Morgunblaðið - 04.04.2003, Qupperneq 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 41
✝ Maggý HelgaJóhannsdóttir
fæddist á Siglufirði
26. apríl 1924. Hún
lést á Landspítala –
Háskólasjúkrahúsi í
Fossvogi 29. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Sigríður
Guðmundsdóttir, f. í
Hofssókn í Skaga-
firði 31. desember
1882, d. 18. mars
1965, og Jóhann
Kristinsson, f. í
Grafargerði á Höfðaströnd 25.
nóvember 1883, d. 18. desember
1969. Þau eignuðust 12 börn en
fyrir átti Jóhann soninn Vil-
hjálm, f. 1902, látinn. Börn
þeirra hjóna eru: Magnúsína, f.
1904, látin, Kornelía, f. 1907, lát-
in, Helga, f. 1909, látin, Júlíus, f.
1911, látinn, Jóhann, f. 1913, lát-
inn, Jósefína, f. 1914, látin, Fann-
Börn Maggýjar og Tómasar eru:
a) Margrét, f. 6. desember 1950,
maki Arnar Jósefsson, hún á einn
stjúpson, Sigurþór, og þrjú
barnabörn, b) Sigríður, f. 1. des-
ember 1952, í sambúð með Guð-
jóni Sverrissyni, hún á þrjú börn,
Hörpu, Tómas og Baldur Þór og
tvö barnabörn, c) Jóhann, f. 9,
febrúar 1957, í sambúð með Sig-
urlaugu Sæmundsdóttur, hann á
þrjár dætur og eina stjúpdóttur,
Maggý Helgu, Valgerði, Heru og
Hrefnu, og d) Helga, f. 12 mars
1963, maki Ingvi Magnússon, þau
eiga þrjú börn, Heiðu, Andra og
Daða.
Maggý rak um árabil grímu-
búningaleigu ásamt Þorgerði
Grímsdóttur. Hún vann á skrif-
stofu Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu um tíma og tók virkan
þátt í félagsmálum þar, var m.a. í
Basarnefnd og fulltrúi á þingum
Sjálfsbjargar. Á meðan börnin
voru að vaxa úr grasi var hún
heimavinnandi. Maggý og Tómas
bjuggu lengst af í Reykjavík en
hin síðari ár í Kópavogi.
Útför Maggýjar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
berg, f. 1915, látinn,
Sigurlína, f. 1917,
Guðmundur, f. 1920,
látinn, Guðleif, f.
1922, Maggý Helga
og Gunnar, f. 1927.
Maggý giftist 19.
ágúst 1950 eftirlif-
andi eiginmanni sín-
um, Tómasi Jónssyni,
f. í Breiðholti í
Reykjavík 18. ágúst
1929. Foreldrar hans
voru hjónin Katrín
Eyjólfsdóttir, f. á
Kirkjubóli í Hvítár-
síðu 18. janúar 1891, d. 14. júní
1982, og Jón Ingimarsson, f. á
Helgastöðum í Eyjafjarðarsveit
16. apríl 1894, d. 8. janúar 1964.
Maggý átti tvö börn fyrir hjóna-
band, þau eru: a) Sandra, f. 20.8.
1944, maki Helgi Björnsson, hún
á einn son, Ragnar Tómas og tvö
barnabörn, og b) Ólafur Jóhann,
f. 9. janúar 1947, d. 9. ágúst1974.
Elsku mamma mín og besta vin-
kona er látin eftir erfiða sjúkralegu.
Margs er að minnast, mamma mín.
Þú hafðir mjög gaman af söng, þú
söngst fyrir okkur og kenndir okkur
mörg lög þegar við vorum lítil þó að
við hefðum ekki öll erft hæfileikana
þína að syngja. Ég man þegar við vor-
um að fara norður á Siglufjörð til
ömmu og afa, að í Hvalfirðinum
söngst þú alltaf um Harðarhólma, öll
erindin. Eins var þegar við fórum í
útilegur þá var sungið í bílnum af
hjartans list og hver með sínu nefi. Já,
útilegurnar voru margar þótt útbún-
aðurinn þætti ekki boðlegur í dag,
reimað tjald með lausu segli í botn-
inum, vatteruð teppi og sængur, ekki
voru svefnpokar. Það varð mikil bylt-
ing þegar þið eignuðust fimm manna
tjaldið með útskotinu, þvílík höll.
