Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 53
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 8.
KRINGLAN / AKUREYRI
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.10. / Sýnd kl. 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
SV MBL
RADIO X
KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.40. / Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI
Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 4 og 6. / Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRIKEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.10.
Sýnd kl. 5.50 og 8.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Lækkað verð! Miðaverð kr. 750.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 4 ísl. tal. / Sýnd kl. 4 ísl.tal
Þetta var hinn fullkomni glæpur
þar til hún neitaði að vera
hið fullkomna fórnarlamb.
KEVIN BACON
CHARLISE THERON
ÁLFABAKKI
1/2 H.L. Mbl.
H.K. DV Radíó X
1/2 Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 14.
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
15.03. 2003
7
4 4 0 0 5
4 0 0 6 0
20 27 34 37
32
12.03. 2003
5 7 11
13 32 39
25 28
Fjórfaldur 1. vinningur
í næstu viku
1. vinningur var seldur í
Danmörku (1) og
Noregi (2)
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
(Jennifer Lopez), herbergisþerna á
glæsihóteli á Manhattan í New York
sem leggur sig fram í starfi sínu, en
nær þó rétt að framfleyta sér og 10
ára gömlum syni sínum, en þau búa í
lítilli íbúð í Bronx-hverfinu. Þegar
hún bregður sér í óleyfi í rándýr
tískuföt af einum hótelgestanna,
verður hún einfaldlega að þeirri
prinsessu sem hún er undir niðri og
prinsinn fellur fyrir henni. Umrædd-
ur prins er hin góðlegi og myndarlegi
Christopher Marshall (Ralph Fienn-
es), þingframbjóðandi Rebúblikana-
flokksins, sem hefur komið sér upp
bækistöðvum fyrir kosningabaráttu
sína í hótelinu. Sá er að feta í fótspor
föður síns með því að fara út í pólitík
en undir niðri þráir hann ævintýrin í
lífinu, og fellur því fyrir Marisu sem
hann telur vera efnaða framakonu
með dularfulla fortíð.
Við tekur ferli sem kallast á við
Öskuævintýrið á margan hátt, Mar-
isa fær t.d. lánuð prinsessuföt til að
fara á ballið með prinsinum í gegnum
góðu hjálparkokkana sem vinna með
henni á glæsihótelinu, og þarf iðulega
að rjúka burt áður en prinsinn fær
nokkuð að vita um fátæklegan bak-
grunn hennar. Í þjóðfélagslegu sam-
hengi eru nútímaöskubuskan og
prinsinn algjörar andstæður, Christ-
opher er hvítur karlmaður sem til-
heyrir ráðandi stétt samfélagsins, og
kemur úr íhaldsamri fjölskyldu. Mar-
isa er hins vegar kona af minnihluta-
uppruna (frá rómönsku Ameríku) og
tilheyrir hinni stritandi lágstétt. Unn-
ið er með þessar andstæður á
skemmtilegan hátt í myndinni og lögð
er talsverð alúð við að byggja upp
persónur og gæða lífi þann heim sem
ævintýrið gerist í. Hinir ómótstæði-
MANHATTANMÆR er dæmigerð
Hollywood-afurð, skemmtileg róm-
antísk gamanmynd sem stenst tak-
markaða nærskoðun, en er gerð af
fólki sem kann til verka þegar kemur
að því að búa til góða afþreyingu. Það
er leikstjórinn Wayne Wang sem
stýrir skipinu, sá hefur átt betri daga
með kvikmyndum á borð við Reyk
(Smoke), Blá í framan (Blue in the
Face) og jafnvel Leik hlæjandi láns
(The Joy Luck Club), og þó svo að
Manhattanmær sé fremur metnaðar-
lítil afþreyingarkvikmynd, skín þar í
gegn ákveðin vandvirkni sem Wang
hefur til að bera. Sagan sem lagt er
upp með í þessari rómantísku gam-
anmynd er dæmigerð Öskubusku-
saga, sem færð er inn í nútímalegt og
(ef til vill til þess að bæta fyrir notk-
unina á þessu útjaskaða prinsessum-
inni) pólitískt rétthugsandi sam-
hengi.
Aðalsöguhetjan er Marisa Ventura
lega sjarmerandi leikarar, Jennifer
Lopez og Ralph Fiennes, eru vel valin
í aðalhlutverkin, þó svo að hvorugt
sýni gríðarleg tilþrif í hlutverkum
sínum, séu fyrst og fremst sæt og
elskuleg meðan aukaleikarar á borð
við Stanley Tucci, Bob Hoskins og
Natasha Richardson, sjá um fjörið.
