Morgunblaðið - 01.03.2003, Side 61
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 61
SÄVEHOF, andstæðingur Gróttu/
KR, þykir eitt sigurstranglegasta
liðið af þeim átta sem eftir eru í
Áskorendabikar Evrópu í hand-
knattleik. Grótta/KR sækir sænska
liðið heim til Gautaborgar í dag en
það er fyrri viðureign liðanna og
hefst í Scandinavium-höllinni
klukkan 14 að íslenskum tíma. Sú
síðari verður á Seltjarnarnesi um
næstu helgi.
Sävehof er í öðru sæti sænsku úr-
valsdeildarinnar, sjö stigum á eftir
toppliðinu, Redbergslid. Liðið hef-
ur ekki tapað leik eftir áramótin. Í
Áskorendabikarnum sló það Gunn-
ar Berg Viktorsson og félaga í Par-
ís SG út í fyrstu umferðinni, vann
30:27 í Gautaborg en tapaði 29:27 í
París. Síðan vann Sävehof yf-
irburðasigra á Reval Sport frá Eist-
landi, 35:16 og 34:15, og vann síðan
Bosna frá Bosníu, 28:20, á heima-
velli eftir tap í Sarajevo, 26:25.
Skytturnar Kim Andersson og
Anders Eliasson, fyrirliði, eru lyk-
ilmenn í liði Sävehof. Andersson
þykir einn efnilegasti leikmaður
Svíþjóðar og var maðurinn á bak-
við nauman sigur Svía á Íslend-
ingum í upphitunarleik fyrir HM í
janúar. Einn besti leikmaður liðs-
ins, Jonas Larholm, verður fjarri
góðu gamni en hann meiddist í
deildaleik gegn Hammarby á mið-
vikudaginn.
Sävehof talið
líklegt til afreka
VALSMENN, nýliðarnir í úrvals-
deildinni í knattspyrnu, unnu góðan
sigur á bikarmeisturum Fylkis, 2:0,
í deildabikarnum í Egilshöll í gær-
kvöld.
Fyrri hálfleikur var markalaus,
Fylkir sótti meira framan af en leik-
urinn jafnaðist þegar á leið. Í seinni
hálfleik voru Valsmenn sterkari að-
ilinn og skoruðu tvö mörk um hann
miðjan. Sigurbjörn Hreiðarsson
það fyrra, fékk háa sendingu frá
hægri, sneri á varnarmenn og skor-
aði. Það síðara gerði Sigurður Sæ-
berg Þorsteinsson með hörkuskoti
frá vítateig eftir snögga sókn.
„Þetta var sannfærandi sigur og
mikilvægur fyrir okkur. Við höfum
leikið vel í undanförnum leikjum en
tapað samt, okkur fannst við vera
rændir þegar við töpuðum fyrir
Fylki í Reykjavíkurmótinu og gegn
Víkingi fengum við á okkur mark á
síðustu mínútu,“ sagði Sigurbjörn
Hreiðarsson, fyrirliði Vals, við
Morgunblaðið.
Íslandsmeistarar KR unnu
öruggan sigur á KA, 4:0, í síðari
leik kvöldsins og gerðu út um leik-
inn með þremur mörkum á síðustu
20 mínútum fyrri hálfleiks. Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson, Sigurvin
Ólafsson og Veigar Páll Gunn-
arsson voru þar á ferð. KA-menn
skoruðu sjálfsmark snemma í síðari
hálfleik og þar við sat.
Valur lagði Fylki og
KR skoraði fjögur FÓLK
BJARKI Sigurðssson hornamað-
urinn knái í liði Vals var óvænt í leik-
mannahópi Hlíðarendaliðsins gegn
HK í gær. Bjarki sleit krossband í
janúar og var búið að afskrifa að
hann léki meira með á tímabilinu.
BJARKI vildi hins vegar láta á það
reyna hvort hann gæti spilað enda
sagði Stefán Carlsson, læknir Vals-
liðsins, að Bjarka héldu engin bönd,
ekki einu sinni krossbönd. Bjarki
kom inná þegar 12 mínútur voru eft-
ir. Hann byrjaði á því að fiska víta-
kast en þegar rúm mínúta var eftir
hné hann niður, hnéð gaf sig og var
hann studdur af leikvelli. Geir
Sveinsson þjálfari Vals sagði eftir
leikinn að hann reiknaði ekki með
því að Bjarki spilaði meira í vetur.
