Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 41
RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Þráðlaus
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
BlueTooth tækni
fyrir GSM
Velkomin á 21. öldina
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
03
HAGASKÓLI sigraði með tölu-
verðum yfirburðum í sveitakeppni
grunnskóla í Reykjavík sem fram fór
um helgina. Sigurinn þarf ekki að
koma á óvart, enda er rekið afar öfl-
ugt skákstarf í skólanum undir leið-
sögn Arngríms Gunnhallssonar. Í
sveit skólans eru margir af okkar
efnilegustu skákmönnum með Dag
Arngrímsson í broddi fylkingar. Úr-
slit urðu annars þessi:
1. Hagaskóli 21½ v. (af 24)
2. Hlíðaskóli 17½ v.
3. Rimaskóli-A 16 v.
4. Melaskóli 11 v.
5. Laugalækjarskóli 8 v.
6. Rimaskóli-B 7 v.
7. Laugarnesskóli 3 v.
Fyrir sveit Hagaskóla tefldu:
1. Dagur Arngrímsson 3 v. af 3
2. Hilmar Þorsteinsson 5½ v. af 6
3. Aron Ingi Óskarsson 6 v. af 6
4. Víkingur Fjalar Eiríkss. 5 v. af 6
1. vm.: Helgi Rafn Hróðmarsson 0 v.
af 1
2. vm.: Hlín Önnudóttir 2 v. af 2
Fyrir sveit Hlíðaskóla tefldu:
1. Helgi Jason Hafsteinss. 5 v. af 6
2. Helgi Brynjarsson 3 v. af 6
3. Aron Hjalti Björnsson 4½ v. af 6
4. Jón Ágúst Erlingsson 5 v. af 6
Fyrir A-sveit Rimaskóla tefldu:
1. Hjörvar S. Grétarsson 3 v. af 6
2. Ingvar Ásbjörnsson 5 v. af 6
3. Garðar Sveinbjörnsson 4 v. af 6
4. Birgir Örn Grétarsson 4 v. af 6
Í ár tóku aðeins 7 sveitir þátt í
mótinu, sem verða að teljast von-
brigði. Taflfélagið veitti sérstök verð-
laun fyrir bestan árangur á hverju
borði fyrir sig og það voru Helgi Jas-
on Hafsteinsson, Hlíðaskóla (1. borð;
5 v.), Hilmar Þorsteinsson, Haga-
skóla (2. borð; 5½ v.), Aron Ingi Ósk-
arsson, Hagaskóla (3. borð; 6 v.) og
Víkingur Fjalar Eiríksson, Haga-
skóla, og Jón Ágúst Erlingsson,
Hlíðaskóla (4. borð; 5 v. hvor), sem
hlutu þau.
Mótsstjóri frá ÍTR var Soffía Páls-
dóttir. Skákstjórar fyrir hönd TR
voru Ólafur H. Ólafsson og Torfi
Leósson.
Sex skákmenn efstir
á Meistaramóti Hellis
Sex skákmenn eru efstir og jafnir á
Meistaramóti Hellis eftir tvær um-
ferðir. Það eru Davíð Kjartansson,
Björn Þorsteinsson, Jóhann H. Ragn-
arsson, Björn Þorfinnsson, Kjartan
Maack og Dagur Arngrímsson.
Nokkuð var um óvænt úrslit í annarri
umferðinni rétt eins og í fyrstu um-
ferð. Patrick Svansson (1.640) og
Guðmundur Kjartansson (2.080)
gerðu jafntefli. Það gerðu einnig
Andrés Kolbeinsson (1.620) og Jó-
hann Ingvason (1.990) og Aron Ingi
Óskarsson (1.410) og Kristján Örn
Elíasson (1.790). Svanberg Már Páls-
son, 9 ára og stigalaus, lagði Tómas
Ponzi (1.500) að velli. Margrét Jóna
Gestsdóttir, sem einnig er stigalaus,
sigraði Sverri Þorgeirsson (1.500).
Keppendur lentu í óvæntri uppá-
komu í byrjun umferðarinnar þegar
flytja þurfti mótið á annan stað.
Ástæðan var sú að keppnissalurinn
hafði verið leigður tveimur aðilum
sama kvöldið! Sem betur fer er fá-
heyrt að slík mistök séu gerð. Það var
Taflfélag Reykjavíkur sem bjargaði
umferðinni með því að lána sitt hús-
næði þótt fyrirvarinn væri enginn.
