Morgunblaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 1. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
AÐ MATI Fjármálaeftirlitsins braut Bún-
aðarbankinn gegn þagnarskylduákvæðum
bankalaga þegar hann ásamt Fjölmiðla-
félaginu tók þátt í því að búa til yfirlýsingu
um yfirtöku á lánum Norðurljósa hjá bank-
anum. Fjármálaeftirlitið hefur einnig kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Búnaðarbankinn
hafi brotið gegn heilbrigðum og eðlilegum
viðskiptaháttum í fjármálastarfsemi, sam-
kvæmt skilningi laga, með þátttöku í við-
ræðum um ráðagerðir Fjölmiðlafélagsins
um yfirtöku á Norðurljósum.
Kært til ríkislögreglustjóra
Fjármálaeftirlitið varð ekki við kröfu
Norðurljósa um að greina ríkislögreglu-
stjóra frá niðurstöðum sínum að aflokinni
rannsókn.
Ragnar Birgisson, aðstoðarforstjóri
Norðurljósa, segir að málið verði kært til
ríkislögreglustjóra. Bankastjórar Búnaðar-
bankans, Árni Tómasson og Sólon Sigurðs-
son, segjast hins vegar vera ósammála nið-
urstöðu FME en að bankinn muni
gaumgæfa þær athugasemdir sem FME
gerir við starfsaðferðir, verkferla og verk-
lagsreglur bankans. Tryggt verði að hlutir
af þessu tagi endurtaki sig ekki.
Búnaðar-
bankinn
braut
bankalög
Tók þátt/14
DELOITTE & Touche (D&T) end-
urskoðunarfyrirtækið hefur í svari
við fyrirspurn Jóns G. Tómasson-
ar, stjórnarformanns SPRON, að-
lagað verðmat sitt á Frjálsa fjár-
festingarbankanum (FFB) frá því í
desember síðastliðnum að forsend-
um sem byggðar eru á rauntölum
staðfests ársreiknings bankans
fyrir árið 2002 og með hliðsjón af
rekstraráætlun fyrir árið 2003.
Niðurstaða verðmatsins er sú að
verðmæti Frjálsa fjárfestingar-
bankans sé á bilinu 3,5 til 4,1 millj-
arður kr. og er það 1,1 til 1,2 millj-
arða króna hærra en niðurstaða
verðmatsins á FFB frá því í des-
ember sl. en það var 2,4 til 2,9 millj-
arðar kr.
Kaupverð á miðju verðbili
Kaup SPRON á FFB af Kaup-
þingi banka hafa sætt gagnrýni að
undanförnu en kaupverð bankans
var 3,8 milljarðar kr. Er sú upp-
hæð á miðju verðbilsins samkvæmt
þessari niðurstöðu D&T.
Stjórnarformaður SPRON lagði
fjórar spurningar fyrir endurskoð-
unarfyrirtækið og óskaði eftir mati
á því hvaða áhrif rauntölur stað-
fests ársreiknings fyrir síðasta ár
og áætlun fyrir árið 2003 hefðu á
verðmatið á bankanum í stað áætl-
ana sem gengið var út frá í for-
sendum verðmatsins í desember sl.
Í bréfi Jóns til D&T segir m.a: „Í
verðmati Deloitte & Touche hf., 27.
desember 2002, á Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum hf. kemur fram á
bls. 10, að sá vaxtamunur sem
gengið er útfrá byggi á niðurstöð-
um, sem fram koma í 9 mánaða
uppgjöri bankans. Við nánari skoð-
un virðist útreikningur verðmats
ekki vera í samræmi við þessar for-
sendur sem leiðir til grundvallar-
skekkju í niðurstöðu verðmatsins.“
Í svarbréfi Birgis Finnbogason-
ar fyrir hönd D&T, sem birt er í
Morgunblaðinu í dag, segir m.a. að
nákvæmni verðmats á fyrirtækjum
byggist ávallt á áreiðanleika þeirra
upplýsinga sem liggja fyrir á
hverjum tíma og mati á forsendum
um ytri aðstæður og innri gerð fyr-
irtækja.
Verðmæti bankans 3,5 til 4,1
milljarður króna
Í niðurlagi bréfs D&T segir:
„Með því að taka saman niðurstöðu
af svörum við spurningunum og
laga forsendur verðmatsins að
áætlun FFB um þjónustutekjur er
verðmat okkar á FFB 3.506,7 millj-
ónir króna miðað við að vaxtamun-
ur lækki úr 4,4% árið 2003 í 3,2%
árið 2007. Sé hins vegar gert ráð
fyrir því að vaxtamunurinn fari
ekki niður fyrir 3,5% árið 2007
væri verðmæti FFB 4.080,4 millj-
ónir króna.
Miðað við þær forsendur sem
hér hafa verið raktar er verðmæti
FFB 3,5–4,1 milljarður króna.“
Deloitte & Touche um virði Frjálsa fjárfestingarbankans í bréfi til SPRON
Verðmat bankans hækk-
ar um rúman milljarð
Verðmat/12
Morgunblaði/Árni Sæberg
SPRON keypti Frjálsa fjárfestingarbankann af Kaupþingi banka á 3,8
milljarða kr. Í bréfi D&T er virði bankans metið á 3,5–4,1 milljarð.
