Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 24

Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 24
SKÁK, brids, dans og hljóðfæraleik- ur eru dæmi um athafnir sem taldar eru minnka líkur á að Alzheimer- sjúkdómurinn þróist eða aðrir sjúk- dómar sem hafa í för með sér hrörnun hugans. Greint var frá þessu á BBC- fréttavefnum. Þetta eru niðurstöður nýrrar yfir- gripsmikillar rannsóknar sem fól m.a. í sér að kanna kosti þess að ýta undir vitsmunalegar athafnir eldra fólks. Niðurstöður hennar eru að allt að 75% minni líkur eru á að eldra fólk sem stundar einhvers konar hugar- leikfimi fái Alzheimer eða tengda sjúkdóma. Þjálfun hugans felst til dæmis í hvers kyns menntun eða þátttöku í fé- lagslegum athöfnum. Sjónvarpsgláp telst ekki með. Margt eldra fólk kvartar undan minnisleysi, að mati dr. Joe Vergh- ese, taugasjúkdómafræðings við Al- bert Einstein-læknaháskólann í Bronx í New York-fylki í Bandaríkj- unum sem stýrði rannsókninni. „Ég ráðlegg þeim að auka þátttöku í vits- munalegum athöfnum.“ Því meiri tíma sem eytt er í krefj- andi verkefni því meiri vernd mynd- ast gegn kölkun í heilanum, að sögn dr. Verghese. Rannsóknin sem hófst árið 1980 náði til 469 einstaklinga sem náð hafa 75 ára aldri. Rannsakendur mældu tímann sem fór í athafnir eins og lest- ur, dans og gönguferðir. Þeir sem spila skák, brids eða álíka eru taldir minnka líkur á Alzheimer um 74%. Að leysa krossgátur minnk- ar líkurnar um 38%. Líkamleg áreynsla virðist ekki minnka líkur á þróun sjúkdómsins að dansi undanskildum. Dans sam- kvæmt rannsókninni minnkar líkurn- ar um 76%. Alzheimer-sjúkdómurinn er tiltölu- lega algengur sjúkdómur sem eink- um leggst á aldrað fólk, en dæmi eru um að fólk á fimmtugs- og sextugs- aldri fái þennan sjúkdóm. Alzheimer- sjúkdómurinn er algengastur þeirra sjúkdóma sem valda minnissjúkdóm- um eða heilabilun. Reuters Ný rannsókn bendir til að skák geti hægt á þróun Alzheimer-sjúkdómsins. Áreynsla á hugann minnkar líkur á Alzheimer HEILSA 24 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Grillum dag í Skútuvogi 2 í OPIÐ 11-20 ALLA DAGA Ódýrt fyrir alla!Ódýrt fyrir alla! 995- SILKIBLÓM Í POTTI 768- Nýr svínahnakki beinlaus biti 30% afsláttur Svínahnakki Mexíkó 30% afsláttur Svínakótilettur Mexíkó 289- Svínabógar 1. fl. nýir og ófrosnir Ódýrt fyrir alla! LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2 LÁGT OG STÖÐUGT VÖRUVERÐ! 1495- BLÓMAKASSI - 100 CM. GRIND ÚR SMÍÐAJÁRNI Ferskur lax kryddaður og tilbúin grillið!á pr. kg. pr. kg. pr. kg. 499- Lambaframpartur niðursagaður á grillið Börnin fá Pepsí við grillið! G EÐORÐ Geðræktar eru byggð á því sem einkenn- ir farsælt fólk og eru þannig ábendingar til þeirra sem sækjast eftir velgengni og vellíðan í lífinu. Fyrsta geðorðið „Hugsaðu jákvætt“ er und- irstaða vellíðunar því án jákvæðra hugsana er engin vellíðan. Mikilvægt er að átta sig á hvað hugsanir okkar hafa mikil áhrif á líð- an okkar. Það er ekki hægt að upplifa einhverja tilfinningu án þess að til komi hugsun sem vekur hana. Þannig er ekki hægt að finna til sorgar án þess að hugsa um eitthvað sorglegt og það sama á við um aðrar tilfinningar eins og reiði, kvíða eða gleði. Vanlíðan teng- ist oft neikvæðum hugsunum. Það getur verið hjálplegt að gera sér grein fyr- ir því, að það eru hugsanirnar sem eru neikvæðar en ekki öll tilveran. Með já- kvæðari sýn á lífið reynist auðveldara að takast á við vandamál sem upp koma og vellíðan eykst. Það er ekki hægt að komast hjá neikvæðum hugsunum inni á milli en það er hægt að stjórna því hvað þær hafa mikil áhrif. Hægt er að venja sig á að ýta neikvæðum hugsunum til hliðar og kalla fram jákvæðar hugsanir í stað- inn. Þetta getur þó verið misauðvelt. Kjöraðstæður eru í afslöppun, þegar ekki þarf að hugsa um neitt annað á sama tíma. Þess vegna er mikilvægt að gefa sér tíma til að slaka á af og til. Um leið og eitthvað annað sækir á hugann verður þetta erfiðara. Þeir sem eru undir miklu álagi eiga oft erfitt með að kalla fram jákvæðar hugsanir. Með hjálp mynda frá jákvæðum atburðum, uppörvandi tónlist eða bréfa getur þetta þó orðið auðveldara. Það er mikilvægt fyrir hvern og einn að vera meðvitaður um hvað kallar fram jákvæðar hugsanir hjá honum og þannig hvað veiti honum vellíðan. Gott er að nota þetta markvisst og grípa til þess