VALUR féll í gærkvöldi úr úrvals-
deildinni í körfuknattleik karla, án
þess að spila. Þar sem Hamar vann
Tindastól getur Valur aðeins náð
Hamri að stigum og Hvergerðingar
hanga þá uppi á betri stöðu innbyrð-
is. Skallagrímur getur hinsvegar
enn bjargað sér og sent Hamar nið-
ur, með því að vinna báða sína, gegn
Hamri og Val, ef Hamar tapar líka í
síðustu umferðinni, gegn Grindavík.
TEITUR Örlygsson skoraði fimm
stig í einni sókn fyrir Njarðvík á
móti Grindavík í gærkvöldi. Hann
skoraði fyrst úr tveimur af þremur
vítaskotum en fékk síðan boltann og
skoraði þá úr þriggja stiga skoti.
MIKIL rekistefna var í lokin á leik
Njarðvík og Grindavík í gærkvöldi
þegar dómararnir tóku eftir því að
tímaverðir stöðvuðu ekki klukkuna
fyrr en nokkrum sekúndum eftir að
búið var að flauta. Dómarar bættu
við þremur sekúndum en áhorfend-
ur og blaðamenn tóku eftir því að
þetta var ekki í fyrsta sinn. Hvort
þetta hafi verið mistök eða ekki er
erfitt að fullyrða um.
TIGER Woods virðist til alls lík-
legur á HM í holukeppni, hann komst
í gær í átta manna úrslit og hefur
leikið af mikilli fetu það sem af er
móti, en hann féll út í fyrstu umferð í
fyrra. Kappinn hefur unnið þrjá
fyrstu leiki sína og aðeins þurft að
leika 44 holur, vann Carl Pettersson
á 17. holu í fyrstu umferð, K.J. Choi
á 15. holu í annari umferð og í gær
lagði hann Stephen Laney á 12. holu.
ROSENBORG sigraði á La Manga
mótinu í knattspyrnu sem lauk í
gærkvöldi, lagði Odd Grenland 1:0 í
síðasta leiknum og gerði Harald
Brattbakk markið. Rosenborg var
sterkari aðilinn en Odd-verjar sýndu
tennurnar undir lokin en Árni Gaut-
ur Arason markvörður sá til þess að
Odd skoraði ekki.
ÁRNI Gautur og Espen Johnsen,
markverðir Rosenborg, fengu ekki á
sig eitt einasta mark í mótinu.
JONATHAN Woodgate leikur
væntanlega sinn fyrsta leik fyrir
Newcastle í dag þegar lið hans tekur
á móti Chelsea í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu. Chelsea leikur án
fyrirliða síns, Marcel Desailly, sem
er enn meiddur.
Það er óhætt að segja að mikiðhafi gengið á í Valsheimilinu á
lokamínútunum. Valsmenn virtust
vera að tryggja sér
sigur þegar Snorri
Steinn Guðjónsson
stakk sér í gegnum
HK-vörnina og kom
sínum mönnum í 23:21 einni og
hálfri mínútu fyrir leikslok. HK
minnkaði muninn þegar Elías Már
Halldórsson skoraði úr horninu en
HK-ingar voru þá orðnir tveimur
mönnum fleiri. Valsmenn lögðu
upp í sókn, fjórir á móti sex en
misstu knöttinn 50 sek. fyrir leiks-
lok. HK-menn freistuðu þess að
jafna metin en þegar Elíasi brást
bogalistin úr horninu virtist sig-
urinn í höfn hjá Val. En svo reynd-
ist ekki. Valsmönnum urðu á
hrikaleg mistök þegar sending
geigaði úr innkasti. Boltinn rataði í
hendur Kópavogsmanna 17 sek-
úndum fyrir leikslok og þegar um
8 sek. voru eftir af leiktímanum
skoraði Alexander jöfnunarmarkið
af línunni. „Ég er mjög stoltur af
drengjunum og þeir lögðu sig gríð-
arlega vel fram. Það var í raun
synd að við skyldum ekki taka
bæði stigin en það er erfitt að vera
12 mínútum meira en andstæðing-
urinn einum færri inni á vellinum,“
sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals,
við Morgunblaðið, en hann var
mjög ósáttur við frammistöðu
dómara leiksins og fannst dóm-
gæslan halla mjög á sitt lið.
