Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTLEGÐ EÐA STRÍÐ
George W. Bush Bandaríkja-
forseti setti Saddam Hussein Íraks-
forseta úrslitakosti í ræðu, sem hann
flutti í nótt, og sagði að hann yrði að
fara í útlegð, ella hæfist stríð í Írak.
Talsmaður Bush sagði að tilraunum
til að leysa Íraksdeiluna á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna væri lokið.
Styðja Azoreyjayfirlýsingu
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra lýsa yfir stuðningi við
Azoreyjayfirlýsingu George W.
Bush Bandaríkjaforseta, Tony
Blairs, forsætisráðherra Bretlands,
og Jose Maria Aznars, forsætisráð-
herra Spánar.
Atvinnuleysi í hámarki
Atvinnuleysi mælist nú rúmlega
4% og hefur líklega náð hámarki að
mati Gissurar Péturssonar, forstjóra
Vinnumálastofnunar. Hefur það
ekki verið meira í sjö ár.
Viðbúnaður Landspítala
Landspítalinn er með ákveðinn
viðbúnað vegna lungnabólgufarald-
ursins, sem nú geisar í Suðaustur-
Asíu en margt bendir til, að sjúk-
dómurinn sé kominn til Evrópu.
Komi hann upp hér verða sjúklingar
settir í einangrun.
Mikil kostnaðarhækkun
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða-
kerfisins í heild var rúmur millj-
arður króna 2001 og hafði þá hækk-
að um þriðjung á tveimur árum.
Hefur hann hækkað um 59% á fimm
árum og 77% sé tekið tillit til skrif-
stofu- og stjórnunarkostnaðar.
Forseti í Ungverjalandi
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, er nú í sinni fyrstu opinberu
heimsókn í Ungverjalandi. Átti hann
fundi með forseta landsins og for-
sætisráðherra og segir, að þeir hafi
verið mjög gagnlegir.
Um 6% aflans flutt út
Alls voru flutt út 28.000 tonn af
óunnum fiski frá Íslandi á síðasta
fiskveiðiári eða tæplega 6% af heild-
arbolfiskafla ársins. Mest var flutt
út af karfa, 9.600 tonn, af þorski
5.700 tonn og af ýsu 4.300 tonn.
Þriðjudagur
18. mars 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað B
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Viðtal við Pétur
Ármannsson 26
Frágangur
lagnakerfis
Húsvið
Hrísateig
Ráðstefna 18 Sagan rakin 40
Á LANDINU öllu hefur meðalald-
ur mannvirkja hækkað um rúma
fimm mánuði á hverju ári á tíma-
bilinu 1994 til 2002 skv. athugun
Fasteignamats ríkisins. Að sögn
Snorra Gunnarssonar hagfræðings
er öldrunin minnst á höfuðborgar-
svæðinu. Þar hækkaði aldurinn að-
eins um tæpa fjóra mánuði á ári.
Meðalaldur mannvirkja á Reykja-
nesi og Suðurlandi hækkaði um
tæpa sex mánuði á ári á þessu tíma-
bili, á Vesturlandi hækkaði hann
um rúma sex mánuði, tæpa sjö
mánuði á Norðurlandi-Eystra og
rúma sjö á Austurlandi. Á Vest-
fjörðum og Noðurlandi vestra
hækkaði meðalaldur mannvirkj-
anna um tæpa tíu mánuði á ári.
Sterk sveifla á milli áranna
2000 og 2001
Telja má eðlilegt að gera ráð fyr-
ir að mannvirkjamassinn eldist í
þroskuðum samfélögum. Sum
mannvirki eru einfaldlega sígild og
munu standa um aldir. Erfiðara er
að fullyrða hver sé eðlileg meðal-
öldrun mannvirkjanna í heild. Það
er því að sögn Snorra áhugavert að
skoða hvernig öldrun mannvirkj-
anna hefur verið að breytast á
tímabilinu sem hér um ræðir. Jafnt
og þétt hefur dregið úr öldrun
mannvirkja á landinu í heild. Mest
dró úr henni á höfuðborgarsvæðinu
og á Reykjanesi en á síðarnefnda
svæðinu kom sterk sveifla á milli
áranna 2000 og 2001 þar sem með-
alaldurinn beinlínis lækkaði. Í flest-
um landshlutum hefur öldrunin
gengið í sveiflum en þróunin þó
verið í þá átt að hægt hefur á öldr-
uninni. Á þessu eru þó undantekn-
ingar. Bæði á Austurlandi og á
Vestfjörðum hefur öldrunin farið
vaxandi. Þessar upplýsingar eru
byggðar á gögnum sem skráð eru í
Landskrá fasteigna.