þegar vanlíðan færist yfir. Þannig er hægt að bera ábyrgð á eigin líðan og gera sér grein fyrir að enginn er fórnarlamb tilfinninga sinna. Flestir hafa val um að hugsa um eitthvað annað hverju sinni og þar með upplifa aðrar til- finningar. Geðorðin tíu er að finna á heimasíðu Geðræktar: www.ged.is Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Geðræktar. Frá Landlæknisembættinu. Heilsan í brennidepli 1. geðorð – hugsaðu jákvætt það er léttara Þeir sem eru undir miklu álagi eiga oft erfitt með að kalla fram jákvæðar hugsanir. SÉRTÆK lesröskun er algengasta form sértækra þroskaraskana á námshæfni. Gera má ráð fyrir að um tíu af hundraði nemenda í grunn- skólum eigi við sértæka lesröskun að stríða. Þannig eru um 4.000 nem- endur með sértæka lesröskun í grunnskólum landsins. Margir eru einnig á framhaldsskóla- og há- skólastigi. Ekki liggja fyrir upplýs- ingar um brottfall nemenda með sér- tækar þroskaraskanir á námshæfni úr framhaldsnámi hér á landi, en lík- legt er að það sé umtalsvert. Um tveir af hverjum þremur nemendum með sértæka lesröskun eru piltar. Sértæk stærðfræðiröskun er til muna fátíðari en sértæk lesröskun. Svo virðist sem sértæk stærðfræðiröskun sé algeng- ari meðal stúlkna en pilta. Þá eru vís- bendingar um að íslenskar stúlkur með sértækar þroskaraskanir á námshæfni greinist að meðaltali um tveimur árum síðar á skólaferlinum en piltar. Síðbúin greining frestar íhlutun, dregur úr sjálfstrausti og eykur á kvíða og vanlíðan. Íhlutun, þegar um sértækar þrosk- araskanir á námshæfni er að ræða, er margþætt og getur falið í sér sér- hæfða kennslu, en einnig þjálfun og meðferð, stuðning, skilning og til- hliðranir, enda er vandinn oft flókinn. Mikilvægt er að vera meðvitaður um þroskamynstur nemandans, tauga- sálfræðilega styrkleika og veikleika. Nýta þarf styrkleika við námið og þjálfa veikleika. Nálgast þarf náms- efnið úr mörgum áttum og nýta mis- munandi skynjunarleiðir og minn- isþætti. Nemandi sem á erfitt með lestur þarf að nýta aðrar leiðir til að öðlast þekkingu og kynnast bók- menntum. Nemandi sem á erfitt með skriflega tjáningu þarf að nýta aðrar leiðir til að koma þekkingu sinni á framfæri. Notkun tölvu og kennslu- og ritvinnsluforrita hefur reynst vel við lestrar- og stafsetningarnám og auðveldað nemendum að tjá sig í rit- uðu máli. Leiðréttingarforrit, orða- bækur á geisladiskum og framþróun á sviði tungutækni auka enn á gildi tölvunnar sem hjálpartækis og vinnu- tækis. Margir nemendur með sér- tæka lesröskun nýta námsefni og bókmenntir á snældum með góðum árangri. Sveigjanleiki við námsmat skiptir marga nemendur höfuðmáli. Rannsóknir hafa ekki leitt í ljós skyndilausnir á vanda nemenda með sértækar þroskaraskanir á náms- hæfni. Hins vegar sýnir reynslan að með ómældri vinnu ásamt markvissri sérhæfðri íhlutun, skilningi, stuðningi og tilhliðrunum á námsferli, geta nemendur með slíkan vanda náð góð- um árangri í bóklegu og verklegu námi á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi. Oft virðist sem áhrif taugasálfræðilegra veikleika á nám fari minnkandi fram yfir tvítugt. Mik- ilvægt er að unglingar og ungt fólk með sértækar þroskaraskanir á námshæfni haldi áfram í skóla, ekki síður við bóklegt nám en verklegt, þannig að áhrif aukins þroska haldist í hendur við æfingu. Á þann hátt verður árangurinn mestur. Skóla- kerfið þarf að sýna þessum nem- endum sveigjanleika og hvatningu og hafa frumkvæði að því að leita leiða sem auðvelda þeim að ljúka námi. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að unglingar með sértækar þroskaraskanir á námshæfni eru í meiri hættu um alls kyns áhættu- hegðun en þeir sem ekki eiga við námserfiðleika að stríða og horfur þeirra eru oft ekki góðar. Þessi aukna hætta á þó einungis við um þá ung- linga sem flosna úr skóla. Það er því afar mikilvægt að hvetja nemendur með sértækar þroskaraskanir á námshæfni til að ljúka framhalds- námi að loknum grunnskóla. Grein- ing vandans snemma og sérhæfð íhlutun hefur mikið vægi í því sam- hengi, þar sem slíkt hefur áhrif á námsárangur, byggir upp sjálfs- traust, bætir líðan og er hvetjandi fyrir nemendur og foreldra. Sértæk lesröskun Jónas G. Halldórsson sálfræðingur, sérfræðingur í taugasálfræði www.jgh.is Morgunblaðið/Árni Torfason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.