Morgunblaðið - 05.05.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 05.05.2003, Síða 12
ERLENT 12 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÁÐHERRA ferðaþjónustu í Alsír, Lakhdar Dorbani, sagði í gær að viðræður væru í gangi um lausn 31 ferðamanns frá Evrópu sem hópur glæpa- manna hefur haft í haldi síðan í febrúar. Fólkinu var rænt í Sahara-eyðimörkinni og var ekki vitað með vissu um afdrif þess. Yfirlýsing Dorbanis þyk- ir sýna að það sé enn á lífi. Þýska stjórnin mun á laug- ardag hafa lagt til að sendir yrðu þýskir sérsveitarmenn með reynslu af því að fást við mannræningja til Alsír ef ljóst þætti að beita yrði valdi til að frelsa fólkið. Fimmtán af gísl- unum eru frá Þýskalandi. Al-Qaeda- liðar handteknir YFIRVÖLD í Pakistan hafa tekið höndum fjóra menn sem grunaðir eru um aðild að al-Qaeda-hryðjuverkasamtök- unum. Gerð var skyndiárás á tvo staði í héraðinu Baluk- istan og í milljónaborginni Karachi, þar sem talið var að væru felustaðir á vegum sam- takanna, en ekki var sagt hvenær árásinar voru gerðar. Fjölmiðlar sögðu að notaðar hefðu verið vísbendingar sem borist hefðu frá bandarísku alríkislögreglunni, FBI. Fjöldagröf í Najaf FJÖLDAGRÖF fannst um helgina í Írak nálægt borginni Najaf sem er heilög borg í augum sjíta- múslima. Talið er að þar sé að finna lík tuga manna sem voru teknir af lífi eftir upp- reisn sjíta gegn stjórn Saddams Huss- eins árið 1991. Alls fundust 25 lík í gröfinni í fyrradag og hafa kennsl verið borin á 10 þeirra, 20 lík að auki fundust í gær. Skilríki fundust á sum- um líkunum. Á akri við útjaðar Babýlon- borgar hinnar fornu er talið að aðra fjöldagröf sé að finna. Segja heimamenn að nokkrir menn hafi komið þar að næturlagi, grafið holur í jörðina en fleygt í þær líkum og sorpi. Svæðið var síðan lýst bannsvæði af stjórnvöld- um. Sjómenn í gíslingu STRÍÐSHERRAR í Afríkurík- inu Sómalíu hafa í meira en mánuð haft í haldi 24 sjó- menn á Beira 9, fiskiskipi sem skráð er í Suður-Kóreu. Sómalíumennirnir segja að ekki hafi verið greitt veiði- gjald og heldur ekki gjald fyrir svonefnda öryggisþjón- ustu sem þeir hafi veitt sjó- mönnunum. Suður-kóresk skip veiða mikið í lögsögu Sómalíu. STUTT Fá gíslar í Sahara frelsi? Saddam Hussein UM ein milljón var við messu á Plaza de Colon-torginu í Madrid á Spáni í gær þar sem Jóhannes Páll II páfi helgaði fimm nýja spænska dýrlinga, þrjá presta og fimm nunnur sem öll voru uppi á síðustu öld og helguðu líf sitt starfi með fátækum. Risastórar myndir af nýju dýrlingunum voru á byggingum við torgið. Páfi sneri heim til Rómar síðdegis í gær úr Spánar- ferðinni. Mannfjöldinn fyllti fjórar breiðgöt- ur við torgið og myndaði þannig kross í miðborginni, meðal viðstaddra voru konungsfjölskyldan og flestir ráð- herrar Spánar. Átta stórir sjónvarps- skjáir voru settir upp umhverfis torg- ið til þess að almenningur gæti fylgst með messunni og um 1.500 prestar fóru um svæðið á bílum og veittu fólki sakramenti. Jóhannes Páll páfi bað fyrir var- anlegum heimsfriði við upphaf heim- sóknar sinnar til Spánar á laugardag. Þá sagðist hann vonast til þess að Spánverjar og aðrir Evrópubúar héldu tryggð við kristnar rætur og hefðbundin gildi á tímum hnattvæð- ingar. Trúin væri órjúfanlegur