Öldrun mannvirkja minnst
áhöfuðborgarsvæðinu
! " #$%
&'()
*
! " &'(
#$%
+
+
+
++
+
+
+
+
& , ) -$ Góðar lausnir,
vandaðar vörur
Í dag þriðjudag og á morgun miðvikudag
milli kl. 16 og 18
gefst þér kostur á að skoða eina af okkar glæsilegu
íbúðum að Laugarnesvegi 87 (íbúð 404). Þar mun
sölumaður okkar taka á móti þér og svara öllum
þínum spurningum.
Íbúðirnar að Laugarnesvegi 87 og 89 eru glæsilega
hannaðar, 2ja, 3ja og 4ra herbergja, og allar með
sérinngangi af yfirbyggðum svalagangi. Húsin eru
með lyftu, einangruð að utan og klædd áli og harðviði
og þarfnast því lágmarksviðhalds. Íbúðirnar verða
tilbúnar til afhendingar 25. apríl nk.
Komdu og skoðaðu glæsilega sýningaríbúð
Góðir kostir:
• Sér bílastæði í bílageymsluhúsi.
• Þvottahús innan íbúðar.
• Dyrasími tengdur myndavél í anddyri. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200.
Ítarlegar upplýsingar um eignirnar eru á www.iav.is.
Laugarnesvegur 87 og 89
• Möguleiki á sjónvarps-, síma- og
nettengingum í öll herbergi.
• Vandaðar innréttingar og hurðir.
• Lögð er sérstök áhersla á góða
hljóðeinangrun.
Dæmi um 3ja herbergja íbúð
Þvottur
3,2 fm
Eldhús
14,3 fm
Svalir 9,7 fm
Baðh.
5,5 fm
Svefnherb.
9,1 fm
Svefnherb.
14 fm
Húsa-
hönnun
!"!#$!
% "
#$
&'(
)*+
&'(
) *+
,
!
"#
$%#! &''%
-%.$/#$
%"/++%
01%23+
456#0!+
(1+1/7+ !+
8+ 23+
'%" 9+
"
:$+;
% ":$+;
$!+%.+
:$+;
% ":$+;
(
(%<) "%"+$
+$ 1+=""+)>>>1+
?"/@+AB
*
*
*
*
! ! !" !#,
$%
)*
+& /@AB
$$-
%
&
&'
$'
.
'
$-.
&#'//
$%01
2
//01
20/
+B
3! 4
! # $'#
$.#! &''%
8%"+#$!
&"
%""+
# "
"
# #
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 31
Viðskipti 14/16 Viðhorf 32
Erlent 17/18 Minningar 32/37
Höfuðborgin 19 Dans 38
Akureyri 20 Bréf 40
Suðurnes 21 Dagbók 42/43
Landið 22 Íþróttir 44/47
Neytendur 23 Fólk 48/53
Listir 24/25 Bíó 50/52
Umræðan 26/27 Ljósvakar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
„VIÐ höfum upplýst flugfélögin og
starfsfólk á Keflavíkurflugvelli um
vandamál sem kynnu að koma upp
og hvernig réttast sé að bregðast við
þeim. Síðan er Landspítalinn með
ákveðinn viðbúnað til að taka á móti
sjúklingum í einangrunaraðstöðu,“
sagði Haraldur Briem sóttvarna-
læknir um viðbrögð landlæknisemb-
ættisins við viðvörun Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar vegna
heilkennis alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu.
