Morgunblaðið - 04.04.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 92. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stríð í Írak: Colin Powell segir SÞ fá hlutverk við
endurreisnina Taldir undirbúa blóðugt lokauppgjör 18/22
BANDARÍSKAR hersveitir gerðu
í gærkvöld áhlaup að Saddam
Hussein-alþjóðaflugvellinum í út-
jaðri Bagdad. Vitni sögðu að gerð
hefði verið stórskotaliðsárás á her-
sveitir Íraka á alþjóðaflugvellinum
og að margir menn væru fallnir eða
særðir. Hafði AFP-fréttastofan
eftir foringja í fótgönguliði Banda-
ríkjahers, Morris Goins, að búið
væri að tryggja yfirráð yfir hluta
vallarins. Um eitt þúsund hermenn
hefðu tekið þátt í áhlaupinu og
mótspyrna verið lítil.
Í gærkvöld skýrðu fjölmargar
fréttastofur frá því að Bandaríkja-
menn hefðu náð hluta Saddam-
flugvallar sem er um 16 km frá
miðborg Bagdad. Aðrar óstaðfest-
ar fréttir hermdu að hann væri á
valdi þeirra. Reuters-fréttastofan
hafði heimildir fyrir því að um 120
manns hefðu fallið eða særst í árás
bandamanna á þorp í nágrenni
flugvallarins. Herstjórn banda-
manna vildi ekki tjá sig um frétt
þessa. CNN-sjónvarpsstöðin sagði
frá því að íröskum almenningi hefði
verið fyrirskipað að verja flugvöll-
inn.
Herfræðingar sögðu að mjög
mikilvægt mætti teljast ef banda-
menn næðu Saddam-velli. Í sál-
rænu tilliti myndi slíkur sigur vega
þungt og allir liðs- og birgðaflutn-
ingar til hersveita í kringum Bagd-
ad yrðu auðveldari. Stórskota-
liðsdrunur bárust úr úthverfum
borgarinnar er Írakar reyndu að
hefta sókn bandarískra herflokka.
Myrkur grúfði yfir því rafmagn var
farið af stórum hluta borgarinnar í
fyrsta skipti frá því að stríðið hófst.
Þungar loftárásir voru gerðar á
Bagdad í gærkvöld og eldar loguðu
í miðborginni. Óljósar fréttir bár-
ust af því að fjöldi fólks hefði flúið
höfuðborgina og spenna var sögð
fara ört vaxandi. Írakar lokuðu
helstu leiðum út úr borginni í gær-
kvöld.
Lýðveldisvörðurinn
að hruni kominn?
Hersveitir Bandaríkjamanna
voru sagðar í aðeins fimmtán km
fjarlægð frá miðborg Bagdad.
„Þær eru í minni fjarlægð frá
miðbæ írösku höfuðborgarinnar
heldur en margir Bandaríkjamenn,
sem hvern dag aka í vinnuna úr út-
hverfunum, eru frá vinnustað sín-
um,“ sagði Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna.
Bandarískir landgönguliðar
sóttu að Bagdad úr suðaustri og
mættu þeir harðri mótspyrnu
nærri Aziziyah, um 60 km suðaust-
ur af borginni. Talsmenn her-
stjórnar bandamanna sögðu hins
vegar að þess sæjust aukin merki
að úrvalssveitir Íraka, Lýðveldis-
vörðurinn, væru að hruni komnar.
Tök stjórnvalda á samfélaginu
væru greinilega tekin að linast.
Upplýsingaráðherra Íraks,
Mohammed Saeed al-Sahhaf, neit-
aði því hins vegar að hersveitir
Bandaríkjamanna hefðu tekið sér
stöðu við borgarmörk Bagdad.
„Þeir eru ekki einu sinni 160 kíló-
metra frá Bagdad,“ sagði hann.
Þvert á móti ættu Bandaríkjamenn
undir högg að sækja gegn Íraksher
á öllum vígstöðvum. „Við eigum í
hörðum bardögum við þennan snák
og við munum hafa sigur,“ sagði
hann.
Hluti Saddam-flugvallar
á valdi Bandaríkjamanna
Skýrt frá miklu mannfalli í áhlaupi í gærkvöld Stórskotaliðs-
drunur í úthverfum Bagdad og miklir eldar loga í miðborginni
Reuters
Breskur hermaður í varðstöðu vegna hugsanlegra ferða íraskra hermanna í nágrenni olíulinda í útjaðri
borgarinnar Basra í suðurhluta Íraks. Hersveitir bandamanna eru nú komnar að borgarmörkum Bagdad.
ATVINNULAUSUM fækkaði um
81 í marsmánuði samkvæmt tölum
Vinnumálastofnunar. Þetta er í
fyrsta skipti síðan í ágúst í fyrra
sem atvinnulausu fólki fækkar milli
mánaða. Um síðustu mánaðamót
var 6.131 á atvinnuleysisskrá en í
upphafi mánaðarins voru 6.212 á
skrá. Atvinnuleysi mælist núna
u.þ.b. 4%.