þáttur í þjóðarvitund Spánverja. „Ég bið Guð þess að Spánn og heimurinn allur fái notið gefandi, trausts og langvarandi friðar og sam- félags í hinum stórkostlega marg- breytileika manna,“ sagði páfi er hann ávarpaði hundruð þúsunda ung- menna eftir fund sinn með Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, á laugardag. Páfi tók á sínum tíma harða afstöðu gegn hernaði Bandaríkjanna og Breta í Írak en Aznar studdi hern- aðinn. Talsmaður Aznars sagði á hinn bóginn að málið hefði ekki verið rætt á fundinum. Páfi er í sinni fimmtu heimsókn til Spánar frá því hann tók við embætti fyrir 24 árum. Dýrlingarnir fimm hétu Pedro Poveda, sem var myrtur árið 1936 í upphafi borgarastríðsins er lauk 1939, Angela de la Cruz, Genoveva Torres, Maravillas de Jes- us úr karmelítareglunni og jesúíta- presturinn Jose Maria Rubio. Þau voru blessuð á 9. og 10. áratug síðustu aldar, sem er fyrsta stig þess að fólk sé tekið í tölu dýrlinga en til að slík at- höfn geti farið fram verða að liggja fyrir vitnisburðir um kraftaverk. Eigi síðan að taka skrefið til fulls verða að liggja fyrir vitnisburðir um annað kraftaverk. Viðstaddir messuna í dag voru fimm manns sem kirkjan segir að hafi upplifað slík kraftaverk og tengjast nýju dýrlingunum fimm. Ferðapáfinn Jóhannes Páll Páfi hefur nú ferðast meira erlend- is en nokkur annar páfi í sögunni, Spánarferðin var 99. utanlandsferð hans frá því að hann tók við embætt- inu 1978. Næst fer hann til Króatíu. Spænskir fjölmiðlar sögðu hann líta betur út og virðast hraustari en búist hafði verið við. Páfi verður 83 ára gamall síðar í þessum mánuði og þjáist af Parkin- sonveiki. Hann á mjög erfitt með gang og talið er oft óskýrt, einnig not- ast hann við sérsmíðaðan hjólastól með vökvalyftum til að hækka sætið er hann syngur messu. Er hann ávarpaði unga fólkið á laugardag gerði hann að gamni sínu og spurði: „Hvað er páfinn gamall? Nærri 83 ára. Ég er 83 ára gamalt ungmenni.“ Var þessum orðum hans tekið með miklum fagnaðarlátum. Reuters Páfi veifar til mannfjöldans við upphaf útimessunnar í gær. Um 5.000 lögreglumenn gættu öryggis á staðnum. Milljón manns við páfamessu Fimm nýir dýrlingar helg- aðir á Spáni Madrid. AP, AFP. LÍK allra barna sem saknað var eftir að heimavistarskóli í bænum Celt- iksuyu hrundi í jarðskjálfta í austur- hluta Tyrklands í liðinni viku, hafa nú fundist. Staðfest hefur verið að 167 manns létu lífið af völdum skjálftans á svæðinu sem er í austur- hluta landsins og kennt við borgina Bingol. Þar af voru 83 börn á aldr- inum 7 til 16 ára í heimavistarskól- anum. Rúmlega þúsund manns slös- uðust. Leit hefur nú verið hætt. Síðasta líkið fannst í gærmorgun og voru foreldrar barnanna þá á skólalóð- inni, margir grétu en þökkuðu jafn- framt leitarmönnum fyrir framlag þeirra. „Við munum aldrei gleyma ykkur,“ sagði einn faðirinn. Yfir 80 byggingar í Bingol-héraði hrundu og 110 skemmdust að sögn héraðsstjór- ans, Huseyin Avni Cos. Börnin sem fórust voru í svefnskála skólans er reistur var fyrir nokkrum árum. Eft- irlitsmenn hafa verið að rannsaka rústir skólans. Svo virðist sem steyp- an í svefnskálanum hafi verið léleg og ekki hafi verið notað nægilega mikið af steypustyrktarjárni. Einnig hefur verið gagnrýnt