Í gær vissi Haraldur um 450
manns sem höfðu greinst með sjúk-
dóminn og af þeim höfðu átta látist
sem sé innan við 2% dánartíðni. Þær
tölur taki ugglaust breytingum.
Hann segir ekki vitað hvað valdi
þessum faraldri og ekki berast upp-
lýsingar um meiriháttar útbreiðslu
sjúkdómsins. Einkennin minna á
inflúensu; hár hiti, þreyta, hósti, tíð-
ur andardráttur eða andnauð. Þar
sem einkennin séu almenn þarf að
tengja sjúkling við sýkingarsvæði til
þess að meðhöndla hann samkvæmt
viðbúnaðaráætlun.
Lungnabólgufaraldurinn geisar
aðallega í Suðaustur-Asíu en hugs-
anlega hafa sjúklingar greinst með
einkenni í Evrópu og Kanada.
Ferðalög ekki takmörkuð
Haraldur segir engin tilmæli hafa
verið gefin út í þá veru að takmarka
ferðalög fólks. Flestir hafi smitast á
spítölum þar sem nálægð við smit-
bera sé mikil. Ekki sé mikið um hóp-
sýkingar og því virðist þetta ekki
vera bráðsmitandi. Hann segir flug-
vélar ekki eins hættulegar og menn
haldi hvað varðar smithættu þar sem
loftræstikerfi þeirra séu þannig úr
garði gerð að þau dreifi ekki smiti
meðal farþega. Byggist það á loft-
flæði um vélina, síum og loftskiptum
meðan á flugi stendur.
„Við fylgjumst með þróuninni og
hvaða frekari tilmæli koma. Við er-
um vakandi fyrir þessu og á við-
bragðsstigi,“ segir Haraldur Briem
sóttvarnalæknir.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir flugfélagið
vinna í samráði við landlæknisemb-
ættið. „Við höfum fengið leiðsögn
þaðan og sent leiðbeiningar til
áhafna okkar hvernig bregðast ætti
við yrði vart við einkenni sjúkdóms-
ins.“
Lungnabólgufaraldur í Suðaustur-Asíu
Landspítalinn
með viðbúnað
Lungnabólgan/17
PILTURINN sem fannst látinn
við Húsavíkurhöfða á sunnudag
hét Haukur Böðvarsson, 16 ára,
til heimilis í Baldursbrekku 6 á
Húsavík ásamt foreldrum sínum
og yngri bróður en eldri bróðir
Hauks býr erlendis. Talið er að
Haukur hafi látist af slysförum
og fallið í sjó fram af klettum.
Hann var nemandi við Fram-
haldsskólann á Húsavík.
Haukur Böðvarsson
Lést af
slysförum
á Húsavík
BANDARÍSKIR ferðamenn, par á þrítugsaldri, fund-
ust í svonefndum Baldvinsskála neðarlega á Fimm-
vörðuhálsi síðdegis í gær eftir stutta leit um 40
björgunarsveitarmanna af Suðurlandi.
Ekkert amaði að fólkinu að öðru leyti en því að það
var orðið kalt og matarlítið. Þau biðu björgunar í
þrjá sólarhringa í skálanum þar sem þau rammvillt-
ust í svartaþoku og treystu sér ekki til byggða af
þeim sökum. Var parinu fylgt niður að Skógum af
björgunarsveitarmönnum frá Vík í Mýrdal. Þaðan
fylgdi lögreglan parinu áleiðis til Reykjavíkur í gær-
kvöldi og síðan lá leiðin til Keflavíkur þar sem það
ætlaði að gista í nótt.
Leit hófst að fólkinu síðdegis í gær að beiðni lög-
reglunnar á Hvolsvelli en bílaleigubíll þess fannst yf-
irgefinn við tjaldstæðið við Skógá. Parið átti bókað
flugfar úr landi á sunnudag en mætti ekki til flugs-
ins.
