Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 65
Holdi klæddar sagnahetjur: Geir goði (Arnar Jónsson), Gissur hvíti (Pétur Einarsson) og Skammkell (Benedikt Erlingsson). GUNNAR á Hlíðarenda, Njáll, Hall- gerður og Bergþóra lifna við á skján- um innan tíðar en holdgervingar þessa mæta fólks úr Njálssögu verða Hilmir Snær Guðnason, Ingvar Sig- urðsson, Margrét Vilhjálmsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir. Tökum er lokið á fyrsta þættinum en í heild áætlar Njálssaga ehf. að framleiða tíu þætti í leikstjórn Björns Br. Björnssonar. „Það er óvinnandi vegur að ætla að gera öllum til hæfis í því,“ segir Þor- geir Gunnarsson, framleiðandi sjón- varpsþáttaraðarinnar, um leikaraval- ið. „Það hefur hver sína hugmynd um þessar persónur, jafnmargar hug- myndir og lesendur eru margir.“ Leikararnir eru allir þekktir af ís- lensku sviði og bíómyndum. Auk fjór- menninganna fer Ólafur Darri Ólafs- son með hlutverk Skarphéðins, Bergur Þór Ingólfsson leikur Kol- skegg og Helgi Björnsson Otkel svo einhverjir séu nefndir. Kvikmyndatökur þessa fyrsta þátt- ar fóru fram á Njáluslóðum, á Þing- völlum og víðar. Tekið var upp í ágúst í fyrra og svo í síðustu viku við Þjóð- veldisbæinn í Þjórsárdal, en hann fer m.a. með „hlutverk“ Hlíðarenda í myndinni. Snjór fluttur í vörubílum „Snjórinn lét bíða eftir sér en við ákváðum að láta slag standa um síð- ustu helgi. Mættum í Þjórsárdal í kafsnjó en svo smám saman fjaraði hann undan okkur. Það endaði með því að við þurftum að keyra hann í vörubílum á staðinn. Á sama tíma klofa menn snjóinn í Jerúsalem,“ seg- ir Þorgeir hlessa. „Þetta er í rauninni fjórði þátturinn í tíu þátta seríu. Okkur fannst hann passa best því hann getur staðið einn og sér ef dráttur verður á því að hinir þættirnir verði framleiddir. Hann er ágætis kynning á þessum persónum, Gunnari og Njáli,“ segir Þorgeir en þættirnir eru teknir upp á íslensku. Þátturinn tilbúinn eftir mánuð Þátturinn verður tilbúinn eftir um mánuð, að sögn Þorgeirs, sem segir að verkefnið hafi fengið góðar viðtök- ur. Auk RÚV hafa ríkissjónvarps- stöðvar hinna Norðurlandanna tryggt sér sýningarrétt. „Þá hafa allir kvikmyndasjóðir sem við höfum leit- að til samþykkt að styrkja gerð myndarinnar þar á meðal Kvik- myndasjóður Íslands (nú Kvik- myndamiðstöð Íslands), Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn, Media-Evrópusjóðurinn og Menning- arsjóður útvarpsstöðva.“ Til greina kemur að sýna þennan fyrsta þátt strax, en það fer allt eftir viðkomandi sjónvarpsstöðvum, út- skýrir Þorgeir. Áætlað er ef allt geng- ur upp að hinir þættirnir níu verði teknir upp 2004-5. „Það er draumur- inn,“ segir hann og bætir við: „Þetta er mjög stórt verkefni á íslenskan mælikvarða. Okkur reiknast til við fyrstu sýn að þáttagerðin gæti kostað um 450 milljónir króna.“ Markmið þáttanna er að gefa sem gleggsta mynd af þessari þekktu Ís- lendingasögu og vekja áhuga jafnt leikra sem lærðra, útskýrir Þorgeir. Barátta góðs og ills „Þessi saga virðist vera sígild og geta kallast á við alla tíma. Það eru einhver svona sammannleg element í sögunni sem skiljast alls staðar og á öllum tímum. Þessi spurning um vin- áttuna og baráttu góðs og ills. Heiðn- in og kristnin takast á en kristnin fer með sigur af hólmi að lokum.“ Tímasetningin virðist að minnsta kosti vera góð. Sögur og kvikmyndir um baráttu góðs og ills eins og Hringadróttinssaga og Harry Potter njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og aldrei að vita hvort Njáls- saga bætist í þeirra hóp. Leikstjórinn Björn Br. Björnsson við tökur í Þjórsárdal.Ljósmynd/Carsten Lehmann Gunnar og menn hans. F.v. Kolskeggur (Bergur Þór Ingólfsson), Gunnar á Hlíðarenda (Hilmir Snær Guðnason), Lambi Sigurðsson (Víglundur Kristjánsson), Þráinn Sigfússon (Pálmi Gestsson) og Lambi Sigfússon (Kjartan Hearn). Njálssaga kvikmynduð Fögur er hlíðin í sjónvarpi FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 65 Háskólakórinn - Vox Academica Tónleikar Langholtskirkja sunnudaginn 2. mars kl. 16. Gloria eftir Vivaldi og verk eftir Allegri, Rachmaninov, Tavener, Caccini og Kuran (frumflutningur). Hljómsveit Jóns Leifs – Cametra. Einsöngvarar: Sigrún Hjálmtýsdóttir og Sesselja Kristjánsdóttir. Stjórnandi: Hákon Leifsson. Miðasala hefst í kirkjunni tveimur tímum fyrir tónleika. Dúndrandi harmonikuball í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima í Reykjavík, laugardagskvöldið 1. mars frá kl. 22:00. Fyrir dansi leika fimm hljómsveitir. Söngkonur: Corina Cubid og Ragnheiður Hauksdóttir. STÓRDANSLEIKUR Fjölbreytt dansmúsík. Dansleikur fyrir alla. Miðaverð kr. 1.200. Harmonikufélag Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.