Morgunblaðið - 14.03.2003, Page 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MARGIR óttast að morðið á Zoran
Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, á
miðvikudag valdi óróa á Balkanskag-
anum öllum, þar sem menn bárust á
banaspjót allan síðasta áratug. Er
m.a. talin hætta á að dragi úr fjárfest-
ingum erlendra aðila í Serbíu enda
pólitískt óvissuástand komið upp í
kjölfar brotthvarfs Djindjic, sem hef-
ur verið einn helsti baráttumaðurinn
fyrir pólitískum og efnahagslegum
umbótum í landinu.
Ekki er enn vitað með vissu hverjir
stóðu að baki tilræðinu en stjórnvöld
hafa sakað hóp sem Milorad nokkur
Lukovic fer fyrir um að bera ábyrgð á
morðinu. Er Lukovics og ýmissa
bandamanna hans nú leitað.
Stjórnvöld lýstu yfir neyðarástandi
í kjölfar tilræðisins og höfðu lögregla
og her Serbíu mikinn viðbúnað í gær.
Neyðarástandið þýðir að ýmsum
borgaralegum réttindum eru settar
skorður tímabundið, og m.a. hafa yf-
irvöld farið fram á það við útgefendur
dagblaða að þau birti ekki annað en
það sem frá stjórnvöldum kemur um
þennan verknað.
Morðið á Djindjic þýðir að Serbíu
vantar bæði forsætisráðherra og for-
seta, en tilraunir til að kjósa nýjan
forseta fóru út um þúfur fyrir jól
vegna dræmrar kjörsóknar.
Var talið líklegt í gær að Nebojsa
Covic varaforsætisráðherra settist í
stól Djindjic fyrst um sinn.
Getgátur voru hins vegar uppi um
það hver fyllir skarð Djindjic í serb-
neskum stjórnmálum þegar til lengri
tíma er litið. Þar er Vojislav Kost-
unica, síðasti forseti Júgóslavíu,
nefndur til sögunnar en hann hefur
verið án embættis síðan Júgóslavía
lognaðist út af og til varð lauslega
tengt sambandsríki Serbíu og Svart-
fjallalands.
Kostunica nýtur þó ekki meiri hylli
en svo að honum mistókst að tryggja
sér kosningu sem forseti Serbíu fyrir
jól, sem fyrr segir.
Skotinn af 200 metra færi?
Serbneska dagblaðið Politika sagði
í gær að fleiri en einn byssumaður
hefðu komið að tilræðinu gegn
Djindjic. Fullyrti blaðið að forsætis-
ráðherrann hefði verið skotinn í bæði
brjóst og maga og að byssumennirnir
hefðu verið í um 200 metra fjarlægð,
á annarri hæð byggingar í nágrenni
stjórnarráðsins.
Varaforsætisráðherrann Zarko
Korac sagði að nokkrir hefðu verið
handteknir í tengslum við morðið á
Djindjic en ekki er þó vitað um tengsl
fólksins við ódæðið. Hafa ráðamenn
sakað hóp sem Milorad Lukovic fer
fyrir, betur þekktur undir viðurnefn-
inu Legija, um að bera ábyrgð á
morðinu. Lukovic er fyrrverandi for-
ingi í sérsveit serbnesku lögreglunn-
ar og var hann á sínum tíma afar
ósáttur við þá ákvörðun Djindjic að
framselja Slobodan Milosevic, fyrr-
verandi forseta Júgóslavíu, til stríðs-
glæpadómstólsins í Haag.
Karac lýsti morðinu á Djindjic sem
„stríðsyfirlýsingu“ gegn valdhöfum í
landinu. „Morðið á Zoran Djindjic,
forsætisráðherra Serbíu, var tilraun
þessa hóps til að stöðva baráttu
stjórnvalda gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi,“ sagði í yfirlýsingu stjórn-
valda í fyrradag.
Kostunica, sem eldað hafði grátt
silfur við Djindjic undanfarin misseri,
sagði morðið á forsætisráðherranum
aftur móti „hrikalega áminningu“ um
að ekki hefðu verið stigin nægilega
mörg skref í átt að raunverulegu lýð-
ræði í Serbíu.
Tengsl við mafíuna?
Fyrir einungis þremur vikum var
gerð önnur tilraun til að ráða Djindjic
af dögum og var hún sögð til marks
um að undirheimaöflin, sem verið
hafa afar áhrifamikil í Serbíu, kynnu
yfirlýsingum Djindjic, um að ráðast
gegn yfirráðum þeirra, illa. Er fullyrt
í nýlegri fréttaskýringu rannsóknar-
stofnunarinnar Institute for War and
Peace Reporting (www.iwpr.net) að
margir íbúar Serbíu telji mafíuna
orðna svo valdamikla í landinu að hún
ráði í raun meiru en stjórnvöld.
