Morgunblaðið - 25.03.2003, Qupperneq 1
Þriðjudagur
25. mars 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsinsblað B
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Tilfyrri
virðingar
Ingólfsstræti 1 26
Ungt
f́ólk
Innbrot
ogöryggi
Í Sólarsölum 34 Bæklingur 5
UM þessar mundir er verið að skipu-
leggja nýja íbúðarbyggð á Laugum í
Þingeyjarsveit.
„Um er að ræða alls níu íbúðarhús
sem geta verið allt frá einbýlishúsum
upp í fjórbýlishús, hvert og eitt
þeirra,“ sagði Jóhann Guðni Reyn-
isson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar.
„Þetta eru tvö parhús, eitt raðhús
með þremur íbúðum og sex lóðir að
auki fyrir einbýli eða fjölbýli. Deili-
skipulag svæðisins er í kynningu og
reiknað er með að úthlutun hefjist í
júní ef ekki berast alvarlegar at-
hugasemdir. “
Hver hefur skipulagt þetta bygg-
ingarsvæði?
„Landslag ehf. hefur gert það.
Verkið á sér um þriggja ára aðdrag-
anda með skipulagningu á mun
stærra svæði í landi Hóla og Lauta í
Reykjadal. Þessi skipulagsreitur var
tekinn út úr þeirri skipulagsvinnu til
þess að flýta mögulegum fram-
kvæmdum á þessu svæði.“
Er mikil þörf fyrir nýtt íbúðar-
svæði í Þingeyjarsveit?
„Já, tvímælalaust. Hér stendur
t.d. eitt gamalt hús og bíður eftir að
komast á nýjan grunn á þessu svæði
og verið er að byggja á öðrum lóðum
á Laugum tvö íbúðarhús og hið
þriðja er nýbyggt. Sjá má uppdrátt
af byggingarsvæðinu á slóðinni
www.thingeyjarsveit.is.“
Hvað veldur þessum mikla bygg-
ingaráhuga núna?
„Það er atvinnustarfsemin á svæð-
inu, hún er blómleg og hér eru burð-
arásar sveitarfélagsins, svo sem
Laugafiskur, sem um 30 manns
starfa hjá, og svo Framhaldsskólinn
á Laugum, þar sem annað eins af
fólki vinnur, og loks er sveitarfélagið
sjálft nokkuð stór atvinnurekandi.
Hér eru líka sparisjóður, verslun og
veitingahús og vélaverkstæði og
önnur starfsemi sem veitir talsverða
vinnu og þjónustu. Loks ber að nefna
hinn hefðbundna landbúnað í sveit-
unum í kring, sem er ein af undir-
stöðum sveitarfélagsins. Við njótum
að auki nálægðarinnar við Akureyri
og Húsavík, hér búa ýmsir sem
starfa og njóta þjónustu þar.
Hér búa um 730 manns á 5.000 fer-
kílómetrum. Sveitarfélagið var ný-
lega stofnað á grunni Hálshrepps,
Ljósavatnshrepps, Bárðdælahrepps
og Reykdælahrepps.“
Eru hin nýju íbúðarhús á Laugum
steinsteypt eða úr timbri?
„Það er ýmist, sum eru steypt upp
á lóðinni en önnur flutt á staðinn eða
byggð hér úr timbri. Hér er mikil
veðursæld og það er einn megin-
styrkur Þingeyjarsveitar hvað mörg
sumarhús eru á svæðinu, einkum í
Fnjóskadal. Þess má geta að til
stendur að byggja ný íbúðarhús á
bújörðum í Þingeyjarsveit.“
Er þetta nýja svæði á Laugum í
fjarlægð frá annarri byggð?
„Nei, þetta er hluti af eldri
byggðakjarna með níu einbýlishús-
um og fjórum íbúðum í parhúsum.
Hverfið heitir Laugar og þaðan er
stutt í alla þjónustu, svo sem grunn-
skóla, framhaldsskóla, tónlistarskóla
og leikskóla, einnig heilsugæslu-
útibú, verslun og veitingahús með
bensínsölu, sparisjóð, pósthús, hár-
greiðslustofu og verkstæðisþjón-
ustu. Hér er einnig öflugt trésmíða-
verkstæði og byggingarverktaki.
Skrifstofur sveitarfélagsins eru og
hér rétt hjá. Byggðarkjarninn er
rétt við hringveginn þannig að meg-
insamgönguæðin er steinsnar frá
byggðinni. Loks skal nefna að verið
er að vinna að undirbúningi að gerð
ganga í gegnum Vaðlaheiði sem
styttir vegalengd frá Laugum til Ak-
ureyrar um 15 til 20 kílómetra.“
Ný íbúðarhúsabyggð á Laugum
Deiliskipulag nýrrar íbúðarhúsabyggðar á Laugum.
Hluti af nýbyggingarsvæðinu og afstaða til þjónustukjarna.
Sparnaður,
öryggi,
þægindi
"# $ % &' # (& ) & #
(# && ) & # # " $ % '
" $ '& & # # % # (( )
* ! !
+
& !
+
,-.
/
,-.
/
0
!
"#$
%&$! %&&'
12+3+
$3
&
4
567
.38
94
-:!
$
;!+!<
& ;!+!<
)+2
;!+!<
& ;!+!<
!
(
. / ( +
&+= / >>>!!
? 3@ A B
!
!
!
!
! ! !" !0
#$
)*
+% 3@ A B
"&-
'
'
%.
"/
-
"
"0.
%$'.&
"#1%
/
/%12
"&10
)7 B
3! 4
! $ ".$
%'$! %&&'
9 +
,
(
% %
"
! !
!
!
! !
$ $