Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 18
ERLENT 18 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ PÄR Stenbäck, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Finnlands, er staddur hér á landi og var kosningaskýr- andi á kosningavöku finnska sendi- ráðsins sl. sunnudagskvöld. Hann segir að þótt Paavo Lipponen, leið- togi jafnaðarmanna og forsætisráð- herra, kunni að missa stjórnarfor- ystuna til Anneli Jäätteenmäki, leiðtoga Miðflokksins, verði áhrif hans væntanlega mikil áfram, ekki sízt á Evrópu- og utanríkisstefnu Finnlands. Í fráfarandi ríkisstjórn hafa jafn- aðarmenn og hægrimenn (Samein- ingarflokkurinn) verið stóru flokk- arnir, en auk þeirra eiga Vinstrabandalagið og Sænski þjóð- arflokkurinn aðild að stjórninni. Sameiningarflokkurinn tapaði mestu í kosningunum, missti sex þingsæti af 46. Jafnaðarmenn bættu við sig tveimur þingmönnum og hafa nú 53, en Miðflokkurinn bætti við sig sjö og er með 55 þing- menn. Sænska þjóðarflokknum gekk illa, hann missti þrjú þingsæti af sínum ellefu en Vinstrabandalag- ið stóð nokkurn veginn í stað. Samstjórn Miðflokks og jafnaðarmanna líklegust Stenbäck segir að langlíklegasta stjórnarmunstrið sé samstjórn Mið- flokksins og jafnaðarmanna, hugs- anlega með þátttöku minni flokka. „Báðir flokkarnir bættu við sig og eru nánast jafnir. Það er ekki hægt að segja að annar þeirra sé afger- andi sigurvegari. Ég er sannfærður um að samstjórn þeirra ætti miklu fylgi að fagna hjá kjósendum,“ seg- ir Stenbäck. Hann segir því líklegast að Mið- flokkurinn komi inn í ríkisstjórn í stað Sameiningarflokksins. Hjá síð- arnefnda flokknum standi leiðtoga- skipti væntanlega fyrir dyrum í kjölfar ósigursins og ólíklegt sé að flokkurinn, sem tapaði kosningun- um, verði áfram í stjórn, en sá, sem mestu bætti við sig, utan stjórnar. Stenbäck bendir á að Paavo Lipponen hafi sagt að hann taki ekki þátt í ríkisstjórn, þar sem Anneli Jäätteenmäki verði for- sætisráðherra, en í pólitík sé ekk- ert ómögulegt og forsætisráð- herrann kunni að finna sér leið út úr þeim ógöngum, sem hann hafi komið sér í með þeirri yfirlýsingu. „Það eru tveir möguleikar. Ann- ars vegar að Jäätteenmäki verði forsætisráðherra, sem væri eftir bókinni þar sem hún hefur tveimur þingmönnum fleira, og Lipponen eða einhver annar jafnaðarmaður yrði varaforsætisráðherra og utan- ríkisráðherra eða eitthvað slíkt. Hinn möguleikinn er að Jäätteen- mäki telji það fórnandi til að ljúka átta ára veru í stjórnarandstöðu að láta Lipponen forsætisráð- herraembættið eftir áfram. Hann er vinsælasta forsætisráðherraefn- ið; skoðanakannanir sýna að 40% Finna vilja helzt hafa hann áfram í embætti en tæplega 20% vilja Jäätteenmäki, sem þar að auki hef- ur minni reynslu. Jäättenmääki væri þá komin í sterka stöðu til að semja um önnur áhrifamikil ráð- herraembætti, til dæmis utanríkis- og fjármálaráðherrann.“ Stenbäck segir erfitt að segja til um hvort miklar breytingar verði á stjórnarstefnunni ef Miðflokkurinn kemur í stað hægrimanna. Hann bendir á að í síðasta stjórnarsátt- mála hafi ekki verið mikið um skýra stefnumörkun og finnskar ríkisstjórnir taki yfirleitt á hverju máli eins og það komi fyrir, án þess að hugmyndafræði þvælist of mikið fyrir fólki. Hann bendir þó á að líklegt sé að opinber afskipti aukist með stjórn- arþátttöku Miðflokksins. Þannig liggi stefna flokksins í atvinnumál- um, sem eru eitt stærsta vanda- málið í Finnlandi þessa dagana, nær stefnu jafnaðarmanna, sem vilja efla atvinnulífið með beinum fjárframlögum, en stefnu hægri- manna, sem leggja áherzlu á skattalækkanir og lækkun gjalda á atvinnurekendur. Miðflokkurinn sé þó flokkur smáfyrirtækja og muni sennilega vilja ívilna þeim með ein- hverjum hætti. Þá sé Miðflokkurinn jafnvel enn hallari undir ríkislausnir í heil- brigðismálum en jafnaðarmenn, ekki sízt þar sem flokkurinn telji einkarekstur heilbrigðisþjónustu, sem hægrimenn styðja og jafnaðar- menn einnig í einhverjum mæli, ekki ganga upp í hinum dreifðu byggðum þar sem flokkurinn á