Hafði Djindjic fram að þessu lítt
orðið ágengt í þeirri viðleitni sinni að
ráða niðurlögum skipulagðrar glæpa-
starfsemi í Serbíu. Raunar höfðu
heyrst sögusagnir um að Djindjic
hefði sjálfur mafíutengsl og stuðlaði
þetta m.a. að því hversu óvinsæll
hann var meðal almennings, að sögn
BBC. Engar sannanir eru þó fyrir
slíkum sögusögnum og eftir stendur
fyrst og fremst að það var Djindjic
sem hvað helst beitti sér fyrir póli-
tískum og efnahagslegum umbótum
og að það var hann sem framseldi
Milosevic til stríðsglæpadómstólsins í
Haag, m.a. í því skyni að bæta ímynd
landsins meðal leiðtoga Vesturveld-
anna – nokkuð sem var bráðnauðsyn-
legt ef Serbía átti að tryggja sér þá
efnahagsaðstoð sem sárlega vantaði.
Óttast pólitísk-
ar afleiðingar
morðsins
Morðingja Zorans Djindjic,
forsætisráðherra Serbíu, enn leitað
Belgrad. AFP.
FJÖLDI Serba lagði í gær blóm og
kransa á þann stað í miðborg Bel-
grad þar sem Zoran Djindjic, for-
sætisráðherra landsins, var skotinn
til bana á miðvikudag. Minningar-
athöfn um Djindjic var haldin í þing-
húsinu í Belgrad um miðjan dag í
gær og þjóðarsorg ríkir nú í Serbíu.
Útför Djindjic verður haldin á morg-
un, laugardag.
Serbnesk dagblöð fordæmdu
morðið á Djindjic í gær og sögðu það
árás á lýðræði og stöðugleika í land-
inu. Í Kosovo sagði hins vegar eitt
helsta blað Kosovo-Albana, Koha
Ditore, að morðið steypti Serbíu aft-
ur inn í myrkrið, sem hefði einkennt
landið á síðasta áratug.
Reuters
Þjóðarsorg í Serbíu
EKKI kunnu allir Serbar að meta
Zoran Djindjic forsætisráðherra,
sem myrtur var í Belgrad í fyrra-
dag, en hann er þó flestum harm-
dauði. Venjulegt fólk gerir sér
grein fyrir því að hann vildi snúa
við blaðinu og stuðla að umbótum í
Serbíu. Þetta segir Boban Acim-
ovic, Serbi sem búsettur er í bænum
Pozarevac, skammt frá Belgrad.
Asimovic bjó um árabil á Íslandi en
sinnir nú fjarvinnsluverkefnum fyr-
ir Morgunblaðið frá heimili sínu í
Serbíu.
Boban segist sjálfur afar sleginn
yfir þessum atburði. „Djindjic var
óvinsæll meðal tiltekinna hópa en
margir kunnu vel við hann. Hann
stóð fyrir breytingum í friðarátt og
á efnahag landsins og ég myndi
segja að margt yngra fólk hefði
kunnað vel að meta hann.“
Tekur Boban undir að það sé
mikið áfall þegar forsætisráðherra
lands sé myrtur um miðjan dag í
höfuðborginni. Hann vill þó ekki
meina að menn túlki þetta sem aft-
urhvarf til gömlu daganna, þegar
Balkanskaginn ólgaði í ófriði.
„Þetta veldur hins vegar óróleika
hjá fólki. Það spyr sig hvað geti eig-
inlega gerst ef hægt er að myrða
sjálfan forsætisráðherrann með
þessum hætti.“
„Þegar ég heyrði um þetta í gær
[í fyrradag] kveikti ég á sjónvarp-
inu. Ég trúði því einfaldlega ekki að
þetta væri satt. Í um klukkustund
var ekki greint frá því að hann
hefði dáið en svo fluttu CNN og
BBC World Service fréttir þar að
lútandi. Ég átti erfitt með að trúa
þeim, taldi upplýsingar þeirra
hljóta að vera rangar en síðan
fékkst staðfest að hann hefði dáið.
Samt vildi ég eiginilega ekki trúa
þessu.“
Boban segir viðbrögð margra
með þessum hætti. „Jafnvel þeir
sem ekki voru aðdáendur Djindjic
átta sig á því að þessi maður átti tvö
ung börn, sem nú eru föðurlaus. Þó
að menn væru kannski óánægðir
með störf hans þá vildu þeir honum
ekki svona illt.“
Boban segist ekki átta sig á hver
sé líklegastur til að hafa skipulagt
morðið á Djindjic en talið er hugs-
anlegt að undirheimaöfl í serb-
nesku þjóðlífi hafi staðið fyrir því.
Boban vill þó ekki gera of mikið úr
umfangi mafíustarfsemi í landinu.
„Þessi mafía er sögð félagsskapur
um 200 manna, og svo eru kannski
eitt þúsund í viðbót sem tengjast
þeim. Serbar eru hins vegar 10
milljóna þjóð og flestir eru mót-
fallnir mafíuveldinu. Flestir vinna
fyrir sér á heiðvirðan hátt, þó að
launin hrökkvi oft skammt. Djindjic
var kannski ekki vinsæll meðal
fólks en hann barðist þó gegn áhrif-
um mafíunnar og vildi snúa baki við
pólitískum ósiðum fortíðarinnar.“
„Vildi eig-
inlega ekki
trúa þessu“
Morgunblaðið/RAX
Boban á mynd sem tekin var í október 2000 um það leyti sem Slobodan
Milosevic hrökklaðist frá völdum í Júgóslavíu.