Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 34

Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 34
ÚR VESTURHEIMI 34 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ É G ER gamla kerling en hef samt alveg nóg að gera,“ segir hún á ís- lensku með bros á vör og biðst afsökunar á því að heimsóknin hafi orðið að vera árla dags því hún sé önnum kafin frá miðjum morgni. „Ég þarf að fara á fund í kvennanefnd kirkj- unnar og síðan að sinna ýmsum verkefnum. Ég keyri bara í dagsbirtu enda er það eðlilegt miðað við konu á mínum aldri en samt fer ég ekki lengur ein til Minneota. Nei, það geri ég ekki, því hættan er svo mikil, en ég hef sloppið nokkuð vel við árekstra og ekki fengið marga sektarmiða í umferðinni.“ Leola Arnason Josefson er glað- lynd kona, hreykin af íslenska upp- runanum og trú bandaríska föð- urlandinu, en hún fæddist í Minneota 12. nóvember 1918. Hún og Leifur Hofteig Josefson gengu í hjónaband 1942 og eignuðust þau tvö börn, Mark og Mary, en barna- börnin eru þrjú og barnabarnabörn- in sömuleiðis. Mark Leifur er kvæntur Kathleen Moores Josefson en eiginmaður Mary Leola er Ro- bert Mayo Pegram. Leifur Hofteig er látinn en Leola býr ein í fjölbýlis- húsi fyrir aldraða í Minneapolis. Við dyrnar að íbúðinni eru bandaríski fáninn og sá íslenski, en í íbúðinni sjálfri ber meira á íslensku tenging- unni, einkum í formi mynda og bóka. Og að sjálfsögðu býður hún upp á ís- lenskar smákökur og vínartertu. „Ég er ættuð úr Þingeyjarsýslu, skammt frá Húsavík, en afar mínir og ömmur fluttu vestur og ég fædd- ist í Bandaríkjunum þar sem ég hef búið alla tíð.“ Gott að alast upp í Minneota Foreldrar Leolu voru Margrét Ís- feld og Kristján V. Árnason og eign- uðust þau fjögur börn, tvo syni og tvær dætur, en annar sonurinn er látinn. „Pabbi vildi aðlagast bandaríska umhverfinu og breytti nafninu í Christian, en hann var í hernum og ég var sex vikna gömul, þegar hann sá mig fyrst. En það var mjög gott að alast upp í bændasamfélaginu í Minneota. Mjög gott. Þarna bjuggu meira en 1.000 manns af íslenskum ættum auk þess sem tvær íslenskar byggðir voru í nágrenninu. Fólk átti ekki endilega peninga, en það átti hlýju og nóg af henni. Við krakk- arnir vorum í faðmi samhentrar og ástkærrar stórfjölskyldu, þar sem voru foreldrar okkar, afar og ömm- ur, frændur og frænkur. Við fengum líka alltaf nóg að borða. Skólinn og lúterska kirkjan voru sérstakir stað- ir, miðpunktarnir í lífi okkar. Séra Guttormur Guttormsson fermdi mig og gifti og ég fékk góða undirbún- ingsmenntun í Minneota, en við krakkarnir vorum í íslenskutímum hjá séra Guttormi. Við vorum hreyk- in af íslenskum uppruna okkar og Aðalbjörg amma vildi ekki tala ensku. Hún vildi ekki gera nein mis- tök. Ó, nei. En mamma var af þeirri kynslóð sem vildi vera amerísk og svo fór að ég tapaði íslenskunni. Því miður. Það voru mistök og ég sé það betur núna, en ég skil samt mikið í málinu, tala svolítið og les íslensku þótt ég þurfi stundum að nota orða- bók. Íslenski uppruninn var alltaf í hávegum hafður og þegar ég fór í háskóla hér í Minneapolis gerði ég mikið úr því að ég væri íslensk. Um 35 árum eftir að ég útskrifaðist úr húsmæðraskólanum fórum við hjón- in í veislu og þar kom maður til mín og sagði: „Þú ert íslenska stúlkan sem varst með mér í háskólanum.