Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 37

Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 37 Elsku amma Þórey. Ég þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum sam- an í þessu lífi. Nú hefur þú fengið að hvílast. Nú líður þér vel uppi á himn- um hjá Guði sem gaf þér andann þeg- ar þú fæddist í þennan heim. Þú náðir því ekki alveg að verða 100 ára en mjög nálægt því varstu. Ég man þeg- ar þú hélst upp á 99 ára afmælið hvað þú varst fín og naust þess að vera með fjölskyldunni. Það var alltaf svo gott og notalegt að heimsækja þig. Þú bauðst alltaf upp á kökur og eitthvað gott að drekka. Þú hugsaðir mikið um að okkur yrði ekki kalt á höndum og fótum. Alltaf varst þú að prjóna og minnist ég stóru jólapakkanna sem voru fullir af sokkum og vettlingum. Ég man þann dag nú í vor þegar ég heimsótti þig í Sunnuhlíð, og var að tala um að þú yrðir 100 ára á þessu ári, hvað þú varst glöð og hlóst dátt. Mig langar til að kveðja þig með 23. Davíðssálmi. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Kveðja, Jónína Gísladóttir. Elsku besta langamma mín. Nú ertu farin frá okkur og þín er sárt saknað. Ég man alltaf eftir því þegar ég fór með mömmu og ömmu Jónu til þín á Ásbrautina, þá sast þú alltaf í fína stólnum þínum og varst að prjóna sokka eða vettlinga. Allir sokkarnar sem þú hefur gefið okkur eru alveg rosalega margir og fylla þrjá stóra geymslupoka hjá okkur, fyrir utan það sem er í fataskápnum. Þegar við komum til þín í heimsókn byrjaðir þú á því að leggja frá þér prjónana og fórst inn í eldhús og fannst handa okkur kökur og annað góðgæti því þú vildir alltaf að allir færu saddir og sælir frá þér. Það er nú samt gott að þú hafir fengið hvíldina góðu. Þitt barnabarnabarn Helga Lind. Góða langamma mín. Ég kom svo oft í heimsókn með mömmu minni og ömmu til þín í Sunnuhlíð. Þar þurfti ég að skoða margt og skreið um öll gólf og vakti mikla lukku hjá dval- argestum og starfsfólki. Þú varst allt- af svo glöð að sjá mig og ljómaðir öll af gleði. Þú þurftir alltaf að strjúka kollinn minn og sagðir svo „mikið ert þú með fallegt svart hár“. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Þinn Carlos Magnús. Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustundinni. Þú áttir góða, langa ævi, hefðir orðið 100 ára í desember. Ég var svo viss um að þú myndir halda upp á hundrað ára afmælið þitt hér hjá okkur, en Guð vildi fá þig til sín. Ég veit að þér líður vel og ert glöð að vera búin að hitta Bárð afa og Ágúst, litla drenginn þinn í himnaríki. Ég var svo stolt af því að eiga svona fullorðna, hlýja og góða ömmu. Ég og börnin mín, Jóna Draumey, Eiríkur Björgvin, Luis Gísli og Carlos Magn- ús eigum fullt, fullt af góðum, skemmtilegum minningum frá Ás- brautinni og Sunnuhlíð. Það var alltaf svo gott að sækja þig heim. Þú tókst okkur alltaf með hlýju og opnum örmum og kvaddir okkur með kossi, brosi og veifaðir til okkar úr dyragættinni þinni. Þú áttir alltaf gott með kaffinu og var allt tekið til sem til var á heimilinu og borðið fyllt af ljúffengum ömmukökum. Það skipti þig miklu máli að við fengjum nóg að borða og drekka áður en hald- ið var heim á leið. Ég man svo vel eftir mjúku, hlýju jólapökkunum frá þér en þar var að finna fallega vettlinga og sokka sem þú gerðir sjálf. Þú prjónaðir, fram á síðasta dag, svo mikið af fallegum sokkum, vettlingum og peysum. Þess- ir pakkar urðu mér mjög dýrmætir og sérstaklega á síðustu árum. Þér fannst það mjög merkilegt þegar ég var við nám í Bandaríkjun- um. Þú varst mjög stolt af barnabarni þínu og hvattir mig áfram með heilum hug, ég þakka þér fyrir þann stuðning sem þú sýndir mér. Mér fannst svo gaman að senda þér kort og pakka frá Ameríku því þú kunnir svo vel að meta þá. Alltaf frétti ég af því hvað glöð og þakklát þú varst og fannst innihaldið svo sérstakt. Við kveðjum þig með söknuði elsku amma. Ég, ásamt systrum mínum og frænkum bárum þig út úr kirkjunni eftir kveðjuathöfnina í Kópavogi. Það var sérstök lífsreynsla og veit ég að þú hefur verið stolt af kvennasveitinni þinni, en Bárði bróðir fannst þetta passa svo vel að við bærum þig. Þessu mun ég aldrei gleyma. Guð geymi þig, amma mín. Guðlaug. Ég á margar