Að sögn Gils Jóhannssonar, lögregluvarðstjóra á
Hvolsvelli, kom parið til Skóga sl. fimmtudag og gisti
næstu nótt á tjaldstæðinu við Skógafoss. Á föstudeg-
inum fóru þau í göngu upp með Skógá í blíðviðri og
ætluðu á Fimmvörðuháls til að sjá Eyjafjalla- og Mýr-
dalsjökul berum augum. Eftir því sem ofar dró versn-
aði skyggnið og um kvöldið var komin svartaþoka.
Gerðu hið eina rétta
Gils segir að þau hafi komið fljótlega að Baldvins-
skála en þurft að brjóta sér leið inn. Voru þau án
fjarskiptabúnaðar og ákváðu að láta fyrir berast í
skálanum. Gils segir þau hafa verið ágætlega útbúin
að öðru leyti, með svefnpoka, góðan fatnað og ein-
hverjar matarbirgðir.
„Þau voru að verða matarlaus og tóku hraustlega
til matar síns þegar björgunarsveitarmennirnir komu
í skálann. Þau gerðu hið eina rétta með því að halda
kyrru fyrir. Okkur var ekki farið að lítast á blikuna
því svæðið þarna er erfitt yfirferðar og þekkt veðra-
víti,“ segir Gils sem reiknar með því að bandaríska
parið fari utan í dag.
Bandarískt par villtist í svartaþoku á Fimmvörðuhálsi
Biðu björgunar
í þrjá sólarhringa
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Bandaríska parið er það kom niður að Skógum í gærkvöldi, Mark Christopher Dancigers og Ariana S. Falk. Ekk-
ert amaði að þeim, utan þess að vera orðin köld og matarlítil. Þau stefna að því að fara af landi brott í dag.
FLUGVÉLAELDSNEYTI kom til
landsins á nýjan leik um helgina en
í febrúar kom í ljós að mikið magn
af slíku bensíni reyndist ekki upp-
fylla lágmarksgæðakröfur um upp-
gufunarþrýsting og var notkun
hluta þess því bönnuð um tíma.
Samúel Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjárfestinga- og
áhættusviðs Olís, sagði að ekki
stæði til að breyta því hvernig
geymslu á eldsneytinu væri háttað.
Hann sagði eldsneytið koma til
landsins á 12–18 mánaða fresti, eða
eftir eftirspurn.
Lúðvík Björgvinsson, forstöðu-
maður innlendrar sölu og tækni-
þjónustu hjá Skeljungi, sagði að
fyrirtækið hefði átt nóg af flugvéla-
eldsneyti til að leysa allar brýnustu
þarfir.
Nýtt flug-
vélaelds-
neyti komið
♦ ♦ ♦
ARKITEKTAFÉLAG Íslands hef-
ur óskað bréflega eftir því að ræða
við borgaryfirvöld um framtíðar-
skipulag Vatnsmýrarinnar í
Reykjavík. Vill félagið að haldin
verði alþjóðleg samkeppni um
skipulag svæðisins í heild, þar sem
framtíðarnotkun þess verði mótuð.
Valdís Bjarnadóttir, formaður fé-
lagsins, segir mikilvægt að heild-
arsýn fyrir svæðið verði þróuð áður
en farið verður út í að búta það nið-
ur í litla hluta og skipuleggja einn
af öðrum. „Við erum að fara fram á
að haldin verði samkeppni um
svæðið í heild. Hugmyndir okkar
núna eru að það verði haldin al-
þjóðleg samkeppni, það er gríðar-
mikið mál að undirbúa hana og okk-
ur finnst eðlilegt að það verði
byrjað að ræða þetta og móta
stefnu um hvernig borgin vilji
standa þarna að skipulagi,“ sagði
Valdís.
Valdís segir að tímabært sé að
ræða skipulag á svæðinu, á næstu
árum verði hlutar af svæðinu skipu-
lagðir og því sé eðlilegt að horfa
fram á veginn. Ef gert verði of mik-
ið af því að búta svæðið niður séu
líkur á að ekki verði hægt að fá
góða heildarsýn síðar.
Vilja við-
ræður um
skipulag
Vatnsmýrar