Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ STARFSHÓPUR sem fjallað hefur um bættar samgöngur til Vestmannaeyja segir í skýrslu sinni til samgönguráðherra að frumathuganir bendi til að bygging ferjuaðstöðu á Bakkafjöru geti verið bæði raunhæfur og fýsilegur kostur. Starfshóp- urinn kannaði m.a. þrjá kosti til að stytta siglinga- tíma ferju á milli Eyja og lands. Í niðurstöðu hóps- ins þar sem fjallað er um byggingu ferjulægis á Bakkafjöru segir: „Verði af þessu má hugsa sér að ferja gangi frá Vestmannaeyjum á tveggja klukkustunda fresti, en siglingin milli lands og Eyja kemur til með að taka um hálfa klukkustund. Starfshópurinn legg- ur áherslu á að stjórnvöld stuðli að því að unnt verði að gera þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru á næstu tveimur til þremur árum til að hægt verði að skera úr um það til fullnustu hvort og með hvaða hætti fýsilegt sé að byggja þetta mannvirki. Geti orðið af ferjulægi á Bakkafjöru skal að því stefnt að ferja verði farin að sigla milli Vest- mannaeyja og Bakkafjöru á árunum 2007 til 2008. Leggur starfshópurinn til að ekki verði ráðist í stórfelldar fjárfestingar í samgöngumannvirkjum eða samgöngutækjum fyrir Vestmannaeyjar fyrr en niðurstaða liggur fyrir um möguleikann á að reisa ferjuaðstöðu á Bakkafjöru því sú niðurstaða mun verða afgerandi fyrir það hvernig samgöngu- málum Eyjanna verður háttað í framtíðinni.“ Dýrt að auka ganghraða Herjólfs Einnig var fjallað um þann kost að gera Herjólf hraðskreiðari með því að lengja hann og auka við vélarafl. Athugun á þessum möguleika leiddi til þeirrar niðurstöðu að mjög dýrt yrði að auka ganghraða skipsins. Einnig var kannaður sá möguleiki að láta smíða eða kaupa stærra og hrað- skreiðara skip. „Ætla má að kostnaður við smíði ferju er væri 90 til 100 m að lengd, með 20–22 hnúta ganghraða, gæti numið á bilinu 2,5 til 4 milljarðar króna eftir því hvernig skipið yrði búið og hvar það yrði smíðað. Er þá miðað við að smíð- að yrði hefðbundið skip,“ segir í skýrslunni. Athugun á þeim kosti að nota svonefndar há- hraðaferjur á milli lands og Eyja leiddi í ljós að svo miklar takmarkanir yrðu á notkun háhraðaferja, m.a. vegna strangra takmarka um ölduhæð fyrir slík skip, að tómt mál væri að tala um að nota þær á þessari siglingaleið. Þá leiddi athugun í ljós að kostnaður við kaup og rekstur loftpúðaskips myndi nema milljörðum kr. og notagildi þess yrði auk þess takmarkað. Mælir starfshópurinn því ekki með þeim kosti. Styðja við rekstur áætlunarflugs Starfshópurinn telur rétt að kannað verði, þeg- ar núverandi samningar um ríkisstyrkt sjúkra- og áætlunarflug renna út, hvort unnt sé að styðja við rekstur áætlunarflugs til Eyja í ljósi þess að Vest- mannaeyjar eru ekki í þjóðvegasambandi. Á það er einnig bent í skýrslunni að aðstaða á Bakka- flugvelli sé ófullnægjandi og er lagt til að bætt verði úr henni með því að koma upp nýrri flugstöð með viðhlítandi aðstöðu fyrir farþega og umsjón- armann vallarins. Starfshópur um bættar samgöngur við Vestmannaeyjar skilar ráðherra skýrslu Ferjulægi á Bakkafjöru talið raunhæfur kostur REGLUBUNDIN slátrun á eldis- laxi Sæsilfurs í Mjóafirði hefst í sumar í laxasláturhúsi Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað þar sem ráð- gert er að slátra 20-40 tonnum á hverjum virkum degi. Að sögn Jó- hannesar Pálssonar, framkvæmda- stjóra landvinnslu Síldarvinnslunn- ar, er reiknað með því að slátra um 2.500 tonnum af eldislaxi á þessu ári. Fer laxinn jafnt heilfrystur og flakaður á markað í Evrópu, einkum til Ítalíu, Frakklands, Danmerkur og Þýskalands, en þegar fram líða stundir er stefnt að viðskiptum í Bandaríkjunum með afurðirnar. Jóhannes sýndi Morgunblaðs- mönnum og fleira fjölmiðlafólki húsakynni Síldarvinnslunnar sl. föstudag en þar er öll aðstaða hin fullkomnasta og til fyrirmyndar. Laxasláturhúsið er hið fyrsta sinnar tegundar á landinu og mjög full- komið. Þó að reglubundin slátrun eigi ekki að hefjast fyrr en í sumar sagði Jóhannes að stefnt væri að fyrstu eiginlegu slátruninni í næsta mánuði. Búið er að prufukeyra vél- arnar þannig að þær standa klárar, með afkastagetu upp á 20 tonn á átta tímum. Álíka mikið og þorskurinn Sæsilfur hóf laxeldi í Mjóafirði ár- ið 2001 og áformar að framleiða 8 þúsund tonn árlega. Sem fyrr segir verður 2.500 tonnum væntanlega slátrað á árinu en til samanburðar má geta þess að aflaheimildir Síld- arvinnslunnar í þorski eru 2.600 tonn. Á næsta ári áformar Sæsilfur að slátra 4.000 tonnum af eldislaxi. Þá hefur