mest fylgi. Spurningin um aðild að Atlants- hafsbandalaginu (NATO) var ekki rædd mikið í kosningabaráttunni. Flokkarnir eru þó sammála um að hún komi upp í tengslum við endur- skoðun öryggismálastefnu landsins á næsta ári. „Þetta verður ekki mál, sem stjórnarmyndunarviðræð- ur stranda á,“ segir Stenbäck. „Menn munu komast að samkomu- lagi um að halda málinu áfram opnu og útiloka enga möguleika, en ekki kveða á um að taka þurfi ákvörðun í málinu. Afstaða Svíþjóð- ar skiptir líka máli og ekkert bend- ir til að Svíar snúi sér að ákvörðun í NATO-málinu fyrr en þeir eru búnir að afgreiða spurninguna um aðild sína að evrópska myntbanda- laginu. Það ríkir hins vegar sam- staða um að ef til þess kemur, verði Svíþjóð og Finnland að hafa sam- flot inn í NATO.“ Stenbäck segir að í Evrópumál- um sé ekki mikill munur á stefnu flokkanna, en einstakir stjórnmála- menn hafi mjög eindregna afstöðu, ekki sízt Paavo Lipponen, sem hef- ur lagt ofuráherzlu á þátttöku Finnlands í kjarna Evrópusam- starfsins og að styrkja yfirþjóð- legar stofnanir ESB, sem muni koma smáríkjum til góða. „Í hvaða stöðu sem Lipponen verður, hvort heldur hann verður forsætisráð- herra, utanríkisráðherra, Evrópu- málaráðherra eða eitthvað annað, mun hann áfram hafa mikil áhrif. Enginn stenzt honum snúning,“ segir Stenbäck. Sænski þjóðarflokkurinn í tilvistarkreppu Stenbäck tilheyrir Sænska þjóð- arflokknum og hefur áfram mikil áhrif innan flokksins, þótt hann hafi hætt beinni stjórnmálaþátt- töku 1985. Hann er áhyggjufullur yfir slæmu gengi sinna manna. „Ef það væru pólitískar skýringar á því, t.d. léleg forysta, slæm kosn- ingabarátta eða eitthvað slíkt, væri þetta einfaldara. En slíkar skýr- ingar duga ekki. Þetta snýst um til- vistargrundvöll flokksins,“ segir hann. Stenbäck bendir á að tunga og sjálfsvitund virðist skipta minna máli en áður, ekki sízt hjá ungu fólki og þá helzt þeim tvítyngdu, sem eigi bæði finnsku- og sænsku- mælandi foreldra. „Við verðum að takast á við þetta vandamál, koma flokknum á nýjan grundvöll og höfða til ungs fólks. Það er engin lausn að draga sig t.d. út úr rík- isstjórnarsamstarfinu.“ Áhrif Lipponens verða áfram mikil Pär Stenbäck, fyrrverandi utanríkisráðherra Finnlands, var kosn- ingaskýrandi á kosningavöku finnska sendiráðsins í fyrrakvöld. Ólafur Þ. Stephensen ræddi við hann um úrslit kosninganna. Morgunblaðið/Kristinn Pär Stenbäck, fyrrverandi utanríkisráðherra Finnlands, telur líkur á samstjórn Miðflokks og jafnaðarmanna. olafur@mbl.is SIGUR finnska Miðflokksins í þingkosningunum á sunnudag gat vart verið naumari. Samkvæmt loka- niðurstöðum atkvæðatalningar hlaut hann innan við 7.000 fleiri atkvæði en Jafnaðarmannaflokkurinn. 4,2 milljónir voru á kjörskrá og kjörsókn var um 70%. Miðflokkurinn fékk 24,8% og 55 menn kjörna, af þeim 200 sem sæti eiga á finnska þjóðþinginu. Það er 2,4% fylgisaukning miðað við niðurstöður kosning- anna 1999. Jafnaðarmenn fengu 24,5% og 53 fulltrúa kjörna. Það er 1,6% fylgisaukning frá því síðast. Þetta þýðir að flokkarnir tveir hafa samanlagt starf- hæfan meirihluta á þingi, 108 af 200. Hægrimenn töpuðu 2,5% frá því 1999. Sameining- arflokkurinn fékk nú 18,5% og missti sex þingmenn, úr 46 í 40. En þar sem borgaralegu flokkarnir – þ.e. Miðflokk- urinn, hægrimenn (Sameiningarflokkurinn), kristi- legir demókratar og Sænski þjóðarflokkurinn – hafa samtals 110 þingsæti vilja sumir trúa því að nú sé lag að mynda hægristjórn. Slík stjórn var við stjórnvölinn í Finnlandi 1991–1995 (undir forystu Esko Aho, þáver- andi leiðtoga Miðflokksins) og var það fyrsta „hrein- borgaralega“ stjórnin í landinu í áratugi. Umboðið til stjórnarmyndunar fær Jäätteenmäki formlega í hendurnar eftir að hið nýkjörna þing kemur fyrst saman í næstu viku. Hún yrði fyrsti kvenforsætisráðherrann í sögu Finnlands. AP Anneli Jäätteenmäki, formaður Miðflokksins, fagnar kosningaúrslitunum ásamt Eero Lankia, framkvæmdastjóra flokksins (t.v.). Mjög naumur sigur Helsinki. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.