“ Þetta þótti mér skemmtilegt, en ég á ekki margt skyldfólk í Minneota lengur enda ekki margir Íslendingar eftir á svæðinu. Í minni fjölskyldu var rík áhersla lögð á að koma ung- viðinu til mennta og þess vegna fluttu foreldrar mínir til Minneapolis þegar ég var komin á háskólaaldur. Hér hef ég verið meira eða minna síðan.“ Kemur víða við Nafn Leolu virðist alls staðar koma við sögu hvar sem borið er nið- ur í íslenska félagsstarfinu í Minneapolis. Hún hefur til dæmis verið ötull liðsmaður í Kvenfélaginu Heklu í meira en hálfa öld og var m.a. formaður félagsins um árabil. „Lífið var erfitt í kreppunni og þeg- ar íslenskar konur fluttu til Minnea- polis frá Minneota stofnuðu þær fé- lagið í þeim tilgangi að styðja hver aðra í lífsbaráttunni. Þetta byrjaði eins og saumaklúbbur en hann hefur stækkað og dafnað og látið margt gott af sér leiða, þótt starfsemin hafi dottið niður á milli. Við vorum til dæmis mjög áberandi á árlegri þjóðahátíð fyrstu helgina í maí þar sem við vorum allar í íslenskum kvenbúningi, svörtum og hvítum, og seldum kleinur, pönnukökur og vín- artertur sem vitlausar værum. Guð minn góður. Þá var nú hamagangur í öskjunni.“ Leola segir að þótt hún hafi byrj- að í Heklu með móður sinni hafi lengi verið erfitt að ná til unga fólks- ins en það sé að breytast. „Fyrst voru þetta kvöldfundir, síðan hádeg- isfundir og nú hittumst við klukkan 10 að morgni þriðja laugardag í hverjum mánuði, en þessi tími hent- ar ungu konunum betur. Í auknum mæli sjáum við dætur taka við af mæðrunum og það er gott.“ Leola er kirkjurækin og segist fara í kirkju á hverjum sunnudegi. Hún er í nefnd sem styður konur til mennta og útvegar ungum konum lán á góðum kjörum. Hún hefur ver- ið í stjórn Val Bjornson-sjóðsins frá byrjun eða í meira en tuttugu ár og verið íslenskum stúdentum í Minn- eapolis innan handar. Hún hefur líka sinnt norrænu samstarfi og verið í stjórn Skandinavísku miðstöðv- arinnar í Minneapolis, í stjórn nor- ræna félagsins í borginni og í stjórn Amerísk-skandinavíska sjóðsins í Minnesota í áratugi. „Svo reyni ég að fara á listasafnið reglulega til að drekka í mig menninguna eins og pabbi sagði að væri svo mikilvægt, spila bridds einu sinni í viku og horfi á fótbolta og íshokkíleiki í sjónvarp- inu, þótt ég eigi orðið erfitt með að sitja yfir heilum leik, en ég fylgist með úrslitum liðanna okkar hérna í borginni.“ Ísland mikilvægt Ekki fer á milli mála að Ísland skiptir Leolu miklu máli, en hún hef- ur sótt landið heim fjórum sinnum, 1972, 1982, 1992 og 1996. „Það var gaman að heimsækja Ísland en afar mínir og ömmur áttu ekkert val. Guðjón Guðmundsson, móðurafi minn, sem breytti föðurnafninu í Ís- feld hér vestra, og Aðalbjörg amma áttu sitt eigið land en það hvarf í ösku og ekki var um annað fyrir þau að gera en fara. Vegna bólusótt- arinnar tók amma ekki í mál að flytja til Nýja Íslands í Kanada en sættist á að fara til Minneota. Afi minn og amma í föðurætt, Ingjaldur Árnason og María Oddsdóttir, fluttu frá Múlasýslu ári síðar eða 1890 og settust fyrst að í Selkirk í Manitoba en færðu sig suður til Minnesota um aldamótin. Og hér hefur fjölskyldan búið í góðu yfirlæti í meira en öld.“ Aldurinn afstæður Hún er eins og þeytispjald en leggur samt áherslu á að hún hafi dregið svolítið í land með aldrinum. „Aldurinn er svo afstæður. Mamma dó til dæmis tæplega 98 ára og var mjög ern allt fram í andlátið. Ég hef oft sagt að ég held áfram að sinna ýmsum verkum meðan ég hef and- legt og líkamlegt þrek til þess en ég hef líka sagt við Mary, dóttur mína, að hún verði að taka í taumana þeg- ar ég fer að endurtaka sjálfa mig og verð farin að gleyma.