Manhattanmær er haganlega
smíðuð rómantísk gamanmynd, sem
er auðvitað fyrst og fremst sígilt æv-
intýri (sem slagar út í hið banala á
köflum), en tekst að bæta þar við
slatta af sjarma og hefja sig upp yfir
það að vera berstrípuð prinsessu-
saga.
Öskubuska úr
Bronx-hverfinu
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Laugarásbíó, Borg-
arbíó Akureyri
Leikstjórn: Wayne Wang. Handrit: Kevin
Wade. Aðalhlutverk: Jennifer Lopez,
Ralph Fiennes, Tyler Posey, Natasha
Richardson, Marrissa Matrone, Stanley
Tucci, Bob Hoskins. Lengd: 105 mín.
Bandaríkin. Columbia Pictures, 2002.
MAID IN MANHATTAN / MANHATTANMÆR
Manhattanmærin Lopez fellur fyrir
stjórnmálamanninum Fiennes.
Heiða Jóhannsdóttir
AÐRA vikuna í röð trónir gam-
anmyndin Allt vitlaust (Bringing
Down The House) á toppi banda-
ríska bíólistans. Þótt aðsóknin á
myndina hafi dalað eitthvað er hún
enn langvinsælust og greinilegt að
kynþáttagrínið fellur vel í kramið
hjá Kananum.
Spekingar hafa ráðið úr vinsæld-
um myndarinnar að Óskars-
umræðan – sem nú er að ná al-
gleymingi – hafi hjálpað henni
töluvert. Aðalleikarar mynd-
arinnar Queen Latifah og Steve
Martin tengjast nefnilega komandi
Óskarsathöfn töluvert, Latifah er
tilnefnd til verðlauna sem besta
leikkona í aukahlutverki fyrir Chi-
cago, á meðan Martin verður kynn-
ir athafnarinnar. Þrjár myndanna
sem frumsýndar voru á föstudag
náðu inn á lista yfir þær tíu tekju-
hæstu. Bestum árangri náði Ungi
njósnarinn (Agent Cody Banks)
spennugrín ætlað unglingum með
Frankie Muniz úr sjónvarpsþátt-
unum vinsælu Malcholm í miðjunni
í aðalhlutverki.
Veiðin (The Hunting) nýjasta
spennumynd hins gamalreynda
Williams Friedkins (Frönsku
tengslin, Særingarmaðurinn) með
þeim Benicio Del Toro og Tommy
Lee Jones í aðalhlutverkum. Hér er
á ferð eltingaleikur í anda Flótta-
mannsins (The Fugitive) og fyrstu
Rambo-myndarinnar (First Blood).
Í myndinni er fyrrum hermaður
sem gengið hefur af göflunum (Del
Toro) hundeltur af gamla þjálf-
aranum sínum (Jones).
Þriðja nýja myndin sem nær inn
á topp tíu er svo hrollvekjan Will-
ard, endurgerð samnefndrar mynd
frá 1971, með Crispin Glover í aðal-
hlutverki en hann hefur vart sést
síðan hann sló í gegn sem nördaleg-
ur pabbi Marty McFly í Aftur til
framtíðar-myndunum.
Þessi fyrsta mynd leikstjórans
Glens Morgans hefur víða hlotið
fína dóma og er sögð rakin költ-
klassík. Glover þykir líka fæddur í
hlutverk sérvitrings sem auðveld-
ara á með samskipti við rottur en
menn.
Kynþáttagrínið
fellur í kramið
Frankie Muniz leikur nokkurs konar Bond með unglingabólur.
! " !
""#$
%#
&#%
'#'
(#(
)#'
$#'
$#
&#
&#
)#)
%#
&#%
&#'
"%#%
)#*
*&#*
$#
*)#
&#(
FÓLK Ífréttum
EMINEM hefur ráðið til sín tvífara
vegna hræðslu við að verða skotinn.
Sá er gegnir þessari miður eftirsóttu
stöðu heitir Particles og ferðast víst
um í eðalvagni og labbar um stræti
sem rappstjarnan heimsfræga.
Fleiri stjörnur hafa valið að fara
þessa sérstæðu leið til að vernda
einkahagina, þ.á m. Brad Pitt,
Jennifer Aniston, Britney
Spears og Shakira.
…
Jay Kay, söngvari Jamiroquai, lenti
í því á dögunum
að einum af bílum
hans var stolið og
hann notaður í
tveimur vopn-
uðum ránum.
Kay safnar bílum
en fór ógætilega
og gleymdi að
láta verja téðan
bíl, sem er af gerðinni Audi A4. Á
meðal bíltegunda í eigu Kay er m.a.
Bentley, Ferrari og Lamborghini.