Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 11 ÚTLENDINGASTOFNUN hefur vísað þremur af fjórum Pólverjum, sem í byrjun mars voru dæmdir fyrir innbrot, úr landi og út af Schengen-svæðinu og á laugardag sá ríkislögreglustjóri til þess að þeir færu til Póllands. Ekki hefur verið úrskurðað í máli fjórða mannsins, þess sem hlaut vægasta dóminn, en hann er eftirlýstur í heimalandi sínu fyrir nauðgun, inn- brot og fleira. Er hann því enn hér á landi. Mennirnir voru dæmdir fyrir að stela tveimur bifreiðum, innbrot í Staðarsveit og tilraun til innbrots í þjónustumiðstöðina Vegamót á Snæfellsnesi 1. desember 2002. Lögreglan í Borgarnesi hafði hend- ur í hári þeirra en þrír köstuðu sér út úr sendibifreið á flóttanum. Einn mannanna hlaut 30 daga skil- orðsbundið fangelsi, tveir fengu sex mánaði og einn fimm mánaði. Þegar mennirnir voru dæmdir höfðu þeir að mestu eða öllu leyti setið af sér refsinguna því þeir höfðu verið í gæsluvarðhaldi frá því þeir náðust. Jóhann Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri hjá Útlendingastofn- un, segir að stefnt sé að því að kveða upp úrskurð í máli mannsins í vikunni. Spurður um hvers vegna mál mannsins taki lengri tíma en hinna þriggja segir Jóhann að það helgist m.a. af því að hann hlaut vægari refsingu en hinir. Smári Sigurðsson, yfirmaður al- þjóðadeildar ríkislögreglustjóra, segir að pólsk yfirvöld hafi ekki óskað eftir framsali á manninum, e.t.v. vegna þess að þau búist við að honum verði vísað úr landi til Póllands. Þremur mönnum sem voru brotlegir við lög vísað úr landi Sá eftirlýsti enn á landinu DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur með bréfi dagsettu 13. mars. sl. úthlutað Framboði óháðra í Suður- kjördæmi listabókstafnum T fyrir al- þingiskosningarnr 10. maí nk. Krist- ján Pálsson alþingismaður verður í fyrsta sæti framboðslistans, en nöfn annarra á listanum liggja ekki end- anlega fyrir. Framboð óháðra fær lista- bókstafinn T RÍKISKAUP hafa auglýst útboð á byggingu snjóflóðavarnargarða á Siglufirði og Seyðisfirði fyrir hönd Framkvæmdasýslu ríkisins, Seyðis- fjarðarkaupstaðar og Siglufjarðar- bæjar. Á heimasíðu Ríkiskaupa kemur fram, að á Seyðisfirði sé gert ráð fyrir að byggja tvo garða, 200 metra langan leiðigarð og 400 metra þvergarð. Verði þeir um 20 metra háir og liggja uppi á brún undir Bjólfinum í Seyðisfirði en svæðið er í um 650 metra hæð. Á Siglufirði verða byggðir fimm þvergarðar og einn leiðigarður. Þvergarðarnir verða samtals um 1.700 metra langir. Á Siglufirði er gert ráð fyrir að byggt verði í þrem- ur áföngum. Fyrst verða nyrstu garðarnir reistir og skal þeim lokið sumarið 2004. Þá hefjast fram- kvæmdir við upptakastoðvirki í Gróuskarðshnjúki sem reyndar eru ekki hluti af útboðsverkinu en loks verður miðgarðurinn reistur fyrir lok sumars 2005 en byggingu þess syðsta á að vera lokið haustið 2006. Vinna við varnargarða boðin út Siglufjörður og Seyðisfjörður EKKERT amaði að þýskum hjónum sem á þriðja tug björgunarsveitar- manna svipaðist um eftir á hálendinu norðan Mýrdalsjökuls en leitin hófst þar sem hjónin höfðu ekki látið vita af ferðum sínum eins og um var sam- ið. Björgunarsveitarmenn komu að tjaldi þeirra um fjóra kílómetra suð- vestur af Landmannalaugum og vöktu þau af værum svefni Að sögn Jóns Hermannssonar, svæðisstjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var sími hjónanna bil- aður og gátu þau því ekki hringt til byggða. Hjónin gera ráð fyrir að koma til byggða á laugardag en þau hafa þá gengið um hálendið á snjó- þrúgum í tæplega tvær vikur. Bilaður sími hjá þýskum hjónum ♦ ♦ ♦ SAMKEPPNISRÁÐ telur að al- mennir þjónustuskilmálar fyrir sjó- flutninga sem Samband íslenskra kaupskipaútgerða (SÍK) gaf út brjóti gegn samkeppnislögum en veitti engu að síðar undanþágu frá ákvæð- um laganna, gegn því að skilmálarnir setji kaupskipaútgerðum engar tak- markanir varðandi þjónustu eða verð sem þær bjóða. Samkeppnisráð tók málið til um- fjöllunar eftir að erindi barst frá SÍK um að til stæði að setja slíka skil- mála. Sambandið taldi skilmálana ekki hamla samkeppni en til vara var óskað eftir undanþágu. Í erindinu kom fram að SÍK hefði unnið að því að setja saman drög að almennum þjónustuskilmálum kaupskipa utan sjálfs sjóflutningsins. Staðan væri sú að engin lög eða reglur giltu um þá þjónustu sem kaupskipaútgerðir veita, þegar sjóflutningum sleppir. Samkeppnisráð veitti undanþágu gegn því að skilmálarnir settu engar takmarkanir varðandi þjónustu og verð. Þá er aðildarfélögum SÍK með öllu óheimilt að miðla viðskiptaleg- um upplýsingum sín á milli eða hafa með sér hvers konar samvinnu um verð eða aðra viðskiptaskilmála. Veitir undanþágu vegna þjónustu- skilmála ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ UNNAR voru skemmdir á tveimur bensíndælum við bensínstöð Olís á Höfn í Hornafirði um helgina. Jafn- framt var brotin rúða í fiskvinnslu- húsi og tilraun gerð til innbrots. Mikil unglingadrykkja var í bænum að sögn lögreglunnar. Þá telur lög- regla að gott veður hafi orðið til þess að ungmennin voru útivið fram eftir nóttu. Fylgdi því hávaði og fyrir- gangur og bar bærinn merki skemmtunarinnar um morguninn. Bensíndælur skemmdar á Höfn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.