BORGARBÚAR hafa margir orðið varir við fækk-
un á dúfum í miðborginni. Meindýraeyðir Reykja-
víkurborgar, Guðmundur Björnsson, segir að ekki
séu viðhafðar aðgerðir til að halda dúfum í skefj-
um á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir aðeins
brugðist við sé um kvartanir íbúanna að ræða.
Berglindi Ágústsdóttur, dýrahirði í Hús-
dýragarðinum, finnst ekki skrýtið að dúfum hafi
fækkað í miðborginni þar sem þær leiti í auknum
mæli í Húsdýragarðinn í fæði. Dýrahirðar í garð-
inum fæða fuglana þar og því sækja dúfurnar
þangað og segir Berglind að ekki sé reynt að
halda þeim frá. Að hennar mati eru dúfur í borg-
inni ekki of fáar.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir
fjölda dúfna svipaðan og undanfarin ár. Hann hef-
ur ánægju af þeim litla dúfnastofni sem er við
Tjörnina. Hann bendir á að dúfan sé aðkomufugl í
Reykjavík og segist ekki vita til þess að þær beri
með sér sjúkdóma. Fjölgi þeim hins vegar of mikið
geti þó fylgt þeim sóðaskapur. Hann segist mundu
sakna þeirra hyrfu þær alfarið af Tjarnarsvæðinu.
Halldór Guðbjörnsson er í Bréfdúfufélagi Ís-
lands og hefur haft dúfur síðastliðin 50 ár. Hann
segist sakna þess að sjá ekki jafn mikið af dúfu og
áður fyrr.
Hann segir menninguna hafa breyst. Áður fyrr
hafi verið hægt að finna dúfnakofa um alla borg
en nú leiki börn sér í öðrum leikjum. „Ég fer ein-
stöku sinnum niður að Tjörn að fylgjast með dúf-
um og þar er sem betur fer svolítið af þeim,“ segir
Halldór. Hann bætir því við að of mikið hafi verið
af dúfum hér á árum áður og því taki fólk eftir
fækkun nú.
Morgunblaðið/Kristinn
Fleiri dúfur leita ætis
í Húsdýragarðinum
NEFND Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnu-
lífsins sem fjallar um mat á
samningsforsendum kjara-
samninga skilaði niðurstöðu
sinni í gær, að lokinni árlegri
yfirferð sem kveðið er á um í
kjarasamningum. Er niður-
staðan sú að samningsfor-
sendur hafi staðist.
Skv. ákvæðum í flestum
kjarasamningum á almenna
vinnumarkaðinum leggur
endurskoðunarnefnd samn-
ingsaðila mat á hvort sú for-
senda sem samningarnir
hvíla á, að verðbólga hafi farið
minnkandi, hafi staðist. Hafi
hún brugðist er launaliður
samninganna uppsegjanlegur
með þriggja mánaða fyrir-
vara.
Verðbólga var 1,5%
síðustu 12 mánuði
„Verðbólgan var 1,5% síð-
ustu 12 mánuði og 2,3% síð-
ustu 6 mánuði. Er verðbólga
því á báða þessa mælikvarða
vel innan þeirra markmiða
sem samningsaðilar settu sér.
Nefndin skal jafnframt
fara yfir og meta til kostnaðar
þá samninga sem gerðir hafa
verið á samningssviði aðila
frá síðustu skoðun. Í ljósi
þess að engir kjarasamningar
hafa verið gerðir á umræddu
tímabili reynir ekki á þetta
ákvæði.
Samningsforsendur hafa
því staðist og er því ekki
heimild til uppsagnar launa-
liðar samninganna,“ segir í
greinargerð með niðurstöð-
unni.
Nefnd ASÍ og SA
Samnings-
forsendur
hafa staðist
DÆMI eru um að fólk hafi beðið í fjög-
ur ár eftir píanókennslu hér á landi.
Þetta kemur fram í viðtali í Lesbók við
Þorstein Gauta Sigurðsson, sem ný-
verið setti á laggirnar píanóskóla.
„Það er gríðarlegur áhugi á píanó-
námi,“ segir Þorsteinn. „Ég er með
nemendur sem eru byrjendur, sem eru
lengra komnir og svo fullorðið fólk
sem hefur lært á píanó en vill koma sér
í betri æfingu. Sem dæmi um áhugann,
þá er ég með nemendur sem hafa verið
í allt að fjögur ár á biðlista eftir að
komast inn í tónlistarskóla.“
Fjögurra ára
bið eftir
píanókennslu
Prelúdíur/Lesbók 16
BALDUR Ragnarsson,
fyrrverandi mennta-
skólakennari, hefur
þýtt Njáls sögu á esper-
anto og kemur þýðingin
út hjá belgísku forlagi
næsta sumar. Þýðing
Baldurs á Snorra-Eddu
er í handriti og um þess-
ar mundir er hann að
ljúka við þýðingu á
Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness.
Baldur segir gott að þýða fornsögurnar
á esperanto. „Hinn hreini tónn er svo tær í
málinu. Það er hægt að komast mjög
knappt að orði í því. Sem dæmi mætti
nefna orð Gunnars á Hlíðarenda: Fögur er
hlíðin. Í ensku Penguin-útgáfunni er þetta
þýtt „How lovely the slopes are“ sem mér
finnst dálítið flatt. Ég þýði þetta knappt
eins og íslenskan er: Belas la deklivo.“
Njála gefin út á esperanto
„Belas la deklivo“
Belas/Lesbók 7
Baldur Ragnarsson