Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 23
ÞÓNOKKUR verðmunur er á
pakkamorgunmat og úrval misjafnt
eftir verslunum, samkvæmt nýrri
verðkönnun Neytendasamtakanna.
Fyrr í vikunni var hér á neytenda-
síðu greint frá niðurstöðum gæða-
könnunar Neytendasamtakanna og
dönsku Neytendastofnunarinnar á
gæðum morgunverðarkorns, þar
sem fram kom að flestar gerðir þess
innihalda bæði of mikinn sykur og of
mikið salt. Birtist hún í Neytenda-
blaðinu.
Neytendasamtökin gerðu í kjöl-
farið verðkönnun á morgunverðar-
korni í verslunum, samtals 29 mis-
munandi tegundum og/eða
þyngdareiningum. Könnunin var
gerð í 14 verslunum á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri hinn 19. júní
síðastliðinn. Greint er frá niðurstöð-
um hennar á heimasíðu samtakanna,
ns.is, og þar er jafnframt að finna ít-
arlega umfjöllun.
Hæst verð í klukkubúðum
Helstu niðurstöður eru þær að úr-
val morgunverðarkorns er mismikið
milli verslana og þónokkur verðmun-
ur, svo vitnað sé í samantekt.
„Lægsta verðið var hlutfallslega
oftast í Bónus, eða á 7 af 10 vörum
sem þar fengust. Í Nettó voru 23
vörutegundir til og var lægsta verðið
þar í 10 tilvikum.
Klukkubúðirnar eru með hæst
verð í þessari könnun. Hæsta verðið
var oftast í 11–11, eða í 19 tilvikum,
en þar fengust 24 af þeim vörum sem
voru í könnuninni. Í 10–11 var hæsta
verðið í 12 tilvikum, en þar fengust
16 vörur,“ segja Neytendasamtökin.
Fram kemur að verðmunur á mis-
munandi pakkningum af sömu vöru
er oft nokkur.
„Sé verð borið saman við gæða-
könnunina kemur í ljós að ekkert
samhengi er á milli verðs og gæða.
Þær tegundir sem þóttu hollastar
eru oftast á hagstæðasta verðinu.
Tegundir sem komu illa út í gæða-
könnuninni eru mun dýrari en hafra-
mjöl. Til dæmis kostar kílóið af
Frosties frá 598 krónum upp í 718
krónur og kílóið af Cocoa Puffs kost-
ar frá 479 krónum og upp í 830 krón-
ur. Lucky Charms kostaði mest
1.005 krónur og á þann vafasama
heiður að vera oftast dýrasti morg-
unmaturinn miðað við kílóverð borið
saman við þær tegundir sem voru í
gæðakönnuninni.
Kellogg’s Variety, sem eru átta 25
gramma pakkar, kostar 399 krónur,
sem þýðir að kílóið kostar tæpar
2.000 krónur og er dýrasta morgun-
verðarkornið ef það er keypt í þess-
um pakkningum.“
Kílóverð á haframjöli er frá 188
krónum upp í 294 krónur í könnun-
inni en tekið er fram að hægt sé að
finna ódýrari tegundir af haframjöli í
verslunum.
Mælieiningaverð vantar
„Mælieiningaverð er mjög mikil-
vægt fyrir neytendur. Það segir til
um hvað kíló, lítri, metri eða fermetri
af tiltekinni vöru kostar og er selj-
endum skylt að upplýsa um það á
sölustað, til dæmis með hilluverð-
merkingu. Mjög misjafnt er hvernig
verslanir standa sig þegar kemur að
verðmerkingum. Í Hagkaupum, 10–
11, Bónusi og Krónunni vantaði upp-
lýsingar um mælieiningaverð í
nokkrum tilfellum og í Europris
vantaði upplýsingar um mæliein-
ingaverð í öllum tilfellum.
Þegar mælieiningaverð er athug-
að kemur í ljós að ekki er alltaf hag-
kvæmast að kaupa stærri pakkning-
ar eins og sjá má af eftirfarandi
dæmum. Í Nettó kostar kílóið af
Cocoa Puffs 614 krónur ef keyptur
er 1.300 gramma pakki, en 576 krón-
ur ef keyptur er 553 gramma pakki.
Í Strax kostar kílóið af Cheerios
788 krónur ef keyptur er 425
gramma pakki en 809 krónur ef
keyptur er 567 gramma pakki,“
segja Neytendasamtökin.
Sjá ítarlegri umfjöllun og töflu á
heimasíðu samtakanna.
Þónokkur verð-
munur á pakka-
morgunmat
„Lucky Charms kostaði mest 1.005
krónur [kílóið] og á þann vafasama
heiður að vera oftast dýrasti morg-
unmaturinn,“ segja Neytenda-
samtökin.