Hagaskóli grunnskóla-
meistari Reykjavíkur
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
SVEITAKEPPNI GRUNNSKÓLA
Í REYKJAVÍK
14.–15. mars 2003
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Á NÝAFSTAÐINNI kattasýningu,
sem haldin var um helgina, var
köttur af tegundini Cornish Rex
valinn kynjaköttur sýningarinnar.
Köturinn heitir Touchstones Get-
Down MakeLove eða Freddi eins og
eigandi hans, Kolbrún Gestsdóttir,
kallar hann. Á myndinni eru frá
vinstri Vilma Kristín Guðjónsdóttir
formaður Kynjakatta, Kolbrún
Gestsdóttir og Freddi, Jón Magn-
ússon sýningarstjóri og Guðlaug
Þorvaldsdóttir, fyrrverandi for-
maður félagsins.
Freddi valinn kynjaköttur
MIKILL erill var hjá
lögreglu um helgina,
mest vegna ölvaðs
fólks sem var að slást
eða olli ónæði og óþægindum.
Um helgina voru 10 ökumenn
grunaðir um ölvun við akstur og
59 um of hraðan akstur. Þá var
tilkynnt til lögreglu um 27 um-
ferðaróhöpp með eignatjóni þrátt
fyrir ágæt akstursskilyrði.
Síðdegis á sunnudag var til-
kynnt um bílveltu á Reykjalund-
arvegi við Varmá og að tveir ung-
ir piltar hefðu hlaupið á brott frá
bifreiðinni. Annar þeirra náðist
fljótlega.
Á föstudag datt eldri kona á
svellbunka nálægt Háskóla Ís-
lands og slasaðist á höfði og baki.
Var hún flutt á slysadeild með
sjúkrabifreið. Þá var dýrum
barnavagni stolið úr geymslu í
Árbæjarhverfi. Síðdegis á föstu-
dag hrasaði kona um mottu í and-
dyri verslunarhúss í austurborg-
inni. Hún var flutt með
sjúkrabifreið á slysadeild en talið
var að hún hafi axlarbrotnað.
Ökumaður með illt í hyggju?
Rólegt var yfir fólki í miðborg-
inni framan af aðfaranótt laug-
ardags. Er líða tók á nóttina var
nokkrum sinnum kallað eftir að-
stoð lögreglu en ekki var um al-
varleg mál að ræða. Einn maður
fór í sjóinn í Reykjavíkurhöfn við
Miðbakka en var bjargað. Höfð
voru afskipti af ölvuðu fólki og
því komið í leigubifreiðar. Einn
maður var handtekinn grunaður
um líkamsárás en sleppt að lok-
inni yfirheyrslu. Um hádegi á
laugardag var tilkynnt um inn-
brot og þjófnað úr bifreið sem
stóð á Grettisgötu. Brotin var
hliðarrúða og stolið dýrri staf-
rænni myndavél. Þá var par stað-
ið að þjófnaði í verslun við
Laugaveg. Höfðu þau tekið nokk-
uð af matvöru. Á konunni fannst
bók sem hún viðurkenndi að hafa
tekið í annarri verslun og einnig
var hún með bol sem maðurinn
hafði tekið í þriðju versluninni.
Öllum þessum hlutum var komið
til skila og parinu sleppt að lokn-
um yfirheyrslum en það er vel
þekkt hjá lögreglu.
Mótmæli voru fyrir utan sendi-
ráð Bandaríkjanna frá kl. 14:00–
15:00, um 50 manns voru á vett-
vangi og fóru mótmælin friðsam-
lega fram. Síðdegis var tilkynnt
um reykskynjara í gangi í íbúð í
Breiðholtshverfi og mikla bruna-
lykt. Þarna hafði matur brunnið á
eldavél og mikill reykur myndast
í íbúðinni. Maður og kona fengu
snert af reykeitrun og voru flutt
á slysadeild. Litlar skemmdir
urðu í íbúðinni af völdum reyks.
Á laugardagskvöld reyndi
maður að skipta tveimur fölsuð-
um 5.000 króna seðlum í sölu-
turni í austurborginni. Aðfara-
nótt sunnudags var óskað eftir
aðstoð á veitingahúsi í miðborg-
inni. Þar höfðu tveir menn lamið
þann þriðja. Hann var fluttur á
slysadeild og voru nokkur spor
saumuð í andlit hans. Árásar-
mennirnir voru handteknir og
vistaðir í fangageymslu en í fór-
um þeirra fannst lítilræði af
fíkniefnum.
