Morgunblaðið - 04.04.2003, Side 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 53
BJARKI Sigurðsson verður ekki
þjálfari handknattleiksliðs Aftur-
eldingar á næstu leiktíð. Bjarki
skýrði stjórn handknattleiks-
deildar Aftureldingar í gærkvöldi
frá þeirri ákvörðun sinni að gefa
ekki kost á sér til starfans á
næstu leiktíð, en hann hefur verið
þjálfari Aftureldingar síðustu
þrjú ár. Hann hyggst heldur ekki
leika áfram með liðinu. „Þetta
var sameiginleg ákvörðun fjöl-
skyldunnar og ég skil við Aftur-
eldingu í mesta bróðerni, þótt ég
sé ekki sáttur við árangurinn í
deildinni í vetur,“ sagði Bjarki í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég er ákveðinn í að taka mér
eins árs frí frá þjálfun, hlaða raf-
hlöðurnar á nýjan leik eftir að
hafa verið á fullri ferð í hand-
knattleik í átján ár í meist-
araflokki,“ sagði Bjarki,
sem segist ekki ætla að
leika handknattleik næsta
vetur.
Bjarki kom til liðs við
Aftureldingu fyrir átta ár-
um og hefur leikið með
henni síðan, að einu ári
undanskildu, þegar hann
var í herbúðum Drammen
í Noregi leiktíðina 1997–
1998.
„Árin hjá Aftureldingu
hafa verið frábær og þar
má segja ég hafi átt minn
besta tíma á ferlinum. Mér
finnst hins vegar kominn
tími til að rifa seglin. Eftir
að hafa þjálfað Aftureld-
ingu síðustu þrjú ár finnst
mér eðlilegt að hleypa
öðrum að.“
Jóhann Guðjónsson,
formaður handknatt-
leiksdeildar Aftureld-
ingar, sagði við Morg-
unblaðið að fullur
skilningur væri á ákvörð-
un Bjarka og þar á bæ
stæðu menn í þakk-
arskuld við hann fyrir
ómetanlegt framlag hans
til félagsins á und-
anförnum átta árum.
Ekki væri ljóst hver tæki
við þjálfun Aftureld-
ingar. „Bjarki var okkar
fyrsti kostur, nú er hann
ekki lengur fyrir hendi
og þá förum við að horfa
í kringum okkur. Ætli
við gefum okkur ekki
einhvern tíma til þess,“
sagði Jóhann.
Bjarki tekur sér frí frá þjálfun
Bjarki Sigurðsson
WAYNE Rooney lét sér fátt um finnast þegar Sven-Göran
Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, tilkynnti honum
einni klukkustund fyrir leik Englendinga og Tyrkja að
hann yrði í byrjunarliði. Hinn 17 ára knattspyrnumaður
sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði landsliðsins sagði ein-
faldlega ókei. „Það er svo sem ekkert verra svar en hvað
annað,“ sagði Eriksson sem bar lof á frammistöðu pilts í
leiknum. Í sama steng tóku ensku blöðin í gærmorgun. Þau
beindu kastljósi sínu fyrst og fremst að Rooney sem þótti
leika eins og sá sem valdið hafði. Rooney er yngsti leikmað-
urinn sem verið hefur í byrjunarliði enska landsliðsins.
Í aðdraganda landsleiksins við Tyrkja var mikið gert úr
vali Eriksson á Rooney í lið sitt fyrir viðureignirnar við
Liechtenstein og Tyrki. Eriksson segist hafa sannfærst um
að rétt væri að velja Rooney þegar hann sá pilt leika með
Everton gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á dögunum.
„Þegar ég sá hvers megnugur Rooney var gegn einu besta
félagsliði heims þá sannfærðist ég um að það væri engin
ástæða til að bíða lengur með að velja hann í landsliðið,“
sagði Eriksson.
Rooney lét sér
fátt um finnast
Ég segi strákunum auðvitað að égsé bara svona góður í mér að ég
geti ekki gert þeim það að vera með
enn eina ferðina,“ sagði Broddi í gam-
ansömum tón þegar hann var spurður
hvort hann ætlaði ekki að vera með í
einliðaleiknum, en „gamli“ maðurinn
kom nokkuð á óvart í fyrra þegar
hann sigraði í einliðaleik.
