Morgunblaðið - 10.03.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 10. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
30 MANNS BJARGAÐ
Allt að 30 manns var bjargað úr
ofsaveðri á Hellisheiði í gær og
sextán bifreiðir lentu í árekstri.
Þrír voru fluttir á slysadeild Land-
spítalans, en meiðsli þeirra voru
ekki alvarleg.
Loftleiðir hefja leiguflug
Félag, sem sér um leiguflug á
vegum Flugleiða, fær nafn Loft-
leiða í dag. 59 ár eru liðin frá
stofnun Loftleiða, annars af tveim-
ur félögum sem Flugleiðir urðu til
úr árið 1973.
Ráðherra hótar afsögn
Clare Short, ráðherra þróun-
araðstoðar í bresku stjórninni, seg-
ist ætla að segja af sér ef stjórnin
ákveður að hefja hernað í Írak án
stuðnings öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Búist er við að allt að
tíu aðstoðarmenn ráðherra á
breska þinginu fari að dæmi henn-
ar.
Aðild að ESB samþykkt
Aðild Möltu að Evrópusamband-
inu var samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu með 53,6% greiddra at-
kvæða. Landið á að fá aðild að
sambandinu í maí á næsta ári.
Sjóðurinn greiði orlofslaun
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að Fæðingarorlofssjóði
beri að greiða foreldrum orlofslaun
vegna þess tíma sem þeir eru í
fæðingarorlofi og njóta greiðslna
úr sjóðnum. Jóhanna Sigurð-
ardóttir alþingismaður segir líklegt
að foreldrar, sem höfðu rétt til
fæðingarorlofs frá árinu 2000 til
dagsins í dag, eigi kröfu á hendur
sjóðnum sem nemur 1.200 millj-
ónum króna.
Hyggst tvöfalda fylgið
Guðjón A. Kristjánsson, nýkjör-
inn formaður Frjálslynda flokks-
ins, segir flokkinn stefna að því að
tvöfalda fylgi sitt og fá 8% at-
kvæða í komandi þingkosningum.
Samið verði við Norðurál
Stjórn Landsvirkjunar hefur
samþykkt að ganga til samninga
við Norðurál vegna stækkunar ál-
versins á Grundartanga um 90.000
tonn. Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir hugsanlegt
að nú séu að hefjast virkj-
unarframkvæmdir sem standi lát-
laust frá árinu 2003 til 2009.
2003 MÁNUDAGUR 10. MARS BLAÐ B
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VALA SETTI ÍSLANDSMET Í FIMMTARÞRAUT /B12
HERMANN Hreiðarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, verður frá
æfingum og keppni næstu vikurnar
að sögn lækna Ipswich-liðsins en
hann meiddist á hné og var borinn
af leikvelli í fyrri hálfleik í leik Ips-
wich og Stoke á laugardaginn.
Þar með lítur allt út fyrir að Her-
mann geti ekki leikið með íslenska
landsliðinu á móti Skotum á Hamp-
den Park 29. þessa mánaðar líkt.
Hermann lenti í samstuði við Ser-
gei Shtaniuk með þeim afleiðingum
að takkar á skó Hvít-Rússans
stungust inn í fót Hermanns rétt
fyrir ofan hné og opnaðist stór
skurður á fæti Hermanns. Hann var
þegar fluttur á sjúkrahús þar sem
hann gekkst undir aðgerð og
sauma þurfti til að loka sárinu auk
þess sem vöðvi skaddaðist í hnénu.
„Það tekur að minnsta kosti tíu
daga fyrir saumana að gróa og svo
verður maður bara að bíða og sjá.
Eins og ég er í dag líst mér ekki vel
á að ég geti leikið á móti Skotum en
ég verð bara að vona það besta,“
sagði Hermann við Morgunblaðið.
Hermann
varla með
gegn Skotum
Aston Villa er með Jóhannes í láni
frá spænska liðinu Real Betis og
hefur Taylor sagt að hann hafi
áhuga á að semja til frambúðar við
íslenska landsliðsmanninn að því til-
skildu að hann sjái ekki fleiri slík
brot og þegar Jóhannes braut á
Matthew Upson.
„Svona brot eiga ekki að sjást á
knattspyrnuvellinum eins og Joey
gerði sig sekan um og líkt og Dion
Dublin hefur hann
enga afsökun fyrir
því sem hann gerði.
En kringumstæður
Joey eru allt öðru-
vísi. Hann er 11 árum
yngri en Dublin, er í
láni hjá okkur og er
að reyna að fá samn-
ing við Aston Villa.
Ég veit að hann er
harður í horn að taka
og vill tækla en hon-
um hefur verið sagt
það skýrt að hann
geri ekkert gagn fyr-
ir liðið ef hann lætur
Jóhannes Karl fékk sem kunnugter að fjúka útaf í grannaslagn-
um í síðustu viku en leikurinn átti
lítið skylt við knattspyrnu og var fé-
lögum til vansa bæði innan sem utan
vallar. Jóhannes fékk að líta tvö gul
spjöld og þurfti því að fara af leik-
velli en tæklingin sem varð til þess
að dómarinn vísaði Jóhannsi í bað
var ákaflega ljót og verskuldaði
beint rautt spjald.
reka sig útaf. Þetta
verður Joey að skilja
ef hann ætlar að eiga
framtíð hjá félaginu.
