Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Bræðingur
af öllu
Gunnar Reynir 70 ára og staðarskáld
Skálholts Listir 27 og Lesbók 4
Íslandsmeistarinn afhjúpar
uppskriftina 11
Hróarskelda
óviðjafnanleg
Mun fýsilegri rokkhátíð en sú
síðasta Fólk 53
Kleinur
með sultu!
HEIMSÞEKKTIR vísindamenn eru
fyrirlesarar á ráðstefnu um nýæða-
myndun í krabbameinsæxlum sem
lýkur í Reykjavík í dag. Meðal þeirra
er Napoleone Ferrera hjá Genetech-
lífvísindafyrirtækinu í Bandaríkjun-
um sem ásamt samstarfsmönnum
sínum hefur þróað lyfið Avastin, sem
er mótefni gegn nýæðamyndun.
Sigurður Björnsson krabbameins-
læknir segir í samtali við Morgun-
blaðið að lyfið Avastin sé án efa eitt
af stóru nýju tíðindunum í heimi
krabbameinslækninga í dag. Miklar
vonir séu bundnar við lyfið en nokk-
ur ár getið liðið enn þar til að það
komi á markað.
„Þetta er sannarlega áhugavert
nýtt efni, sem ég er viss um að á eftir
að gagnast mörgum, kannski ekki
endilega í dag eða á morgun en lík-
lega eftir nokkur ár,“ segir Sigurð-
ur, sem nýlega er kominn heim af
ráðstefnu í Chicago í Bandaríkjun-
um þar sem lyfið var kynnt og mikið
um það fjallað. Sigurður segir að lyf-
ið muni sérstaklega gagnast sjúk-
lingum með ristilkrabbamein. Þar
vanti tilfinnanlega nýjungar þar sem
sömu lyfin hafi verið notuð til
margra ára. Ekkert mæli heldur á
móti því að lyfið muni gagnast í bar-
áttunni við önnur krabbamein.
Rannsóknunum hafi miðað vel áfram
og lyfið sýnt litlar aukaverkanir mið-
að við sambærileg efni. Gallinn sé
hins vegar sá að lítið sé til af lyfinu
og það sé mjög dýrt.
Napoleone Ferrera og Steve Lib-
utti hjá Krabbameinsstofnun
Bandaríkjanna segja við Morgun-
blaðið að árangurinn af Avastin hafi
verið það góður að ákveðið hafi verið
að stöðva samanburðarrannsókn því
ekki hafi þótt siðferðislega réttlæt-
anlegt að sá hluti hópsins, sem enga
virka meðferð fékk, yrði af þeim ár-
angri sem lyfið sýndi.
Sigurður Björnsson krabbameins-
læknir um lyfið Avastin
Stór tíðindi í
heimi krabba-
meinslækninga
Hafa þróað/6
FLEST bendir til, að Finnar fari að
dæmi Svía og banni kaup á vænd-
isþjónustu. Er það haft eftir Johannes
Koskinen, dómsmálaráðherra Finn-
lands, í sænskum fréttastofufregnum.
Koskinen sagði, að 3. júlí næstkom-
andi yrði kynnt niðurstaða nefndar,
sem fjallað hefur um þessi mál, og þá
yrði lagt til, að vændiskaup yrðu
bönnuð. Yrði sú tillaga lögð fyrir
þingið í haust. Fagnaði Thomas
Boström, dómsmálaráðherra Svíþjóð-
ar, yfirlýsingu Koskinens og sagði
hana vera mikilvægt framlag til sam-
norrænnar baráttu gegn vændi. Í
Danmörku, Noregi og Íslandi er ekki
bannað að kaupa vændisþjónustu og
engar breytingar á því fyrirsjáanleg-
ar.
Finnar fara að dæmi Svía
Vændiskaup
bönnuð
BANDARÍKJAMENN handtóku í
gær sex Íraka í tengslum við leit að
tveimur bandarískum hermönnum
sem talið er að hafi verið rænt norð-
ur af Bagdad, höfuðborg Íraks. Einn
bandarískur hermaður til viðbótar
var felldur í gær og annar særður al-
varlega en nú hafa íraskir harðlínu-
menn drepið samtals tuttugu Banda-
ríkjamenn frá því að George W.
Bush Bandaríkjaforseti lýsti því op-
inberlega yfir 1. maí síðastliðinn að
öllum meiri háttar hernaðarátökum
væri lokið í Írak.