Þá hringdi stúlka, sem kvaðst
hafa hitt mann í miðbænum sem
hafi boðið henni far. Í stað þess
að aka henni heim hafi maðurinn
reynt að aka henni í Öskjuhlíð en
henni tókst með fortölum að fá
hann til að hætta við það. Stúlkan
sagði mann þennan ekki hafa
skaðað sig en hún var mjög
skelkuð og í uppnámi.
Börn á flæðiskeri
Mikið var um slagsmál milli
ölvaðra manna þessa nótt en ekki
hlutust nein alvarleg meiðsli af
þeim.
Síðdegis á sunnudag tilkynnti
vegfarandi um börn sem hugs-
anlega væru á flæðiskeri innst í
Grafarvogi. Lögreglumaður óð út
að skerinu og bar tvær 8 ára
stúlkur í land.
Þá var tilkynnt um innbrot í
geymslukjallara í húsi í austur-
borginni. Brotinn milliveggur og
stolið notuðum eldunartækjum
fyrir veitingastaði. Kvartað var
vegna manna sem voru að spila
golf innan um gangandi vegfar-
endur á Miklatúni. Golfararnir
voru fengnir til að hætta leikn-
um. Á sunnudagskvöld var til-
kynnt um eld í þvottavél í Breið-
holtshverfi. Vélin var í
þvottaherbergi inn af eldhúsi.
Íbúi slökkti eldinn með slökkvi-
tæki. Slökkvilið reykræsti.
Klukkan 19:00 var allstór hóp-
ur fólks samankomin á Lækjar-
torgi. Þar var verið að mótmæla
stríði í Írak.
Úr dagbók lögreglu 14.–17. mars
Golf á Miklatúni
og börn
á flæðiskeri
Dregið í riðla í undanúrslit
Íslandsmótsins í sveitakeppni
Dregið hefur verið í undanúrslitin
sem verða spiluð í Hótel Borgarnesi
4.–6. apríl en þá keppa 40 sveitir úr
öllum landshlutum um 10 sæti í úr-
slitunum sem verða spiluð á Hótel
Loftleiðum 16.–19. apríl. Dregið hef-
ur verið í 5 riðla samkvæmt styrk-
leika sveitanna:
A-riðill
Skeljungur/Örn Arnþórsson
Orkuveita Reykjavíkur/Páll Valdimarsson
Tryggingastofan/Erla Sigurjónsdóttir
Tíminn og vatnið/Kjartan Ásmundsson
Fasteignasalan Bakki/Þröstur Árnason
Álfasteinn/Bjarni Ágúst Sveinsson
Skaginn hf./Karl Alfreðss. Frank Guðm.
B-riðill
Grant Thornton/Jónas P. Erlingsson
Sigfús Örn Árnason
Félagsþjónustan/Guðlaugur Sveinsson
Strengur/Hrannar Erlingsson
Sparisjóðurinn í Keflavík/Arnór Ragnarsson
Denna/Guðný Guðjónsdóttir
Garðar Þ. Garðarsson
Strákarnir/Sigurður Sigurjónsson
C-riðill
SUBARU-sveitin/Jón Bald. Gylfi Bald.
Tryggingamiðstöðin/Kristján Már Gunn-
arss.
Ásgrímur Sigurbjörnsson
Guðmundur Baldursson
Vírnet/Kristján B. Snorrason
Úrval-Útsýn/Sigurjón Harðarson
E.E.V./Eiríkur Kristófersson
D-riðill
Íslenskir aðalverktakar/Sævar Þorbjörns.
Þrír Frakkar/Kristján Blöndal
Teymi/Bernódus Kristinsson
Frímann Stefánsson
Sparisjóður Vestfirðinga/Kristinn Kristj.
Landsbankinn/Sigurjón Karlsson
Óttar Ármannsson
Guðni Kristjánsson
E-riðill
–Guðmundur Sv. Hermannsson
Siglósveitin/Jón Sigurbjörnsson
Sparisjóður Norðlendinga/Sveinn T. Pálsson
Esja/Ragnheiður Nielsen
Málning/Baldvin Valdimarsson
Friðrik Jónasson
Helgi Steinsson
Síldarvinnslan/Svavar Björnsson
1. Varasveit Guðmundur Aldan
Grétarsson, Reykjanes.
