Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SAMTÖK bandarískra homma og
lesbía hafa fagnað úrskurði hæsta-
réttar Bandaríkjanna um að Texas-
ríki geti ekki bannað með lögum kyn-
mök samkynhneigðra ef báðir aðilar
eru samþykkir. Úrskurðurinn vakti
hins vegar reiði meðal bandarískra
íhaldsmanna.
Dómstóllinn kvað upp úrskurðinn í
fyrradag og hann úrskurðaði þá einn-
ig að heimilt væri að lögsækja
íþróttavörufyrirtækið Nike á grund-
velli laga um rangar upplýsingar í
auglýsingum vegna yfirlýsinga þess
um vinnuaðstæður í verksmiðjum
þess í Suðaustur-Asíu. Nike hafði
haldið því fram að ekki væri hægt að
lögsækja fyrirtækið vegna málfrels-
isákvæðis stjórnarskrárinnar.
Stjórn George W. Bush forseta
hefur ekkert sagt um þann úrskurð
dómstólsins að Texas, þar sem Bush
var ríkisstjóri, geti ekki bannað kyn-
mök samkynhneigðra.
Samtök samkynhneigðra og
mannréttindahreyfingar fögnuðu úr-
skurðinum sem sögulegum áfanga í
réttindabaráttu homma og lesbía en
samtök íhaldsmanna mótmæltu hon-
um. Robert Knight, framkvæmda-
stjóri Menningar- og fjölskyldustofn-
unarinnar, sagði að eftir úrskurðinn
væru „lög gegn vændi, sifjaspellum,
tvíkvæni og jafnvel kynmökum
manna við dýr“ í hættu.
Texas er eitt af fjórum ríkjum í
Bandaríkjunum þar sem mök sam-
kynhneigðra hafa verið bönnuð með
lögum.
Sex hæstaréttardómarar voru
þeirrar skoðunar að lögin í Texas
stönguðust á við bandarísku stjórn-
arskrána og væru rof á friðhelgi
einkalífsins, en þrír dómarar vildu
ekki ógilda þau. Fyrir 17 árum komst
hæstirétturinn að þeirri niðurstöðu
að ríkjum væri heimilt að refsa sam-
kynhneigðum fyrir það sem hefur
jafnan í slíkum lögum verið nefnt af-
brigðilegt kynlíf. Mál þetta hófst
þegar lögreglumenn handtóku tvo
karlmenn, sem voru staðnir að því að
hafa kynmök í íbúð annars þeirra í
september 1998. Mennirnir voru
ákærðir og dæmdir til að greiða 200
dollara í sekt hvor um sig, og sitja
sólarhring í fangelsi.
Þeir dómarar sem voru andvígir
því að ógilda lögin í Texas voru Will-
iam H. Rehnquist, forseti réttarins,
Antonin Scalia og Clarence Thomas.
„Rétturinn hefur að mestu leyti
gengið svonefndum stefnumiðum
samkynhneigðra á hönd,“ sagði
Scalia í minnihlutaáliti þeirra
þriggja, en svo óvenjulega bar við að
hann las það úr dómarasæti sínu.
„Rétturinn hefur tekið afstöðu í átök-
um menningarhópa,“ sagði Scalia
ennfremur, og bætti því við að hann
hefði „ekkert á móti samkynhneigð-
um“.
Niðurstaðan sögð
skerða málfrelsið
Úrskurður hæstaréttar um að
heimilt væri að höfða mál gegn Nike
vegna yfirlýsinga fyrirtækisins um
vinnuaðstæður í erlendum verk-
smiðjum þess olli titringi í banda-
ríska viðskiptalífinu.
Kaliforníubúinn Marc Kasky
hyggst höfða mál gegn fyrirtækinu
vegna yfirlýsinga þess fyrir nokkrum
árum í fréttatilkynningum, dagblöð-
um og bréfum til yfirmanna íþrótta-
deilda háskóla til að svara gagnrýni í
fjölmiðlum á vinnuaðstæður í verk-
smiðjum fyrirtækisins í Asíu. Nike
sagði ummælin innlegg í opinbera
umræðu um alþjóðavæðingu.
Samtök bandarískra fyrirtækja
gagnrýndu þá niðurstöðu réttarins
að yfirlýsingarnar kynnu að varða
við lög um rangar upplýsingar í aug-
lýsingum og sögðu hana skerða mál-
frelsi stjórnenda bandarískra fyrir-
tækja.
Reuters
Lesbíur í Boston fagna úrskurði hæstaréttar Bandaríkjanna.
Úrskurðað í umdeildum málum
Óheimilt að
banna mök sam-
kynhneigðra
Heimilt að lögsækja Nike vegna yfir-
lýsinga um verksmiðjurnar í Asíu
Washington. AP, AFP.
RAUÐI krosssinn og skákfélagið
Hrókurinn héldu skákmót í Vin, at-
hvarfi fyrir geðfatlaða, nú í vikunni.
Björg Haraldsdóttir, verkefnastjóri
Vinjar, segir að margir skák-
áhugamenn séu meðal gesta í at-
hvarfinu og mikið sé teflt. Því hafi
kviknað sú hugmynd að halda mót
og leitað var eftir samvinnu við
Hrókinn. Hún segir að félagið hafi
tekið þeirri bón mjög vel og haldið
utan um mótið.