„Ég á von á bæði jöfnu og skemmti-
legu móti þar sem ýmislegt getur
gerst. Auðvitað eru ákveðnir einstak-
lingar sigurstranglegri en aðrir en
þau sterkustu er það jöfn að það getur
allt gerst eins og sýndi sig til dæmis í
fyrra,“ segir landsliðsþjálfarinn.
Spurður um hverja hann teldi lík-
legasta til afreka sagði hann: „Í ein-
liðaleik karla er Tomas Viborg líkleg-
astur til sigurs – en hann var það
reyndar líka í fyrra og þá gekk það
ekki eftir. Hann hefur leikið mjög vel
að undanförnu og ef hann leikur eðli-
lega þá á hann að vinna.“
Sara Jónsdóttir varð Íslandsmeist-
ari í fyrra og baráttan í einliðaleik
kvenna mun standa á milli hennar og
Rögnu Ingólfsdóttur að mati Brodda.
Elsa og Tryggvi Nielsen urðu
meistarar í tvenndarflokki í fyrra,
nokkuð óvænt og hafa sjálfsagt fullan
hug á að verja þann titil. „Ég á von á
jafnri keppni tvenndarleiknum. Tom-
as og Brynja Pétursdóttir spila sam-
an og Helgi Jóhannesson og Sara og
hef ég trú á að baráttan standi á milli
þeirra,“ segir Broddi.
Í tvíliðaleik kvenna urðu Ragna og
Vigdís Ásgeirsdóttir meistarar í
fyrra, en sú síðarnefnda hefur ekki
æft af fullum krafti í vetur þannig að
þær skiptu liðinu upp. „Ragna spilar
með Katrínu Atladóttur og ég held að
þær hljóti að teljast sigurstrangleg-
astar, en Sara og Drífa Harðardóttir
koma líka sterkar inn,“ segir Broddi.
Þó að landsliðsþjáflarinn verði ekki
með í einliðaleiknum þá tekur hann
sér spaða í hönd í tvíliðaleiknum þar
sem hann leikur með Helga Jóhann-
essyni. „Íslandsmeistararnir Tryggvi
og Sveinn Sölvason eru líklegastir til
sigurs í tvíliðaleiknum en einnig þeir
Njörður Ludvigsson og Magnús Ingi
Helgason. Svo ætlum við Helgi auð-
vitað að gera þeim lífið eins leitt og við
getum,“ segir Broddi.
Mótið hefst í dag, verður fram hald-
ið á morgun og síðan verða úrslita-
leikirnir á sunnudaginn.
Broddi ver
ekki meist-
aratitilinn
BRODDI Kristjánsson, lands-
liðsþjálfari í badminton, mun
ekki fagna 15. Íslandsmeist-
aratitli sínum í einliðaleik karla
um helgina, en þá verður Ís-
landsmótið haldið í TBR-húsinu.
Ástæðan er einföld; Broddi
verður ekki með í einliða-
leiknum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ragna Ingólfsdóttir, Ís-
landsmeistari í einliðaleik
kvenna í badminton.
ÁSTHILDUR Helgadóttir, lands-
liðsfyrirliði kvenna í knattspyrnu,
hafnaði á dögunum tilboði frá norsku
meisturunum Kolbotn, sem Katrín
Jónsdóttir hefur leikið með um árabil.
Ásthildur verður því að öllu óbreyttu
áfram í röðum KR í sumar.
GUÐFINNUR Kristmannsson
skoraði 4 mörk fyrir Wasaiterna sem
steinlá fyrir Alingås, 35:23, í sænsku
1. deildinni í handknattleik í fyrra-
kvöld. Þetta var lokaumferðin í deild-
inni og hafnaði Wasaiterna í 7. sætinu
og leikur því áfram í 1. deildinni á
næstu leiktíð en sex efstu liðin fara í
úrvalsdeildina.