Bæði konum og körlum hefur
fækkað á atvinnuleysisskrá, en
karlar eru eftir sem áður nokkuð
fleiri en konur eða 3.233 karlar á
móti 2.898 konum. Langflestir sem
ekki hafa vinnu búa á höfuðborg-
arsvæðinu eða 4.001. Samkvæmt
tölunum virðist atvinnuástandið
fyrst og fremst vera að batna á
landsbyggðinni. Atvinnulausum
fækkaði ekki á höfuðborgarsvæð-
inu í mars.
Sú breyting hefur einnig orðið að
framboð lausra starfa hefur aukist
á nýjan leik. Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, segir að
dregið hafi verulega úr nýskráning-
um.
Hætta við uppsagnir
Gissur segir að mikil hreyfing sé
á atvinnuleysisskrá. Margir séu að
fá vinnu og aðrir séu að bætast við
skrána. Sumstaðar hafi atvinnu-
leysi minnkað verulega, eins og t.d.
í Vestmannaeyjum og víðar á Suð-
urlandi. Hann segir almennt já-
kvæðari tón í fyrirtækjum. Dæmi
séu um fyrirtæki sem hafi verið að
íhuga uppsagnir en séu nú fallin frá
þeim. Gissur segist vonast eftir að
atvinnuleysi eigi eftir að minnka á
næstu mánuðum. Raunhæft sé að
gera ráð fyrir að atvinnuleysi fari
niður í 3,8% í þessum mánuði.
Á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins námu útgjöld Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs einum milljarði
króna, en á sama tíma í fyrra hafði
sjóðurinn greitt 570 milljónir í at-
vinnuleysisbætur. Gissur segir að
áætlun sjóðsins byggist á því að það
dragi úr atvinnuleysi þegar líður á
árið og að útgjöld sjóðsins verði um
þrír milljarðar fyrir árið í heild. Í
fjárlögum var gert ráð fyrir að út-
gjöld sjóðsins yrðu 2,5 milljarðar.
Atvinnulausum fækkar
Stefnir í um þriggja milljarða útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs í ár
FRANSKI forsætisráð-
herrann, Jean-Pierre
Raffarin, sagði í gær að
Bandaríkin hefðu gert
„mikil mistök“ með því
að efna til hernaðar
gegn Írak.
Raffarin sagði að mis-
tökin væru í fyrsta lagi
siðferðilegs eðlis. Það
hefðu verið aðrir kostir í
stöðunni en stríð, af-
vopna hefði mátt Írak með öðrum hætti.
Ákvörðun Bandaríkjastjórnar hefði einnig
verið pólitísk mistök því hætta væri á að
Íraksstríðið ylli því að átök Ísraela og Pal-
estínumanna yrðu enn hatrammari. Þá
væri árásin á Írak herfræðileg mistök af
hálfu Bandaríkjamanna því hún gæfi til
kynna að þeir teldu sig geta farið sínu fram
hvað sem aðrir segðu. Raffarin lagði hins
vegar áherslu á að Frakkar styddu auðvitað
ekki einræðisstjórnir eins og þá írösku.
Bandaríkin
gerðu „mik-
il mistök“
París. AP, AFP.
Jean-Pierre
Raffarin
RICHARD Myers, forseti bandaríska her-
ráðsins, gaf í skyn í gær að þess yrði freist-
að að einangra stjórnina í Bagdad um leið
og herlið héldi inn í hverfi shíta í borginni
og treysti tök sín annars staðar í landinu.
Myers lét þessi orð falla á fundi með
fréttamönnum og gaf til kynna að banda-
menn hefðu ekki hugsað sér að sitja um
Bagdad. Frekar virtist hann hafa í huga að
stjórn Saddams Husseins yrði einangruð
þannig að hún hefði engin tök á samfélag-
inu. Orð Myers voru túlkuð á þann veg að
bandamenn hygðust jafnvel koma á stjórn-
valdi í Írak áður en Saddam og menn hans
hefðu verið sigraðir í Bagdad.
Stjórnin
einangruð?
Washington. AFP.
Richard Myers ræðir við fréttamenn.
BANDARÍSKIR hermenn skutu þrjá
óbreytta, íraska borgara til bana skammt
suður af Bagdad í gær.
Að sögn CNN-sjónvarpsstöðvarinnar
hófu bandarískir landgönguliðar skothríð
þegar bílstjóri leigubifreiðar varð ekki við
fyrirskipunum þeirra um að nema staðar
við varðstöð. Bílstjórinn og annar maður
létu lífið í árásinni. Síðar andaðist tveggja
ára drengur eftir að hafa gengist undir að-
gerð vegna skotsára á höfði. Móðir hans
særðist og var hún í lífshættu í gærkvöld.
Bandarískir embættismenn staðfestu
þessa frétt í gærkvöld.
Skutu óbreytta
borgara til bana
♦ ♦ ♦