Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 21 BÆJARSTJÓRN Sandgerðis hefur samþykkt tilboð A. Páls- sonar í gatnagerð í tvær nýjar götur í bænum, Bogabraut og Lækjarmót. Þá samþykkti bærinn einnig tilboð sama aðila í endurbyggingu lagna og gang- stétta í Austurgötu, Suðurgötu, Túngötu, Hlíðargötu og Vallar- götu. A. Pálsson átti lægsta til- boð í bæði verkin, 9,3 milljónir eða um 75,8% af kostnaðaráætl- un við gatnagerðina og 5,9 milljónir, eða 74,1%, í endur- byggingu lagna og gangstétta. Einnig hefur bærinn sam- þykkt tilboð í endurbyggingu gangstétta og lagna frá Nesp- rýði. Tilboðið hljóðar upp á um 42,8 milljónir króna eða um 72,3% af kostnaðaráætlun. Tilboðum A. Páls- sonar og Nesprýði tekið Sandgerði Upprunalega myndin er á langvegg Landsbankans, annarri hæð, máluð 1924–25. Kjarval var fenginn til mála myndina eftir að nýtt Landsbankahús var reist eftir húsbrunann mikla árið 1915. Verkið þykir einstakt í sinni röð og er með fyrstu stórvirkj- um sem J.S. Kjarval málaði eftir að hann kom heim úr námi. LANDSBANKI Íslands afhenti um liðna helgi Saltfisksetrinu í Grindavík eftirmynd listaverks- ins Saltfiskstöflun eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval í fullri stærð. Útibú Landsbanka Íslands í Grindavík var stofnað 14. mars 1963 og fór afhendingin fram á 40 ára afmæli útibúsins. Björgólfur Guðmundsson frá Landsbankanka, Ólafur Örn Ólafsson bæj- arstjóri og Halldór J. Kristjánsson bankastjóri skoða sýninguna. Saltfisksetrið fær verk eftir Kjarval Grindavík GATNARGERÐARGJÖLD í Grindavík hækka um fjórðung 1. júlí en ekki 1. júní eins og sagði í frétt Morgunblaðsins fyrir helgina. Að sögn Ólafs Arnar Ólafssonar bæjarstjóra hafa gjöldin lengi verið mun lægri en í nágrannasveitar- félögunum. „Í Vallarhverfi, nýjasta hverfinu sem við erum að byggja upp, voru gatnagerðargjöldin um 55% af kostnaði við gerð hverfisins þannig að við greiddum verulega með þessu. En þannig á það auðvitað ekki að vera og þess vegna var ákveðið að hækka gjöldin. En það er rétt að taka fram að jafnvel eftir hækkunina fáum við ekki nema um 80% af kostnaðinum við gerð hverf- anna.“ Vallarhverfi er að verða fullbyggt en á undanförnum þremur árum hef- ur verið úthlutað 137 lóðum til ný- bygginga í bæjarfélaginu. Í febrúar var úthlutað 14 lóðum fyrir um 38 íbúðir í Lautarhverfi. Grindvíkingum fjölgar jafnt og þétt Aðspurður segist Ólafur ekki vita til annars en fasteignamarkaðurinn í Grindavík hafi verið nokkuð líflegur. „Það hafa nánast öll hús selst og nýju húsin sem hafa verið í byggingu hafa yfirleitt selst nokkuð fljótt og vel.“ Ólafur segir Grindvíkingum hafa fjölgað um 1–2% á undanförnum ár- um eða um 40–50 manns og þeir séu nú tæplega 2.400 manns. „Atvinnu- ástand hefur verið gott hér og er raunar enn. Við höfum verið með 7– 20 manns á atvinnuleysisskrá að undanförnu og núna eru líklega ekki nema 10–12 á skrá sem verður að teljast harla gott miðað við atvinnu- ástandið í landinu almennt.“ Ólafur segir það algengt að fólk í Grindavík sæki vinnu annað, t.d. á Keflavíkurvöll, í Hafnarfjörð eða Reykjavík enda ekki um langan veg að fara „Ég veit reyndar af einum sem vinnur úti í Svíþjóð en býr hérna í Grindavík og flýgur á milli hálfs- mánaðarlega.“ Gatnagerðargjöld hækka í sumar Gatnagerðar- gjöldin verða 80% af kostnaði Grindavík Morgunblaðið/RAX Grindvíkingum hefur fjölgað um 1–2% á undanförnum árum. REYKJANESBÆR hefur um nokkurt skeið unnið að innleiðingu á stefnu í málefnum innflytjenda. Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri segir að þörf hafi verið á að marka sér stefnu í þessum málaflokki um nokkurt skeið. Hún segir að mark- miðið sé að koma betur til móts við flóttamenn, ekki síst á þeirra for- sendum. Hún bendir á að margir einstak- lingar sem hingað komi hafi góða menntun sem ekki nýtist alltaf sem skyldi. „Þá myndum við vilja að reynt yrði að huga betur að þessum þætti þannig að það verði báðum til góðs,“ segir hún. Hún segir stefnt að því að koma stefnu í málefnum innflytjenda í gagnið sem fyrst, eða um leið og bæjarstjórn hefur afgreitt málið. Félagsmálayfirvöld hafa óskað eftir því að fá að ráða verkefnisstjóra til að fylgja stefnunni eftir. Hjördís segir hins vegar að ekki liggi fyrir hvort heimild fáist fyrir ráðning- unni. Unnið gegn fordómum meðal bæjarstarfsmanna Í greinargerð með kostnaðarmati á innleiðingu innflytjendastefnu sem lögð var fyrir bæjarráð í síð- ustu viku segir að vinna skuli mark- visst gegn fordómum meðal starfs- manna bæjarins. Sérstaka áherslu þurfi að leggja á fyrirbyggjandi starf, fræðslu um fordóma og fjöl- menningarlega kennslu innan upp- eldisstofnana. Í þessu sambandi er m.a. ráðgert að halda fræðslufundi fyrir uppeldisstarfsmenn grunn- og leikskóla og efna til ráðstefnu gegn fordómum fyrir almenning. Þá segir í greinargerðinni að lagt skuli upp með að innflytjendur þekki rétt sinn og skyldur og að all- ar nauðsynlegar upplýsingar sem þeir þurfi á að halda um réttindi og skyldur verði aðgengilegar á einum stað. Í undirbúningi að innleiða stefnu í málefnum innflytjenda Þekking og mennt- un innflytj- enda nýtist betur Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.