Blóð fannst á þeim stað nærri
bænum Balad, norður af Bagdad,
þar sem talið er að ráðist hafi verið
sl. miðvikudag að hermönnunum
tveimur. Mikil leit hefur staðið yfir
en hún hafði ekki borið árangur í
gær. „Við vitum ekki hvort þeir voru
numdir á brott eða einfaldlega
drepnir,“ sagði Patrick Compton,
liðsforingi í Bandaríkjaher.
Athygli vakti að leiðtogi stærstu
samtaka shíta-múslíma í Írak, erki-
klerkurinn Mohammed Baqer al-
Hakim, lét þau orð falla í gær að
hann væri andsnúinn árásum á
bandaríska hernámsliðið. „Aðeins á
að beita ofbeldi þegar enginn annar
kostur er í stöðunni,“ sagði hann í
vikulegri prédikun sinni í borginni
Najaf. „Við verðum að byrja á því að
eiga viðræður [við hernámsliðið] og
efna til friðsamlegra mótmæla.“
Tveggja hermanna leitað
Bagdad. AP, AFP.
TÍVOLÍ við Smáralind var opnað í gær en í upphafi
fékk hópur langveikra, krabbameinssjúkra, syk-
ursjúkra og misþroska barna að prófa tækin.
Gleðin skein úr hverju andliti þegar Morgunblaðið
bar að garði. Börnunum var boðið upp á kandífloss og
gos og gátu þau farið í öll tækin.
Sigþór Fannarr Guðmundsson, 13 ára, fór í stærsta
tækið á svæðinu, Freak out. Þar hringsnerist hann og
sveiflaðist í hálfhring neðst í risavöxnum arminum.
„Þetta er stærsta tækið sem ég hef prófað,“ sagði Sig-
þór við blaðamann, „og ég er búinn að prófa öll tækin
nema eitt,“ og sagði að sér þætti rosalega gaman.
Það var álíka gaman hjá Guðnýju Sæbjörgu Jóns-
dóttur, 14 ára, sem var búin að prófa eitt tæki.
Morgunblaðið/Golli
„Búinn að prófa öll tækin nema eitt“
ÍSRAELAR hafa samþykkt í meg-
inatriðum að kalla herlið sitt frá
Gaza-svæðinu og Vesturbakkan-
um, að því er fram kom í ísraelska
sjónvarpinu í gær. Háttsettur
fulltrúi heimastjórnar Palestínu-
manna staðfesti þetta í gærkvöldi.
Þá sagðist Sheikh Ahmed Yassin,
stofnandi Hamas-samtakanna,
hafa tilkynnt Mahmud Abbas, for-
sætisráðherra Palestínumanna, að
Hamas myndi gera hlé á árásum
samtaka palestínskra harðlínu-
manna á skotmörk í Ísrael.
Brottflutningar Ísraelshers eiga
að hefjast eftir helgi, að því er haft
var eftir ísr-
aelskum emb-
ættismanni. Náð-
ist samkomulag
um þetta á fundi
Mohammeds
Dahlans, örygg-
ismálastjóra pal-
estínsku heima-
stjórnarinnar, og
Amos Gilads,
hershöfðingja í Ísraelsher.
Samkomulagið felur m.a. í sér að
Palestínumenn verði ábyrgir fyrir
öryggismálum á þeim svæðum,
sem Ísraelar yfirgefa nú. Hafa þeir
heitið því að komið verði í veg fyrir
árásir hryðjuverkamanna á skot-
mörk í Ísrael.
Rice til Mið-Austurlanda
Ari Fleischer, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, fagnaði samkomulag-
inu í gærkvöldi og sagði það mik-
ilvægt skref í rétta átt. Hið sama
gerði Colin Powell utanríkisráð-
herra en þessi tíðindi þykja koma á
góðum tíma þar sem von er á
Condoleezzu Rice, þjóðaröryggis-
ráðgjafa Bandaríkjanna, til Mið-
Austurlanda í dag. Mun hún eiga
viðræður við bæði ísraelska og pal-
estínska embættismenn um helg-
ina.
Háttsettur fulltrúi Hamas-sam-
takanna sagði samkomulag í höfn
milli Hamas og Fatah-hreyfingar
Yassers Arafats, leiðtoga Palest-
ínumanna, um að árásum gegn Ísr-
aelum yrði hætt. Er haft eftir
Sheikh Ahmed Yassin að Hamas
hafi farið yfir þróun mála og tekið
ákvörðun um að stöðva hernaðar-
aðgerðir tímabundið. Ekki sé enn
um formlegt vopnahlé að ræða en
unnið sé að því að semja sameig-
inlega yfirlýsingu fyrir öll samtök
herskárra Palestínumanna.
Jerúsalem, San Francisco. AFP.
Samkomulag um brott-
flutning Ísraelshers
Sheikh Ahmed
Yassin