Morgunblaðið - 05.05.2003, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl 4 og 6. B.i. 12
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
400
kr
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Miðasala opnar kl. 15.30
HL MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
X-97,7
kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 4 og 6. ísl. tal. 400 kr.
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri
myndin.
Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Sunnud. 11. maí kl. 14
Sýnd kl. 6. Tilboð 400 kr.
400
kr
Sýnd kl. 10. B.i. 14.Sýnd kl. 8.
Þetta var hin
fullkomna
brúðkaupsferð
... þangað til
hún byrjaði!
Sagan
heldur áfram.
Enn stærri og
magnaðri en fyrri
myndin.
Missið ekki af þessari!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12
...Þetta er fyrsta stóra
hasarmynd sumarsins
2003 og gæti hæglega
endað sem ein sú besta ...
Kvikmyndir.com
... tt r fyr t t r
r y r i
ti l
i t ...
vik y ir.c
Kvikmyndir.is
X-men 2 er mynd
með boðskap, brellur
og brjálaðan hasar...
Hvað viltu meira?
- r
, r ll r
rj l r...
il ir
Sjá nýjan vef okkar
www.sellofon.is
fim 8. maí kl. 21, NASA, örfá sæti
fös 16. maí kl. 21, NASA, nokkur sæti
lau 17. maí kl. 21, NASA, nokkur sæti
Stóra svið
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 11/5 kl 20, Su 18/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Mi 7/5 kl 20 - UPPSELT, Fö 9/5 kl 20,
Fö 16/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 10/5 kl. 14, Lau 17/5 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 8/5 kl 20, aukasýning, Fi 15/5 kl 20 aukasýning
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 11/5 kl 20, Su 18/5 kl 20
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
SJÖ BRÆÐUR e. Aleksis Kivi
Gestaleiksýning Theater Mars frá Finnlandi
Mi 7/5 kl 20 - AÐEINS EIN SÝNING
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Lau 10/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20,
Lau 24/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í maí
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
GESTALEIKSÝNINGIN 7 BRÆÐUR
kemur hingað með styrk
frá Teater og dans i Norden.
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 10/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Su 11/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20, Su 25/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í maí
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20,Fö 23/5 kl 20
Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
"DANS FYRIR ÞIG"
30 ára afmælissýning Íslenska dansflokksins
Frosti - Svanavatnið eftir Láru Stefánsdóttur
Brot úr nokkrum af eftirminnilegustu
verkum Íslenska dansflokksins
Frumsýning fi 8/5 kl 20,
2.sýn fi 15/5 kl 20,
3.sýn su 18/5 kl 20
ATH. AÐEINS ÞRJÁR SÝNINGAR
ÞRJÚ ár eru liðin síðan leikstjór-
inn Bryan Singer lauk við X-Men,
fjöruga og vel gerða hasarmynd
byggða á samnefndum teiknimynda-
sögum frá Marvel. Brellurnar voru
frábærar en litríkar persónurnar svo
margar að þær vöfðust fyrir áhorf-
endum.
Nú er framhaldsmyndin komin
fram í dagsljósið og býr að því að
bíógestir eru orðnir kunnugir fjöld-
anum sem við sögu kemur með þeim
afleiðingum að X2 verður mun að-
gengilegri, skemmtilegri og þéttari
mynd en sú fyrri. Til viðbótar eru
leikararnir orðnir hagvanari furðu-
verkum sínum sem eru jafnframt
betur skrifuð og dýpri og sögufléttan
sjálf markvissari með spennuhlað-
inni atburðarás og hrikalegum og
hugmyndaríkum brellum sem jafn-
ast á við það besta sem sést hefur á
hvíta tjaldinu.
Teiknimyndasögur fjalla undan-
tekningarlaust um baráttu ills og
góðs í válegri veröld og X-Menn er
engin undantekning. Annað ein-
kenni þessara bókmennta eru
ómennsklar söguhetjurnar (Köngu-
lóarmaðurinn, Leðurblökumað-
urinn, osfrv.), sem flestar eru til
orðnar vegna vísindalegra slysa og/
eða mistaka. X-menn eru stökk-
breyttir einstaklingar sem njóta lít-
ils skilnings í samfélaginu og halda
hópinn undir handleiðslu prófessors-
ins Xavier (Patrick Stewart). Flokk-
ur hans reynir að slæva fordóma
mannkynsins gagnvart þessum
furðuverum sem allar eru gæddar
yfirnáttúrlegum hæfileikum. Þær
eru hinar góðu. Þessar vondu eru
handbendi Magnetos (Ian McKell-
en), en í rafmögnuðu upphafsatriði
kemur Nightcrawler (Alan Cumm-
ings), nýr stökkbreytingur, til sög-
unnar og fer þessi þýskættaði blá-
maður (meinfyndni?) mikinn. Ræðst
inn í Hvíta húsið og sleppur forseti
þjóðarinnar með naumindum undan
Náttfara. Verður árásin til þess að
forsetinn sker upp herör gegn hin-
um stökkbreyttu og fær Stryker
hershöfðingi (Brian Cox) það hlut-
verk að koma þeim fyrir kattarnef.
Stökkbreyttir, illir sem góðir, snúa
bökum saman og gengur myndin út
á átökin.
Myndir byggðar á teiknimynda-
bálkum eru farnar að nálgast plágu í
kvikmyndaiðnaðinum og enginn endi
fyrirsjáanlegur á þróuninni. Það er
því sannkölluð blessun að jafnhæfir
og virtir kvikmyndagerðarmenn og
Singer leggja sitt af mörkum. X2 er
sem fyrr segir nánast stökkbreyting
fram á við frá fyrri myndinni, þótt
hún sé vel yfir meðallagi. X2 er æsi-
spennandi, linnulaus darraðardans
frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,
æsileg skemmtun fyrir alla hasar-
myndaunnendur og jafnvel enn
breiðari hóp. Leikaravalið er óað-
finnanlegt og myndinni til bóta
þekkir maður orðið persónurnar
með Jarfa (Hugh Jackman) og Drífu
(Halle Berry), í hvað mest áberandi
hlutverkunum auk foringjanna sem
bresku stórleikararnir McKellen og
Stewart leika með skörungsskap. Sá
þriðji, hinn feykivinsæli Brian Cox,
holdiklæðir síðan herhaukinn Stryk-
er, fjallbrattur og mikilúðlegur eins
og hans er von og vísa. Það er gæfa
myndarinnar að hafa þessa karla
innanborðs og vera leikstýrð og
framleidd undir vökulu auga Singers
og nánum samverkamönnum hans,
sem eiga örugglega eftir að gleðja
okkur með fleiri myndum í þessum
frábæra bálki.
Endurkoma X-manna
Rebecca Romijn-Stamos er illmennið Mystique í X2, sem í umsögn er lýst
sem „stökkbreytingu fram á við“ frá fyrstu mynd.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laugar-
ásbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Bryan Singer. Handrit: Mich-
ael Dougerty, Dan Harris. Kvikmynda-
tökustjóri: Newton Thomas Sigel. Tón-
list: John Ottman. Aðalleikendur: Patrick
Stewart, Hugh Jackman, Ian McKellen,
Halle Berry, Famke Janssen, James
Marsden, Rebecca Romijn-Stamos,
Brian Cox. Alan Cummings, Bruce
Davison, Anna Paquin. 134 mínútur.
20th Century Fox. Bandaríkin 2003.
X2 (X2: X-MEN UNITED) Sæbjörn Valdimarsson
ATVINNA mbl.is