Samherji fengið heimild til að starfrækja laxeldisstöð í Reyð- arfirði og er búist við að einhver starfsemi hefjist þar í ár. Fram- leiðslugeta þeirrar stöðvar verður 6.000 tonn á ári, miðað við full af- köst. Þeim eldislaxi verður einnig slátrað hjá Síldarvinnslunni. Samanlögð framleiðslugeta lax- eldisstöðva Sæsilfurs og Samherja verður því um 14 þúsund tonn á ár- unum 2006-2007 og að sögn Smára Geirssonar, formanns bæjarráðs Fjarðabyggðar, má tala um laxeldið sem aðra stóriðju í sveitarfélaginu. Reiknað er með að laxeldið skapi 120 ný störf, ekki bara við fram- leiðslu og slátrun heldur einnig fóð- urframleiðslu, umbúðapökkun og þvott á eldispokum. Laxeldi gæti orðið önnur stóriðja í Fjarðabyggð Síldarvinnslan slátrar 2.500 tonnum á árinu STELLA Steinþórsdóttir, fisk- verkakona hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, stóð við flæðilínuna og snyrti þorskflök er Morgun- blaðsmenn voru þar á ferð. Fyrir dyrum stóð handflökun á lítilræði af laxi en Stella, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 1971, sagðist vera ein af fáum starfs- mönnum sem kynni að handflaka fisk. „Þetta er að verða deyjandi list,“ sagði Stella um leið og hún sveiflaði til sín hverju þorskflak- inu á fætur öðru og var eldsnögg að snyrta. Ekki var úr vegi að spyrja Stellu álits á stærsta málinu á Austfjörðum þessa dagana, ál- verinu í Reyðarfirði, þar sem und- irskrift var framundann daginn eftir. Hún sagðist ekki vera á mótinu álverinu sem slíku en hún hafði áhyggjur af því að konur nytu ekki þeirrar fjölgunar starfa sem sögð væri að fylgdi álverinu. Einnig hafði hún áhyggjur af orkuöfluninni. Þar hefði mátt fara aðrar leiðir. „Eru álverin ekki að verða eins og frystihúsin þar sem örfáar hræður eru eftir og styðja á takka? Ég vil fá upp á borðið ein- hverjar nýjar hugmyndir um orkuöflun, þar virðist ríkja algjör hugmyndafátækt. Ég býst samt við að flestir hér í Neskaupstað og annars staðar í Fjarðabyggð bindi vonir við að álverið bæti eitthvað atvinnuástandið hérna,“ segir Stella sem hefur lengið staðið í framlínu verkalýðsmála í Norð- firði og verið trúnaðarmaður starfsmanna Síldarvinnslunnar. Stella Steinþórsdóttir við flæðilínuna Morgunblaðið/RAX Stella Steinþórsdóttir við flæðilínuna hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Handflökun deyjandi list STEFNT er að undirritun endanlegra samninga í dag milli Landsvirkjunar og Impregilo um gerð stíflu og aðrennslisganga Kárahnjúka- virkjunar. Beðið var með þá undirskrift þar til samningar við Alcoa voru frágengnir, en þeir voru undirritaðir sl. laug- ardag eins og fram hefur kom- ið í blaðinu. Ítalska verktakafyrirtækið áformar að hefja framkvæmd- ir af fullum þunga í næsta mánuði en það hefur nú þegar opnað skrifstofu í Reykjavík og skrifstofa var einnig opnuð á Egilsstöðum í síðustu viku, sem er bráðabirgðahúsnæði þar til að vinnubúðum hefur verið komið upp við Kára- hnjúka. Starfsmenn Impregilo hafa að undanförnu verið við mælingar á Kárahnjúkasvæð- inu og ýmsan annan undirbún- ing. Samið í dag við Impregilo Í TENGSLUM við undirritun ál- samninganna á Reyðarfirði á laug- ardag var skipst á nokkrum gjöf- um. Fjarðabyggð gaf Alcoa steinlistaverk, hannað af Pétri Erni Hjaltasyni hjá Álfasteini, sem tákn- ar strompana tvo við álverið með áletruninni: Alcoa! Velkomið til Fjarðabyggðar. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu um helgina tilkynnti for- stjóri Alcoa, Alain Belda, að fyr- irtækið ætlaði að gefa Fjarðabyggð um 4.200 barrtré, þar af 2.007 tré til gróðursetningar í ár og síðan 450 tré á hverju ári til ársins 2007 fyrir hvern starfsmann í álverinu. Félag eldri borgara á Reyð- arfirði gaf Alcoa íslenska fánann og þá barst veglegur blómvöndur frá kollegum í Straumsvík, þ.e. frá Al- can á Íslandi, áður ÍSAL. Við mót- töku Valgerðar Sverrisdóttur iðn- aðarráðherra á Egilsstaðaflugvelli síðdegis á laugardag, þegar fulltrú- ar Alcoa voru kvaddir á leið þeirra til Bandaríkjanna, gaf Lands- virkjun þeim og Valgerði álstyttur af heiðnu guðunum Óðni og Þór, unnar sérstaklega af Hallsteini Sig- urðssyni listamanni sem hefur sýnt svipuð verk í Laxárvirkjun. Morgunblaðið/RAX Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, færir Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, álstyttu að gjöf í tilefni af undirskriftinni. Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri tekur við barrtré úr hendi Alain Belda. Skipst á gjöfum við undirskrift
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.