að hjálparstarf hafi verið illa skipulagt og enn hafði íbúum í sumum þorpum ekki borist nein aðstoð í gær. Í einu þorpinu urðu um 20 manns að sofa í sama tjaldinu. Mannskæðir jarðskjálftar eru al- gengir í Tyrklandi. En sérfræðingar segja að þrátt fyrir það hafi lítið ver- ið gert til að lagfæra hús sem hafi frá upphafi verið illa byggð. Recep Tayyip Erdogan, nýr forsætisráð- herra Tyrklands, heitir því að nú verði tekið á þessum málum en þeim ekki einfaldlega sópað undir teppið. Lík allra barnanna fundin Celtiksuyu. AP, AFP. Jarðskjálftarnir í Tyrklandi RÚSSNESKT Sojus-geimfar, sem flutti þriggja manna áhöfn frá Al- þjóðlegu geimstöðinni, lenti heilu og höldnu í Kasakstan í gærmorg- un norðan við Aralvatn í Mið-As- íuríkinu Kasakstan. Geimfarið lenti hins vegar nokkur hundruð kílómetra frá fyrirhuguðum lend- ingarstað og þurfti að leita að því í tvær stundir með þyrlum og bíl- um. Geimfararnir þrír stóðu við geimfarið þegar flugmenn komu loks auga á það og veifuðu til leit- armanna. Bandarískum geimferðum var hætt tímabundið eftir að geimferj- an Kólombía fórst í febrúar. Bandaríkjamennirnir Kenneth Bowersox og Donald Pettit og Rússinn Nikolaj Búdarín höfðu verið í geimstöðinni frá því í nóv- ember, tveimur mánuðum lengur en upphaflega var áætlað. Tveir geimfarar, Bandaríkjamaðurinn Edward Lu og Rússinn Júrí Mal- entjsenko, fóru til geimstöðvarinn- ar fyrir skömmu til að leysa þá af. Tíu þyrlur með lækna frá bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, rússneska embættismenn og blaðamenn fóru frá Astana, höf- uðborg Kasakstan, til að leita að geimfarinu. Hlustað var á fjar- skipti við geimfarið meðan það kom inn til lendingar og allt virtist ganga vel. En þegar komið var á staðinn þar sem geimfarið hafði átt að lenda fannst ekki neitt. Og ekkert heyrðist til geimfaranna. Tíndu túlípana á lendingarstaðnum Fimm þyrlur sneru þá aftur til Astana og í rússnesku stjórnstöð- inni í Moskvu ríkti ótti og ring- ulreið. Loks tilkynnti stjórnstöðin að geimfarið hefði lent um 460 km norðan við áformaðan lendingar- stað. Geimfarið lenti á hliðinni og dróst um 12 metra eftir jörðinni. Geimfarana sakaði ekki og meðan þeir biðu eftir björgunarmönnum sínum röltu þeir um og tíndu villta túlípana á staðnum. „Ósköp venjuleg heimferð til jarðar,“ sagði einn geimfaranna, Bandaríkjamaðurinn Kenneth Bowersox, brosandi við komuna til flugvallarins í Astana. Landi hans, Donald Pettit, virtist þó reikull í spori og átti erfitt með gang og allir þurftu þeir stuðning fyrst í stað. Of bratt inn í gufuhvolfið? Einn af talsmönnum NASA sagði að geimfarið, sem mun vera af endurbættri Sojus-gerð, hefði komið brattar inn í gufuhvolfið en ráðgert hefði verið. Er ekki talið útilokað að um mannleg mistök hafi verið að ræða. Breytingin olli því að geimfarið lenti fjarri áætl- uðum stað en einnig hefur álagið á ferðalangana verið meira en ella á leiðinni til jarðar af því að þyngd- araflið hefur aukist mjög hratt. Geimfar lenti heilu og höldnu við Aralvatn AP Rússneski geimfarinn Nikolaj Búdarín veifar við komuna til Moskvu í gær. Um hríð var ótt- ast að þrír geim- farar í Sojus-fari hefðu farist Astana í Kasakstan. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.