SEX lið úr úrvalsdeildinni, Fylkir,
ÍBV, KR, FH, ÍA og Grindavík ásamt
1. deildarliði Aftureldingar halda í
æfinga- og keppnisferð til Canela á
Spáni á morgun. Liðin keppa þar á
Canela Cup, þar sem tólf íslenskir
dómararar sjá um dómgæslu á
mótinu. Mótið hefst á mánudaginn og
eiga Grindvíkingar, sem mæta til
leiks með Lee Sharpe, titil að verja.
FIS eða Alþjóðaskíðasambandið
hefur nú til meðferðar tillögu þess
efnis að breyta keppnisfyrirkomulagi
í skíðagöngu á þann hátt að gera
íþróttina aðgengilegri fyrir sjón-
varpsáhorfendur. Lagt er til að ávallt
verði allir keppendur ræstir af stað á
sama tíma og sá sem komi fyrstur í
mark sé sigurvegari. Til þessa hafa
keppendur verið ræstir af stað með
um 30 sek. millibili og hafa margir átt
í vandræðum með að átta sig á hvern-
ig staðan er í hverri keppni fyrir sig.
KYLFINGURINN Ernie Els sem
er í öðru sæti á heimslista atvinnu-
manna í íþróttinni verður með á
bandaríska meistaramótinu í golfi
sem hefst í næstu viku. Mótið er
fyrsta stórmót ársins en alls eru stór-
mótin fjögur, opna breska, opna
bandaríska og PGA-meistaramótið.
Els sem er frá S-Afríku hefur átt við
meiðsli að stríða á úlnlið undanfarnar
vikur.
MARKVÖRÐUR ítalska knatt-
spyrnuliðsins AC Milan, Dida, var í
dag úrskurðaður í sjö mánaða skil-
orðsbundið fangelsi á Ítalíu þar sem
hann hafði notað falsað vegabréf frá
Portúgal er hann flutti frá Brasilíu
fyrir þremur árum síðan. Hinn 29 ára
gamli leikmaður er einn af mörgum
leikmönnum frá S-Ameríku sem hef-
ur farið þessa leið að nota falsað vega-
bréf við komu þeirra til Ítalíu.
ALVARO Recoba frá Úrúgvæ á
eftir að mæta fyrir rétt á Ítalíu vegna
sömu saka og Dida en Recoba leikur
sem framherji með Inter Milan.
Markmiðið með tvöföldu ríkisfangi
var að komast undan reglugerðum
hjá ítalska knattspyrnusambandinu
sem sett hefur kvóta á leikmenn sem
koma frá löndum utan ESB.
FÓLK
KRISTJÁN Helgason er á meðal
þátttakenda í úrslitakeppni Regal
Scottish atvinnumótsins í snóker
sem hefst í Edinborg á morgun.
Hann mætir James Wattana frá Taí-
landi í 48 manna úrslitum á sunnu-
dag en sigurvegarinn í þeirri viður-
eign mætir Matthew Stevens í 32
manna úrslitum á miðvikudaginn.
Wattana, andstæðingur Kristjáns,
er frægasti snókerspilari Asíu og sá
sem gerði íþróttina vinsæla í álfunni.
Hann sló í gegn 16 ára gamall og hef-
ur keppt á atvinnumótunum frá 19
ára aldri. Þar var hann sigursæll á
árunum 1989 til 1995 og var þrívegis
kjörinn íþróttamaður ársins í Taí-
landi en þar er hann nánast í dýr-
lingatölu. Wattana, sem nú er 33 ára,
hefur gefið eftir undanfarin ár og er
hrakandi sjón helsti áhrifavaldurinn
í því. Hann var í 32. sæti heimslist-
ans þegar þetta tímabil hófst, og hef-
ur ekki verið neðar frá árinu 1990. Í
vetur hefur hann sigið niður í 40.
sætið og því hefur dregið saman með
honum og Kristjáni, sem hóf tímabil-
ið í 75. sæti en er nú í 64. sæti.
Kristján mætir þjóðhetju Taílands
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is