Þrátt fyrir þessar frumstæðu græjur
erum við systkinin öll með þessa úti-
leguáráttu þótt nú sé útbúnaðurinn
dreginn áfram um þjóðvegina.
Þú varst mjög fjölskyldurækin og
varst upphafsmaður að ættarmótum í
móðurætt þinni 1977 í Húnaveri, lengi
voru þau á hverju ári en nú annað-
hvert ár og verður það skrítið að vera
án þín, mamma mín, í sumar í Ólafs-
firði.
Mamma, ég man þegar þú saum-
aðir öll föt á okkur á nóttunni þegar
við vorum sofnuð, það var eini tíminn
sem þú hafði friði, gallabuxurnar voru
meira að segja með merkjum svo það
sæist ekki að þær væru heimasaum-
aðar. Þú saumaðir inniskó með „Baby
Doll“ náttfötum og náttsloppum fyrir
ein jólin handa okkur Sigríði.
Það var fjör í Skipholtinu þegar þið
Gerða voruð með grímubúningaleig-
una. Allur kjallarinn undirlagður,
straujað, pakkað og merkt fyrir
næsta grímuball, og svo endurtekið
fyrir næstu helgi, og var öll fjölskyld-
an á kafi í þessu með ykkur. Þegar fór
að hausta byrjaði basarundirbúning-
urinn hjá Sjálfsbjörgu á fullu, fyrst á
Marargötu og svo í Hátúni og tókum
við systurnar virkan þátt í því og þótti
gaman og ómissandi að vera með. Og
svo náttúrulega að vinna á basarnum,
fyrst í Lindarbæ og síðan í Sjálfs-
bjargarhúsinu. Þó að við flyttum að
heiman voru fimmtudagskvöldin frá-
tekin í þetta verkefni.
Mamma, þú og pabbi hafið alltaf
borið velferð okkar systkinanna fyrir
brjósti og verið til staðar fyrir okkur.
Sama gildir um tengdabörn, barna-
börn og barnabarnabörn enda hafa öll
börn laðast að ykkur. Faðmur þinn
stóð alltaf opinn fyrir okkur öll. Til þín
gat ég alltaf leitað, fengið góð ráð og
trúað þér fyrir öllum mínum leynd-
armálum.
Þú fórst til læknis sem sendi þig á
sjúkrahús, hver hefði trúað að þú
kæmist ekki heim úr þeirri ferð. Síð-
ustu rúmar fjórar vikur voru þér erf-
iðar, miklar rannsóknir og síðan
flensa ofan á allt. Að sjá þrótt þinn
minnka með hverjum degi og svo á
gjörgæsludeild í tæpar tvær vikur tók
mikið á. Ég þakka fyrir þær stundir
sem ég átti með þér á hverjum degi
þennan tíma og hafa fengið að hjálpa
þér eins og ég gat.
Ég vil þakka hjúkrunarfólki á B2 í
Fossvogi fyrir umönnun hennar
mömmu minnar. Sérstaklega þakka
ég hjúkrunarfólki og læknum á gjör-
gæsludeild svo og séra Gunnari R.
Matthíassyni fyrir einstaka um-
hyggju, elskulegheit og hlýhug í garð
mömmu minnar og okkar allra á þess-
um erfiðu tímum.
Elsku pabbi, við munum öll hjálpa
þér í gegnum þessa miklu sorg og til
að líta björtum augum fram á veginn.
Hvíl í friði, elsku hjartans mamma
mín.
Þín dóttir
Margrét.
Elsku mamma mín, það er svo
margt sem ég get þakkað þér fyrir,
allt sem þú hefur gert fyrir mig og
hjálpað mér, en allra mest fyrir að
vera móðir mín, amma barnanna
minna og langamma litlu barna-
barnanna minna.