Það er hægt að taka undir orð
Geirs hvað þetta varðar. Oftar en
ekki fengu Valsmenn að hvíla í
tvær mínútur fyrir brot sem HK-
menn fengu ekki refsingu fyrir og
tveir brottrekstrar sem orkuðu
mjög tvímælis á lokamínútunum
bitnuðu harkalega á Valsmönnum.
Valsmenn höfðu undirtökin
meira og minna allan leikinn. Vörn
þeirra var sterk og Roland Eradze
öflugur á milli stanganna. Jaliesky
Garcia byrjaði með miklum látum í
HK-liðinu, skoraði þrjú af fyrstu
fjórum mörkum liðsins en eftir það
náðu Valsmenn að halda honum í
skefjum. Það varð til þess að sókn-
arleikur HK var á köflum frekar
bitlaus og ekki bætti úr skák að
Vilhelm Gauti Bergsveinsson náði
sér ekki á strik auk þess sem Vals-
menn höfðu góðar gætur á Ólafi
Víði Ólafssyni.
Valur náði fjögurra marka for-
skoti í byrjun síðari hálfleiks en
með seiglu og baráttu neituðu HK-
ingar að gefast upp. Þeir gripu til
þess ráðs að taka Snorra Stein úr
umferð og við það riðlaðist leikur
Vals. HK minnkaði muninn í eitt
mark, 16:15, en aftur komust Vals-
menn í fjögurra marka forskot,
21:17, og héldu þá flestir að sigur
þeirra væri í höfn nema þá helst
Árni Stefánsson, þjálfari HK.
Hann hvatti sína menn til dáða og
minnti þá óspart á að leikurinn
væri ekki búinn. Lokakaflanum er
áður lýst en HK-mönnum tókst að
krækja í stig sem virtist vera
gengið þeim úr greipum.
Vel er hægt að skilja gremju
Valsmanna yfir úrslitum leiksins
því leikurinn var í höndum þeirra
nær allan tímann en klaufaskapur
á örlagaríkum augnablikum undir
lokin og hæpnir brottrekstrar
komu illa niður á liðinu. Snorri
Steinn og Markús Máni Mich-
aelsson voru ásamt Roland Eradze
bestu leikmenn Vals og þá var
Freyr Brynjarsson mjög drjúgur
framan af leik. Brendann Þor-
valdsson átti fínan leik í vörninni á
meðan hans naut við en hann fékk
sína þriðju brottvísun í upphafi
síðari hálfleiks.
Arnar Freyr Reynisson var
besti maður HK-inga en hann
varði jafnt og þétt allan leiktím-
ann. Alexander Arnarson lék
sömuleiðis vel. Hann var sterkur í
vörninni og nýtti færi sín vel á lín-
unni. Ólafur Víðir var óheppinn
með skot sín en var annars í góðri
gæslu og Garcia náði sér ekki á
strik gegn sterkri Valsvörninni
nema þá á upphafskaflanum.
„Valsmennirnir skoruðu mörg
hraðaupphlaup á okkur framan af
leik og ég lagði áherslu við strák-
ana í hálfleik að stöðva það. Það
tókst og við erum þannig lið að við
gefumst aldrei upp þótt á móti
blási. Ég hef sagt að HK standi
fyrir hugrekki og kjark og það
kom berlega í ljós í leiknum,“ sagði
Árni Stefánsson, þjálfari HK.
Vonir Aftureldingar
að engu orðnar
Veik von Aftureldingar um aðkomast í átta liða úrslita-
keppnina er endanlega úr sögunni
eftir tap gegn ÍR,
35:30, í Austurbergi
í gærkvöld. Reynd-
ar geta bjartsýn-
ustu Mosfellingar
enn reiknað sig inn í áttunda sætið
en til þess þurfa keppinautar
þeirra að tapa fyrir botnliðum
deildarinnar, Víkingi og Selfossi. Á
það er varla hægt að veðja miklu.
ÍR-ingar komust í annað sætið á
ný með sigrinum og þeir geta enn
látið sig dreyma um að hampa
deildarmeistaratitlinum.
Eins og oft áður í vetur var lengi
vel ekki að sjá að Afturelding
stæði andstæðingum sínum neitt
að baki. Mosfellingar voru með
undirtökin nær allan fyrri hálfleik-
inn og höfðu forystu að honum
loknum, 15:13. Góður varnarleikur
og frábær markvarsla Reynis Þórs
Reynissonar lagði grunninn að
þeirri stöðu en Reynir varði 12
skot í hálfleiknum, þar af tvö víta-
köst. Þrjú slík fóru forgörðum hjá
ÍR á fyrstu 15 mínútum leiksins.