“ Á fullu í félagsmálum Fyrir nokkrum árum ákvað Leola Arna- son Josefson að draga saman seglin eftir áratuga sjálfboðaliðastarf í þágu Íslend- inga og fólks af íslenskum ættum í Minneapolis í Bandaríkjunum. Steinþór Guðbjartsson tók hús á henni og fékk að heyra að þessi nær 85 ára kona er enn á fullu í félagsmálunum. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Leola Josefson hefur tekið á móti mörgum Íslendingum og bændur í bændaför 1987 gáfu henni þetta áritaða skinn. steg@mbl.is Leola Josefson með eina af sínum uppáhalds- myndum þar sem hún og Charles, bróðir hennar, eru með forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff. KVENFÉLAGIÐ Hekla í Minneapolis var stofnað 1925 og er elsta Íslendingafélagið í Bandaríkjunum, en fyrir nokkrum árum var annað Íslendingafélag stofnað í borginni, Ís- lensk-ameríska félagið, sem var stofnað 1995. „Fjórða kynslóðin er að koma inn í Heklu,“ segir Mary L. Josefson, vararæð- ismaður og driffjöður af þriðju kynslóð í starfinu, en Ann Slettum er forseti félagsins. Fundir eru haldnir mánaðarlega og farið er saman út að borða einu sinni í mánuði en Samkoma er helsta verkefni kvenfélagsins fyrir utan jólaball fyrir börnin. Samkoma var haldin í 78. sinn í apríl, þar sem íslenski hesturinn var aðalumræðuefnið. Félögin hafa sameiginlega hátíð í tengslum við þjóðhátíðardag Íslendinga og var Kór Ár- bæjarkirkju á meðal gesta á hátíðinni, sem að þessu sinni var haldin 14. júní, en Íslensk- ameríska félagið sér síðan um árlegt þorra- blót. Samstarfssamningur er milli Háskóla Ís- lands og Minnesotaháskóla og styrkja Íslend- ingafélögin sérstakan sjóð, Styrktarsjóð Val Bjornson, sem styrkir árlega a.m.k. einn nemanda í Minnesotaháskóla vegna náms við Háskóla Íslands og öfugt. Á þorrablótinu fyrr í vetur voru t.d. seld merkt glös og rann hagnaðurinn, 500 dollarar eða um 40.000 kr., í styrktarsjóðinn. Disa Hobbs er styrkþegi sjóðsins næsta skólaár. Foreldrar hennar eru Guðbjorg Ann og Howard Hobbs, en móðir hennar er fyrrverandi formaður Heklu. John S. Magnusson ræðismaður hefur starfað í Íslensk-ameríska félaginu frá stofn- un, en Barbara Gislason er núverandi forseti félagsins. „Það voru um 55 gestir á fyrsta þorrablótinu, en síðan hafa verið milli 150 og 200 gestir árlega,“ segir John, sem er ritari félagsins og sér um útgáfu fréttablaðsins Póstsins ásamt Jönu, konu sinni. John Ruthford ákvað í vetur að hrinda af stað hringborðsumræðum varðandi íslensk málefni og var fyrsta málið á dagskrá í byrj- un apríl sl., en þá hafði sr. Þór Hauksson framsögu um þorskastríðin. Íslendingafélögin í Minneapolis vinna náið saman og halda sameiginlega stjórnarfundi til að skipuleggja starfið, en á sameig- inlegum póstlista þeirra eru um 250 manns. „Við leggjum áherslu á að viðhalda íslenska samfélaginu hérna eins vel og við getum,“ segir Mary Josepson, sem var fulltrúi félag- anna á ársþingi Þjóðræknisfélags Íslendinga, sem fram fór í Edmonton fyrir skömmu. Elsta Íslendingafélagið í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Forvígismenn í Minneapolis. Frá vinstri Margrét „Maddý“ K. Arnar, John S. Magnusson, ræð- ismaður, Mary L. Josefson, vararæðismaður, og Örn Arnar, aðalræðismaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.