Elsku mamma, uppeldið á okkur
systkinunum var mest í þínum hönd-
um því pabbi var alltaf að vinna og
það kom yfirleitt í þinn hlut að leyfa
eða banna þegar við vorum að rella
um eitthvað og þú komst þér upp góð-
um svip sem við skildum og þann svip
höfum við reynt á okkar börn en það
virkar ekkert á þau. Þau bara gera
grín og herma eftir. Svona er nú ung-
dómurinn í dag, mamma mín, annað
en þegar þú varst að ala okkur upp.
Alltaf var gaman að rifja upp með
þér útilegurnar sem við fórum í á
sumrin. Þið pabbi voruð svo dugleg að
fara með okkur þótt þægindin væru
engin fyrir þig fyrstu árin, en samt
var farið.
Þú hefur alltaf verið svo dugleg að
ferðast þegar heilsan hefur leyft og
núna síðustu árin fannst þér gott að
fara í sólarlandaferðir og vera í hit-
anum, eins að fara í Húsafell í bústað-
inn.
En nú ertu farin í enn eitt ferðalag-
ið, laus við þjáningarnar og erfið veik-
indi síðustu vikur. Ekki gat mig grun-
að þegar við pabbi fylgdum þér til
læknis og þú lögð inn á sjúkrahús til
rannsóknar að þú færir ekki heim aft-
ur. Það er svo erfitt að skilja vilja
Guðs.
Elsku mamma mín, þinn dagur
hefur víst verið kominn og ég trúi að
það sé vel tekið á móti þér á nýjum
stað.
Styrk minn í sorginni á ég í bæn-
inni, SÁÁ og orðum þínum að þakka
er þú sagðir við mig fárveik: „Ég er
svo stolt af þér.“
Þessi orð sitja fast í mér, elsku
mamma mín því ég veit hvað þú
meintir.
Það er svo erfitt að kveðja þig,
mamma mín. Ég mun gera allt sem ég
get til að styðja pabba í sorg hans og
framtíðinni, eins og þú baðst okkur
börnin ykkar um, það sýnir okkur
hvað ást þín til hans er sterk.
Hvíldu í friði, elsku móðir mín.
Sigríður.
Elsku amma.
Ég er þér þakklát fyrir svo margt
og mun alltaf muna góðu stundirnar
sem við áttum saman. Þrátt fyrir að
þú sért farin til himna veit ég að þú
munt alltaf vera hjá mér í anda. Takk
fyrir að kenna mér á lífið og vera allt-
af til staðar með vel valin orð og hlýtt
faðmlag. Hvíl þú í friði.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjörn Egilsson.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Maggý Helga Jóhannsdóttir
yngri.
„Tilvera okkar er undarlegt ferða-
lag“ orti Tómas forðum.
Ferðalagi Maggýjar á þessari jörð
er lokið en það heldur áfram á næsta
tilverustigi.
Ég trúi því að nú sé hún meðal
genginna ástvina í eilífri birtu og yl.
Birtu og yl sem hún þráði svo mjög í
seinni ár.
Ég kynntist Maggý þegar ég giftist
Gunnari bróður hennar fyrir 45 árum.
Frá þeim tíma hefur vináttan haldist
því mjög kært var með öllum systk-
inunum.
Heimili Maggýjar og Tomma var
ætíð opið jafnt stórum sem smáum úr
fjölskyldunni.
Ættarmótin voru henni kær því að
hún vildi halda í stórfjölskylduna.
Öll börn hændust að Maggý því að
hún gaf sér tíma til þess að tala við
þau.
Maggý var virkur félagi í Sjálfs-
björg, félagi fatlaðra í Reykjavík og
nágrenni, og vann hún á skrifstofu fé-
lagsins um tíma. Sjálfsbjörg fékk góð-
an liðsmann þar sem Maggý var. Hún
var í basarnefnd og vann ótrúlega
mikið og vel. Hún var í samskiptum
við fatlað fólk bæði innanlands og ut-
an sem gaf henni mikið og hún gaf
styrk og hlýju til baka.