Horfurnar vænkuðust enn hjá
Aftureldingu í upphafi síðari hálf-
leiks. Liðið náði þá þriggja marka
forystu og að auki fékk Júlíus Jón-
asson, þjálfari og lykilmaður í
varnarleik ÍR, rauða spjaldið á
klaufalegan hátt. Hann fékk sína
þriðju brottvísun fyrir að vera of
fljótur inn á völlinn þegar brott-
vísun eins lærisveina hans var að
renna út. Að auki höfðu ÍR-ingar
látið slaka dómgæslu fara mjög í
taugarnar á sér í fyrri hálfleiknum
en við þetta mótlæti efldust þeir til
muna. Hreiðar Guðmundsson
hrökk í gang í markinu og fór á
kostum í seinni hálfleik, varði þá
alls 15 skot. Reynir fann sig hins
vegar ekki fyrir aftan hnignandi
vörn Mosfellinga og í stöðunni
20:20 fór hann af velli, meiddur á
auga. Þegar hann mætti aftur til
leiks var forskotið orðið of mikið.
Bjarni Fritzson, fyrirliði ÍR, sem
var tæpur vegna meiðsla, kom til
leiks eftir hlé, og þá í skyttustöð-
una hægra megin. Hann tók af
skarið þegar staðan var 26:24,
skoraði þrjú mörk í röð, og þar
með var mótspyrna gestanna end-
anlega úr sögunni. ÍR náði sex
marka forystu og bæði lið leyfðu
varamönnum óspart að spreyta sig
eftir það.
ÍR-ingar eru ekki jafn ógnandi í
sóknarleik sínum og fyrr í vetur á
meðan Einar Hólmgeirsson var
heill en þeir bæta það upp með
baráttu og stemningu. Auk Hreið-
ars í markinu áttu Fannar Þor-
björnsson, sem var sterkur í vörn
og krækti í fjögur vítaköst, Sturla
Ásgeirsson í vinstra horninu, eink-
um í síðari hálfleik, og Ingimundur
Ingimundarson góðan leik. Breidd-
in í liði ÍR er góð, það veiktist ekki
að sama skapi og lið gestanna við
innáskiptingar og það hafði sitt að
segja þegar leið á leikinn.
Skortur á breidd er hins vegar
Akkílesarhæll Aftureldingar. Liðið
notar sömu átta mennina eins
lengi og hægt er og lykilmenn liðs-
ins þurfa að sýna heilsteyptari
frammistöðu en í gærkvöld til að
innbyrða sigra gegn sterkum mót-
herjum. Sverrir Björnsson og Atli
Steinþórsson voru atkvæðamiklir
framan af en hurfu síðan að mestu.
Miklu munaði að Bjarki Sigurðs-
son komst aldrei í gang í sókn-
arleiknum – þegar hann skorar
ekki mark á Afturelding ekki
mikla möguleika.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ólafur V. Ólafsson á hér skot að marki og Alexander Arnarson
er viðbúinn á línunni en varnarmaður Vals er ekki langt undan.
Alexander
hetja HK
ALEXANDER Arnarson var hetja HK á Hlíðarenda í gærkvöldi, er
honum tókst fáeinum sekúndum fyrir leikslok að jafna metin
fyrir Kópavogsliðið. Úrslitin, 23:23, og geta HK-menn prísað sig
sæla með þá niðurstöðu því nær allan leiktímann voru Vals-
menn skrefinu á undan og höfðu þriggja marka forskot þegar
skammt var eftir.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Víðir
Sigurðsson
skrifar
Björgvin
til Dan-
merkur
BJÖRGVIN Vilhjálmsson,
knattspyrnumaður úr Fylki,
er genginn til liðs við
danska 1. deildar liðið
Hellerup IK frá Kaup-
mannahöfn. Liðið er í næst-
neðsta sæti deildarinnar
þegar keppnin er hálfnuð en
fyrsti leikur eftir vetrarfríið
er hinn 16. mars. Björgvin
er 23 ára varnarmaður og
lék 8 leiki með Fylki í úr-
valsdeildinni í fyrra en áður
spilaði hann með ÍR og KR.