Morgunblaðið - 05.05.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 120. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Milljón við
páfamessu
Rúnar Sigtryggsson Evrópumeistari
í handbolta í gær Íþróttir 2
Ókeypis
myndasögur
Flestir sem vinna við teiknimyndir
voru á svæðinu Fólk 31
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, og Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokksins,
lýstu sig andvíga hugmyndum Ingi-
bjargar Sólrúnar í Morgunblaðinu í
gær, en hún vill að sú kvótaaukning
sem talað hefur verið um að heimila í
haust verði boðin öllum til leigu. Hún
hefur bent á að séu þessi 30 þúsund
tonn leigð innan ársins í núverandi
kerfi fáist 4,5 milljarðar fyrir kvót-
ann. Hún sagði aðspurð að hún reikn-
aði ekki með að leigan skilaði ríkis-
sjóði svo hárri upphæð. Hún gengi út
frá því að leiguverðið myndi lækka.
Ingibjörg Sólrún segir að í þessu
máli sé Samfylkingin að gæta al-
mannahagsmuna en ekki sérhags-
muna. Það sé mikil hagsmunagæsla í
gangi og henni finnist að þegar orra-
hríðin sé mikil eins og nú er, þá fyrst
reyni á hverjir hafi pólitískt þrek til
að standa hana af sér og gæta þessara
almannahagsmuna. „Mér finnst að þá
þrjóti örendið til þess þegar á reynir
og mér finnst þessi viðbrögð sýna
það. Þá hlaupa þeir í skjól,“ sagði
Ingibjörg Sólrún.
Hún benti á að það væri mjög
heppilegt að byrja með nýtt kerfi
undir þeim kringumstæðum að kvót-
inn væri að aukast eins og vísinda-
menn virtust telja að óhætt væri á
næsta fiskveiðiári. Ef aukningin væri
nýtt með þessum hætti væri hægt að
byrja að fyrna án þess að tonnafjöldi
hverrar útgerðar minnkaði nokkuð
fyrstu árin meðan menn væru að að-
lagast breyttu kerfi.
„Þannig teljum við að það sé hægt
að feta sig með ábyrgum hætti inn á
þá braut að afnema forréttindin í
kerfinu og skapa forsendur fyrir jafn-
ræði og eðlilegri samkeppni í þessari
atvinnugrein,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um
afstöðu VG og frjálslyndra til upp-
boðs á 30 þúsund tonna þorskkvóta
Viðbrögðin
koma á óvart
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, talsmaður Samfylkingarinnar, seg-
ir að andstaða Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Frjáls-
lynda flokksins við tillögu Samfylkingarinnar um uppboð á 30 þús-
unda tonna þorskkvóta í haust komi sér dálítið á óvart.
AP
Fannst í faðmi
móðurinnar
AÐ minnsta kosti sjö manns létu lífið þegar fjöl-
býlishús í fátækrahverfi í Kaíró hrundi á laugardag
en fjögurra ára gamalli stúlku, Söndru Said
Shawqui, var í gærmorgun bjargað eftir tíu stunda
leit í rústunum. Stúlkan fannst í faðmi látinnar
móður sinnar sem virtist hafa skýlt dóttur sinni fyr-
ir brakinu.
Húsið var sex hæða. Tvær neðstu hæðirnar virð-
ast hafa sigið niður í jörðina og hafa íbúar kennt
nýlegum viðgerðum á skolpræsi um slysið. Faðir
litlu stúlkunnar komst einnig lífs af úr slysinu en
hann var fluttur á sjúkrahús með taugaáfall.
Tveggja systkina stúlkunnar er hins vegar saknað.
Björgunarmaður sést hér á slysstaðnum með
Söndru í fanginu, á minni myndinni sést hún á
sjúkrahúsinu eftir björgunina.
UM 450 manns höfðu í gær lát-
ist í heiminum af völdum
bráðalungnabólgunnar,
HABL, og um 6.400 manns
sýkst. Enn er ekki vitað hvern-
ig veiran veldur bólgu í önd-
unarfærunum og margt annað
er enn á huldu. Talið er full-
víst að veiran berist oft í vit
manna með dropasmiti frá
fólki sem hóstar en einnig ber-
ist hún með hægðum. Beina
menn nú sérstaklega athygl-
inni að saurmengun. Besta
ráðið til að draga úr út-
breiðslu er sem fyrr sagt vera
tíður handþvottur.