ÍSLENSKT kínakál kom í versl-
anir nú fyrir helgina og munu ís-
lenskir garðyrkjubændur anna
eftirspurn fram yfir áramót,
samkvæmt frétt frá garð-
yrkjubændum. „Fyrsta kínakál
sumarsins kemur frá Flúðum og
er ræktað í svokölluðum heitum
görðum, sem eru við hverasvæði
og hitaðir með jarðvarma. Inn-
lend kínakálsuppskera kom fyrst
á markað fyrir 20 árum og hefur
neysla farið vaxandi ár frá ári í
takt við aukna grænmetisneyslu
landsmanna,“ segir ennfremur.
Salat með döðlum
1 stk. kínakálshaus
1 stk. eikarlaufshaus
1 stk. hvítlauksrif
1 stk. laukur lítill
½ dl ólífuolía
3 msk. hvítvínsedik
1 msk. hunang
2 tsk. turmerik
¼ tsk. kanill
1 tsk. engiferduft
1 tsk. kardimommuduft
¼ tsk. cayenne pipar salt og pipar
10 stk. döðlur
Salatið er skorið niður.
Laukurinn og hvítlaukurinn
eru saxaðir og blandað saman
við kryddið og olíuna og sett yfir
salatið rétt fyrir framreiðslu.
Söxuðum döðlunum stráð yfir.
Fróðleiksmolar
um kínakál
Kínakál, brassica pekinensis,
pe-tsai, er jafn stór þáttur í mat-
aræði Kínverja og ólífuolían hjá
Ítölum, en talið er að Kínverjar
neyti um 200 g af kínakáli á
dag. Kínakálið sem er með langt
höfuð, ljósgræn blöð og hvíta,
stökka stilka er mjög þekkt og
mikið notað hér á landi í ýmiss
konar fersk og blönduð salöt,
ásamt öðru grænmeti og ávöxt-
um.
Bragðið er mjög milt og því
gengur það vel með flestum rétt-
um en það tekur auðveldlega í
sig bragð af öðru hráefni. Kína-
kálið hentar því vel í ýmsa
bragðsterka rétti og almennt
með bragðsterkum mat.
Kínakál er upprunnið í Kína
eins og nafnið bendir til en upp
úr 1970 var farið að rækta það í
Ísrael og varð það þá fyrst vin-
sælt. Á Íslandi er það ræktað
mjög víða.
Kínakálið má nota í flest hrá-
salöt eins og áður segir. Efri
hluti blaðanna er bestur í fersk
salöt. Hægt er að nota stilkinn
og grófari hluta blaðanna í salöt,
sérstaklega ef blandað er saman
við salatið „dressingu“ eða jóg-
úrt. Þó má einnig sjóða eða létt-
steikja þessa hluta. Í Kína eru
matreiðsluaðferðirnar mun fjöl-
breyttari en við þekkjum, þar
eru kálstilkarnir gjarnan súrs-
aðir og kryddaðir með hvítlauk
og chili. Einnig má súrsa kínakál
á annan máta og nota í súpur.
Þar sem blöðin eru nokkuð hruf-
ótt er mjög miklvægt að skola
þau vel undir rennandi köldu
vatni.
Kínakál, eins og annað græn-
meti, er mjög næringar- og
trefjaríkt þrátt fyrir að inni-
halda mjög fáar hitaeiningar eða
aðeins 12 he í hverjum 100 g.
Vítamínið sem kínakálið er hvað
ríkast af er fólasín, en það er
einmitt af skornum skammti í
fæðu margra. Mikilvægt er að
skera kínakál og annað græn-
meti ekki niður mjög löngu áður
en þess skal neytt; þurfi þess er
mikilvægt að setja það í lokað
ílát eða breiða í það minnsta
plastfilmu yfir skálina og geyma
salatið í kæli.
Íslenskt
kínakál
í verslanir
TE & kaffi við Laugaveg býður til
kaffismökkunar í dag. Boðið er upp á
smökkun á Yauco Selecto kaffi, sem
er frá einum virtasta kaffiakri í
heimi, að því er segir í tilkynningu.
Kaffibændur frá Puerto Rico voru í
heimsókn nýverið hjá Te & kaffi og
kynntu þá meðal annars Yauco Sel-
ecto kaffi sem boðið hefur verið upp
á um árabil hjá fyrirtækinu, segir
ennfremur.
„Te & kaffi var stofnað 1984 og
hefur stuðlað að því að auka þekk-
ingu almennings á góðu kaffi, enda
sóst sérstaklega eftir tegundum sem
hlotið hafa viðurkenningar fyrir
gæði,“ segir loks í tilkynningu frá
fyrirtækinu.
Kaffikynning hjá Te & kaffi