minningar um hana langömmu mína. Efst í huga mínum eru ullarsokkarnir sem þú gafst mér og systkinum mínum en þú prjónaðir svo mikið. Þegar ég átti heima í Ohio var oft kalt á veturna, þá var gott að fara í hlýju ullarsokkana sem þú prjónaðir. Vinum mínum fannst þess- ir íslensku sokkar flottir. Ég kveð þig elsku amma. Við þökkum fyrir ástúð alla indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Þinn Eiríkur Björgvin. Langmamma mín, ég man þegar þú gafst mér að borða. Ég fékk alltaf jólaköku með rúsínum og mjólk, það fannst mér gott. Þú varst svo góð að prjóna á mig ullarsokka sem héldu hlýju á fótunum mínum. Núna líður þér vel hjá Guði sem passar þig. Fögur er foldin, heiður er Guðs himinn, indæl pílagríms ævigöng. Fram, fram um víða veröld og gistum í Paradís með sigursöng. (Matt. Joch.) Þinn Luis Gísli. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pétursson.) Þú munt ávallt lifa í minningu minni elsku langamma. Guð geymi þig. Jóna Draumey. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGNÝ ÞORGRÍMSDÓTTIR, Ytri-Miðhlíð, Barðaströnd, andaðist á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar þriðju- daginn 24. júní. Unnur Breiðfjörð, Vilberg Guðjónsson, Edda Steingrímsdóttir, Ægir Einarsson, Jón Þ. Steingrímsson, Hugljúf Ólafsdóttir, Hörður Steingrímsson, Halldóra Jóhannesdóttir, Jóhann Steingrímsson, Ásta Jónsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN SIGRÍÐUR SIGURPÁLSDÓTTIR frá Steindyrum í Svarfaðardal, til heimilis í Urðarholti 3d, Mosfellsbæ, er lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju- daginn 17. júní, verður jarðsungin frá Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ þriðjudaginn 1. júlí kl. 13.30. Guðmundur Aldan Grétarsson og fjölskylda, Ingi Már Aldan Grétarsson og fjölskylda. Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALGERÐAR LAUFEYJAR EINARSDÓTTUR, Álftamýri 36, Reykjavík. Sólon R. Sigurðsson, Jóna V. Árnadóttir, Einar J. Sigurðsson, Sigurlaug Ottósdóttir. Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, CARL P. STEFÁNSSON, Lækjasmára 2, lést á heimili sínu fimmtudaginn 26. júní. Ásta Tómasdóttir, Níels Carl Carlsson, Inger Anna Lena Þ. Ericson, Stefán Carlsson, Rannveig Ásbjörnsdóttir, Jón Carlsson, barnabörn og langafabörn. Ástkær móðir okkar, SVANBORG ELINBERGSDÓTTIR frá Ólafsvík, Bólstaðarhlíð 48, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 26. júní sl. Útför hinnar látnu fer fram frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 11. júlí nk. kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð líknardeildar Landspítala. Fyrir hönd fjölskyldna okkar og annarra aðstandenda, Bergur Heiðar Birgisson, Birgir Örn Birgisson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, HREFNA JÓNSDÓTTIR, Aðalstræti 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 26. júní. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 7. júlí kl. 13.30. Rúnar Björgvinsson, Jóhanna Þórðardóttir, Garðar Björgvinsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Auður Björgvinsdóttir, Birna Björgvinsdóttir og barnabörn. Ástkær sonur minn, sambýlismaður, faðir, fósturfaðir, bróðir og mágur, HJÁLMAR STEINÞÓR BJÖRNSSON, Tangagötu 24, Ísafirði, verður jarðsettur frá Ísafjarðarkirkju þriðju- daginn 1. júlí kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysa- varnafélagið Landsbjörgu. Petólína Sigmundsdóttir, Rán Höskuldsdóttir, Hanna Rósa Hjálmarsdóttir, Björn J. Hjálmarsson, Hermann Andrason, Guðbjörg J. Björnsdóttir, Gróa Björnsdóttir, Erna S. Guðmundsdóttir, Tryggvi Guðmundsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Elín Rögnvaldsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR LÁRUSSON frá Heiði á Langanesi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti, Þórshöfn, fimmtudaginn 26. júní. Jarðarför auglýst síðar. Sæmundur Einarsson, Ragnheiður Valtýsdóttir, Lára Einarsdóttir, Einar Nikulásson, Anna Einarsdóttir, Jón Stefánsson, Ásta Einarsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Egill Einarsson, Sigurbjörg Einarsdóttir, Anleyg Petersen, Einar Valur Einarsson, Elísa Einarsdóttir, Ölver Guðnason, afabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.