn í tígli er
ógnandi og víða fóru menn
niður eftir ógætilega spila-
mennsku. Vestur fékk að
eiga fyrsta slaginn á tíg-
ultíu, en suður trompaði
næsta tígul og fór í spað-
ann. Austur drap strax og
spilaði enn tígli og nú er
samningurinn tapaður ef
suður trompar! Ástæðan
er einfaldlega sú að
hjartaslagirnir fara fyrir
lítið.
Til að tryggja sér átta
slagi verður suður að
henda tveimur laufum og
einu hjarta heima í alla
tígla austurs! Með því
móti heldur hann valdi á
trompinu og nær í þá átta
slagi sem honum voru
gefnir í upphafi. Þetta
gæti hann líka gert strax í
upphafi.
Spilið er óneitanlega
forkostulegt – þrisvar
sinnum þarf að henda tap-
spilum af suðurhendinni
til að halda valdi á tromp-
inu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6
4. Bb5 Rd4 5. Ba4 Bg7 6.
O-O a6 7. Rxd4 cxd4 8. Re2
b5 9. Bb3 Bb7 10.
d3 d5 11. f3 e6 12.
De1 Re7 13. Dh4
h6 14. a4 e5 15.
Bd2 g5 16. Dh5
Rg6 17. Rg3 Rh4
18. axb5 axb5 19.
exd5 Bxd5 20.
Hxa8 Dxa8 21. Re4
Dc6 22. Bxd5 Dxd5
23. f4 exf4
Staðan kom upp
á Aeroflot mótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Moskvu.
Alexander Mor-
ozevich (2678)
hafði hvítt gegn
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Stanislav Savchenko (2539).
24. Hxf4! Rg6 25. Hf5 Dd7
og svartur gafst upp um leið
enda annað peð að fara for-
görðum eftir 26. Hxb5. 6. og
7. umferð Íslandsmóts skák-
félaga fara fram í húsakynn-
um MH í dag.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Auðvitað hefurðu rétt á að hafa þína skoðun á hlutunum,
en þarf ég endilega að vita af því?!
Nú, síðan hann fór á eftir-
laun þá sest hann á hverj-
um morgni við ritvélina og
skrifar lista yfir það sem
hann þarf ekki að gera …
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 2. mars, verður sjötugur
Sverrir Traustason,
Breiðuvík 35, Reykjavík. Í
tilefni þess tekur hann og
eiginkona hans, Þorbjörg
Ingibergsdóttir, á móti
gestum í kvöld, 1. mars, frá
kl. 19.30 í Kiwanishúsinu,
Smiðjuvegi 13a, Kópavogi.
Stangveiði til leigu
Búnaðarsamband Suðurlands óskar eftir tilboðum í stangveið-
ina á Stóra Ármóti í Hraungerðishreppi sumarið 2003. Um
er að ræða 3 stangir og u.þ.b. 5 km strandlengju að Hvítá
og Ölfusá. Á svæðinu veiðast lax og sjóbirtingur. Veiðihús
sem stendur á bökkum Hvítár fylgir með. Húsið er 30 m²,
A bústaður með svefnlofti. Nánari upplýsingar í síma
480 1801. Tilboð merkt „Stangveiði Stóra Ármóti“ berist fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsambands Suðurlands fyrir 15. mars
2003.
Laugavegi 45 • sími 561 6660
25% frá 26. feb. - 4. marzafsláttur
10
Gullkúnst á 10 ára afmæli
10 ára10
ára
Rauðagerði 26,
sími 588 1259
Nýtt — Nýtt
Vor — Sumar
2003
Eldri vörur seldar með
góðum afslætti.
Verið velkomin
Opið í Rauðagerði 26
frá kl. 10—18 í dag,
laugardag.
Glæsilegur dömu- og
herrafatnaður
Nýtt á
Íslandi
Léttir, mjúkir og liprir heilsuskór frá
Portúgal. Góðir fyrir þreytta fætur
Opið í Rauðagerði 26
þriðjudaga frá kl. 13-19,
laugardaga frá kl. 10-14
Ásta Kjartansdóttir,
sími 897 7484.
Verið velkomin!