Skjólstæðingar, starfsmenn, sjálf-
boðaliðar og vinir Vinjar tóku þátt í
mótinu. Eftir sex umferðir hafði
einn sjálfboðaliðanna, Jón Torfason
íslenskufræðingur, unnið allar sínar
skákir en hann afsalaði sér titlinum.
Að sögn Bjargar hlaut Rafn Jónsson
fyrsta sætið með fimm vinninga af
sex mögulegum. „Ég held að hann sé
með ein 1800 ELO-stig. Þetta eru
sterkir skákmenn hér,“ bætir hún
við. Arnar Helgason, Leifur Jóelsson
og Örn Sigurðsson voru jafnir í öðru
sæti með þrjá vinninga.
Tólf þátttakendur
Hún segir að gestir frá Hróknum
hafi verið á staðnum en þeirra á
meðal voru Regina Pokorna, stór-
meistari og skákdrottning Hróksins,
og ungi skáksnillingurinn Luke
McShane. „Það var teflt eftir Mon-
rad-kerfinu. Það þýðir að þeir bestu
í raun og veru tefla alltaf saman.
Það voru tólf þátttakendur á
mótinu, allt karlmenn, og síðan voru
nokkrir sem tefldu ekki allt mótið.“
Þórólfur Árnason borgarstjóri og
Regina Pokorna veittu verðlaunin í
sameiningu og tefldu svo eina skák.
Björg segir að margir hafi komið að
mótinu og hin ýmsu fyrirtæki hafi
gefið vinninga og styrkt mótið á
annan hátt. „Þetta var mjög veglegt
mót og vel að þessu staðið. Síðan
enduðum við þetta með grillhátíð,“
lýsir hún.
Í kjölfar mótsins var stofnað
Skákfélagið Vin og gaf Skákhúsið
hinu nýja skákfélagi tíu skáksett.
Björg á von á því að með haustinu
hefjist vikulegar æfingar og eru allir
sem hafa áhuga velkomnir að koma
og vera með. Hrókurinn er bakhjarl
félagsins sem hefur höfuðstöðvar
sínar í Vin á Hverfisgötu 47.
Þátttakendur í skákmóti Vinjar ásamt Þórólfi Árnasyni borgarstjóra og Reginu Pokorna stórmeistara.
RKÍ og Hrókurinn með skákmót í athvarfi fyrir geðfatlaða
Stofnuðu skákfélagið Vin
Miðborg
ÚRSLIT úr samkeppni um hönnun
duftgarðs og mótun lands í Leyni-
mýri í Öskjuhlíð voru kunngerð í
gær. Það voru Kirkjugarðar Reykja-
víkurprófastsdæma sem stóðu fyrir
samkeppninni, í samvinnu við
Reykjavíkurborg, en alls bárust 16
tillögur, þar af 15 í samræmi við skil-
yrði samkeppnislýsingar.
Tillögurnar voru metnar með tilliti
til aðkomu, grafarrýmis, tengsla við
náttúrusvæði og tillagna um lista-
verk í garðinum en sérstaklega var
hvatt til samráðs við listamenn. Veitt
voru verðlaun fyrir 1.–3. sæti en auk
þess voru þrjár tillögur keyptar.
Verðlaunafé var í heildina um þrjár
og hálf milljón króna en vinningstil-
lagan hlaut rúmlega 1,6 milljónir
króna.
Í fyrsta sæti var tillaga frá Teikni-
stofunni Tröð en að henni unnu Sig-
ríður Magnúsdóttir, Hans-Olav And-
ersen og Sveinn Bragason,
arkitektar og Sigurður Guðmunds-
son, myndlistarmaður. Í umsögn
dómnefndar um tillöguna segir m.a.
að hún sé efnislega vel útskýrð, vel
unnin og vel fram sett. Heildarskipu-
lagið er sagt gott og skógargrafir
myndi skemmtilegt rými í austur- og
suðurhluta garðsins.
Í öðru sæti var tillaga frá Mar-
gréti Leifsdóttur, Gunnari Erni Sig-
urðssyni og Önnu Kr. Hjartardóttur
arkitektum en hún þótti vönduð, með
einfaldar og hreinar línur.
Þriðja sætið hlaut tillaga Kjartans
Mogensen og Albínu Thordarson
arkitekta og Steinunnar Þórarins-
dóttur myndlistarmanns. Sú tillaga
þótti tengja náttúrusvæðið vel við
garðinn og nýta grafarsvæði vel.
Tillögurnar þrjár sem voru keypt-
ar eru frá Landslagi ehf., MFF ehf.
vinnustofu og frá Auði Hrönn Guð-
mundsdóttur.
Dómnefnd var sammála um að
hönnunarsamkeppnin hefði tekist
vel og skilað fjölbreyttum og frum-
legum hugmyndum. Undirbúnings-
framkvæmdir hefjast á næsta ári og
er stefnt að því að kirkjugarðurinn
verði vígður innan þriggja til fjög-
urra ára.
Úrslit í samkeppni um hönnun duftgarðs í Leynimýri
Fjölbreyttar og frum-
legar hugmyndir
Fossvogur
Morgunblaðið/Jim Smart
Vinningshafar í 1.–3. sæti í samkeppni um duftkirkjugarð.
Vinningstillagan úr samkeppni um duftkirkjugarð.