Við höfum fengið
þrjú rauð spjöld á
leiktíðinni og Joey á
eitt þeirra en hann
hefur aðeins spilað
fimm leiki. Hann hef-
ur fengið skýr skila-
boð frá okkur og þau
eru að bæta fram-
komuna ef hann ætl-
ar að tryggja það að
fá samning við Villa,“
segir Taylor.
Taylor aðvarar Jóhannes
GRAHAM Taylor knattspyrnustjóri Aston Villa hefur varað Jóhannes
Karl Guðjónsson við. „Ef þú hagar þér aftur eins og þú gerðir í
leiknum við Birmingham þá átt þú enga framtíð hjá Aston Villa,“ eru
skilaboðin sem Jóhannes Karl hefur fengið hjá stjóranum og greint
er frá á heimasíðu Aston Villa.
Jóhannes Karl
Guðjónsson
Morgunblaðið/Golli
ÍA hafði betur á KR, 2:0, í Deildabikarkeppni KSÍ í knattspyrnu í Egilshöllinni í gærkvöldi. Skaga-
maðurinn Unnar Valgeirsson er hér með knöttinn en KR-ingurinn Garðar Jóhannsson er til varnar.
RÚNAR Alexandersson, fim-
leikamaður úr Gerplu, vann til
tvennra verðlauna á fimleikamóti
sem fram fór í Kaupmannahöfn um
helgina en Rúnar keppti þar í
tveimur greinum. Rúnar vann gull
fyrir æfingar á bogahesti en hann
og Svíinn Michael Hjort deildu gull-
inu en báðir hlutu þeir 8,6 í ein-
kunn. Þá fékk Rúnar brons-
verðlaun fyrir æfingar á hringjum
en hann fékk einkunnina 8,8.
Rúnar hlaut
gull og brons
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 21/23
Viðskipti 11/12 Bréf 26/27
Erlent 12/13 Dagbók 28/29
Listir 14/15 Leikhús 30
Umræðan 16/17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Miðopna 18/19 Ljósvakar 34
Neytendur 25 Veður 35
* * *
RÚÐUR brotnuðu og fjarskipta- og siglingatæki
skemmdust um borð í íslenskum rækjuveiðiskip-
um í ofsaveðri á Flæmingjagrunni eða Flæmska
hattinum á laugardag. Engin meiðsl urðu á fólki.
Nokkur íslensk skip eru við veiðar á svæðinu en
þrjú þeirra fengu á sig brotsjó með fyrrgreindum
afleiðingum. Skipin voru nýkomin á miðin þegar
óveðrið skall á. Þegar verst lét var vindhraðinn yf-
ir 40 metrar á sekúndu. Um borð í Eyborginni,
sem útgerðarfélagið Borg í Hrísey gerir út, brotn-
aði rúða og sjór komst að fjarskiptabúnaði með
þeim afleiðingum að skipið var aðeins í fjarskipta-
sambandi við nálæg skip og hafnir. Sjór flæddi um
brúna og niður í vistarverur. Um borð í skipinu
Merike skemmdust ratsjártæki vegna sjós þegar
rúða brotnaði svo fylgja þurfti skipinu til hafnar í
St. John’s á Nýfundnalandi þar sem gert verður
við búnaðinn. Er skipið væntanlegt til hafnar í
kvöld. Um borð í Lóminum urðu minniháttar
skemmdir utandyra af völdum brotsins en skipið
gat líkt og Eyborgin haldið áfram veiðum. Páll
Kristjánsson skipstjóri segir veðrið ekki áður hafa
verið svona svakalegt en vindhraðinn hafi ekki far-
ið undir þrjátíu metra á sekúndu í meira en sólar-
hring. „Þá er ekkert annað að gera en keyra und-
an veðrinu. Það er mjög mikill veltingur þegar
veðrið er svona slæmt.“
Skipin þrjú, líkt og fleiri íslensk rækjuveiðiskip
á Flæmska hattinum, eru skráð í Eystrasaltslönd-
unum og eru flestir í áhöfnum þeirra útlendingar,
fyrir utan skipstjóra, vélstjóra og stýrimenn. Tvö
íslensku skipanna á Flæmska hattinum sigla undir
íslensku flaggi, Pétur Jónsson og Sunna. „Ég hef
einu sinni lent í svona veðri hérna áður,“ sagði
Pétur Stefánsson, skipstjóri á Pétri Jónssyni, á
Flæmska hattinum í gær. Skipverjar sluppu með
skrekkinn í veðrinu um helgina.