Allar upplýsingar um mótið er að
finna á heimasíðu BSÍ www.bridge.is
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Ársfundur Heimssýnar, hreyf-
ingar sjálfstæðissinna í Evrópu-
málum, verður haldinn í dag, þriðju-
daginn 18. mars kl. 16.30 á
veitingahúsinu Iðnó, við tjörnina í
Reykjavík. Ragnar Arnalds, formað-
ur, mun ávarpa fundinn og fjalla um
Evrópuumræðuna á liðnu starfsári
hreyfingarinnar. Erindi halda: Skúli
Magnússon, mag. jur. dósent við
Lagadeild Háskóla Íslands, Einar
Örn Ólafsson, verkfræðingur og
MBA-nemi við New York University
(Stern) og Erna Bjarnadóttir, for-
stöðumaður hjá Bændasamtökum.
Í DAG
Rangur opnunardagur
Rangt var farið með opnunardag í
blaðinu á föstudag um sýningu þá er
Handverk og hönnun opnar í Kaup-
mannahöfn. Rétt er að sýningin
verður opnuð nk. föstudag. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
ÁTAKSHÓPUR öryrkja hefur sent
frá sér ályktun þar sem lýst er ábyrgð
á hendur ríkisstjórn Íslands vegna
þeirrar síauknu misskiptingar sem
birtist nú hvarvetna í þjóðfélaginu
eins og komist er að orði.
„Í stað þess að nýta tekjuauka síð-
ustu ára til að taka á því neyðar-
ástandi sem ríkir í tryggingamálum
öryrkja hafa ráðandi öfl kosið að nota
góðærið til að skara enn frekar eld að
sinni eigin köku, bæði með hjálp
kjaradóms og með því að misbeita
meirihluta sínum á Alþingi. Viðhor-
fakannanir hafa ítrekað sýnt að yf-
irgnæfandi meirihluta þjóðarinnar er
misboðið með þeirri fátæktarstefnu
sem stjórnvöld framfylgja í málefnum
öryrkja, stjórnarstefnu sem er í raun
ekki annað en grímulaus að-
skilnaðarstefna, grundvölluð á fötlun.
Átakshópur öryrkjar mótmælir því
harðlega að nú, á sjálfu Evrópuári
fatlaðra, skuli ekki enn örla á minnstu
viðleitni til að gera öryrkjum kleift að
lifa mannsæmandi lífi. Á sama tíma er
öryrkjum gert að sitja undir stöðug-
um yfirlýsingum stjórnvalda um þá
milljarðatugi sem ráðamönnum dett-
ur nú helst í hug að nota í flata lækk-
un á tekjuskattsprósentu, lækkun
sem gagnast mest þeim sjálfum og
öðrum þeim sem hærri hafa launin.
Haldi stjórnvöld áfram að ögra og
misbjóða öryrkjum á þann hátt sem
hér hefur verið lýst, sér Átakshópur
öryrkja sig knúinn til að gera allt sem
í hans valdi stendur til að vinna gegn
endurkjöri þeirra sem mesta ábyrgð
bera í þessum efnum.“
Gagnrýna framkomu
í garð fatlaðra
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði í Reykjavík:
,,Vinstrihreyfingin – grænt framboð
í Reykjavík mótmælir harðlega
hækkunum á gjaldskrá Strætó bs. í
Reykjavík og nágrenni. Þessi hækk-
un gengur á svig við markmið um efl-
ingu almenningssamgangna, sem
voru á stefnuskrá Reykjavíkurlist-
ans í vor. Við minnum á bókun full-
trúa Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í samgöngunefnd Reykja-
víkur þar sem hörmuð er ákvörðun
stjórnar Strætó bs. um gjaldskrár-
hækkun án samráðs við samgöngu-
nefnd Reykjavíkurborgar. Stjórn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík beinir því til
fulltrúa Reykjavíkurlistans í stjórn
Strætó bs. að fylgja þeirri stefnu
sem fram kemur í málefnasamningn-
um vegna samstarfs um Reykjavík-
urlistann fremur en að vinna gegn
henni eins og nú er raunin.“
VG mótmæla
gjaldskrá
Strætó bs.