Nýjar rannsóknir sýna að
veiran getur lifað í minnst sól-
arhring utan mannslíkamans
við stofuhita, þ. á m. á plast-
klæddum húsgögnum og hurð-
arhúnum, einnig virðist hún
þola ágætlega frost eins og
fleiri veirur. Algeng sótt-
hreinsunarefni eru sögð drepa
hana á nokkrum mínútum.
Reuters
Starfsmaður í stórmarkaði í
Peking raðar birgðum af sótt-
hreinsunarefni í hillur í gær.
Veiran er
lífseig
Peking, Washington. AFP.
MAHMUD Abbas, forsætisráðherra heimastjórnar Pal-
estínumanna á sjálfstjórnarsvæðunum, hvatti í gær Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, til að eiga með sér fund
við fyrsta tækifæri en leiðtogar deiluaðila hafa ekki ræðst
við milliliðalaust í meira en tvö ár. Abbas sagði á fundi
með palestínskum fréttamönnum í borginni Ramallah á
Vesturbakkanum að hann ætlaði að hefjast þegar handa
og láta safna saman vopnum sem ýmsir herskáir hópar úr
röðum Palestínumanna ráða yfir.
Herskáu hóparnir, þ. á m. Hamas og Íslamska Jihad,
hafa hafnað algerlega kröfum hans um að afvopnast og
vilja halda áfram vopnaðri baráttu og hryðjuverkum.
„Það er aðeins ein stjórn [Palestínumanna] og enginn
mun fá að ráða yfir vopnum nema Palestínustjórn,“ sagði
Abbas. Gaf hann í skyn að hann myndi reyna að beita
hópana fortölum og sagðist ekki vilja koma af stað borg-
arastríði og blóðsúthellingum.
Sendimaður Bandaríkjastjórnar, William Burns,
ræddi í gær við ísraelska ráðamenn og hittir Abbas í dag.
Sagði blaðið Haaretz að ágreiningur hefði verið á fundi
Burns með Silvan Shalom utanríkisráðherra. Shalom
hefði sagt að Ísraelar krefðust þess að Palestínumenn
féllu endanlega frá kröfum um að flóttafólk, sem missti
heimili sín í Ísrael þegar ríkið var stofnað fengi að snúa
aftur heim. Flóttafólkið og afkomendur þess skipta nú
milljónum og Ísraelar segja að vegna mikillar viðkomu
muni Palestínumenn fljótlega verða meirihluti í landinu.
Sharon hyggst sjálfur stjórna væntanlegum samninga-
viðræðum við Palestínumenn um að koma á friði í deilum
þjóðanna, að sögn fjölmiðla í Ísrael í gær. Ríkisútvarp
Ísraels sagði að Sharon hygðist hitta Abbas í vikunni.
Friðarsinninn Amram Mitzna, leiðtogi Verkamanna-
flokksins í Ísraels, sagði í gær af sér og sagði hann and-
stæðinga sína í flokknum hafa frá upphafi grafið undan
sér. Flokkurinn beið ósigur í þingkosningum fyrr á árinu.
Hóta efnahagslegum refsiaðgerðum
Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var á
ferð í Sýrlandi og Líbanon á laugardag og sagðist hann
hafa fengið stjórnir ríkjanna til að lofa að þrengja að
starfsemi herskárra samtaka og hryðjuverkasamtaka í
löndunum. Sagði hann í gær að ef Sýrlendingar reyndu
ekki að styðja friðarviðleitni í deilum Ísraela og Palest-
ínumanna yrðu þeir að „taka afleiðingunum“, svo gæti
farið að þeir yrðu beittir efnahagslegum refsiaðgerðum.
Hezbollah-samtökin hafa bækistöðvar í Líbanon og
margir útlægir hópar Palestínumanna eru með skrifstofu
í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Hezbollah-menn eiga
einnig fulltrúa á þinginu í Beirút.
Að sögn breska útvarpsins, BBC, telja menn ólíklegt
að settar verði í reynd hömlur á hópana sem arabaþjóðir
telji vera að berjast fyrir frelsi Palestínumanna.
Abbas hvetur Sharon forsætisráðherra Ísraels til að eiga með sér leiðtogafund
Hyggst afvopna Hamas
Jerúsalem, Beirut, Washington. AFP, AP.
HERMAÐUR við hermannagrafreit
í Jerúsalem í gær. Þar eru jarð-
settir þeir sem hafa fallið frá 1948.
AP
Þeir féllu
Toppurinn
á ferlinum
Um ein milljón við messu á Plaza de
Colon í Madrid Erlent 12