„Þá var það fellibylur sem kom hér haustið
1999. En þetta er ekki algengt á þessum árstíma.
Um mánaðamótin febrúar/mars gerði líka af-
spyrnu veður hérna og þá var ekki veiðiveður í
fjóra daga og það hefur ekki gerst síðan við byrj-
uðum að veiða hérna. Það hafa komið undanfarið
mjög hörð veður, aftakaveður.“
Pétur segir að veðrið hafi verið svipað og veð-
urspár höfðu gert ráð fyrir. „Þetta var viðbúið,
lægðin var þannig. Veðrið byrjaði á föstudags-
morgun. Þetta var fárviðri þegar verst lét, 14–16
vindstig og mikið hafrót. Það er nú ekki hlaupið að
því að fara í land, það eru 300 sjómílur í land svo
menn verða bara að reyna að halda skipunum til
eins og best er.“
Á Pétri Jónssyni eru 20 manns í áhöfn, allt Ís-
lendingar. „Það eru ekki mörg skip á miðunum
núna, fjögur eða fimm önnur íslensk skip við
rækjuveiðar svo þetta er afskaplega rólegt. En
það er góður afli ef vel viðrar.“ Þegar Morgun-
blaðið ræddi við Pétur í gærkvöldi var ennþá leið-
indaveður á miðunum, vindhraðinn um 19 metrar
á sekúndu.
Engin meiðsli er þrjú íslensk
rækjuskip fengu á sig brotsjó
TIL greina kemur að byggja hótel
við veitingastaðinn Naustið á Vest-
urgötu sem myndi tengjast starf-
semi veitingastaðarins. Hótelið yrði
byggt Tryggvagötumegin við Naust-
ið.
Að sögn Karls J. Steingrímssonar,
eiganda Naustsins, er þetta ein af
þeim hugmyndum sem í athugun eru
í tengslum við framtíð reitsins. Eins
og greint var frá í Morgunblaðinu í
liðinni viku er deiliskipulagstillaga
fyrir svokallaðan Naustareit, sem af-
markast af Grófinni, Vesturgötu,
Norðurstíg og Tryggvagötu, í kynn-
ingu hjá skipulagsyfirvöldum. Karl
er eigandi húsa við Vesturgötu 6, 8,
10 og 10a.
Samkvæmt deiliskipulagstillög-
unni yrði heimilt að byggja 3–6 hæða
nýbyggingu Tryggvagötumegin á
lóðinni og einnar hæðar tengibygg-
ingu með flötu manngengu þaki milli
Vesturgötuhúsanna og nýbygging-
arinnar. Þá er lagt til að syðsti hluti
lóðarinnar verði borgarstígur.
Morgunblaðið/Kristinn
Á þessu módellíkani sem unnið er af Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur sést
hvar búið er að setja turn á hornhúsið, Vesturgötu 4, svo hægt sé að nýta
þakið til útivistar. Húsið fyrir miðju, Tryggvagötumegin, er hugmynd að
listagalleríi. Húsið á bak við Naustið gæti nýst sem hótelbygging.
Hótel við Naustið?
FJÖRUGT var í Boganum, hinu
nýja fjölnota íþróttahúsi Akureyr-
inga, um helgina þegar Þórsarar
héldu þar fyrsta Goðamót sitt í
knattspyrnu. Gott var að vera í
skjóli fyrir veðri og vindum, sér-
staklega í gær þegar kalt var og
hvasst á Akureyri, en innandyra
sýndu keppendur skemmtileg til-
þrif.
Þar voru samankomnir 280
drengir í 5. aldursflokki úr tólf fé-
lögum, ÍR úr Reykjavík, Hvöt frá
Blönduósi, Tindastóli frá Sauð-
árkróki, Leiftri frá Ólafsfirði, Dal-
vík, KS frá Siglufirði, Hetti frá Eg-
ilsstöðum, Þrótti Neskaupstað,
Völsungi á Húsavík, Magna frá
Grenivík og Akureyrarfélögunum
KA og Þór.
Knattspyrnumót sem þetta hafa
verið afar vinsæl að sumarlagi en
þetta mun fyrsta mótið á landsvísu
sem haldið er með þessum hætti í
einhverju af nýju fjölnotahúsunum
sem risið hafa á síðustu árum.
Haft var á orði að Þórsarar
hefðu ekki verið sérlega gestrisnir,
því þeir gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu í keppni A-, B-, C- og D-
liða – hirtu sem sagt þau gull-
verðlaun sem keppt var um.
Það sem skipti mestu máli var
að allir skemmtu sér vel og góður
rómur var gerður að mótinu, sem
ætlað er að verði haldið árlega
héðan í frá. Þórsarar halda reynd-
ar samskonar mót fyrir 6. aldurs-
flokk drengja eftir þrjár vikur á
sama stað og stúlknamót bætist við
á næsta ári.
Meðal þess sem gert var til
skemmtunar fyrir strákana sem
tóku þátt í knattspyrnumótinu var
að sýna þeim hið merka Nonnahús,
þar sem Jón Sveinssson rithöf-
undur bjó á sínum tíma. Hann er
sem kunnugt er höfundur sagn-
anna um Nonna og Manna. Nokkr-
ir leikmanna KS frá Siglufirði
heilsuðu upp á Nonna, sem var
frekar fámáll en brosti þó í kamp-
inn, enda strákarnir fullir orku og
lífsgleði.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gleði í Boganum