Skemmtilegustu minningarnar eru
þegar systkinin hittust og fóru að rifja
upp liðna tíma. Þá var mikið hlegið og
kátt á hjalla. Stundum var tekið í spil
og var þá reikningurinn gjarnan
geymdur þar til hist var næst.
Elsku Maggý, ég og fjölskylda mín
kveðjum þig með þakklæti fyrir allt
sem þú gafst okkur í gegnum árin.
Við vottum Tomma, börnunum og
allri fjölskyldunni samúð okkar.
Góður guð blessi minninguna.
Valey Jónasdóttir.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Við sitjum saman í dag nokkrar
gamlar vinkonur og langar að koma á
blað kveðju til Maggýjar sem við höf-
um átt að vini og einstökum félaga í
áratugi. Í hugann koma margar ljúfar
minningar. Við brosum og hlæjum,
eins og við værum orðnar þrítugar
aftur, rifjum upp löngu liðnar stundir,
– barnauppeldi, dansleiki, kaffisopa
við eldhúsborðið, fermingar, giftingar
– sumt er eins og það hefði gerst í
gær. Minningarbrotin koma og fara.
Það er erfitt að taka eitt fram yfir
annað. Við kynntumst fyrst á sjötta
áratugnum í gegnum eiginmenn okk-
ar. Hópurinn var fljótur að bindast
sterkum vináttu- og tryggðarbönd-
um, sem hafa haldist óslitin síðan. Á
okkar bestu árum hittumst við oft og
skemmtum okkur vel saman. Fjöl-
skyldurnar hafa ávallt notið þess að
hittast og koma saman, jafnt hvers-
dags sem á hátíðarstundum. Ljúfar
stundir og litríkar minningarnar lifa
með okkur. Í huga okkar eru það ein-
stök forréttindi að hafa kynnst
Maggý og átt með henni samleið í öll
þessi ár. Við höfum notið hennar ein-
staka hugarfars og ljúfmennsku í
garð allra sem hún kynntist. Maggý
var okkur ákaflega kær. Það er ekki
hægt að minnast Maggýjar nema
nefna Tomma. Maggý og Tommi voru
einstaklega samrýnd og samhent í
öllu sem þau tóku sér fyrir hendur, –
þau var varla hægt að nefna nema í
sömu setningu. Tommi var óþreyt-
andi við að hlúa að Maggý fram á síð-
asta dag. Hann sýndi henni mikla ást
og umhyggju sem hún mat mikils. Við
biðjum góðan Guð að styrkja og
blessa Tomma og fjölskylduna alla.
Maggý, kveðja okkar til þín felst í
þessum ljóðlínum:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Þórunn, Álfhildur, Stella,
Margrét og makar.
MAGGÝ HELGA
JÓHANNSDÓTTIR
Elsku amma ég sakna þín svo
mikið.
Ég var alltaf að vona að þér
myndi batna. Ég bað til guðs á
hverju kvöldi en það dugði ekki.
En svona er lífið. Ég veit að nú líð-
ur þér miklu betur, þarna uppi hjá
guði.
Hera Jóhannsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Nýja Glæsibæ, sími 533 6129 • Smáratorgi, sími 544 4031
Hafnarfirði, sími 565 0480 • Reykjanesbæ, sími 421 1501
Heiðrum minningu látinna
Blómalagerinn • beint frá bóndanum
Fallegar, sérmerktar
GESTABÆKUR
Í Mjódd
sími 557-1960www.merkt.is
merkt
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir og tengdasonur,
SVEINN MAGNÚS MAGNÚSSON
frá Neskaupstað,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju mánu-
daginn 7. apríl kl. 14.00.
Ólöf Þorgeirsdóttir,
Hlynur Sveinsson,
Harpa Rún Björnsdóttir,
Dagur Sveinsson,
Bjarki Sveinsson,
Anna Sveinsdóttir,
Bergljót Bjarkadóttir,
Guðný Bjarkadóttir,
Hulda Bjarkadóttir,
Þóra Bjarkadóttir,
Helgi Magnússon,
Þórlindur Magnússon,
Jónína Þorgrímsdóttir, Þorgeir Sigfinnsson.